Dagur - 06.01.1996, Side 15
UTAN LANDSTEINA
Laugardagur 6. janúar 1996 - DAGUR - 15
UMSJÓN: ELSA JÓHANNSDÓTTIR
h/ueðinum
Leikkonan COURTcNEY
COX, ein af aðalleik-
konum þáttanna
„Friends“, þykir vera uppstökk
með eindæmum. Við tökur á
þáttunum fara hin minnstu mis-
tök í taugamar á dömunni og
þolinmæði er líklega eitthvað
sem hún ekki þekkir. Dag einn
drógust tökur nokkuð á langinn
þar til leikkonunni var nóg
boðið og hvæsti hún að upp-
tökustjóranum: „Af hverju í
andsk... er ég ennþá að gaufa
hérna í þessu stúdíói, ég vil
komast heim!“ Öðru sinni
hreytti hún einhverju í auka-
leikkonu þáttanna og sú fór
grátandi út af sviðinu. í staðinn
fyrir að afsaka framkomu sína
mun Cox hafa sagt: „Á hvað
eruð þið að glápa? Það var ég
sem gerði þessa þætti að því
sem þeir eru og munið þið
það.“ Engu munaði að hún
flippaði alveg út þegar stefndi í
að hún myndi rnissa af stefnu-
móti við nýja kærastann, sem
mun vera enginn annar en leik-
arinn frægi Christian Slater. Nú
í haust sagði Cox, 31 árs, skilið
við fyrrverandi leðurblöku-
manninn Michael Keaton og
tók saman við hinn 26 ára
gamla Slater. Nýi kærastinn
segir hana vera að eyða orku
sinni og hæfileikum til einskis.
Hún ætti frekar að falast eftir
góðum kvikmyndahlutverkum
því annars væri hætt við að hún
yrði bara stimpluð sjónvarps-
stjama það sem eftir væri og
það myndi eyðileggja feril
hennar. Um þessar mundir er
hún brjáluð út í meðleikara
sinn Matthew Perry eftir að
hafa trúað honum fyrir því
hvað það væri ósanngjamt að
hún skyldi ekki ná í eftirsótt-
ustu kvikmyndahlutverkin.
Hann, besti vinur hennar, hugg-
aði hana - og sagði svo hinum
frá því hversu mikil vælu-
skjóða hún væri. Já, það er
vandlifað í stjörnuheiminum...
essir tveir eiga það sameiginlegt að vera gamanleikarar af lífi og
I 1 sál. BILLY CRYSTAL og MILTON BERLE heita þessir kappar og
J voru staddir á góðgerðarsamkomu þegar þeir brugðu á leik með
vindlana og þá náðist þessi kostulega mynd.
Fónnar fnægðinni
fyrin bönnin
Wýlega birtist viðtal í tímariti við leikkonuna vinsælu, MICHELLE
PFEIFFEft, en hún hefur verið að gera það einkar gott í kvikmynda-
bransanum að undanfömu. Myndin Dangerous Minds, sem nú er
til sýninga hér á landi, hefur notið feikna vinsælda en í henni fer Mich-
elle með hlutverk kennslukonu. Henni bauðst einnig hlutverk í söng-
leiknum Evitu, sem hún var afar spennt fyrir og var búin að undirbúa sig
talsvert þegar hún sá fram á að þessu tækifæri yrði hún að hafna. „Ég
vann eins og brjálæðingur og lagði mig alla fram, vann um leið við tökur
á Dangerous Minds, komin sex mánuði á leið og fór í söngtíma og
prufutökur, líka um helgar. Ég hafði mikinn áhuga fyrir að fá loksins að
syngja af einhverri alvöru. Hingað ti! hef ég ekkert þurft að vanda mig
neitt mikið við að syngja í öðrum myndum sem ég hef unnið að.“ (Sbr.
t.d. The Fabulous Baker Boys). Michelle á tvö böm, Claudiu 3 ára og
John 15 mánaða og er gift rithöfundinum David E. Kelley. Hún sá fram
á að þurfa að hafna þessu hlutverki því kröfurnar voru miklar eða eins
og hún segir sjálf: „Þetta var gífurlega erfið ákvörðun, en nú veit ég að
hún var sú eina rétta. Ég vil ekki að bömin mín minnist þess að hafa
leikið sér í stúdíói nr. 10 eða 12 eða hvað sem það nú er, frekar en að
hafa dúllað sér í garðinum heima með hundinn."
Nýjasta rnynd Michelle Pfeiffer er Up Close and Personal, þar sem
hún leikur á rnóti Robert Redford. „Hann er bara guðdómlegur, rnaður-
inn. Örlátur, fluggáfaður, einbeittur og lifir gjörsamlega fyrir það sem
hann er að gera. Traustur líka, eins og klettur." Já, já, ekkert smáræði
það. Aðspurð hvernig Redford er í kossalistinni svarar leikkonan: „Það
fer ég sko ekki að segja þér! Var einhver sem bað þig um að spyrja mig
að þessu? Fólk verður bara að sjá myndina. Jú, jú, við kyssumst alveg
helling en ekki orð um það meir.“ Svo bara roðnar hún og skiptir um
umræðuefni. „Að leika í Dangerous Minds átti hug minn allan. Ég tek
það enn og aftur fram að það er ekki bara ég sem held myndinni uppi,
heldur krakkarnir líka. Án þeirra væri þetta ekki neitt." Hún segir að
Muriel's Wedding hafi verið uppáhaldsmyndin sín í ár. „Svo fannst mér
líka Seven vera góð.“ (Aðalleikarinn er Brad Pitt). Að lokum segir leik-
konan fagra: „Það er alltaf fullt af öðrum tækifærum, það er nú ennþá
verið að búa til kvikmyndir í Los Angeles, svona við og við! Ég bara get
ekki verið að kvarta eða sjá eftir einhverju. Hvemig get ég það, ég hef
allt sem ég þarfnast.“
srr|ir
broour
smn
Söngkonan MATALIE COLE
kvelst af miklu saniviskubiti
um þessar mundir. Ástæðan er sú
að bróðir hennar, Nat Kelly Cole, var samkyn-
hneigður og hún vildi aldrei trúa því að svo væri, spurði hann hvemig hann
gæti gert fjölskyldunni þetta eða þá að kannski væri hann bara ekki búinn að
finna þá einu réttu. Nat Kelly veiktist síðan af alnæmi og það var ekki fyrr
en nokkrum vikum fyrir andlát hans að Natalie bað hann að fyrirgefa sér.
Hún komst að því að hann væri samkynhneigður kringum 1970 og þá hætti
hún alveg að hafa samband við hann. Þau komust þó ekki hjá því að hittast
stöku sinnum vegna fjölskyldunnar en sambandið var stirt. Þegar hún komst
svo að því að hann væri fárveikur og lægi fyrir dauðanum varð henni ljóst að
nú væri tíminn á þrotum og ákvað að heimsækja hann. Er hún sá bróður sinn
féll hún saman og grátbað hann um að fyrirgefa sér, sem hann og gerði. Nat
Kelly Cole lést svo 24. október sl„ 36 ára að aldri. Við jarðarförina var
Natalie svo harmi slegin að hún gat varla staðið í fætuma og eiginmaðurinn
Andre þurfti næstum að bera hana heim. Það var greinilegt að fleira lá að
baki en sorgin yftr missinum og það var að bera hana ofurliði. „Ég vildi óska
þess að hann gæti verið hjá mér aftur, þó það væri ekki nema í einn dag. Ég
var ósanngjöm og dæmdi hann ranglega. Én ég veit núna og trúi því að hann
fyrirgaf mér.“