Dagur - 06.01.1996, Side 20
D&QUIE
Akureyri, laugardagur 6. janúar 1996
Fimmfaldur _
I- vinningur /fflM
Fíkniefnamál hjá rannsóknarlögreglunni á Akureyri á síðasta ári:
Fjöldi mála meiri en
áður hefur þekkst
Fíkniefnamálum hjá rann-
sóknarlögreglunni á Akur-
eyri fjölgaði um helming á síð-
asta ári, miðað við fyrra ár.
Daníel Snorrason, yfirmaður
rannsóknarlögreglunnar, telur
að umfang þessara mála sé orðið
Dæmi um efni og tæki sem rann-
sóknarlögreglan hefur tekið af neyt-
endum. Eins og sjá má eru hasspíp-
ur jafnvel gerðar úr öldósum og
gosdrykkjauinbúðum. Mynd: BG
Geng ekki með for-
setann í maganum
Valdimar Guðmannsson, for-
maður Alþýðusambands
Norðurlands, sagði í Degi í gær
að hann teldi Kára Arnór Kára-
son, framkvæmdastjóra Lífeyris-
sjóðs Norðurlands, eiga víðtæk-
an stuðning norðanlands og
sennilega víðar í embætti forseta
ASÍ. Þing ASÍ verður haldið í
vor.
Sjálfur segist Kári ekki hafa
velt þessuni hlutum fyrir sér og
hann mest hafa frétt af þessum
áhuga manna í gegnum fjölmiðla.
„Það hefur kannski verið minnst á
- segir Kári Arnór Kárason
þetta í samtölum milli manna en
það er ekki meira en svo. Ég hef í
sjálfu sér ekki velt þessu fyrir mér
en það getur vel verið, ef áhugi er
fyrir hendi, að ég muni skoða hug
minn í því. En ég hef ekki séð
ástæðu til þess enn þá,“ sagði Kári
og neitaði því aðspurður að hann
„gengi með forsetann í maganum"1
eins og stundum er sagt. Þess má
geta að Kári Arnór var talsvert
orðaður við embættið þegar Bene-
dikt Davíðsson tók við af Ás-
mundi Stefánssyni fyrir nokkrum
árum. HA
það mikið að æskilegt sé að einn
starfsmaður hjá lögreglunni geti
alfarið helgað sig málaflokkn-
um.
„Tölumar segja í sjálfu sér ekki
allt því stundum getum við fengið
mál þar sem um lítið efni er að
ræða og marga aðila og líka mál
þar sem er mikið efni og fáir aðil-
ar sem koma við sögu. Mitt per-
sónulega mat er að til að hægt
væri að vinna markvisst að for-
vörnum í fíkniefnamálum og að
málaflokknum yfirleitt þá væri
æskilegt að hafa mann sem hefði
frið fyrir öðrum málum og gæti
unnið að fíkniefnamálum
eingöngu. Þessi mál eru allt öðru-
vísi en önnur mál því við þurfum
stöðugt að vera að safna upplýs-
ingum og hreinlega leita uppi
fíkniefnamálin," segir Daníel.
Lögreglumenn sjá breytingar í
fíkniefnaheiminum samfara fjölg-
un mála. Daníel segir fleiri teg-
undir efna koma við sögu en fyrir
nokkrum árum þegar nær
eingöngu var urn hass að ræða.
Amfetamínneyslan hefur aukist og
á síðasta ári náði lögreglan alsælu
í fyrsta sinn á Akureyri. „Mis-
notkun er einnig á róandi og örv-
andi lyfjum þar sem fólk er að
svíkja út lyf til að leysa upp og
sprauta sig. Það virðast vera fleiri
sprautufíklar en áður sem má
merkja af ásókninni í sprautur,"
segir Daníel.
Um aldur neytenda segir Daní-
el að áður hafi neytendur flestir
verið nálægt tvítugsaldri en dæmi
um annað sjást mörg í dag. „Núna
eru dæmi um 16 ára aldur og jafn-
vel yngra. Þess vegna er fyllsta
ástæða til að hvetja foreldra til að
vera á varðbergi og ástæða er til
að benda á símsvara okkar, 462-
1881, þar sem fólk getur hringt
inn upplýsingar án þess að segja
til nafns. Æskilegra er þó að fólk
ræði við okkur beint enda er
fyllsti trúnaður virtur,“ segir hann.
Afbrot sem beintengdust fíkni-
efnaneyslu voru framin á Akur-
eyri á árinu og Daníel bendir á að
á höfuðborgarsvæðinu sjáist æ
skýrari merki um afbrot sem eigi
sér rætur í fíkniefnaneyslunni.
„Þegar verið er að tala um fíkni-
efnavandann þá verður að hafa í
huga að þetta er mun víðtækara
heldur en neyslan. Þessu fylgir
óhamingja neytandans og fjöl-
skyldu hans, auðgunarbrot og lík-
amsmeiðingar.“
Daníel metur það svo að tjölg-
un fíkniefnamála sé þróun og árið
1995 hafi ekki verið afbrigðilegt á
nokkurn hátt. „Mér sýnist þessi
mál komin til að vera og ástandið
eigi eftir að versna enn. Ut frá því
verðum við að vinna.“ JOH
Húsavík:
Harður árekstur
Orkuveita Húsavíkur:
Veitur bæjarins voru sam-
einaðar um áramót
Orkuveita Húsavíkur tók til
starfa um áramót er Raf-
veita Húsavíkur, Hitaveita
Húsavíkur og Vatnsveita Húsa-
víkur voru sameinaðar í eitt fyr-
irtæki.
Ný reglugerð fyrir Orkuveitu
Húsavíkur, skammstafað OVH, var
staðfest hjá iðnaðarráðherra 19.
des. sl. Með breytingunum næst
fram rekstrarleg hagræðing. Ein
fjárhagsáætlun er gerð í stað
þriggja áður og einn ársreikningur.
O HELGARVEÐRIÐ
Bjarta og stillta veðrið yfir
hátíðirnar virðist nú vera á
undanhaldi og við tekur
vindur og væta. Veðurstof-
an spáir suðaustan strekk-
ingi og rigningu á laugar-
daginn og austanstrekkingi
og rigningu á sunnudag. Hiti
verður á bilinu 1-5 stig. Útlit
er fyrir svipað veður eitt-
hvað fram í næstu viku.
Öll yfirstjóm verður sameiginleg
svo og rekstur áhaldahúss, fast-
eigna, bifreiða og fjármagnskostn-
aður. Tekjum verður hinsvegar
haldið aðskildum eftir tegundum
orku og rekstur veitukerfanna er
sérgreindur þannig að auðvelt er að
sjá afkomu einstakra þátta, segir í
fréttatilkynningu frá veitustjóra,
Víglundi Þorsteinssyni.
Víglundur segir hlutverk OVH
það sama og fyrirtækjanna þriggja
áður: að afla raforku, hitaorku og
vatns, að veita og selja raforku og
hitaorku og að starfrækja vatns-
veitu.
Víglundur segir að almennir
notendur orku muni ekki verða
varir við miklar breytingar. OVH
muni kappkosta að veita bæjarbú-
um góða þjónustu og notendur
muni nú fá einn orkureikning sem
greinir notkun raforku og hita-
orku. IM
Hraðfrystistöð Þórshafnar:
Fyrsta loðna ársins
Hraðfrystistöð Þórshafnar
fékk í fyrradag fyrstu loðn-
una sem landað er á árinu. Um
200 tonn af sfld og loðnu bárust
úr skipinu Júpíter og um 80%
aflans er loðna.
„Við frystum mest af þessum
afla og þetta fer að stærstum hluta
í munneldi. Hvernig þetta verður
síðan verkað frekar er enn ekki
ákveðið," sagði Hilmar Þór
Hilmarsson hjá Hraðfrystistöð
Þórshafnar í samtali við Dag í
gærmorgun. Hann sagði að sem
sakir stæðu væri ekki von á meiri
loðnu í stöðina, en vonaðist þó til
að vel veiddist þannig að starf-
rækja mætti loðnuvinnsluna með
fullum afköstum. Fjölmörg skip
eru nú farin til loðnuveiða. -sbs.
Harður árekstur varð á Húsa-
vík um kl. 16 á fimmtudag
og var ökumaður annars bflsins
fluttur á sjúkrahús til skoðun
ar.
Báðir bílamir voru óökufærir
eftir áreksturinn og em mikið
skemmdir. Óhappið varð við mót
Stangarbakka og aðkeyrslu að Ol-
ísplaninu. IM
Skiptum lokið í
þrotabúi Kaup-
félags Norður-
Þingeyinga
Skiptafundur í þrotabúi
Kaupfélags Norður-Þing-
eyinga á Kópaskeri var hald-
inn hjá skiptastjóra, Birni
Jósepi Arnviðarsyni hdl.,
föstudaginn 29. desember sl.
Á skiptafundinum var fjallað
um frumvarp til úthlutunar-
gerðar úr þrotabúinu og var
engum mótmælum hreyft við
því og því var skiptum lokið á
grundvelli frumvarpsins.
KNÞ var lýst gjaldþrota á ár-
inu 1990. Af lýstum almennum
kröfum fengust greiddar
11,47%, en heildampphæð
lýstra krafna var 268 milljónir
króna og því fengust greiddar
um 30 milljónir króna. Áður var
búið að greiða umtalsverðar
upphæðir með sölu fasteigna
o.fl. á frjálsri sölu og á uppboð-
um. Málaferli urðu í kjölfar
gjaldþrotsins, sem var vegna
ágreinings urn forgangskröfur,
þ.e. við hvað skyldi miðað svo-
kallaðan frestdag og m.a. þess
vegna tafðist afgreiðsla málsins
verulega. GG