Dagur - 13.01.1996, Page 20
Verið viðbúin
vinningi! /é 'MmJ
© HELGARVEÐRIÐ
Veðurstofan spáir austlægri
átt, skýjuðu veðri og smá
slydduéljum norðanlands í
dag. Hiti verður um eða yfir
frostmark. Á morgun verður
hæg breytileg átt og léttir
heldur til en á mánudag er
von á vaxandi sunnanátt
um allt land, rigningu um
sunnan- og vestanvert land-
ið en ætti að haldast þurrt
fyrir norðan.
tsuzu Crew Cab
3.1 Diesei Turbo
Saab 9000 cs
Ope! ömega
Öpe! Astra
Vinsaelasíi
skutbíll Evrópu
Samiö um framkvæmdir á Melgerðismelum:
Náum að fram-
kvæma meira en við
þorðum að vona
- segir formaður framkvæmdanefndar
Framkvæmdanefnd Melgerð-
ismela hefur samið við Ara
B. Hilmarsson á Þverá í Eyja-
fjarðarsveit um framkvæmdir á
melunum vegna undirbúnings
fyrir Landsmót hestamanna
sumarið 1988. Vegna mjög hag-
stæðra tilboða í verkið náðist
samkomulag um mun meiri
framkvæmdir en áður voru
áætlaðar og samt sem áður er
verkið innan upphaflegu kostn-
aðaráætlunarinnar. Formaður
framkvæmdanefndarinnar segir
þetta þýða að aðstaðan verði
mun betri á Melgerðismelum en
aðstandendur mótsins hafi þor-
að að láta sig dreyma um.
Tveir meginþættir framkvæmd-
anna eru áhorfendasvæði og upp-
hækkun valla. Stefán Erlingsson,
formaður framkvæmdanefndar-
innar, segir að ætlunin hafi verið
að hækka vellina upp um 40 senti-
metra en þeir verði hækkaðir um
60 sentimetra. Ahorfendabrekkur
verða stærri en áður voru áætlanir
um og nær völlunum.
„Eg er mjög ánægður með
þetta. Við fáum með þessu miklu
betri áhorfendaaðstöðu en hún
hefur oft verið nefnd í gagnrýni á
þetta svæði. Með þessu verður sú
gagnrýni úr sögunni,“ sagði Stef-
án.
Ari var annar lægsti tilboðs-
gjafi í verkið en alls sendu 15 að-
ilar inn tilboð í útboðinu skömmu
fyrir jól. Verksamningur nú hljóð-
ar upp á rúmlega 2,2 milljónir
króna en kostnaðaráætlun í upp-
hafi, fyrir töluvert minna verk, var
2,5 milljónir. Framkvæmdir hefj-
ast strax í næstu viku og vonast
Stefán til að lagfæringu vallanna
verði lokið undir vorið. JOH
BilasynQ
laugardag og sunnudag frá kl. 14-17
Það hefur vakið óskipta athygli viðskiptavina byggingavörudeildar KEA við
Lónsbakka að í loftinu hangir flugvél, TF-KEA. Flugvélin var smíðuð af
Húni Snædal, flugumferðarstjóra, sem lengi flaug henni um loftin blá en nú
hefur flugvélinni verið lagt og hefur henni verið komið fyrir þarna, ekki síst
vegna nafnsins og eins var mestallt efni í hana fengið í byggingavörudeild-
inni. Innan tíðar verður sett upp tafla með upplýsingum um vélina, smíðaár,
vélarstærð, þyngd, flugtíma o.fl. GG/ Mynd: BG
KEA í lausu lofti í KEA
Lækkaö verð á
öllum nýjum
bílum í tilefni
flutnings
Bílheima hf. í
nýtt húsnæöi
Sértilbod með
öllum nýjum
bílum frá
Bílheimum hf.
Ar síðan SH vildi leita leiða með Akureyrarbæ til eflingar atvinnulífinu:
Ekki ánægður ef sælgæti
á að koma í stað umbúða
- segir Guðmundur Stefánsson, bæjarfulltrúi og formaður
atvinnumálanefndar Akureyrarbæjar
Stjórnarformaður Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna
(SH), Jón Ingvarsson, sagði í
bréfi til Bæjarstjórnar Akureyr-
ar 23. janúar 1995, eftir um-
ræðu um að hugsanlegt væri að
bæjarstjórn seldi hlut sinn í Út-
gerðarfélagi Akureyringa hf. og
tryggði jafnframt að sala á af-
urðum ÚA yrði flutt frá SH til
íslenskra sjávarafurða (ÍS), að
SH gerði sér ljóst mikilvægi
þess fyrir hagsmuni Akureyrar
að þar verði sköpuð skilyrði til
frekari efnahagslegrar upp-
byggingar sem leiði til eflingar
byggðarlagsins.
í bréfinu sagði ennfremur að
SH vildi leita leiða með Akur-
eyrarbæ til að skjóta fleiri stoð-
um undir atvinnulíf bæjarbúa;
m.a. mcð því að SH beitti sér
fyrir því að auka atvinnutækifæri
á Akureyri. M.a. var nefnt að
Umbúðamiðstöðin hf. stofnaði til
atvinnurekstrar til að annast um-
búðaframleiðslu; meirhluti
Slipppstöðvarinnar-Odda hf.
verði í eigu Jökla hf„ DNG og
Málningar hf.; Akureyri verði út-
flutningshöfn Norðurlands og
starfsemi Eimskipa eykst að
sama skapi; aukin verkefni vegna
viðkomu millilandaskipa. Sá
tjöldi starfa sem SH ætlaði með
bréfi stjómarformannsins að
tryggja voru; 31 starf með stofn-
un SH á Akureyri, 38 störf með
stofnun fyrirtækis um umbúða-
vinnslu, 10 störf með flutninga-
miðstöð Eimskips og 1 starf með
starfi prófessors við sjávarút-
vegsdeild Háskólans á Akureyri í
markaðsfræðum og hefur sá
samningur verið undirritaður og
eins hefur starfsemi markaðs-
deildar verið flutt norður en
henni tengjast meðal annars eftir-
litsmenn.
Guðmundur Stefánsson, bæj-
arfulltrúi og fonnaður atvinnu-
málanefndar, segir að nefndar-
menn hafi fylgst með framgangi
málsins og efndum og sér finnist
að ekki liafi verið staðið við öll
loforð sem fram komi í bréfi
stjórnarformanns SH, og það sé
einnig skoðun SH-manna.
„Þeir eru búnir að gera ýmis-
legt af því sem þeir ætluðu að
gera og ég ætla ekki halda öðru
fram en að loforðin verði efnd.
Sölumiðstöðin gaf ákveðin lof-
orð, sumt hefur verið efnt, annað
á eftir að efna og í Ijósi umræðna
að undanfömu, m.a. um að Um-
búðamiðstöðin komi ekki norður,
óska ég eftir fundi með þeim í
bæjaráði. Mér finnst það t.d. ekki
ljóst að hluti starfsemi Umbúða-
miðstöðvarinnar hf. komi ekki
norður eins og margir álíta og
jafnvel fullyrða. Það kann að
verða endurskoðað en þá vil ég
fá að vita hvað kemur í staðinn.
Það er mjög erfitt að fella dóm á
grundvelli umræðna og blaða-
skrifa og eðilegra að setjast niður
og ræða málin. Ef sælgætisgerð-
in á að koma í stað umbúðapakk-
ans verð ég ekki ánægður,“ sagði
Guðmundur Stefánsson bæjar-
fulltrúi. GG
v-
BSV
V________
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar
Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 461 2960