Dagur - 03.02.1996, Blaðsíða 17

Dagur - 03.02.1996, Blaðsíða 17
Laugardagur 3. febrúar 1996 - DAGUR - 17 Smáauglýsinc/ar Þjónusta Grásleppuleyfi Messur Samkomur Samkomur nicmgcmiiigdi, leppíiMremsun, þvottur á rimlagardínum, leysum upp gamalt bón og bónum. Tökum að okkur hreingerningar, teppahreinsun og bón í heimahús- um og fyrirtækjum. Þvoum rimlagardínur, tökum niður og setjum upp. Fjölhreinsun, heimasími 462 7078 og 853 9710.___________ Ræstingar - hreingerningar. Fyrir einstaklinga og fyrirtæki. • Daglegar ræstingar. • Bónleysing. • Hreingerningar. • Bónun. • Gluggaþvottur. • „High speed' bónun. • Teppahreinsun. • Skrifstofutækjaþrif. • Sumarafleysingar. • Rimlagardínur. Securitas. Opið allan sólarhringinn s: 462 6261. Hreinsið sjálf. Leigjum teppahreinsivélar. Hjá okkur færðu vinsælu Buzil hreinsiefnin. Teppahúsið, Tryggvabraut 22, sími 462 5055. Bílar og búvélar Bílar-Búvélar árg. 1996. Suzuki Swift, verö frá 940 þús. Suzuki Baleno, verð frá 1.048 þús. Suzuki Vitara jeppi, verð frá 1.795 þús. Steyr 4WD dráttarvélar með mikl- um staðalbúnaði og 3 ára ábyrgð. Verð 1.980 þús. BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 6300. Fatnaður Max kuidagallar á alla fjölskyld- una. Hagstætt verð. Einnig aðrar gerðir. Sandfell hf„ Laufásgötu, sími 462 6120. Opið virka daga frá kl. 8-12 og 13- 17. Húsfélög, einstaklingar athugiö! Framleiðum B-30 eldvarnahurbir, viburkenndar af Brunamálastofnun ríkisins, í stigahús og sameignir. Cerum fast verbtilbob þér ab kostnabarlausu. ísetning innifalin. Alfa ehf. trésmibja. Líkkistur Krossar á leiÓi Legsteinar íslensk framleiðsla EINVAL Óseyri 4, Akureyri, sími 461 1730. Heimasímar: Einar Valmundsson 462 3972, Valmundur Einarsson 462 5330. Uppl. í sfma 451 3346. Bólstrun Húsgagnabólstrun. Bílaklæðningar. Efnissala. Látið fagmann vinna verkið. Bóistrun Einars Guðbjartssonar, Reykjarsíða 22, sími 462 5553. Bólstrun og viðgerðir. Áklæði og leðurlíki í miklu úrvali. Vönduð vinna. Visa raðgreiðslur. K.B. bólstrun, Strandgötu 39, sími 462 1768.___________ Klæði og geri við húsgögn fyrir heimili, stofnanir, fyrirtæki, skip og báta. Áklæði, leöurlíki og önnur efni til bólstrunar I úrvali. Góöir greiðslu- skilmálar. Vfsaraðgreiöslur. Fagmaður vinnur verkið. Leitið upplýsinga. Bólstrun B.S. Geislagötu 1. Akureyri. Sími 462 5322, fax 461 2475. Fundir □ HULD 5996257 VI 2. Takið eftir Frá Sálarrannsóknafélag- inu á Akureyri. María Sigurðardóttir miðill verður með opinn skyggnilýsingafund í Lóni v/Hrísalund sunnudaginn 4. febrúar kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Sigurður Geir Ólafsson miðill mun starfa hjá félaginu 5.- 11. febrúar. Tfmapantanir laugardaginn 3. febrúar frá kl. 13.30-16 í síma 462 7677 og 461 2147. Munið ókeypis heilun alla laugar- daga frá ki. 13.30-16. Stjórnin. Lciðbeiningastöð heimilanna, sínii 551 2335. Opið frá kl. 9-17 alla virkadaga, Innréttingar L=> /R 3T TT5C & Framleiðum Eldhúsinnréttingar. Baðinnréttingar. Fataskápa. Gerum föst verðtilboð. Greiðsluskilmálar. Parket í miklu úrvali. Sýningarsalur er opinn frá kl. 9-18 mánudaga-föstudaga. w Dalsbraut 1 • 600 Akureyri Sími 461 1188 • Fax 461 1189 Jlu Kaþólska kirkjan, jUJfj] Eyrarlandsvegi 26, Akureyri. Messa laugard. 3. feb. kl. 18. Messa sunnud. 4, feb. kl. II. Akureyrarkirkja. Laugardagur 3. febrúar. Hádcgistónleikar í Akur- eyrarkirkju kl. 12. Léttur hádegisverður í Safnaðarheimili eftir tónleika. Sunnudagur 4. febrúar. Sunnudagaskóli í kirkjunni kl. 11. Munið kirkjubílana! Messa í Akureyrarkirkju kl. 14. Kór Akureyrarkirkju syngur. Vöílu- kaffi selt f Safnaðarheimili eftir messu á vegum kvenfélags Akureyrarkirkju. S.A.J. Ath. Öldruðum boðinn akstur að og frá Akureyrarkirkju nú á sunnudaginn. Rúta fer frá Víðilundi kl. 13.40 og kernur við á Hlíð í leiðinni til kirkjunn- ar. Farin verður sama leið til baka og lagt af stað frá kirkjunni kl. 16 þannig að fólki gefist kostur á að drekka messukaffi, Æskuiýðsfundur í kapcllunni ki. 15.30. Allir unglingar hjartanlega vel- komnir! Mánudagur 5. febrúar. Bibiíulestur í Safnaðarheimilinu kl. 20.30. ___________________________ 1 Glerárkirkja k i; Laugardagur 3. febrú- ar. , Biblíulestur og bæna- stund verður í kirkiunni kl. 13. Þátttakendur fá afhent stuðningsefni sér að kostnaðarlausu. Allir velkomnir. Sunnudagur 4. febrúar. Fjölskylduguðsþjónusta verður í kirkj- unni kl. 11. Bamakór kirkjunnar syngur. Foreldrar eru hvattir til að fjölmenna með böm- um sínum. Fundur æskulvðsfélagsins verður kl. 20. Athugið breyttan fundartíma. Sóknarprestur.___ Laufássprestakali. \Kyrrðar- og bænastund í 9SvaIbarðskirkju nk. sunnu- dagskvöld 4. febrúar kl. 21. Sóknarprestur. Möðruvaliaklausturskirkja. Sunnudagur 4. febrúar. Barnasamkoma verður í kirkjunni kl. 11. Foreldrar em hvattir til að koma með börnum sínum. Allir velkomnir. Messa verður í kirkjunni kl. 14. Sr. Gunnlaugur Garðarsson. Dalvíkurkirkja. Messa sunnudaginn 4. febrúar kl. 11. Sóknarprestur Urðakirkja. Barnamessa sunnudaginn 4. febrúar kl. 14. Sóknarprestur. Hvammstangakirkja. Fjölskylduguðsþjónusta verður í Iivammstangakirkju sunnudaginn 4. febrúar kl. 14. Sunnudagaskólinn á Blönduósi kemur í heimsókn með bamafræðurum sínum og presti, sr. Árna Sigurðssyni. Kristín Bögeskov, djákni, aðstoðar við helgihaldið, auk barnafræðaranna á Hvammstanga, Guðrúnar Jónsdóttur og Laum Ann-Howser. Bamakór grunnskólans á Hvanimstanga syngur, auk kirkjukórsins, undir stjórti Helga 5. Ólafssonar organista. Eftir guðsþjónustuna verður almennt kirkjukaffi í Félagsheimilinu þar sem sungið verður áfram eins og í kirkj- unni. Yfirskrift dagsins er „Vináttan og orð Guðs f Biblíunni". Prestur er sr. Kristján Bjömsson. FRIMERKJASAFNARAR! Fundur fyrir frímerkjasafnara verður í Grunnskólanum í Hrísey laugardaginn 3. febrúar kl. 15.30. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10. Sunnud. 4. feb. kl. 13.30. 1 Sunnudagaskóli. Kl. 19.30. Bænasamkoma. Kl. 20. Almenn samkoma. Erlingur Níelsson talar. Mánud. 5. feb. kl. 16. Heimilasam- band. Miðvikud. 7. feb. kl. 17. Krakka- klúbbur. Fimmtud. 8. feb. kl. 20.30. Biblíulest- ur. Allir velkomnir. SJÓNARHÆÐ HAFNARSTRÆTI 63 Sunnudagur: Sunnudagaskóli í Lund- arskóla kl. 13.30. Foreldrar, hvetjið böm ykkar til að koma. Almenn samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Allir innilega velkomnir. Mánudagur: Bamafundur kl. 18. Öll böm velkomin! Þau börn sem hafa verið við Ástjöm em sérstaklega hvött lil að koma. HVÍTASUmUKIRKJAn V/5KARÐ5HLÍÐ Laugard. 3. feb. kl. 20.30. Samkoma í umsjá unga fólksins. Sunnud. 4. feb. kl. 11. Safnaðarsam- koma. (Brauðsbrotning). Kl. 15.30. Vakningasamkoma. Samskot tekin til kirkjunnar. Mikill og fjölbreyttur söngur. Allir era hjartanlega velkomnir. Vonarlínan, sími 462 1210._____ KFUM & KFUK, " Sunnuhlíð. ' Sunnudagur kl. 20.30. Samkoma. Ræðumaður Jóhannes Ingibjartsson. Samskot til starfsins. Allir hjartanlega velkomnir. Reiki Já... en ég nota nú yfirleitt beltiö! iJUMFERÐAR l&% jíólnn"fA'nn-\ Frá Reikifélagi Norð- urlands. . . , Fundur verður sunnu- daginn 4. febrúar kl. 20.30 í Bamaskóla Akureyrar (gengið inn að austan). Gestur kvöldsins verður Bergur Bjömsson Reikimeistari. Allir sem lokið hafa námskeiði í Reiki velkomnir. Stjórnin. Iðanarráðuneytid í samstarfi við sjóði og stofnanir: Blásið til átaks til atvinnusköpunar - ætlunin að tryggja skilvirkan stuðn- ing við lítil og meðalstór fyrirtæki Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Iðnlánasjóður, Iðnþróunarsjóður og Iðntæknistofnun hafa undirrit- að samning um Atak til atvinnu- sköpunar. Því er, eins og nafnið gefur til kynna, ætlað að styðja við atvinnuskapandi verkefni á vegum fyrirtækja og einstaklinga en um leið eru stuðningsaðgerðir þeirra sem að því standa sam- ræmdar og með því reynt að nýta til fullnustu það fé sem til verk- efnanna fer. Hlutverk þessa átaks verður að tryggja markvissan og skilvirkan stuðning við lítil og meðalstór ís- lensk fyrirtæki. Einnig frum- kvöðla sem starfa í eigin nafni. Markmiðið er að efla frjóa hugs- un, auka atvinnu og sköpun verð- mæta og bæta samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og frum- kvöðla. Einnig að tryggja há- marksnýtingu þess íjár sem til slíkra verkefna er varið af hálfu þcirra sem að átakinu standa. Undir átakið falla fjöldamörg verkefni, bæði þau sem byggja á reynslu og einnig ný verkefni sem ekki hafa áður verið reynd hér á landi. Meðal þekktra verkefna eru Vöruþróun, Snjallræði og Frum- kvæði/framkvæmd en meðal þeirra nýju verkefna sem nú er ráðist í er Innflutningur fyrirtækja, Rauði þráðurinn, Evrópumiðstöð lítilla og meðalstórra fyrirtækja, Frumkvöðlastuðningur o.fl. Meðal þeirra sem koma að verkefninu með einum eða öðrum hætti, auk framangreindra eru Fjárfestingaskrifstofa viðskipta- ráðuneytisins og Utflutningsráðs, Byggðastofnun, atvinnuráðgjafar um allt land og fleiri. Stjórn hefur verið skipuð fyrir átakið og skipa hana þeir Ámi Magnússon, aðstoðarmaður iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, sem er formaður. Aðrir í stjóminni eru Öm Gústafsson fyrir Iðnlánasjóð, Snorri Pétursson fyrir Iðnþróunar- sjóð, Helgi Magnússon fyrir Sam- tök iðnaðarins og Rúnar Bachman fyrir hönd Alþýðusambands ís- lands. JÓH Athugasemd Vegna fréttar í Degi nýlega um forsetaframboð vill Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður taka fram að hann hafi aldrei leitað eftir stuðningi Guðmundar J. Guð- mundssonar, formanns Dagsbrún- ar, einsog sagt var í fréttinni. Segir Ólafur að þeir hafi aldrei talað um þessi mál - og segist Ólafur reynd- ar hvergi hafa leitað eftir stuðningi til embættis forseta. -sbs. Móttaka smáauglýsinga er til kl. 11.00 f.h. daginn fyrír útgáfudag. -nr 462 4222 Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA ANNA MAGNÚSDÓTTIR, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. febrúar. Garðar B. Ólafsson, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.