Dagur - 03.02.1996, Blaðsíða 3
FRETTIR
Laugardagur 3. febrúar 1996 - DAGUR - 3
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
Þjónusta talmeinafræðinga
Bæjarráð samþykkti sl.
fimmtudag að ábyrgjast
greiðslu kostnaðar allt að kr.
500 þúsund vegna þjónustu
talmeinafræðinga við börn á
leikskólaaldri. Samþykkt þessi
er tímabundin og gildir þar til
niðurstaða er fengin úr viðræð-
um, sem nú fara fram um þetta
mál, milli menntamálaráðu-
neytisins og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga. Þessi
upphæð skal tekin af óskiptri
fjárveitingu til gjaldfærðs
kostnaðar vegna leikskóla.
Skjaldarvíkurakstur
Bæjarráð tók aftur fyrir 8. lið í
fundargerð bæjarráðs frá 11.
janúar sl. sem bæjarstjórn vís-
aði aftur til bæjarráðs. Bæjar-
ráð heldur sig við fyrri sam-
þykkt sína, að gengið verði til
samnings við lægstbjóðanda.
Samningur verði gerður til
eins árs og lagður fyrir bæjar-
ráð til staðfestingar.
Vinabæjamót í Alasundi
Með bréfi dags. 18. janúar og
lagt var fram t' bæjarráði sl.
fimmtudag býður bæjarstjóm-
in í Álasundi í Noregi til vina-
bæjamóts í Álasundi dagana
27. til 30. júní næstkomandi.
Tilnefning í viðræðunefnd
um Landsvirkjun
Bæjarráð samþykkti að tilefna
Jakob Bjömsson og Sigurð J.
Sigurðsson í viðræðunefnd
eignaraðila að Landsvirkjun
um endurskoðun á eignarhaldi,
rekstrarformi og hlutverki fyr-
irtækisins.
Strandgata 17 og
Glerárgata 5
Með bréfi til bæjarráðs undir-
rituðu af Sveinbirni Jónssyni
og Halldóri Jónssyni f.h. Ingi-
bjargar Halldórsdóttur, eig-
anda að fasteignunum Strand-
götu 17 og Glerárgötu 5, er
óskað eftir viðræðum við bæj-
aryfirvöld um stöðu þessara
eigna. Bæjarlögmanni og
byggingafulltrúa var falið að
ræða við bréfritara.
Leiga á húsnæði og tækjum
Úrvinnslunnar
Kynntur var samningur, sem
Úrvinnslan hf. hefur gert við
Endurvinnsluna hf. um tíma-
bundna leigu á húsnæði og
tækjum fyrirtækisins frá 1.
febrúar til 31. desember 1996.
Bæjarráð gerir ekki athuga-
semdir við samninginn. Ekki
liggur fyrir liver aukakostnað-
ur Sorpsamlags Eyjafjarðar
b.s. vegna samningsins verður.
Ekki er gert ráð fyrir slíkum
aukakostnaði í fjárhagsáætlun.
Niðurrif á Ráðhússtíg 8
Bæjarráð hefur samþykkt að
tillögu bæjarverkfræðings að
rífa húseignina Ráðhússtíg 8,
en þessi húseign er laus úr
leigu.
Á myndinni hér að ofan sjást
þátttakendur á námskeiðinu með
hunda sína. Á innfelldu myndinni
er svo Þórarinn Geir með Sceffer-
hundinn Tomma, sem var þjálfað-
ur á námskeiðinu um helgina.
- sbs/Myndir:- sbs
Hundaþjálfun
í Svarfaðardal
Um síöustu helgi var haldið í
Svarfaðardal grunnnámskeið
fyrir björgunarhunda og fylgd-
armenn þeirra. Björgunar-
hundasveit Islands stóð fyrir
námskeiðinu og voru leiðbein-
endur á vegum sveitarinnar,
þau Sólveig Smith í Reykjavík
og Kristján B. Guðmundsson á
fsafirði.
Á þessu námskeið fengu tíu
hundar víðsvegar af Norðurlandi
þjálfun. Að sögn Þórarins Geirs
Gunnarssonar í Hofsárkoti í
Svarfaðardal, sem skipulagði
námskeiðið, er hægt að þjálfa
hunda af hvaða tegund sem er til
leitar- og björgunarstarfa, svo
framarlega að hundurinn hafi
burði til að starfa við erfiðar að-
stæður. Má geta þess að á nám-
skeiðinu um síðustu helgi voru í
þjálfun tveir hundar af hinu róm-
aða íslenska fjárhundakyni.
Menn eru fremur
ráðalitlir til lausnar
vanda fiskvinnslunar
- segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis
Sjávarútvegsnefnd Alþingis var
nýlega á ferð um Norðurlands-
kjördæmi eystra og heyrðu
nefndarmenn þá hver staða
fiskvinnslunar í landi er um
þessar mundir. Steingrímur J.
Sigfússon, formaður sjávarút-
vegsnefndar Alþingis, segir að
nefndarmenn hafi heyrt á þeim
mönnum sem stundi hefðbunda
fiskvinnslu í landi, fyrst og
fremst bolfiskvinnslu, að staðan
er mjög erfið. Steingrímur segir
að ástandið sé einnig erfitt hjá
þeim sem vinni fiskinn í neyt-
endapakkningar eða beint á
stórmarkaði, eins og t.d. á Dal-
vík.
Heildarafii togarans Brettings
NS-50 frá Vopnafirði var 1.620
tonn á árinu 1995 eftir 249 út-
haldsdaga. FOB-verðmæti afl-
ans var kr. 232.597.000.
Tvö skip voru gerð út á árinu
1995 með nafninu Eyvindur
Vopni NS-70. Hið fyrra var gert
út til vors en þá selt á suðvestur-
horn landsins og í staðinn var
keyptur togarinn Drangey frá
Sauðárkróki. Afli „fyrri“ Eyvindar
„Margir viðmælenda okkar
bentu á tiltölulega lágt raungengi
og litla verðbólgu sem einn or-
sakaþátt en það er ljóst að það á
ekki mikinn hljómgrunn að fara
t.d. í gengisbreytingar því hér er
um tiltölulega afmarkaðan vanda
að ræða, bundinn þessari atvinnu-
grein. En það er ljóst að haldi
þetta ástand áfram mun það hafa
alvarlegar afleiðingar í för með
sér. Sumir hafa sagt að gerist ekk-
ert í þeirra málum muni þeir fara
að draga úr vinnslu eins og fram-
ast er unnt, jafnvel loka frystihús-
um, segja upp starfsfólki og jafn-
vel færa vinnsluna út á sjó. Einnig
mun gámaútflutningur væntanlega
Vopna NS var 552 tonn eftir 98
úthaldsdaga og aflaverðmæti kr.
34.596.000. „Seinni" Eyvindur
Vopni NS hafði 162 úthaldsdaga
og heildaraflinn á þeim tíma 751
tonn. Hluti aflans var settur í
gáma og seldur erlendis, eða fyrir
kr. 38.566.00 en innanlandssala
nam kr. 28.666.000. Heildarafli
togara Tanga hf. á Vopnafirði
nam því 2.923 tonnum á sl. ári.
GG
aukast.
Það greiðir enginn til lengdar
milljónatugi með venjulegu frysti-
húsi jafnvel þó það sé mögulegt
tímabundið vegna hagnaðar í öðr-
um greinum. Þetta ástand dregur
dilk á eftir sér, fyrr en seinna, ef
engar breytingar verða á ástand-
inu. Ríkisstjómin hefur verið að
kynna sér þennan vanda og for-
svarsmenn Samtaka fiskvinnslu-
stöðva hafa rætt við ráðherra en
það er ekkert í gangi til lausnar
vandanum. Því gátu nefndarmenn
sjávarútvegsnefndar ekki gefið
neinum svar þar að lútandi og því
frekar vísað til þeirra sem með
efnahagsmál þjóðarinnar fara.
Þetta er svolítið sérkennilegt
ástand þegar afkoman er svona
góð í öðrum greinum og því ættu
fyrirtækin allt eins að glíma við
vandann sjálf. Eg viðurkenni að
mér finnst menn vera fremur ráða-
litlir til lausnar þessum vanda
vegna þess að hinar hefðbundnu
skýringar eiga ekki við. Kannski
bíða menn aðgerða stjómvalda,“
segir Steingrímur J. Sigfússon, al-
þingismaður.
Steingrímur segir að ef þorsk-
aflaheimildir verði auknar muni
það laga stöðuna eitthvað, en
margir séu að vinna sig út úr
vandanum án þess að til lokunar
komi en ljóst sé að ekki verði
haldið áfram taprekstri til lengri
tíma, slíkt sé háskalegt. GG
Togarar Tanga hf. á Vpnafiröi:
Veiddu tæplega 3000 tonn
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Telur
mikilvægt
að fá bundið
slitlag á
Kísilveginn
Bæjarstjórn Húsavíkur hefur
ályktað um það að mjög inikil-
vægt sé að byggja um leiðina
milli Austurlands og Norður-
lands en slík uppbygging megi
ekki verða til þess að úr öðrum
vegaframkvæmdum dragi í hér-
aðinu.
Bæjarstjóm Húsavíkur telur
það afar mikilvægt að vegna flutn-
ings á afurðum Kísilgúrverksmiðj-
unnar í Mývatnssveit, þ.e. kísil-
gúrs, og umferðar um Húsavíkur-
höfn því samfara, að slitlag verði
lagt á Kísilveginn sem allra fyrst,
þ.e. þjóðveg nr. 887, Mývatnsveg.
Á þetta hefur bæjarstjómin lagt
áherslu undanfarin fimm ár og
hefur m.a. stuðning samgönguráð-
herra í málinu.
„Við teljum skynsamlegt að
þjóðvegur 1 liggi um Köldukinn
yfir Laxá hjá Laxamýri og síðan
um Kísilveginn til Mývatnssveitar
enda umdeilanlegt hvað hringveg-
urinn um landið á að vera krappur.
Það mætti svo sem búa til hring-
veg kringum Hofsjökul og segja
sem svo að þar sé hringvegur um
landið og það má til sanns vegar
færa. Það þarf hins vegar ekki að
fara með hringveginn alla leið
niður að Laxamýri, það væri hægt
að fara út fyrir Garðsnúp og upp
hjá Laxárvirkjun um Hvamma og
þaðan upp á Kísilveg milli Langa-
vatns og Geitafells. Vegur um
Fljótsheiði er verulegur farartálmi
og verður það ugglaust áfram
vegna snjóþyngsla á heiðinni,"
sagði Einar Njálsson bæjarstjóri.
GG
Jafnréttisráó:
Skipar nýja
karlanefnd
Jafnréttisrúö hefur skipaö
nýja karlanefnd, en niikil og
almenn ánægja var með störf
fyrri karlanefndar.
í nýju karlanefnd Jafnréttis-
ráðs eru Einars Sveinn Áma-
son, menntamálaráðuneytinu,
Hjörleifur Sveinbjömsson,
fræðslufulltrú BSRB, Karl
Steínar Valsson, embætti lög-
reglustjóra, Sigurður Snævanr,
Þjóðhagsstofnun, og Sigurður
Svavarsson, framkvæmdastjóri
Máls og menningar.
Hlutverk karlanefndar er að
virkja krafta í jafnréttisumræð-
unni og vinnunni að jafnrétti
kynja. Á skipunartíma sínum
skal nefndin m.a.:
1. Taka saman upplýsingar um
möguleika k.ula til fullrar
þátttöku í tjölskyldu- og at-
vinnulífi svo og viðhorfa
þeirra til jafnréttismála.
2. Athuga stöðu karla í skóla-
kerfinu, bæði drengja í
skólakerfinu og karlkennara.
3. Vera Jafnréttisráði til ráð-
gjafar um málefni er snerta
stöðu karla og jafnrétti kynj-
anna.
4. Fylgja eftir starfi fyrri karla-
nefndar sérstaklega varðandi
ofbeldi og fæðingarorlof.
óþh