Dagur - 13.04.1996, Blaðsíða 2

Dagur - 13.04.1996, Blaðsíða 2
IBBBBBBBBBBBI 2 - DAGUR - Laugardagur 13. apríl 1996 FRÉTTIR Uppsetning á anaabrú Starfsmenn Véla- og stálsmiðj- unnar á Akureyri vinna þessa dagana að uppsetningu brúar á rifinu framan við skemmtistað- inn Við Pollinn. Með brú þessari myndast skemmtileg gönguleið frá Oddeyrarbryggju inn á Strandgötu og þaðan áfram upp í miðbæ, en innan rifsins verður til skemmtilegur andapollur. „Þessi framkvæmd kemur skemmtilega út,“ sagði Guð- mundur Sigurbjörnsson, hafnar- stjóri, í samtali við Dag. Að sögn Guðmundar eiga starfsmenn Véla- og stálsmiðjunnar að ljúka sínum verkþætti við þessa fram- kvæmd í lok þessa mánaðar, en þá er eftir að leggja malbik á rif- ið og setja þar upp lýsingu. -sbs. qS|J!Jl Fræðslufulltrúi Akureyr- gjlÍlf arbæjar og Verkalýðs- félagið Eining auglýsa Sérhæfni- námskeið fyrir ófaglært starfsfólk sem vinnur að- hlynningarstörf í öldrunarþjónustu og á leikskólum. Námskeiðið er 100 kennslustundir og hefst fimmtudaginn 18. apríl nk. og lýkur 3. maí. Kennsla fer fram í Einingarsalnum, á 2. hæð Al- þýðuhússins, kennt er alla virka daga frá kl. 8.15 til 15.40, tvo eftirmiðdaga frá kl. 17 til 20 og tvo laugardaga. Námskeiðið verður aðeins haldið ef næg þátttaka næst. Ekki verða teknir fleiri en 20 nemendur (10 frá hvorri deild) og skilyrði er að viðkomandi hafi lokið kjarnanámskeiði og valgreinanámskeiði. Ef fleiri en 20 sækja um mun þjónustualdur við Akur- eyrarbæ ráða því hverjir komast að. Samkvæmt samningum hefur námskeiðið félög- um í Einingu eins launaflokks hækkun. Nánari upplýsingar og skráning .á námskeiðið er hjá ritara fræðslufulltrúa í síma 462 1000 (innan- húss 155), mánudaginn 15. apríl og þriðjudaginn 16. apríl. Fræðslufulltrúi Akureyrar. BBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBB D _ I Laugamarkaður c verður haldinn í íþróttahúsinu á Laugum sunnudaginn 88. april. Þeir sem áhuga hafa á að selja varning sinn Sj á markaðnum eru heðnir að hafa samband við skrifstofu HSÞ í síma 464 3107, fax 464 3337 fyrir 25. apríl. Nú verða allir með. HSÞ. Jörð til sölu Jörðin Gilsá I í Eyjafjarðarsveit er til sölu. Á jörðinni er gott 114 fm. íbúðarhús, gripahús fyrir 20- 30 hesta - áföst er rúmgóð hlaða. Ennfremur véla- geymsla. Ræktuð tún eru um 10-12 hektarar. Enginn fram- leiðsluréttur. Það er hagstætt að fjárfesta í þessari jörð fyrir duglegt fólk sem vill hafa góða aðstöðu og gott rými til þess að rækta hross. Á jörðinni er einnig skóg- rækt. Hafið samband við Sími 4611500 Fax 461 2844 Pétur Jósefsson, sölustjóri Benedikt Ólafsson, hdl. FASTEIGNA & fl SKIPASALA ZjS&I NORÐURLANDS íl Forstööumaöur Skólaþjónustu Eyþings: Sex sóttu um Fiskaflinn í febrúar sámesti frá upphafi Fiskafli febrúarmánaðar sl. er sá mesti sem um getur í einum mánuði ffá upphafí, eða 455 þúsund lestir. Það er um 90 þúsund lestum meiri afli en í þeim mánuði sem næstur kemur. Það er loðnuaflinn sem veg- ur þyngst, eða 408 þúsund tonn en aðeins tvisvar áður hefur aflast yfir 300 þúsund tonn af loðnu í einun mánuði. Það voru 313 þúsund tonn í febrúar 1994 og 304 þúsund tonn í febrúar 1993. Rækjuaflinn í febrúarmán- uði var um 7.000 tonn. Botn- fiskaflinn var 38.571 tonn og hafði þorskaflinn aukist lítið eitt milli ára. Samkvæmt áætl- un Fiskifélagsins er aflaverð- mætið í janúar og febrúar í ár 10,7 milljarðar króna, sem er þriðjungi meira verðmæti en í sömu mánuðum ársins 1995. Mest verðmæti var fyrir loðnu eða 3 milljarðar króna sem aukist hefur mjög milli ára, að- allega vegna mikillar aukning- ar í frystingu. Aflaverðmæti þorsks var 2,5 milljarðar króna og um 2 milljarðar króna feng- ust fyrir rækjuafurðir. GG Sex umsóknir bárust um stöðu forstöðumanns Skólaþjónustu Eyþings. Nöfn umsækjenda verða ekki birt fyrr en skólaráð hefur fjallaö um umsóknimar, sem verður á fundi nk. flmmtu- dag. Skólaþjónusta Eyþings á sem kunnugt er að sinna lögboðnu ráð- Vilhjálmur Stefánsson á Vatns- enda í Eyjafjarðarsveit er þessa dagana að setja af stað fyrir- tæki, sem taka mun að sér ýmis- konar þjónustustörf í landbún- aði. „Bændur vantar oft menn til starfa um skamman tíma. Með þessu ætla ég að reyna að mæta þeirri þörf á markaðnum, - fyrir utan að skapa sjálfum mér vinnu,“ sagði Vilhjálmur í samtali við Dag. „Ég hef víða starfað og við margt. En alltaf kann ég best við mig í sveitinni og vil starfa við landbúnað - og hef unnið við bú- störf í öllum landshlutum,“ sagði Vilhjálmur, sem er 23ja ára að aldri. Hann hyggst veita bændum og búaliði margháttaða þjónustu, gjafar- og þróunarstarfi við grunn- og leikskóla þegar sveitarfélögin hafa að fullu tekið við rekstri grunnskólanna síðar á árinu. Þannig mun stofnunin taka við því hlutverki sem Fræðsluskrifstofa umdæmisins hefur nú. Þjónustan verður með skrifstofu á Akureyri og útibú á Húsavík. HA svo sem afleysingar við mjalta- störf, þrif á fjósum, girðingastörf og kúaklippingar svo eitthvað sé nefnt. Þá er Vilhjámur með öflug- an traktor í þjónustu sinni og síðar í þessum mánuði fær hann fjög- urra metra breitt diskaherfi, sem hann ætlar að nota við jarðyrkju- störf hjá bændum. „Ég ætla að láta þessa starfsemi þróast og ákveða svo framhaldið í ljósi viðtakna. Fyrst í stað verð ég einn við þessa starfsemi, en ef vel gengur gæti ég þurft að fá fleiri í félag við mig. Til að byrja með ætla ég að einbeita mér að Eyja- fjarðarsvæðinu, en ef vel gengur færi ég út kvíarnar," sagði Vil- hjálmur Stefánsson á Vatnsenda. -sbs. „Ég kann alltaf best við mig í sveitinni,“ sagði Vilhjálmur Stefánsson, sem hyggst bjóða bændum verktakaþjónustu við bústörf. Mynd: Sigurður Bogi. Vilhjálmur Stefánsson á Vatnsenda: Verktaki í landbúnaði Framkvæmdir samkvæmt endurskoðuðu deiliskipulagi í miðbæ Akureyrar: Veltur á áhuga framkvæmdaaðila - segir Gísli Bragi Hjartarson, formaður skipulagsnefndar í gær var greint frá endurskoð- uðu deiliskipulagi fyrir norður- hluta miðbæjarins á Akureyri. Gangi það eftir mun ásjóna svæðisins breytast talsvert og strax í vor munu væntanlega hefjast framkvæmdir sam- kvæmt skipulaginu. Þær felast í breyttri legu Geislagötu frá Strandgötu og norður undir Búnaðarbanka. Færist gatan austar og bflaplan verður vestan hennar, austan við Landsbank- ann, þar sem í framtíðinni er gert ráð fyrir að rísi allt að sex hæða hús. Eiga framkvæmdir við götuna að vera búnar fyrir 17. júní nk. Um áframhaldið, þ.e. hversu hratt svæðið mun breytast, sagði Gísli Bragi Hjartarson, formaður skipulagsnefndar, að áhugi og eft- irspurn eftir byggingalóðum hefði mest að segja. „Við bíðum eftir því að fá viðbrögð um áhuga manna á að hefja framkvæmdir og þá munum við liðka fyrir því eins og hægt er.“ Hann segir reyndar talsvert hafa verið spurt út í svæð- ið nú þegar. „Við höfum haft mikinn hug á að gera þennan miðbæ og upp- byggingu hans að nokkurs konar tilraunaverkefni. Við höfum verið að kanna hvort breytingar á hús- næðislánakerfinu gætu komið til. Ég veit að menn hafa verið að velta því fyrir sér með það í huga að þama gætu t.d. einstaklingar fengið að byggja leiguíbúðir og fengið framkvæmdalán til þeirra hluta. Eins er ljóst að bæjaryfir- völd munu gera það sem þau geta, t.d. varðandi gatnagerðargjöld og annað slíkt sem hægt er að hliðra til þannig að uppbygging svæðis- ins gangi hraðar,“ sagði Gísli Bragi. Eitt af því sem menn vilja hraða er að tengja gönguleiðina frá miðbænum og meðfram sjón- um samhliða Strandgötunni. Eins og er stendur hús BSO í þeirri gönguleið miðri og því ljóst að það þarf a.m.k. að færast til. Til stendur að halda almennan kynn- ingarfund um deiliskipulagstillög- una innan skamms og eins hafa þeir er málið varðar frest til að koma með athugasemdir. HA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.