Dagur - 13.04.1996, Blaðsíða 6

Dagur - 13.04.1996, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 13. apríl 1996 AÐALFUNDUR Útgerðarfélags Akureyringa hf, verður haldinn mánudaginn 22. apríl 1996 í matsal félagsins og hefst kl. 16.00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. Ársreikningur fyrir árið 1995 liggur frammi á skrifstofu félagsins til sýnis á skrifstofutíma. Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hf. Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKlAVlK • SlMI 569 6900 „Afar montinn af þessum flugvélum“ 4. flokki 1992 -10. útdráttur 4. flokki 1994 - 3. útdráttur 2. flokki 1995 -1. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 1996. Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði. Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis- stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa- fyrirtækjum. „Tilkostnaöur við starfsemi af ýmsu tagi er mun lægri hér en fyrir sunnan, sem gerir það að verkum að maður getur boðið ódýrari vöru,“ segir Kristján Möller, sem hér er í verslun sinni, ásamt Oddnýju Jóhannsdóttur konu sinni og Almari syni þeirra. Mynd: Sigurður Bogi. AKUREYRARBÆR TAKIÐ EFTIR Skrifstofa íþrótta- og tómstundafulltrúa er flutt í Glerárgötu 26, 2. hæð. Ný símanúmer eru 460 1450 og 460 1465, faxnúmer 460 1460. Skrífstofan verðursem fyrropin milli ki 8 og 16. íþrótta- og tómstundafulltrúi. - rætt við Kristján L. Möller, kaupmann á Siglufirði „Ég hef tekið eftir því að hol- lenska ríkisflugfélagið notar sömu stafí, það er KLM. Og ég er afar montinn þegar ég sé allar þessar flugvélar merktar mér,“ segir Kristján L. Möller, kaup- maður á Siglufirði - og brosir kankvís. Jafnhliða því að reka verslunina Siglósport, sem er al- hliða íþróttavöruverslun, hefur Kristján nú hin síðari ár farið út í sölu verðlaunagripa af ýmsu tagi undir merkjum KLM verð- launagripa. Kristján pantar full- an gám með bikurum, styttum og merkjum að jafnaði einu sinni á ári og selur svo úr sarpi sínum árið út. Markaðssvæðið er landið allt. Kaupmaðurinn segist bjóða talsvert Iægri verð en keppinautar hans gera og geta. „Það breytir ekki öllu hvort ég er með þessa starfsemi, það er sölu verðlauna- gripa, hér á Siglufirði eða í Reykjavík. Og sannleikurinn er reyndar sá að tilkostnaður við starfsemi af ýmsu tagi er mun lægri hér en fyrir sunnan, sem ger- ir það að verkum að maður getur boðið ódýrari vöru,“ segir Krist- ján. Kristján var um tólf ára skeið íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Siglu- fjarðarbæjar, Hann segir að sér hafi ofboðið hver kostnaðurinn var og sett sér því stax það mark- mið að bjóða þessa þjónustu - og það á lágu verði. „Þetta er orðinn stór hluti af mínum rekstri í dag og ég sel þetta um allt land. Um- sýslukostnaði reyni ég að halda í lágmarki og tek sjálfur á mig allan flutningskostnað. Með góðum og Amaro heildverslun Um síðustu áramót tók Viðar ehf. við rekstri Amaro heildverslunar á Akureyri. Þetta hefur ekki í för með sér neinar breytingar á rekstri heild- sölunnar. Eigendur Viðars ehf. eru þeir sömu og eigendur Amaro. Heildsalan verður áfram rekin undir nafninu Amaro heildverslun en á ábyrgð Viðars ehf. og undir nýrri kennitölu og vsk. númeri. Heimilisfangið er Frostagata 6c, Akureyri. Fréttatilkynning. Leiðrétting í umfjöllun um djasstónleika í minningu Jonna í Hamborg, sem fram fóru á Hótel KEA í gær- kvöld, var rangt farið með skírnar- nafn Jonna. Hið rétta er, sam- kvæmt kirkjubókum, að hann var skírður Jóhannes Gísli Vilhelm Þorsteinsson. Faðir hans hét hins vegar Guðmundur Hafliðason á Siglufirði, en eins og kom fram í Degi í gær tók Laufey Pálsdóttir, móðursystir Jonna, hann í fóstur og skírði í höfuð fyrri manns hennar, Jóhannesar G. V. Þor- steinssonar. greiðum póstsamgöngum eru vör- umar yfirleitt komnar frá mér til kaupenda næsta dag, nánast hvar sem er á landinu. Við tökum að okkur ágröft og áletrun á verð- launagripina og höfum til þess af- ar fullkomin tæki,“ segir Kristján. Engar aðstæður hafa verið í vetur til skíðaiðkunar á Siglufirði, enda er þar marauð jörð. Þetta hefur í Siglósporti og öðmm íþróttavöruverslunum komið fram í því að sala á vetrarvörum, svo sem skíðum og skíðavörum, hefur nær alveg dottið út. „Ég hef þó verið heppinn í vetur því ég hafði lítið af vetrarvömm tekið inn - enda þótt maður byggist reyndar við snjóavetri. En öðruvísi mér áður brá, hér hefur verið rjóma- blíða í allan vetur og nú er hér góð sala í vor- og sumarfatnaði,“ sagði Kristján L. Möller. -sbs. Fjöldi íslenskra skipa á Flæmingjagrunni: Samskip hefja gartil Harbour Grace Afli rækjutogara á Flæmingja- grunni við Nýfuundnaland hef- ur verið góður að undanförnu og þar eru nú margir íslenskir togarar að veiðum, einn er að landa í llarbour Grace, Erik, og tveir eru á leiðinni vestur, Brimir SU og Dalborg EA frá Dalvík. Samskip hafa hafið áætlunarsiglingar til Harbour Grace með viðkomu á þriggja vikna fresti og verður íslensk- um fiskiskipum boðin m.a. löndun, vöruhús, frystigeymsl- ur og aðstoð við útfyllingu skjala. Harbour Grace er nær mið- unum á Flæmingjagrunni en aðrar hafnar á Nýfundnalandi, þar sem sambærileg þjónusta er í boði. Starfsmaður Sam- skipa á Nýfundnalandi, Jóhann Bogason, verður á skrifstofu Harbour Grace Coldstore, sem er í eigu kanadískra, norskra og danskra hagsmunaaðila, þ.m.t. útgerðaraðila. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.