Dagur


Dagur - 13.04.1996, Qupperneq 13

Dagur - 13.04.1996, Qupperneq 13
Laugardagur 13. apríl 1996 - DAGUR - 13 POPP MACNÚSÖEIRÖUÐMUNDSSON FJÖRIINGINN ’96 í 1929 Á miðvikudeginum fyrir páska var haldin nokkuð merkileg hljómsveita- keppni í skemmtistaðn- um 1929 hér á Akureyri. Kallaðist hún Fjörunginn 96 og var það F.Í.H., Fé- lag íslenskra hljómlistar- manna, sem stóð að henni í tengslum við Fjöregg 96, skemmtidag- skrá sem fram fór hér í bænum um páskana. Líkt og með Músíktilraunir Tónabæjar í Reykjavík, er tilgangurinn með Fjör- unganum að gefa ungum hljómsveitum tækifæri á að koma sér og sínu á framfæri með vissum reglum. Munurinn aðeins sá að um nokkuð eldri þátttakendur er í flestum tilfellum að ræða, auk þess sem allar sveitirnar urðu að spila sama lagið, Lóa litla á Brún, ásamt þremur frumsömdum lögum. Tíu hljómsveitir tóku þátt í keppninni, þar af um helmingur frá höf- uðborgarsvæðinu. Sigur- vegari varð Sóma frá Reykjavík og hlaut sveit- in eina sextíu hljóðvers- tíma í þremur hljóðver- um. Meðfylgjandi mynd- ir frá keppninni tók Björn Gíslason, ljósmyndari Dags. PULP KEMURÍ BYRJUN JÚLÍ Eins og fram hefur komið áður hér á poppsíðunni, hefur koma bresku popparanna vinsælu í Pulp verið boðuð hingað til lands í sumar í tengslum við Listahátíð í Reykja- vík. Dagsetning tónleikanna hefur hins vegar hingað til verið nokkuð á reiki, ennú munvera ákveðið að hljómsveitin komi fram þriðju- dagskvöldið 2. júlí i Laugardals- höllinni. Fagnar ungdómur lands- ins Pulp áreiðanlega mikið, en sveitin er nú án efa ein af þeim stærri í breska poppinu í félagi með Suede, Supergrass, Cast, Blur og svo auðvitað kóngunum sjálf- um, Oasis. Mun það fyrst og fremst vera fyrir áhuga söngvar- ans og aðálsprautu Pulp, Jarvis Cocker, sem sveitin kemur, en hann hefur mikinn áhuga á land- inu og hefur komið hingað til lands svo lítið ber á oftar en einu sinni. Annars er það frekar af Coc- ker að segja, að öfugt við það sem ætla hefði mátt, hafa menn bara tekið uppátæki hans vel, að hrella Michael Jackson á Brit verðlauna- hátíðinni um daginn. Er sumum sem sagt alveg orðið nóg um allt prjálið, glysinn og glauminn, sem fyígir poppgoðinu. Mætir kappinn því væntanlega hinn hressasti til leiks upp á Frón, lfkt og „kollegi" hans úr Blur, Damon Alban, gerði fyrir páskana. Boðaði Alban sem landí og að hann og félagar hans kunnugt er að Blur muni taka upp hefðu mikinn áhuga á að halda nýja plötu sína að hluta hér á ís- hér tónleika seinna á árinu. Jarvis Cocker, söngvari Pulp, kemur ásamt félögum til landsins í byrjun júlí. MICHAEL MÆTTUR TIL LEIKS Það verður ekki annað sagt en að mikið hafi mætt á George Michael síðustu árin í glírnu hans við að halda sjálfstæði sínu sem tónlistar- maður. Þessi vel liðlega þrítugi breskgríski poppari, sem með sanni hefur kallast „hjartaknúsari poppsins númer eitt", að minnsta kosti á síðari árum, þurfti að bíða í ein sex ár eftir að losna frá risan- um Sony og heppnaðist það á síð- asta ári. Svo löng barátta og sú staðreynd að Michael hefur ekki mátt senda neitt efni frá sér á þess- um tíma, hefði gert út um feril flestra annarra tónlistarmanna. Þeir einfaldlega dagað uppi og gleymst eftir svo langa þögn hvort sem þeim hefur líkað betur eða verr. Slíkt hefðu svo sem líka get- að orðið örlög Michael, ef ekki við- burðir á borð við minningartón- leikana um Freddy Mercury, þar sem hann söng með eftirlifandi meðlimunum þremur í Queen ásamt mörgum fleiri, hefðu komið til. Voru þessir stórtónleikar, sem fram fóru á Wembley, að sjálf- sögðu hljóðritaðir og komst Michael þannig með krókaleiðum aftur á plötu. EP plata þar sem hann, söngkonan Lisa Stansfield og fleiri voru á, náði til dæmis miklum vinsældum og fór hátt á lista víða um heim. Fyrr á þessu ári kom svo fyrsta smáskífulag Ge- George Michael snúinn aftur eldri og reyndari. orge Michael í sex ár, Jesus To A Child út og hefur notið góðra vin- sælda framundir þetta. Næsta smáskífulag, The First Love, er síðan væntanlegt á næstu vikum. í kjölfarið kemur svo stór plata í maí, sem bera mun hið táknræna nafn, Older, eða „Eldri". Er víst að kappinn er bæði eldri nú og reynslunni ríkari eftir það sem á undan er gengið. Mun Older áreiðanlega verða með söluhæstu alötum ársins ef að líkum lætur, ?ví hingað til hefur Michael selt worki fleiri né færri en um 36 milljónir eintaka af plötum sínum. JJ CALE Víst má telja að leitun sé að hóg- værari heiðursmanni í röðum frægra tónlistarmanna, en karlin- um honum JJ Cale. Hann sem allt í senn hefur sannað sig sem af- bragðs gítarleikari, lagasmiður og upptökustjóri auk þess að vera JJ Cale, gamli garpurinn, er nú að senda frá sér enn eina plötuna. hinn „raunsannasti raulari", hefur alla sína tíð verið lítt gefinn fyrir sviðsljós frægðarinnar, var hálf- partinn dreginn inn í frægðarljóm- ann þegar Eric Clapton gerði Cocaine og After Midnight vinsæl sem kunnugt er á áttunda ára- tugnum. Síðan þá hefur hann not- ið mikillar frægðar og virðingar, en hefur ekki gert sér mikinn mat úr því. Hann hefur þó vissulega farið endrum og sinnum í tón- leikaferðir, t.d. til Evrópu, en lang- mestum tírna eyðir hann hins veg- ar heima fyrir þar sem hann er með hljóðver á búgarði sem hann á. JJ Cale á um og yfir 30 ára tón- listarferil að baki, en fór samt ekki að senda frá sér plötur að marki fyrr en þáttur Claptons kom til. Þær hafa þó hingað til orðið tólf og er nú sú þrettánda einmitt að bætast við í næsta mánuði. Nefnist hún því raunsanna nafni Guitar Man, sem lýsir skapara hennar að stórum hluta vel.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.