Dagur - 27.04.1996, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 27. apríl 1996
FRÉTTIR
Þessi mynd var tekin á sumardaginn fyrsta á Fiðlaranum á Akureyri. Frá vinstri: Gunnlaugur P. Kristinsson og
Gunborg Kristinsson, sem veittu viðtöku bókun menningarmálanefndar sem staðfestir að dóttir þeirra, Kristín Guð-
rún, verður næsti bæjarlistamaður á Akurcyri, Alice Sigurðsson, Arni Ingimundarson, Haraldur Sigurðsson, sem
tók við viðurkenningu fyrir hönd Marinós Þorsteinssonar, og María Jóhannesardóttir, annar eigenda hússins Lund-
argata 2, sem fékk viðurkenningu stjórnar Húsfriðunarsjóðs Akureyrar. Mynd: BG
Akureyri
Kristín útnefnd
bæjarlistamaður
- og veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi starf að menningarmálum
Eins og kemur fram í viðtali við
Kristínu Guðrúnu Gunnlaugs-
dóttur, myndlistarkonu, á öðr-
um stað í blaðinu, var tilkynnt í
hófl menningarmálanefndar Ak-
ureyrarbæjar sl. fimmtudag, að
hún hefði verði útnefnd bæjar-
listamaður Akureyrar næsta ár-
ið.
í máli formanns atvinnumála-
nefndar, Alfreðs Gíslasonar, kom
fram að Kristín sé um margt
dæmigerð fyrir það unga listafólk
sem aflað hefur sér þroska og
reynslu í listinni síðustu 10-15 ár-
in. „Gjaman líta myndlistarmenn
aftur til fortíðarinnar og baða hana
í ljósi samtímans. Á þessu sviði
hefur Kristín skapað sér sérstöðu
svo tekið hefur verið eftir. Hún
hélt til náms á Ítalíu þar sem hún
leitar lengra aftur í hefð myndlist-
arsögunnar en áður hefur þekkst í
íslenskri myndlist. Hún stundaði
nám í Ikonamálun og byggir
myndlist sína í dag á þeirri klass-
ísku hefð og hefð endurreisnarinn-
ar. Eins og við öll vitum býr ís-
iand yfir afar stuttri og brota-
kenndri myndlistarhefð. Það er
því afar athyglisvert að sjá ís-
lenskan listamann byggja list sína
á þessum grunni sem hún færir
fram í íslenskum veruleika auk
þess sem það staðfestir hin auknu
alþjóðlegu samskipti og hugsun
sem samtíminn fóstrar," sagði Al-
freð m.a. í ávarpi sínu. Foreldrar
Kristínar, Gunborg Kristinsson og
Gunnlaugur P. Kristinsson veittu
viðtöku fyrir hönd dóttur sinnar
staðfestingu á bókun menningar-
málanefndar Akureyrar.
Framúrskarandi starf að
menningarmálum
í sama hófi var tilkynnt um viður-
kenningar til fjögurra einstaklinga
á Akureyri fyrir framúrskarandi
starf að menningarmálum í bæn-
um.
í fyrsta lagi fékk þessa viður-
kenningu Alice Sigurðsson, sem
alla tíð hefur fengist við listsköp-
un, einkum vatnsliti og útskurð.
Alice hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga, aðallega með Listhópn-
um á Akureyri meðan hann
starfaði.
í annan stað fékk viðurkenn-
ingu Ámi Ingimundarson. Ámi
stjómaði Karlakómum Geysi frá
1954 til 1967 og síðan frá 1979 til
1980. Hann var söngstjóri Gamla
Geysis frá stofnun hans 1972-
1995. Ámi stjómaði Karlakórnum
Heimi í Skagafirði árin 1967-1977
og var jafnframt í Rökkurkómum
um árabil. Hann hefur einnig
stjómað blönduðum kór á Vopna-
firði og kór starfsmanna Sam-
bandsverksmiðjanna á Akureyri.
Ámi var undirleikari með kórum
um árabil. Hann lék einnig með
mörgum einsöngvurum og
skemmtikröftum og vann með
Leikfélagi Akureyrar auk þess að
leika í danshljómsveit árum sam-
an.
Gísli Jónsson, fyrrverandi ís-
lenskukennari við MA, fékk við-
urkenningu fyrir ritstörf, en hann
hefur um langt skeið unnið að rit-
störfum og eftir hann liggja mörg
ritverk sem flest tengjast sagn-
fræðilegum málefnum eða bók-
menntum.
Fjórði einstaklingurinn sem
menningarmálanefnd heiðraði sér-
staklega er Marinó Þorsteinsson,
sem um langt árabil hefur verið
ötull liðsmaður Leikfélags Akur-
eyrar og víðar. Marinó lék sitt
fyrsta hlutverk hjá LA sem Ólafur
í „Galda Lofti“ árið 1962. Hann
starfaði með LA í rúm 30 ár og
hlutverkin á fjölum Samkomu-
hússins eru komin yfir 50 talsins.
óþh
Ekki kaupa fasteign á AkureyriH
Nema að hafa skoðað raöhúsin okkar
Við höfum réttu fasteignina fyrir þig,
raðhús af mörgum stærðum sem
hægt er að aðlaga að þínum óskum.
3-
Trésmíðaverkstæði
Sveins Heiðars ehf.
Skipagötu 16 • Sími 461 2366 • Fax 461 2368 • Opið kl. 13-17.00
Lundargata 2 á Akureyri.
Mynd: BG
Húsfriðunarsjóður Akureyrar:
Viðurkenning til eig-
enda Lundargötu 2
1 hófi menningarmálanefndar
Akureyrar á sumardaginn fyrsta
var tilkynnt um viðurkenningu
Húsfriðunarsjóðs Akureyrar til
eigenda hússins Lundargötu 2 á
Akureyri, Maríu Jóhannesar-
dóttur og Gylfa S. Gylfasonar.
í bókun stjómar Húsfriðunar-
sjóðs um endurbætur á Lundargötu
2 segir orðrétt: „Húsið var upphaf-
lega reist 1882 á lóðinni Strand-
götu 23, en flutt á lóðina Lundar-
götu 2 árið 1902. Húsið hefur
haldið megin einkennum sfnum,
en helsta einkenni þess er stór
kvistur á vesturhlið, flatur að ofan.
Á kvistinum em tvær gluggaraðir,
tveir neðri gluggarnir af sömu
stærð og aðrir gluggar í húsinu en
hinir efri minni. Veggir eru klædd-
ir listasúð, en á þaki er bámjám.
Unnið hefur verið af fag-
mennsku að endurbótum á húsinu
hið ytra, veggjum og gluggum.
Eftir er að lagfæra austurhlið
hússins, og ekki er hafin vinna við
endurbætur hið innra.
Húsið hefur varðveislugildi
sem hluti af byggðinni við Lund-
argötu og einnig vegna sérkenni-
legs útlits sem gefur húsinu enn
aukið gildi.
Viðurkenning er veitt vegna
faglegra vinnubragða við endur-
bætur á húsinu sem endurspegla
virðingu fyrir upprunalegri gerð
og stíl hússins og þeim skilningi á
varðveislugildi sem húsið hefur
bæði sem hluti af byggðinni við
Lundargötu og sem einstakt hús
vegna sérkennilegs útlits sem gef-
ur húsinu enn aukið gildi.“ óþh
Norrænir vísnadagar 1996:
Trúbadorar á Pollinum
Akureyringar njóta góðs af Nor-
rænum vísnadögum í ár. Trúba-
dorarnir Pia Raug frá Dan-
mörku og Jan-Olof Anderson
frá Svíþjóð halda tónleika á veit-
ingahúsinu Við Pollinn, fimmtu-
daginn 2. maí kl. 22:00.
Pia Raug er í fremstu röð
danskra vísnasöngvara og lagahöf-
unda. Hún hefur gefið út fjölda
platna og nýtur mikilla vinsælda á
Norðurlöndum. Hún er með ein-
dæmum fundvís á heillandi laglín-
ur og ljóð. Lag hennar „Rigningar-
dagur í nóvember" er lýsandi dæmi
um það, enda hefur það verið gefið
út á öllum Norðurlandamálunum.
Jan-Olof Anderson tók þátt í
norrænum vísnatónleikum hér á
Akureyri 1991. Hann er einn
þeirra vísnasöngvara sem hefur
fullkomið vald á viðfangsefni sínu
og miðlar miklu fleiru en bara lagi
og texta. Hann er menntaður í
klassískum gítarleik og söng-
kennslu frá Tónlistarskólanum í
Stokkhólmi. Á efnisskrá hans er
að finna sænsk þjóðlög, tónlist
Evert Taube, Bítlalög og frum-
samið efni. Fyrsta sólóplatan hans
er væntanleg nú í vor.
Norræna félagið á Akureyri
stendur að tónleikunum. Aðgangs-
eyrir er 500 kr.
Fundur um ferðamál
- á vegum ferðamálahóps Framsóknar-
flokksins á Hótel KEA nk. þriðjudagskvöld
Ferðamálahópur Framsóknar-
flokksins ásamt heimamönnum
stendur fyrir fundi um ferðamál
á Hótel KEA nk. þriðjudags-
kvöld, 30. apríl, kl. 20. Fundur-
inn ber yfirskriftina „Samgöng-
ur og ferðaþjónusta“. Fundar-
stjóri verður Stefán Jón Haf-
stein.
Á þessum fundi verður fjallað
um hvemig það er að reka fyrir-
tæki í dag sem hefur með að gera
að flytja ferðamenn milli staða og
hvemig samgöngukerfið og yfir-
völd samgöngumála standa að
málum.
Einnig verður sérstaklega farið
inn á vandamál þeirra sem talist
geta utan alfaraleiðar og hvernig
gengur að reka ferðaþjónustu á
þeim stöðum.
Frummælendur verða Páll
Halldórsson, forstöðumaður Flug-
leiða innanlands, og Sigurður Að-
alsteinsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Norðurlands. Auk
þeirra munu sitja í pallborði þeir
Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra, Bjöm Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri S.B.H. á Húsavík,
og Páll Þór Jónsson, hótelstjóri
Hótels Húsavíkur.
Fundurinn er öllum opinn og
hvetja fundarboðendur allt áhuga-
fólk um ferðaþjónustu til að mæta.
óþh