Dagur - 27.04.1996, Síða 4

Dagur - 27.04.1996, Síða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 27. apríl 1996 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (fþróttir), BLAÐAM. HÚSAVÍK-SÍMI Á SKRIFST. 464 1585, FAX 464 2285. HS. BLM. 464 3521 LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RIKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Arðsemi fyrírtækja Opinberar tölur gefa þá bitru staðreynd til kynna að arðsemi íslenskra fyrirtækja sé aðeins um fjórð- ungur til helmingur af því sem algengt er meðal viðskiptaþjóðanna. Launakostnaður er mun hærra hlutfall í rekstri hérlendra fyrirtækja en annars staðar. Launin eru þó síst hærri hér á landi en í viðskiptalöndunum en skýringin liggur í slakri framleiðni hér á landi. Þetta er umhugsunarvert atriði, sem heyrir þó ekki til nýrra tíðinda. Það hefur verið ein af mein- semdunum í íslensku atvinnulífi að framleiðnin er ekki nægilega góð. Atvinnulífið hefur ekki verið að skila því sem nauðsynlegt er til þess að geta verið í harðri samkeppni við þær þjóðir sem við gjarnan viljum miða okkur við. Fyrir vikið hefur ekki tekist að ná upp þeim lífskjörum sem við vissulega ætt- um að hafa alla möguleika á. Hitt er svo annað mál að atvinnulífið er greini- lega að taka sig á. Hagræðing í rekstri einkafyrir- tækja og opinbera geiranum hefur skilað árangri og hún mun skila frekari ávinningi þegar frá líður. Stöðugleikinn í atvinnulífinu og heilbrigð sam- keppni er lykilatriði í þróun og eflingu atvinnulífs- ins. Hins vegar er það ákveðið vandamál, sem verður að uppræta, að á ákveðnum sviðum ríkir fá- keppni. í nýútkominni skýrslu fjármálaráðuneytisins, „Bætt samkeppnisstaða íslands í framtíðinni", kemur fram að 62% fólks á vinnumarkaði er í þjón- ustu- og samgöngugreinum, 5% i landbúnaði, 11% í fiskveiðum og fiskvinnslu og 22% í iðnaði. í skýrslunni segir að það skipti miklu máli hvernig til tekst við að auka framleiðni í þjónustugeiran- um. Orðrétt segir í skýrslu fjármálaráðuneytisins: „Til að sýna mikilvægi þjónustugreina fyrir sam- keppnisstöðu þjóðarinnar í framtíðinni mætti nefna að 1 % framleiðniaukning þar vegur nú þyngra en 5% framleiðniaukning í sjávarútvegi. Til að skila þjóðarbúinu 1% tekjuaukningu á mann þyrfti aðeins 1,7% framleiðniaukningu á mann í þjónustugreinunum en hvorki meira né minna en 9,4% framleiðniaukning á mann í sjávarútvegi til að ná sama árangri. “ I UPPAHALDI „Danskur kúltúr að mínu skapi“ Gísli Svan Einarsson, út- gerðarstjóri Fiskiðj- unnar-Skagfirðings hf. á Sauðárkróki, erfœdd- ur í Neskaupstað árið 1955 og ól þar mann- inn þar til leiðin lá til Akureyrar í MA. Síðan lauk hann tœknistúd- entsprófi frá raungreinadeild Tœkniskólans, þaðan lá leiðin í útgerðartœkni hjá Tœkniskólan- um auk cin.s vetrar í viðskipta- frœði við HÍ. Starfvettvangurinn hefur m.a. verið hjá Stldarvinnsl- unni í Neskaupstað, hlaða- mennska hjá Daghlaðinu, kenn- arastörf í Ólafsvík og við Sam- vinnuskólann að Bifröst en það- an hélt hann norður á Saitðár- krók árið 1989. Eiginkonan heit- ir Bryndís Þráinsdóttir frá Ólafs- vík, kennari við Gagnfrœðaskól- ann, og hörn þeirra erufjögur á aldrinum 5 til 14 ára, þau Einar Svan, Þráinn Svan, Áslaug Sól- lilja og Bryndís Lilja. Ilvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Svínahamborgarhryggur." Gísli Svan Einarsson. „Nei, það er mjög ómarkvisst, en ég hjóla í vinnuna og stunda svo- lítið sund.“ Ert þú í einhverjum klúbbi eða fé- lagasamtökum? „Nei.“ Hvaða blöð eða tímarit kaupir þú? „Morgunblaðið, en konan kaupír m.a. Hús & hýbýli." Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? ..Veröld Soffíu eftir norskan met- söluhöfund.“ „Fréttir, en ég er fréttafíkill og horfi m.a. bæði á fréttatíma RÚV og Stöðvar 2.“ Á hvaða stjórnmálamanni hefurþú mestálit? „Eftir síðustu hræringar í kvóta- málum þá hefur álit mitt á stjórn- málamönnum minnkað geysilega mikið, því get ég ekki nefnt neinn.“ Hver er að þínu matifegursti staður á íslandi? „Sem Nobbari finnst mér Norð- fjörður fallegastur staða þegar siglt er inn hann á fögrum sumar- degi, en Skagafjörður er einnig fagur.“ Hefurðu ákveðið hvað þú gerir í sumarfríinu? „Á íslandi, þó það verði ekki í tísku í sumar, en á hverju sumri fer ég m.a. austur í Sandvfk og skoða fjörur og villta náttúru." Hvar vildirðu helst búa efþú þyrftir að flytja búferlum nú? „í Danmörku, því danskur kúltúr er að mfnu skapi.“ Uppáhaldsdrykkur? „Kalt vatn, ég drekk mikið af því.“ Hvaða heimilisstörffinnst þér skemmtilegust og leiðinlegust? „Mér leiðist ekki að þvo upp en að þurrka af eða skúra skemmtir mér ekki.“ Stundar þú einhverja markvissa lireyfingu eða líkamsrœkt? í hvaða stjörnumerki ert þú? „Ég er naut.“ Hvaða tónlistarmaður er í mestu uppáltaldi hjá þér? „Eric Clapton." Uppáhaldsíþróttamaður? „Ehginn sérstakur sem ég get til- greint.“ Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi? Hvernig vilt þú helst verja frístund- um þínum? „Með fjölskyldunni í starfi og leik.“ Hvað œtlarþú að geraum helgina? „f>að verður starfstengt. Ég sit aðaifund Káupfélagsins á laugar- dag og síðan koma skip inn og fara. Ef veður verður gott mun- urn við grilla í fyrsta skipti á þessu vori.“ GG JARÐBRYR______________ ATLI RÚNAR HALLDÓRSSON lil varnar kunum Svavar Gestsson ætlar að spyrja alla forsetaframbjóðendur hvemig þeir muni bregðast við ef þeir verði beðnir að skrifa upp á Évr- ópusambandsaðild í valdatíð sinni á Bessastöðum. Ég vil miklu frek- ar vita um afstöðuna til kúastofns- ins: Hver er afstaða þín, frambjóð- andi góður, til þess að farga kún- um okkar og flytja inn norskar kusur í staðinn? Þetta er eiginlega dæmigert skammdegismál í þjóð- málaumræðunni. Eðlilegra væri að svona lagað skyti upp kolli í nóvember en ekki f apríl - á landa- merkjum veturs og sumars. Eng- inn ætti að sleppa inn um Bessa- staðahlið án þess gera þjóðinni grein fyrir afstöðu sinni. Og víst má telja að síra Heimir tjái sig um málið í auðskiljanlegri Morgun- blaðsgrein. Uppákoman á rætur að rekja til bændafundar á Suðurlandi. Svo er að skilja að þar hafi einhverjir snillingar komist að þeirri niður- stöðu að íslenskar kýr væm hvorki nógu stórar né nógu skapgóðar fyrir sinn smekk og þjóðarinnar. Heilladrýgst væri því að losa sig við þær og flytja inn norskar kýr í staðinn. Þær norsku eru stærri og geðbetri, segja sunnlenskir bænd- ur. Ég hefur verið hugsi yfir þess- um tíðindum síðustu sólarhringa og er eiginlega helst á því að meira sé athugavert syðra við geðslag bændanna en kúnna. Nema þá að kýr á Suðurlandi séu upp til hópa geðstirðari en þær greindu og góðu systur þeirra sem ég þekkti best í Svarfaðardal forð- um. Ég man reyndar bara eftir einni kú á Jarðbrú sem með sæmi- legum rökum mátti kalla geðilla. Hún tók stundum rokur upp úr þurru á básnum sínum, rang- hvolfdi augum, froðufelldi og gól- aði ógurlega. Soffi vinnumaður var frá upphafi sannfærður um að kýrin væri skyggn og á hana leit- uðu drauganaut úr öðrum heimi. Eða fjandinn sjálfur væri laus og kallaði á almáttugan guð til hjálp- ar í fjósinu. Andlegt ástand skepn- unnar skánaði ekki og þá var henni slátrað til að koma henni til fulls í þann heim þar sem hún greinilega átti best heima. Einu kynni mín af norskum kúm voru í Þrændalögum eitt sumarkvöld árið 1983. Ég áði í gistikofa á sveitabæ og fylgdist um hríð með furðulegum vinnu- brögðum heimamanna við að þurrka hey. Enn furðulegri þóttu mér þó kýmar: Stirðar, brussuleg- ar og gátu ekki staðið kyrrar í halla. Þessi fyrirbæri vilja Sunn- lendingar sem sagt flytja inn og útrýma um leið okkar eigin kúm - sem sjálfsagt eiga ættir að rekja til Noregs. Auðvitað tóku landnáms- menn með sér nokkrar kýr um borð þegar þeir sigldu frá Noregi til íslands forðum. Og auðvitað völdu þeir þær fínlegustu sem þeir fundu, en skildu bmssumar eftir. Islandsfarar vom einkum þeir Norðmenn sem neituðu að borga kóngi og öðru arðránsliði skatta. Á leiðinni urðu sumir sjóveikir og voru settir í land í Færeyjum ásamt nokkrum kúm. Hinir kom- ust alla leið til íslands og afkom- endur þeirra þráast enn við að borga skatta. Og nú þakka nokkrir sunnlenskir afkomendur landnem- anna kúnum fyrir samfylgdina yfir hafið og gegnum aldirnar með því að vilja útrýma þeim. Þetta er nú mórall í lagi. Eitt lítið vandamál myndi fylgja því að skipta um kúakyn í landinu, ef nógu margir eru nógu vitlausir til að gleypa við hug- myndinni af Suðurlandi. Breyta þyrfti öllum fjósum á landinu til að þau hæfðu brussukúm frá Nor- egi. Básanir í fjósunum eru auð- vitað mátulega langir fyrir gáfað íslenskt kúakyn. Alla bása í land- inu þyrfti því að lengja, sem yrði umtalsvert handtak og dýrt. Væri hægt að leysa vandann á annan og ódýrari hátt? Vafalaust. Rétt er að byrja á að rannsaka og greina vandann á Suðurlandi og bregðast við í samræmi við niðurstöðuna. Komi á daginn að sunnlenskar kýr séu jafn geðstirðar og af er lát- ið, hlýtur að koma til álita að senda dýrasálfræðinga út um sveitir til að fást við meinið. Hugsanlega má laga ástandið ein- faldlega með því að leiða blessað- ar skepnumar undir naut af og til. Ekki er nefnilega víst að sunn- lenskir frjótæknar nálgist við- fangsefnið af jafn mikilli virðingu og natni og ég sá Jónmund og síð- ar Rabba gera í Svarfaðardal. Ef geðillskuna er hins vegar að finna í bændunum sjálfum er til lítils að bjarga málum með því að útrýma heilu kyni kúa. Hætt er við að einhverjir geðillir yrðu enn geðverri síðar og fengju bakþanka þegar þeir sætu uppi með innflutt- ar stórkýr frá Noregi sem ekki geta staðið kyrrar í halla.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.