Dagur - 27.04.1996, Síða 7

Dagur - 27.04.1996, Síða 7
Laugardagur 27. apríl 1996 - DAGUR - 7 hugmynd hafði orðið til og henni skaut upp annað slagið. Ég sjálf trúði því ekki þá að þetta væri raunhæfur möguleiki. En nú erum við farin að sjá árangur og það er alveg yndislegt." ITC „Eitt sinn þegar ég var að lesa blaðið 19. júní var verið að kynna þar alþjóð- legan félgsskap, Málfreyjur eða ITC, mér þótti þetta strax áhugaverð sam- tök. Það varð úr að 9. febrúar 1985 stofnuðum við, 16 áhugasamar konur í Mývatnssveit, ITC Flugu, deild í al- þjóðasamtökunum. Ég var stofnforseti Flugunnar og er forseti félagsins í dag. Núna eru 17 konur í félaginu bú- settar víðsvegar í Suður-Þingeyjar- sýslu.“ Þess má geta að sem forseti ITC þurfti Hólmfríður að velja sér ákveðið stef, eða einkunnarorð og það kemur varla á óvart hvemig þau hljóma: „Lífið er tækifæri, notum það.“ „Þetta er ákaflega uppbyggjandi félagsskap- ur og ég hef séð margar konur bóksaf- lega blómstra í ITC. í sumar stendur til að fara á Alheimsþing ITC í Skot- landi og þangað stefna fimm Flugur og ég er ein af þeim, ætli ég baki mig ekki til þangað.“ - Hvað áttu við? „Það er von að þú spyrjir. í fyrra bakaði ég mig til Túnis í alveg ógleymanlega ferð. Ég vaknaði með fuglunum á morgnana og bakaði rún- stykki í ofninum nn'num og svo voru þau seld fyrir mig á tjaldstæðinu, ný- bökuð og glóðvolg. Það var vinsælt cg til Túnis fór ég í hópferð með fólki sem ég þekkti ekkert í upphafi ferðar og skemmti mér auðvitað ljómandi vel.“ Félag aldraðra „Nýjasti félagsskapurinn sem ég hef gengið í er svo nýstofnað Félag aldr- aðra hér í Mývatnssveit. Við erum 26 sem stofnuðum félagið núna á þessu ári og ég er formaður félagsins. Mér er sagt að það sé ótrúlega gaman að upplifa ýmislegt með sinni eigin kyn- slóð og þess vegna sé starfið í þessum félögum svo skennntilegt. Það er með þetta félag eins og önnur félagsstörf að ef hægt er að draga einn eða tvo með svo að þeir fái fyllra og betra líf þá borgar það sig. Ég hef haft nokkuð góða heilsu og meðan svo er þá er um að gera að halda áfram af fullum krafti það gefur lífinu gildi, það er ekki til neins að draga sig í hlé og láta sér leiðast. Mitt „lífsmóttó" hefur líka alla tíð verið, heill í starfi, heill í leik.“ Handverkshópurinn Dyngjan Litlir hraunpúkar skreyta bókahillum- ar hennar Hólmfríðar, rammíslenskir að sjálfsögðu og hennar eigin hand- verk. „Já, ég gleymdi næstum því að segja ykkur frá handverkshópnum okkar hér í Mývatnsveit, Dyngjunni. Við erum einmitt að fara núna á eftir að hitta hóp ferðamanna, sem vill kaupa af okkur handunnar vörur úr ís- lenskir ull.“ Enn sem fyrr eru það ferðamenn sem bíða kornu Hólmfríðar Péturs- dóttur. Við þiggjum flatbrauðssneið með reyktum Mývatnssilungi og einn kaffibolla enn, svo kveðjum við þessa konu. Einhvem veginn læðist sú hugs- un að að einmitt hún kunni listina að lifa lífinu lifandi. KLJ Hólmfríður og Sverrir í Víðihlíð. Kvenfélagasambands Suður-Þingey- inga í 12 ár og í því starfi kynntist ég óskaplega mörgum góðum og skemmtilegum konum víða um land- ið. Ég hef fengið tækifæri til þess að ferðast til útlanda með öðrum kvenfé- lagskonum. Arið 1956 fór ég í mína fyrstu utanlandsferð í hópi 60 ís- lenskra kvenfélagskvenna á Hús- mæðraráðstefnu í Danmörku með við- komu í Færeyjum. Þetta var áeiðan- lega fyrsta hópferð íslenskra kvenna til útlanda og hún var alveg stórkost- leg. Ég hef líka farið nokkmm sinnum í Norrænt húsmæðraorlof sem kven- félgskona, til Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Starfið í kvenfélaginu hef- ur því gefið mér ýmis tækifæri og margháttaða reynslu." - Finnast þér kvenfélögin eiga jafnan rétt á sér í dag eins og þegar þú gekkst í Kvenfélag Mývetninga fyr- ir tœpum 50 árum? „Ég held að kvenfélög séu mjög þroskandi fyrir konur og nauðsynleg því að það gengur svo ótrúlega hægt að ná því að skapa samfélag karla og kvenna sem geta unnið saman. Það er ótrúlegt en satt að margar konur missa hreinlega alla rænu þegar karlmenn eru komnir í félagsskapinn, jafnvel bráðgreindar og duglegar konur. Mér virðist að þá verði þær svo miklar kynverur að þær geta ekki notið sín sem skyldi. Þetta er alveg eins og svo oft gerist þegar piltur og stúlka byrja saman, stúlkan slær af í námi og starfsframa en pilturinn magnast allur og verður framtakssamari og duglegri en nokkru sinni. Ég er viss um að flestir þekkja dæmi um þetta. Þetta er eitthvað sem einfaldlega gerist í samskiptum kynjanna og með- an ástandið er svona veitir konurn ekki af að vinna saman og byggja sjálfa sig og hver aðra upp í eigin fé- lagsskap.“ Skógrækt og landgræðsla - Þú hefur áhuga á skógrækt? „Já, ég hef alltaf haft það og gekk snemma í Skógræktarfélag Mývetn- inga. Það var með það eins og fleiri félög að það var um tíma nokkuð óvirkt en á áttunda áratugnum var blásið lífi í félagið. Ég varð þá for- maður þess og fljótlega lenti ég í stjóm Skógræktarfélags Þingeyinga og varð formaður árið 1978 og lét ekki af því embætti fyrr en núna í vor. Að hugsa sér, ég er búin að vera í 18 ár! - en það hefur nú verið óskaplega gaman. Það er svo einstaklega gott fólk sem vinnur að skógrækt. Fólk vinnur ekki að skógrækt nema það búi yfir bjartsýni, jákvæðni og ákveðinni óeigingimi." - Ert þú ekki líka ífélagsskapnum, sem œtlar að grœða upp Hólasand? „Byrjunin á þessu Hólasandsævin- týri er nú í rauninni alveg fáránleg. Það var þegar ég var að koma inn í stjóm Skógræktarfélags Suður-Þing- eyinga að það komu til Húsavíkur menn frá Skógræktarfélagi íslands til að ræða við stjórn Skógræktarfélags- ins hér. Ég ók á þennan lund sem leið lá niður Hólasand og hnoðaði saman þessari vísu á leiðinni. Efalaust verður langt í land / að laufin hvísli í blænum. / í hillingum sé ég Hólasand / hulin í skógi grænum. Þessi vísa varð svo umræðuefni á fundinum og fannst sitt hverjum en Akureyri. Ég var aðeins þar í einn vet- ur og lauk gagnfræðaprófi þaðan 1946 svo hætti ég því að mig langaði svo að læra að verða vefnaðarkennari og til þess að geta það várð ég að fara í hús- mæðraskóla. Ég fór í húsmæðraskólann í Hvera- gerði til Ámýjar Filipusdóttur, ákaf- lega merkilegrar konu og ég er þess fullviss að það varð til þess að ég lenti seinna svona mikið út í félagsstörfum. Þetta var enginn venjulegur hús- mæðraskóli, það urðu allir að taka þátt í framsögn, flytja ræður og tleira í þeim dúr. Ámý sagði að stúlkur yrðu að geta staðið fyrir sínu máli og það gætu þær ekki nerna þær fengju æf- ingu til þess, hugsunarháttur hennar hafði áhrif á okkur allar. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég flutti ræðuna mína á prófdaginn, hún var um gleðina." - Fórstu einhvern tímann í vefnað- arkennaranámið? „Nei, ég sótti um ákaflega virðu- legan skóla brlendis því enginn slíkur skóli var hér á landi en það árið var enginn nemandi tekinn inn frá Islandi, en næsta ár á eftir mátti ég koma, þá hafði ég öðrum hnöppum að hneppa Sumarnætur í hlöðunni - Eru bernskuminningarnar annars tengdar búskapnum? „Já, en líka gestuni og móttöku gesta. Á sumrin, þegar ég var stelpa, vissi ég aldrei, frekar en hinir krakk- arnir í Reykjahlíð, hvar ég ntundi sofa næstu nótt. Við gengum ævinlega úr rúmi fyrir gestum og margar sumar- nætumar sváfum við í hlöðunni. Það var líka okkar starf, bamanna í Reykjahlíð, að sýna ferðamönnum það sem þótti markverðast í nágrenn- inu. Við vorum leiðsögumenn þeirra tíma. Við rérum með ferðamenn út í Slútnes, fylgdum þeim í Stórugjá og gengum með þeint upp á Háuhlíð til að þeir gætu séð yfir sveitina." Fegurðin býr í sálinni - Hvernig er að eyða œvinni í sveit, sem almennt er talin með fegurstu sveitum landsins? „Það hefur verið yndilegt að alast hér upp og búa hér og ég á erfitt með að hugsa þá hugsun til enda ef ég þyrfti að fara héðan. Mývatnssveit er vissulega fögur en það er víða fagurt og fegurðin ræðst ekki síður af sálar- ástandi þess sem á horfir en því sem horft er á, í náttúrunni skiptir birtan líka miklu og litbrigði himinsins." Er ferðamannastraumurinn þreytandi? „Ég er alin upp í nábýli við ferða- menn og ég tek þeim einfaldlega þannig að ég læt þá ekki þreyta mig. Það er líka alveg ótrúlegt hve stutt ég þarf að fara til að finna mína uppá- haldsstaði, baki við hóla og hæðir, þar sem enginn ferðamaður kemur, þar býr enn friður og kyrrð sveitarinnar jafnvel á annasömustu ferðahelgi sumarsins." - En veturnir, þá er sveitin frekar afskekkt, stendur hátt og oft er snjó- þungt, hvernig líkarþér við veturinn? „Ég er aldrei ánægðari heldur en þegar allt er á kafi í snjó, febrúarstill- ur þegar allt er hvítt og hægt að fara upp á hæstu hæðir og renna sér á skíð- um niður, þannig veður vil ég fá. Þá gleymist umheimurinn um stund, vetr- arstillurnar eru góðar fyrir sálina og þá er birtan stórkostleg og sveitin ekki síður fögur en á sumardegi.“ - En eru Mývetningar öðruvísi en aðrir Islendingar? „Ég er ekki viss um að við séunt alveg sérstakur þjóðflokkur, og þó!“ Félagsmálin - Á skautum á fyrsta fundinn - Þú hefur haft með höndum fjölmörg trúnaðarstöf fyri'r hin ýmsu félög. Hvenœr hófust afskipti þín af félags- störfum? „Ég man vel eftir því þegar ég fór á minn fyrsta fund. Þá var ég fjórtán ára og fór á skautum yfir vatnið á ungmennafélagsfund í Þinghúsinu á Skútustöðum, síðan eru fundimir nú orðnir býsna margir. í Þinghúsinu var stundum svell á gólfinu og svo kalt að við urðum að byrja á því að dansa til að geta haldið á okkur hita á fundum. Þetta var fund- ur hjá ungmennafélaginu Mývetningi, seinna var svo Eilífur stofnað í út- sveitinn og ég gekk í það og var eitt sinni formaður þess. Þegar efnt var til samkeppni um merki Héraðssambands Þingeyinga, HSÞ, í tilefni af 50 ára afmæli sam- bandsins, sendi ég inn tvær hugmynd- ir. Það varð úr að ég var fengin til að skella þeim saman í eina og það er merki HSÞ í dag.“ Með kvenfélagskonum „Þegar ég var 26 ára gekk ég í Kven- félag Mývatnssveitar og ég hef verið formaður félagsins þrisvar sinnum í samtals 15 ár. Ég var líka formaður Hólmfríður var forniaður Kvenfélagasambands Suður-Þingeyinga um ára- bil. Hér er hún fyrir niiðri mynd ásamt stjórn sambandsins, f.v. Þuríður Hermannsdóttir, Elín Aradóttir, Hólmfríður, Helga Jósepsdóttir og Jó- hanna Á. Steingrhnsdóttir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.