Dagur - 04.05.1996, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 4. maí 1996
------------------------------------>
AKUREYRARBÆR
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar
Kynningarfundur
um deiliskipulag miöbæjar
Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar boðar til kynn-
ingarfundar um tillögu að deiliskipulagi norður-
hluta miðbæjar þriðjudaginn 7. maí nk. kl. 20.30
í Húsi aidraðra, Lundargötu 7.
Skipulagssvæðið nær frá Hofsbót í suðri að íþrótta-
velli í norðri. Greint verður frá helstu markmiðum
með endurskoðun deiliskipulagsins og meginatrið-
um tillögunnar, m.a. hugmyndum um aukna íbúðar-
byggð í miðbænum. Fundurinn er öllum opinn en
hagsmunaaðilum á svæðinu, húseigendum, íbúum
og eigendum fyrirtækja er sérstaklega bent á að
kynna sér tillöguna og taka þátt í umræðum um
hana.
Tillagan liggur jafnframt frammi almenningi til sýnis
á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3.
hæð, til þriðjudagsins 28. maí 1996. Þeir sem óska
geta kynnt sér tillöguna og gert við hana formlegar
athugasemdir.
Skipulagsstjóri.
J
Háskólinn á Akureyri
Iiinrituii
nýncma
Heilbrigðisdeild: Hjúkrunarfræði
Kennaradeild: Kennaranám, lcikskólakennara
nám.
Rekstrardeild: Rekstrarfræði, iðnrekstrar
fræði, framhaldsnám í
gæðastjórnun.
Sjávarútvegsdcild: Sjávarútvegsfræði, matvæla
framleiðsla
Reglulegri innritun nýnema
lýkur 1. júní nk.
Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af prófskír-
teinum. Ef prófum er ekki lokið skal senda skírteini
um leið og þau liggja fyrir. Við innritun ber að
greiða staðfestingargjald, kr. 6.000,- sem er óaftur-
kræft fyrir þá nemendur sem veitt er skólavist. Bent
er á að auðveldast er að leggja þessa upphæð inn á
póstgíróreikning Háskólans á Akureyri, reiknings-
númer 0900-26-156876.
Skilyrði fyrir innritun í háskólann er stúdentspróf
eða annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt.
í framhaldsnám í gæðastjórnun gilda þó sérstök
inntökuskilyrði um B.Sc. gráðu í rekstrarfræði eða
annað nám sem stjórn háskólans metur jafngilt. Á
fyrsta ári í heilbrigðisdeild er gert ráð fyrir að fjölda-
takmörkunum verði beitt. Þannig verði fjöldi þeirra
1. árs nema sem fá að halda áfram námi á vormiss-
eri 1997 takmarkaður við töluna 25.
Umsóknarfrestur um húsnœði á vegum Félagsmála-
stofnunar stúdenta á Akureyri er til 20. júní 1996.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á
skrifstofu háskólans, Sólborg, 600 Akureyri, sími
463 0900, frá klukkan 8-16.
Upplýsingar um húsnæði á vegum Félagsstofnunar
stúdenta á Akureyri veitir Jónas Steingrímsson í
síma 854 0787 og 463 0968.
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI.
HÁSKÓLINIM
A AKUREYRI
Á leikskólanum er hægt að gera ýmislegt skemmtilegt og víst er að þessir ungu drengir á leikskólanum Lundarseli
voru í góðu skapi þegar ljósmyndari Dags kom í heimsókn í síðustu viku. Myndir: BG
Akureyri:
Opið hús á leikskólum
Börnin á Klöppum bíða eftir drekkutíma.
Oskum eftir að ráða starfs-
fólk í sumar og heilsársstörf
bæði í sjoppu og bensín.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar fást á
skrifstofu BSH.
BJÖRN SIGURÐSSON HÚSAVÍK
Héðinsbraut 6 ■ Húsavík
Sími 464 2200 • Fax 464 2201.
SHELL
NESTI
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða yfirlæknis
við fæðinga- og kvensjúkdómadeild FSA er laus til
umsóknar.
Umsækjendur skulu hafa sérfræðileyfi í kvensjúkdóm-
um og fæðingarhjálp.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 1996.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Baldvinsson, yfir-
læknir.
Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt upplýs-
ingum um nám og fyrri störf, sendist framkvæmda-
stjóra sjúkrahússins, Halldóri Jónssyni.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 463 0100.
f dag, laugardag, klukkan 10:30 til
14:00, verður opið hús á leikskólum
Akureyrarbæjar og einkareknu leik-
skólunum Stekk og Hlíðarbóli.
Leikskólamir bjóða bæjarbúa vel-
komna að skoða og kynna sér leik-
skólastarfið.
Anna Ámadóttir, leikskólastjóri
á Krógabóli, segir að tilgangurinn sé
að kynna það starf sem fram fari á
leikskólunum og draga fram sér-
kenni þeirra. „Síðustu 5-10 ár hefur
verið mikil þróun í leikskólastarfi,"
segir Anna og tekur fram að þó
margt sé líkt í leikskólunum hafi
þeir mismundandi áherslur. T.d. sé
mismikil áhersla lögð á frjálsan leik,
hreyfingu og fleira og starfsemin
fari oft eftir því fagfólki sem sé til
staðar.
Opna húsið er tilvalið fyrir for-
eldra sem eru að leita að dagvist
fyrir böm sín og einnig fyrir for-
eldra sem eru að flytja í annað
hverfí og eiga börn sem þurfa að
skipta um leikskóla. Auk þess eru
allir þeir sem áhuga hafa á uppeldis-
málum hvattir til að mæta.
Opið hús verður á eftirtöldum
leikskólum:
Árholt v/Háhlíð - Flúðir v/Þing-
vallastræti - Holtakot, Þverholti 3 -
Iðavöllur v/Gránufélagsgötu
Klappir, Brekkugötu 34 - Kiðagil,
Kiðagili 3 - Kórgaból, Glerárkirkju^
- Lundarsel, Hlíðarlundi 4 - Pálm-
holt v/Þingvallastræti - Síðusel
v/Kjalarsíðu - Hlíðarból v/Skarðs-
hlíð - Stekkur v/Spítalaveg. AI
Áður en leikskólabörnin á Klöppum
fá sér í svanginn verða allir að þvo
sér um hendurnar.
Bridgefélag Akureyrar:
Spilað í Al-
freðsmótinu
Þriðjudaginn 30. apríl vom spilað-
ar 5 umferðir í Alfreðsmótinu og
er þá búið að spila 15 umferðir'af
19 og er staðan þessi:
1. Jónas Róbertsson-Skúli Skúla-
son. 134 stig
2. Páll Þórsson-Frímann Stefáns-
son. 115 stig
3. Anton Haraldsson-Pétur Guð-
jónsson. 110 stig
4. Stefán Vilhjálmsson-Guðmund-
ur V. Gunnlaugsson. 73 stig
Síðustu 4 umferðirnar verða
spilaðar þriðjudaginn 7. maí.