Dagur - 04.05.1996, Qupperneq 13
Laugardagur 4. maí 1996 - DAGUR - 13
POPP MAGNÚS GEIR CUÐMUNDSSON
fllci nis Q Clll Irci vörum
- orðin ein of vinsæluslu söngkonum heims
Alanis Morissette eykur nú vinsældir sínar jafnt og þétt og er orðin ein
af þeim vinsælustu í söngkvennabransanum.
í byrjun nóvembermánaðar á síð-
asta ári birtist hér á síðunni grein
um nýja upprennandi söngstjörnu
í poppinu, Alanis Morissette. Var
þar sagt frá því að þessi 21 árs
stúlka væri um það bil að leggja
stóran hluta heimsins að fótum sér
og hefði m.a. náð efsta sætinu í
Kanada og Bandaríkjunum með
plötunni sinni, Jagged Little Pill,
sem kom út hjá útgáfufyrirtæki
poppdrottningarinnar Madonnu
sl. sumar. Vissu fáir ef nokkrir á
þessum tíma hérlendis hver þessi
Alanis Morissette var, en í fram-
haldinu á síðustu vikum ársins
1995 var hún komin á hvers
manns varir, eða öllu heldur voru
flestir komnir með lögin hennar á
sínar varir og hefur svo áfram ver-
ið fram á þennan dag, á íslandi
sem víðast hvar annars staðar.
Verðlaun hafa síðan í kjölfar vax-
andi vinsælda, streymt að henni,
Grammy, Britverðlaun, kanadísku
tónlistarverðlaunin og mörg fleiri.
Um þessar mundir telst Alanis nú
vera komin strax í hóp allra vin-
sælustu söngkvenna samtímans,
Mariah Carey, Whitney Houston,
Janet Jackson og Celine Dion. Sú
síðastnefnda, sem nú á síðustu
vikum hefur verið að keppa við
Alanis um efstu sæti vinsældalist-
anna með nýjustu plötunni sinni,
Falling Into You, er einmitt líka
ættuð frá Kanada og eins og Alan-
is, frönsk-kanadísk. Alanis hefur
þó enn vinninginn a.m.k. í Banda-
ríkjunum, en um heim allan mun
Jagged Little Pill platan hennar
hafa selst í um sjö milljóniun ein-
taka samtals.
SVO SANNARLEGA ENGINN
NÝGRÆÐINGUR
Þegar gæfuhjólið tók að snúast Al-
anis Morissette í vil síðla sumars
'95 drógu menn, eðlilega að
mörgu leyti, þá ályktun að þarna
væri á ferðinni lítt reynd og ung
söngkona að öðlast skjóta frægð.
En þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs
að aldri á hún ýmislegt að baki.
Alanis, sem fæddist í Ottawa 1974,
dóttir fransks-kanadísks föður og
ungverskrar móður, var nefnilega
innan við tíu ára gömul þegar hún
kom fyrst fyrir almenningssjónir, í
barnasjónvarpsseríu sem naut
töluverðra vinsælda í Kanada og
þegar hún var tíu ára söng hún sitt
fyrsta lag inn á plötu. Fjórtán ára
gömul var hún svo orðin ung-
lingasöngstjarna í heimalandinu,
söng dísætt og iðnaðarframleitt
popp og var nefnd svar Kanada
við hinni bandarísku Tiffany. Ekki
náði hún þó þá að ná viðlíka vin-
sældum og sú ameríska. Fyrstu
tvær plöturnar, Alanis og Now Is
The Time, sem komu út 1991 og
1992, seldust þó í um 100.000 ein-
tökum, sem dugði til að hún var
talin vera „bjartasta von" kanad-
ískra söngkvenna. Það er því mjög
reynd og þjálfuð söngkona, þótt
ung sé, sem um er að ræða.
Andstreymi
Eftir útkomu annarrar plötunnar
1992, var ljóst þrátt fyrir þokka-
lega sölu að betur mætti ef duga
skyldii. Hafði Alanis þegar hér er
komið sögu verið búsett um hríð í
Toronto þangað sem hún flutti frá
Ottawa, en ákvað nú aftur að færa
sig um set, til Los Angeles, að
freista gæfunnar líkt og þúsundir
annarra. Þar hins vegar gekk
hvorki né rak hjá henni um tíma
og mátti hún þola mikið and-
streymi sem hún hafði ekki kynnst
heima fyrir. Bera textamir á Jagg-
ed Little Pill einmitt glöggt vitni
um ástand söngkonunnar á þess-
um tíma. ítrekaðar neitanir plötu-
útgefenda við tónlist sem hún
sendi inn til þeirra, biturrar
reynslu af ástinni og fleira. Þykja
textamir einmitt eiga venju fremur
stóran þátt í vinsældum Álanis og
skapa henni sérstöðu litlu síður en
seiðandi og grípandi rokklaglín-
umar.
Madonna kemur
TIL BJARGAR
Þrátt fyrir erfiðleikana gafst Alanis
þó ekki upp og hefur það nú ræki-
lega borgað sig. Skömmu eftir að
hún kom til Los Angeles kynntist
hún lagahöfundinum Glen Ball-
ard, sem þá þegar hafði getið sér
það til nokkurrar frægðar að hafa
samið smellinn Man In The Mirror
með sjálfum Michael Jackson.
Hjálpaði hann henni um skeið við
lagasmíðar, sem svo síðla árs 1994
bar þann ávöxt að Alanis komst
loks á samning. Var það sem fyrr
sagði, Madonna sem gerði við
hana samning fyrir hönd fyrirtæk-
is síns Maverick, en hún hafði áð-
ur komist yfir upptökur sem Alan-
is og Ballard gerðu í sameiningu.
Hreifst poppdrottningin að sögn
sérstaklega af hinni „sjóuðu" rödd
kanadísku söngkonunnar og hisp-
urslausum textum hennar og var
ekki lengi að gera henni tilboð.
Hefur boltinn síðan rúllað hratt og
vinsældimar vaxið stig af stigi.
Segir Alanis sjálf að lykillinn að
velgengninni sé fyrst og fremst sá
að hún hafi verið dugleg og heið-
arleg. Þannig verði hún líka að
haga sér áfram. „Annars gleymist
ég fljótt," segir hún. Eru það sjálf-
sagt orð að sönnu hjá henni og má
mikið vera ef Alanis Morissette
verður ekki enn meira vinsælli og
dáðari þegar tímar líða.
—...—
ftadiohecid
kemur
ekki
Eins og stundum gerist, skipast
veður skjótt í lofti. Það hefur nú
einmitt gerst með hljómsveitina
Radiohead frá Englandi, sem sagt
var frá hér á síðunni í síðustu
viku að væri að öllum líkindum á
leið til íslands til að spila með
Björk á Listahátíð í júní í sumar.
Nú er sem sagt ljóst að hún kem-
ur ekki og er verið að vinna í því
að fá einhverja aðra erlenda sveit
í hennar stað.
-
€kki oð
hællci
Að undanförnu hafa háværar
raddir verið uppi um að pönkþrí-
eykið gríðarvinsæla Green Day
ætti í tilvistarkreppu og að enda-
lok gætu verið nærri. Byrjuðu
þessar raddir að hljóma í kjölfar
þess að hljómsveitin frestaði
skyndilega boðaðri tónleikaferð
um Bretland á dögunum. Öllum
slíkum getgátum hefur nú hins
vegar verið vísað á bug og lýst
sem hreinu bulli. Ástæðan íyrir
Northem Uproar eru sagðir með
poppinu í dag.
því að þeir hættu við að fara til
Bretlands var að sögn sú að mikil
þreyta væri komin í drengina eft-
ir stöðug tónleikaferðalög að
undanfömu. Af illri nauðsyn hafi
því verið ákveðið að hætta við
frekara tónleikahald í bili.
—CjOj—
Orbilcil
Orbital, „teknódanssveitm", sem
m.a. hefur markað sér sérstöðu
með óvenjulega líflegri sviðs-
framkomu, hafa t.d. birst á sviði
með námuluktir/kafaraljóskast-
ara á höfðinu, hefur nú sent frá
sér nýja plötu sem aðdáendur
hafa eflaust beðið með óþreyju.
Kallast gripurinn sá In Sides.
þeim mest efnilegustu í breska
Northern
Uprocir
Eitt allra nýjasta nafnið í að því er
virðist endalausu röð nýrra
breskra bítlapóppssveita, er
Northem Uproar frá rigningar-
borginni „líttþekktu" Manchest-
er. Skipa hana fjórir ungir sveinar
á aldrinum 16 til 18 ára og
höggva þeir af fyrstu smáskífu-
lögunum að dæma í mjög svipað-
an knérunn og risavöxnu sambæ-
ingar þeirra í Oasis. Fyrsta sam-
nefnda plata Northem Uproar er
nú rétt búin að líta dagsins ljós
og er búist við því að hún fái
góðar viðtökur.
—QéBCC
Glimrondi
„gílorrif"
Það er stundum sagt um snillinga
að þeir séu oftast misskildir og
öðlist margir hverjir ekki viður-
kenningu fyrr en þeir eru allir. Má
þetta að nokkru til sanns vegar
færa og eru hinar ýmsu hetjur sem
fórnað hafa lífi sínu listagyðjunni
glögg dæmi um það. Hvort svo
mun gilda um kanadíska tónlistar-
manninn Jeff Waters, skal ekki
endanlega fullyrt, en um hann og
hljómsveitina hans, Annihilator,
hafa þó ófáir farið lofsyrðum og
talið að um einstakt fyrirbæri í
flokki kraftmikils harðrokks væri
að ræða. Átti þetta sérstaklega við
um tvær fyrstu plötur Annihilator,
Alison Hell og Never Neverland
og spáðu menn því, og töldu Wat-
ers og félaga þess vel umkomna,
að sveitin myndi skipa sér á bekk
með ekki minni mönnum en Met-
allica. Svo hefur hins vegar ekki
orðið og má e.t.v. kenna um óstöð-
ugleika með liðsskipan, en Waters
hefur haldist illa á samstarfsmönn-
um og þeir aldrei verið þeir sömu
frá einni plötu til annarrar. Þær
hafa þó komið reglulega og allar
innihaldið hágæða kraftrokk. Nýj-
asta platan, Refresh The Demin,
sem kom út fyrir skömmu og er sú
sjötta í röðinni þegar allt er talið,
er þar heldur engin undantekning
á. Kraftmikil en jafnframt grípandi
lög með ghmrandi „gítarrifum"
eru þar í stórum stíl og er velpakk-
að inn í sterka og tæra upptöku.
Þar er Waters sjálfur að verki líkt
og við gítarleik og söng og gefur
þar frægustu upptökustjórum ekk-
ert eftir. Dugir þetta þó ekki til að
koma Annihilator í efstu sæti sölu-
listanna þrátt fyrir ótvíræð gæði,
en hver veit hvað seinna kann að
gerast hvort sem það verður að
Waters liðnum eða ekki.
Jeff Waters. Vanmetinn snilling-
ur?