Dagur - 07.06.1996, Page 9

Dagur - 07.06.1996, Page 9
Föstudagur 7. júní 1996 - DAGUR - 9 Twist og bast. verður Karakter annað kvöld en í Kjallaranum skemmtir Rúnar Þór í kvöld og annað kvöld. Twist & Bast á KEA Hljómsveitin Twist & Bast spilar fyrir dansi á Hótel KEA á Akur- eyri annað kvöld, laugardags- kvöld. Helgartilboð Hótels KEA samanstendur af einiberjagröfnum og reyktum laxi með rækjufrauði á piparrótargrunni, heilsteiktum lambahryggvöðva með madeira- sósu og ástríðuís á hindberja- mauki fyrir 2.980 krónur. Borðapantir í síma 4622200. Gloría á Oddvitanum Hljómsveitin Gloría sér um að skemmta gestum Oddvitans á Ak- ureyri í kvöld og annað kvöld. Ald- urstakmark er 20 ár og eru gestir minntir á snyrtilegan klæðnað. Inga Eyda! og Co á Pollinum Um helgina, í kvöld og annað kvöld, sér Inga Eydal og hljóm- sveit hennar um að skemmta gest- um veitingastaðarins „Við Poll- Björg Þórhallsdóttir, mezzosópr- an, og undirleikari hennar, Guð- rún Anna Kristinsdóttir. Einsöngstónleikar Bjargar Þórhallsdóttur Björg Þórhallsdóttir, mezzo- sópran, og Guðrún Anna Krist- insdóttir, píanóleikari, halda tónleika í Safnaðarheimili Ak- ureyrarkirkju nk. sunnudag, 9. júní, kl. 20.30. Á efnisskránni eru m.a. ljóð eftir F. Schubert, J. Brahms, H. Wolf ásamt íslenskum sönglögum og óperuaríum. Tónleikarnir eru tileinkaðir minningu sr. Þórhallar Hösk- uldssonar, föður Bjargar, sem lést á sl. ári. Þetta eru kveðjutónleikar Bjargar á Akureyri, en hún er á förum til framhaldsnáms í söng við konunglega Tónlist- arskólann í Manchester í Eng- landi. Þess má geta að í helgar- blaði Dags birtist viðtal við Björgu Þórhallsdóttur. inn“ á Akureyri. Þá er rétt að minna á að í tilefni þriggja ára af- mælis „Við Pollinn“ verður opnað kaffihús eftir vetrardvala kl. 15 í dag. Af því tilefni verður boðið upp á kaffi og Sachertertu á 200 krónur. Karola sýnir í Listasafninu Á morgun, laugardaginn 8. júní, kl. 16 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri sýning Karolu Schleg- elmilch undir yfirskriftinni „Displacement". Á sýningunni sýnir Karola verk sem eru gerð með ljósmynda- og vídeotækni. Karola er fædd 1964 í Berlín og hefur numið við Listaakadem- íuna í Berlín og lauk mastemámi árið 1993. Hún hefur bæði dvalið á Islandi við myndlistariðkun og sýnt myndir sínar í Reykjavík. Um myndir sínar segir hún m.a.: „Hluti fantasíunnar í upplifun á náttúrunni verður öllum ljós er dregin er upp mynd af henni. Landslag tjáir ímyndunaraflið, það myndar liti þess, andrúmsloft og svo framvegis. Það umvefur eða á sér stefnumót sem á augna- bliki uppgötvunarinnar er sér- stakt.“ Fjölskylduferð í Hegranes Ferðafélag Skagfirðinga stendur fyrir ferð í Hegranes í dag, föstu- daginn 7. júní, kl. 18. Hjólað verður eða ekið út að gömlu Vatnabrúnni og gengið frá Furðu- ströndum út Nesið að vestan út í vita. Ferð fyrir alla fjölskylduna. Allir eru velkomnir. Farið verður frá Verknámshúsi Fjölbrautaskól- ans og verður Valgeir Kárason leiðsögumaður ásamt fleirum. Flóamarkaður í Kjarnalundi Flóamarkaður Náttúrulækningafé- lags Akureyrar verður í Kjama- lundi nk. mánudagskvöld, 10. júní, kl. 20-22. (Ath. opið á mánu- dagskvöldum í sumar). I boði verður úrval af sumarfatnaði svo og bókum, skóm og ýmsum smá- vörum á afar lágu verði. Flóamarkaður Hjálpræðishersins Flóamarkaður Hjálpræðishersins að Hvannavöllum 10 á Akureyri verður opinn í dag, föstudag, kl. 10-17. Að venju eru hægt að gera þar góð kaup og til marks um það fást flíkur á 100-200 krónur. Kaffihlaðborð á Stórutjörnum Hótel Edda á Stórutjömum í Ljósavatnsskarði verður opnuð á morgun, laugardag, og af því til- efni verður fyrsta kaffihlaðborð sumarsins á hótelinu á sunnudag, 9. júní. Kaffihlaðborð í Engimýri Næstkomandi sunnudag verður boðið upp á kaffihlaðborð á ferða- þjónustubænum Engimýri í Öxna- dal og er ætlunin að hafa kaffi- hlaðborð á sunnudögum í sumar eins og undanfarin sumur. SSSÓI í Ýdölum Það er orðinn fastur liður að hljómsveitin SSSól haldi dansleik í Ydölum í Aðaldal á þessum árs- tíma. Að venju má búast við að útskriftarnemar í Menntaskólan- um á Akureyri mæti á dansleikinn og fagni próflokum. Til upphitunar fyrir SSSól verður hljómsveitin Botnleðja. Minjasafnið opið um helgina Um helgina svo og aðra daga í sumar verður Minjasafnið á Akur- eyri opið frá kl. 11- 17. Þar eru varðveittir munir og ljósmyndir sem tengjast lifnaðarháttum fyrri tíma á Akureyri og við Eyjafjörð. Sýningarnar sem nú eru í safninu eru: Akureyri í ljósmyndum, Sitt af hverju tagi, Kirkjugripir úr Eyjafirði, Prentverk á Ákureyri og Hér stóð bær. Þá eru einnig til sýnis textílar, útskurðargripir, þjóðbúningar og kvenskart, borð- búnaður og búsáhöld frá fyrri tím- um. Aðgangseyrir að safninu er 250 krónur, en frítt er fyrir eldri borg- ara og börn að 16 ára aldri. Heimstvímenningur í Hamri Svokallaður „Alcatel" heimstv- ímenningur verður spilaður í Hamri á föstudag, 7. júní, kl. 19.30 á vegum Bridgefélags Ak- ureyrar. Þátttökugjald er kr. 1500 á par. Sömu spil verða spiluð sam- tímis víða um heim. Þátttakendur fá bók með spilum og verðlaun verða veitt. Allir briddsspilarar eru boðnir velkomnir og er þeim bent á að mæta tímanlega til skráningar. BSA sýnir Benz og Mazda Um helgina verða sýndar hjá BSA við Laufásgötu á Akureyri nýjustu bílamir frá Mercedes Benz og Mazda. Opið verður á morgun, laugardag, og á sunnudag kl. 13- 17 báða dagana. Babe í Borgarbíói Borgarbíó á Akureyri sýnir um helgina kl. 21 myndina „Babe“, sem var útnefnd til sjö Óskars- verðlauna, m.a. sem besta mynd- in. Á sama tíma verður sýnd í hin- um salnum hasarmyndin „From Dusk till Dawn“. í aðalhlutverk- um eru stórstjömur á borð við Harvey Keitel, George Clooney, Quentin Tarantino og Juliette Lewis. Klukkan 23 verður annars veg- ar sýnd myndin „Dead Man Walk- ing“ og hins vegar „Get Shorty“, sem hampaði Golden Globe verð- laununum. Á bamasýningum á sunnudag kl. 15 verða sýndar myndirnar Pocahontas og Toy Story. Sveinn Heiðar kynnir raðhús Trésmíðaverkstæði Sveins Heið- ars Jónssonar á Akureyri kynnir um helgina raðhúsíbúðir sem fyr- irtækið hefur byggt við Huldugil á Akureyri. Auk kynningar á sjálf- um íbúðunum verða til sýnis í þeim myndverk eftir Guðmund Ármann, myndlistarmann, vörur frá byggingavörudeild KEA, Tré- smiðjunni Berki, húsgögn frá Öndvegi, heimilistæki frá AEG, skilti frá gullsmíðastofunni Skarti og innréttingar sem Ölur ehf. hef- ur smíðað. Þá verða pizzur frá Ding Dong kynntar og boðið upp á Frissa fríska. Sveinn Heiðar var með sams- konar kynningu um síðustu helgi og að hans sögn voru viðbrögðin og aðsóknin ótrúlega góð. Fast- lega má því búast við fjölmenni um helgina. Byggðavegi 98 Tilboð Vatnsmelónur 99 kr. kg Paprika græn 398 kr. kg Tómatar 1 pk. ca. 1 kg kr. 298 - ein gúrka fylgir með Jarðarber 200 g box kr. 99 Pepperonibúðingur 459 kr. kg *** Þrefalt í Ælm Opið til kl. 22 öll kvöld Tökum vel á móti ykkur! Starfsfólk B-98 AKUREYRARBÆR Byggingafulltrúi Akureyrarbæjar auglýsir breytingu á afgreiðslu ýmissa er- inda sem berast bygginganefnd Akureyrar. Byggingafulltrúinn afgreiðir byggingaleyfisum- sóknir, er uppfylla ákvæði laga og reglugerða, fyrir nýbyggingar, breytingar og viðbætur, lög- gildingu iðnmeistara o.fl. Telji einhver rétti sínum hallað með afgreiðslu byggingafulltrúa eða byggingafulltrúi synjar að afgreiða erindi er honum heimilt að skjóta máli sínu til bygginganefndar innan 14 daga, frá því að honum er kunnugt um afgreiðslu bygginga- fulltrúa, og fer um meðferð kærumála skv. byggingalögum nr. 54/1978, með síðari breyt- ingum, og skv. stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Skulu slík kærumál send til bæjarlögmannsins á Akureyri. Enn fremur er hægt að skjóta mál- inu til úrskurðar umhverfisráðherra, sbr. 8. mgr. 8. gr. byggingarlaga. Samþykkt þessi var staðfest um Umhverfis- ráðuneytinu 03. apríl 1996 og byggir á lögum nr. 82/1994 um reynslusveitarfélög. Breyting þessi tekur gildi þann 10. júní 1996. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu bygginga- fulltrúa Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.