Dagur - 09.07.1996, Side 1
79. árg.
Akureyri, þriðjudagur 9. júlí 1996
127. tölublað
Bolir
Verð frá 1.380
Víðförult hús:
Flutt frá
Dalvík fyrir
Múlann til
Ólafsfjarðar
- reist á Árskógsströnd
Undir mánaðamót verður
húsið Jaðar, sem stóð norð-
an við Sæplast á Dalvík, flutt til
Ólafsfjarðar, þar sem það verður
sett niður syðst og efst á Kleif-
unum. Ekki hefur nýtt hús risið
á Kleifunum síðan á sjöunda
áratugnum að sögn Árna Helga-
sonar, verktaka í Ólafsfirði, eig-
anda hússins.
Dalvíkurbær, sem átti húsið,
bauð út niðurrif á því og átti Ámi
lægsta tilboðið. Árni segir húsið í
ágætu ástandi að utan, en nokkuð
þurfi að gera við að innan, og hafi
hann séð sér leik á borði með að
flytja það út í Ólafsfjörð. Hann
segist ekki hafa neina hugmynd
um kostnaðinn við flutninginn
enn, enda kemur margt til; meðal
annars þarf að laga veginn fyrir
Múlann til að hægt verði að koma
húsinu áfailalaust á leiðarenda.
Jaðar, sem er um 57 fermetrar,
verður sjálfsagt orðið með víðförl-
ari húsum á landinu eftir förina til
Ólafsfjarðar, en það var reist rétt
eftir aldamót á Árskógsströnd og
var flutt þaðan til Dalvíkur. shv
Vesturfarasetrið á Hofsósi opnað
Fjölmenni var viðstatt opnun Vesturfara-
setursins á Hofsósi sl. sunnudag, þar á
meðal fólk frá Vesturheimi, sem rekur
ættir sínar hingað til lands. Fram kom í
máli manna við athöfnina að opnun set-
ursins myndi að líkum efla og styrkja
tengsl Vestur-íslendinga við ísland - og
eins þeirra sem hér á Fróni búa við
frændur vestra. „Ég hef fundið glöggt
þann einstaka hug sem fólk vestra ber til
gamla landsins og hve sterkar rætur það á
hér,“ sagði frú Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti íslands, sem hér sést ásamt Valgeiri
Þorvaldssyni, framkvæmdastjóra Vestur-
farasetursins, og Guðrúnu Halldóru Þor-
valdsdóttur, eiginkonu hans. Mynd: -sbs
S
Eg bið að heilsa öllum heima á
Islandi og segðu þeim að ég
sé í góðu lagi,“ sagði Guðrún
Björg Björnsdóttir Árnason, 107
ára gömul kona á Betel, dvalar-
heimili aldraðra í Gimli við
Winnipegvatn í Kanada, þegar
blaðamaður hitti hana að máli
þar ytra á dögunum.
Það má með sanni segja að
Guðrún sé elst Islendinga, þó svo
hún hafi lengst af búið vestur í
Kanada. Hún fæddist á íslandi,
nánar tiltekið á Egilsstöðum í
Vopnafirði, þann 20. október
1888, og fluttist með fjölskyldu
sinni til Vesturheims fjögurra ára
gömul. Samkvæmt upplýsingum
Hagstofu íslands er Aðalbjörg
Tryggvadóttir í Reykjavík, fædd 4.
desember 1891, hins vegar elst ís-
lendinga með heimilisfang hér á
landi. Alls eru 30 íslendingar, bú-
settir hér á landi, 100 ára eða eldri.
Guðrún er vel hress og það er
ekki hægt að merkja að hún hafi
náð svo háum aldri. En sjónin er
tekin að daprast og heymin sömu-
leiðis. Bros færðist þó yfir andlit
hennar þegar blaðamaður ávarpaði
hana á íslensku og hún söng af
barnslegum innileik „Hvað er svo
glatt sem góðra vina fundur“.
„Þó það væri nú að maður
reyndi að tala sitt eigið móður-
mál,“ sagði Guðrún, þegar blaða-
Guðrún Björg Björnsdóttir ^
Árnason flutti fjögurra ára r
gömul til Vesturheims og dvelur nú
á Betel, dvalarheimili aldraðra í
Gimli í Kanada. Mynd: óþh
í Gimli
maður undraðist hversu góða ís-
lensku hún talaði eftir öll þessi ár
fjarri ættjörðinni.
Líklega má slá því nokkuð
föstu að Guðrún sé sú eina á lífi af
þeim þúsundum íslendingum sem
fluttust vestur um haf undir lok
síðustu aldar. Hún giftist Vil-
hjálmi Árnasyni árið 1915 og var
þeim níu barna auðið. Eitt þeirra,
Ónnu Jónínu Stevens, hitti blaða-
maður í Gimli og einnig tengda-
dóttur Guðrúnar, Lilju Bergþórs-
dóttur Ámason, sem sömuleiðis er
þar búsett.
Þau hjónin reistu sér hús við
Winnipegvatn og Vilhjálmur réri
til fiskjar út á vatnið, eins og al-
gengt var um Islendinga, auk þess
sem hann stundaði smíðar. Vil-
hjálmur er látinn fyrir mörgum ár-
um.
Guðrún, eða Rúna eins og hún
er oftast kölluð, hélt sitt eigið
heimili þar til hún var 88 ára göm-
ul en hefur síðan búið á Betel, sem
er einkar vistlegt heimili aldraðra í
Gimli. Þar búa margir aðrir af ís-
lenskum ættum. Guðrún er eins og
áður sagði ágætlega hraust og til
marks um það hefur hún einungis
tvisvar á spítala komið, þegar hún
átti tvö yngstu börn sín. Hún seg-
ist ekki kunna formúluna að því að
ná svo háum aldri, en tekur fram
að kaffi sé besta meðal sem til sé!
Þess má svo að lokum geta að á
afmælisdegi Guðrúnar er jafnan
slegið upp mikilli veislu í Gimli,
enda er hún ókrýnd ættmóðir
byggðarlagsins. óþh
Sóknarnefnd
Möðruvallasóknar:
Engar
aðgerðir
Sóknarnefnd Möðruvallasókn-
ar kom saman til fundar sl.
sunnudagskvöld og var hjóna-
vígslan utan kirkju, sem fram
fór um þarsíðustu helgi, meðal
umræðuefna.
Að sögn formannsins, Magnús-
ar Stefánssonar í Fagraskógi, voru
sr. Torfa Stefánssyni Hjaltalín
ekki veittar neinar ákúrur, heldur
voru málin einungis rædd, en þó
hafi nefndin gefið honum til
kynna að hún væri ekki ánægð
með uppákomuna.
Magnús segir sóknarnefndar-
menn hafa tekið þá ákvörðun að
grípa ekki til neinna aðgerða í
kjölfarið, og gerði hann ráð fyrir
að hlutur sr. Jóns Helga Þórarins-
sonar yrði til umræðu hjá réttum
kirkjuyfirvöldum, en það væri
ekki fyrir tilstilli nefndarinnar.
„Sóknarnefndin hefur ennfrem-
ur ákveðið að fjalla ekki frekar
um málið í fjölmiðlum, en láta
það öðrum eftir, sjái þeir ástæðu
til,“ sagði Magnús. shv
Golfóðir inn-
brotsþjófar
Lögreglunni á Dalvík var
tilkynnt um innbrot í golf-
skála Hamars í Svarfaðardal að-
faranótt sunnudags. Þjófarnir
gengu snyrtilega um en höfðu á
brott með sér tölvu og prentara.
Aðfaranótt sunnudagsins var líka
brotist inn í golfskálann Skeggja-
brekku rétt utan við Ólafsijörð og
þrjú golfsett tekin. Að sögn lög-
reglunnar á Dalvík og Ólafsfirði
bendir allt til þess að um sömu
innbrotsmenn sé að ræða.
Margir voru samankomnir á
Siglufirði urn helgina og gleðskap-
ur hélt áfram langt frarn eftir
morgnunr en að sögn lögreglu fór
allt friðsamlega fram.
Þá valt bíll á Kili um helgina en
farþegarnir sem voru útlenskir
sluppu allir ómeiddir.
Lögreglan á Akureyri segir
helgina hafa gengið stórslysalaust
fyrir sig þrátt fyrir mikinn fjölda
fólks í miðbænum á laugardags- og
sunnudagsnótt. mgh
Yfirlæknir
fæðingardeildar FSA:
Fjórar umsóknir
Stjórn Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri fjallaði í gær um
umsóknir um stöðu yfirlæknis
fæðingardeildar sjúkrahússins.
Fjórar umsóknir bárust um stöð-
una en framundan er hæfnismat
áður en ráðið verður í stöðuna.
Þeir sem sóttu um stöðuna eru:
Jón Baldvin Stefánsson, yfirlæknir
kvennadeildar sjúkrahússins í
Trelleborg í Svíþjóð, Jónas
Franklín, sérfræðingur á fæðingar-
deild FSA, Vilhjálmur Andrésson,
yfirlæknir kvennadeildar sjúkra-
hússins í Stord í Noregi og Þorkell
Guðmundsson, yfirlæknir kvenna-
deildar Sjúkrahúss Suðurlands á
Selfossi. JÓH