Dagur - 09.07.1996, Blaðsíða 3
£*GO h 'il'm O ii incNi ii^íiíí — CJI IOAH
/*>
Þriðjudagur 9. júlí 1996 - DAGUR - 3
FRÉTTIR
Landbúnaðarráðherrar Norðurlanda funda á Húsavík:
góð landkynning"
- segir Guðmundur Bjarnason, landbúnaðar- og umhverfisráðherra
Guðmundi Bjarnasyni, landbúnaðar- og umhverfísráðherra, þykir við hæfí
að halda fund landbúnaðarráðherra Norðurlandanna í sínuin heimabæ,
Húsavík. Mynd: GKJ
Árlegur fundur landbúnaðarráð-
herra Norðurlandanna er hald-
inn að þessu sinni á íslandi.
Guðmundur Bjarnason, land-
búnaðar- og umhverfisráðherra,
tók þátt í slíkum fundi fyrir ári
síðan í Lillehammer í Noregi og
þegar ljóst var að fsland yrði
næst í röðinni fannst honum vel
við hæfi að fara neð fundinn á
heimaslóðir. Og til Húsavíkur er
hann kominn ásamt um áttatíu
manns, sem ætla að funda og
skoða land og þjóð í leiðinni.
„Það er árviss viðburður að
lanbúnaðarráðherrar Norðurland-
anna hittist og beri saman bækur
sínar um ýmis málefni bæði sam-
eiginleg og eins áherslur einstakra
landa. Mér fannst sjálfsagt að
leggja til að fundurinn yrði hald-
inn hér í minni heimabyggð og
mér sýnist í það minnsta veðrið
ætla að taka vel á móti okkur
þannig að ég vona að þetta verði
bæði fróðlegur og skemmtilegur
fundur. Þetta er annars vegar land-
búnaðarráðherrar Norðurlandanna
sem funda og hins vegar stór hóp-
ur embættismanna Norðurlanda-
ráðs, sem funda um landbúnað og
skógrækt. Fundir sem þessir eru í
sjálfu sér mjög mikil landkynning,
bæði kynni manna á milli og
kynni við land og þjóð. Núna
verður farið m.a. í ferð í Ásbyrgi,
Dettifoss og Mývatnssveit auk
þess að fara í hvalaskoðun á
Skjálfandaflóa með fundargesti.
Margir velta því fyrir sé hve
miklu sé eytt af fjármunum í slíka
fundi og það má auðvitað hver
hafa sína skoðun á því, en ég er
þess fullviss að ef að vel tekst til
með uingjörð um svona fundi þá
skilar það sér margfalt þegar til
lengri tíma er litið.
Fundir af þessu tagi eru fyrst
og fremst upplýsingafundir og
stefnumótandi fundir en þar eru
ekki teknar ákvarðanir sem binda
þjóðirnar. Mjög nauðsynlegt er
fyrir okkur íslendinga að styrkja
og efla Norðurlandasamstarfið,
þannig að það geti verið okkar
vettvangur til samskipta við aðrar
þjóðir, við höfum ekki hug á því
eins og allir vita að ganga í Evr-
ópusambandið, það hafa hins veg-
ar Danir, Svíar og Finnar gert, og
þá er mjög mikilvægt fyrir okkur
að nýta Norðurlandasamvinnuna
til þess að fá upplýsingar um það
hvað er að gerast hjá Evrópusam-
bandinu og hugsanlega að koma
okkar skoðunum á framfæri. Það
má geta þess til gamans að ég er
nýlega búinn að sitja fund með
umhverfisráðherrum Norðurlanda
þar sem Daninn, Svíinn og Finn-
inn voru að undirbúa fund í Evr-
ópusambandinu og buðu Islend-
ingunum og Norðmönnunum að
taka þátt í þeim undirbúningsfundi
til þess að fylgjast með því sem
þeir eru að gera og líka að láta
okkar sjónarmið koma fram. Þetta
tel ég vera mjög mikilvægt og
gagnlegt fyrir okkur,“ segir Guð-
mundur Bjamason, landbúnaðar-
og umhverfisráðherra. GKJ
AKUREYRARB/ÆR
Starf við mælingar
Laust er til umsóknar starf á mælinga- og hönnunar-
deild Akureyrarbæjar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi stúdentspróf af raun-
greinasviði.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en um
miðjan ágúst.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akureyrarbæjar.
Upplýsingar gefa starfsmannastjóri og Gunnar H. Jóhann-
esson deildarverkfræðingur í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrar-
bæjar í Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 18. júlí nk.
Starfsmannastjóri.
„Landslagið er stórkostlegt"
- segir Annika Ahnberg, landbúnaöarráðherra Svíþjóðar
Sænski landbúnaðarráðherrann,
Annika Ahnberg, hafði fyrirfram
látið í ljós þá ósk sína að fá að
reyna íslenska hestinn. Hún brá
sér strax á fyrsta degi heimsóknar-
innar í hestaleiguna í Saltvík við
Húsavík og fór á bak. Blm. Dags
hitti hana þegar hún reið í hlað í
Saltvík eftir velheppnaðan reiðtúr.
„Þetta var stórkostlegt, hesturinn
er bæði fallegur og mjög sterkur
þrátt fyrir smæðina, svo ég tali nú
ekki um þetta tilkomumikla lands-
lag sem þið hafið hér á Islandi. Eg
er mjög hrifin af því sem ég hef
séð hingað til og meira á ég eftir
að sjá,“ segir brosandi sænskur
landbúnaðarráðherra, Annika
Ahnberg. GKJ
Sænski landbúnaðarráðherrann, Annika Ahnberg í hestaleigunni í Saltvík,
nýkomin úr velheppnuðuin reiðtúr. Mynd: gkj
V
AKUREYRARBÆR
Stöðuvörður
Laust er til umsóknar starf stöðuvarðar (hálft starf)
hjá Bifreiðastæðasjóði Akureyrar frá 1. ágúst nk.
Helstu verkefni eru: Eftirlit með gjaldskyldum bifreiðastæð-
um, stöðum á gangstéttum, stæðum fatlaðra og fleiri atriði
tengdum stöðubrotum.
Laun skv. kjarasamningi Akureyrarbæjar og Verkalýðsfé-
lagsins Einingar.
Upplýsingar gefa starfsmannastjóri og Gunnar H. Jóhann-
esson deildarverkfræðingur í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrar-
bæjar í Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 18. júlí nk.
Starfsmannastjóri.
1
• • i
Verðbréfasjóðir Landsbréfa
hafa gefið hœstu ávöxtun verðbréfasjóða í
5 ár
Sem dœmi um raunávöxtun Verðbréfasjóða Landsbréfay
þá hafa SýslubréfgefiS raunávöxtun sl. sex mánuði.
Hafðu samband við Oddnýju Friðriksdóttur, umboðsmann Landsbréfa í Landsbankanum
á Akureyri og fáðu nánari upplýsingar um verðbréfasjóði Landsbréfa.
II
91
§
, LANDSBRÉF HF.
- 7lhx
Löggilt verðbrófafyrirtœki.
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVIK, SIMI 588 9200, BREFASIMI 588 8598
JU