Dagur - 09.07.1996, Page 5

Dagur - 09.07.1996, Page 5
'vnn v- ! r> m. ~u. m 10 ah Þriðjudagur 9. júlí 1996 - DAGUR - 5 Vesturfarasafnið á Hofsósi opnað: íslendingsþráin leitar enn í vestur Fjölmenni var viðstatt opnun Vesturfarasetursins á Hofsósi sl. sunnudag. Karlakórinn Heimir söng viö athöfnina, ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, en kórinn er nýlega kominn úr söngferð til Kanada. Myndir: -sbs. Mikið fjölmenni var viðstatt opn- un Vesturfarasetursins á Hofósi sl. sunnudag og meðal gesta þar var forseti Islands, frú Vigdís Finn- bogadóttir. Einnig voru við þessa athöfn nokkrir Vestur-íslendingar, fólk sem búsett hefur verið alla sína tíð vestanhafs en rekur ættir sínar hingað til lands gjaman í annan eða þriðja lið - og jafnvel lengra aftur. Það fólk og aðrir sem tóku til máls við þessa athöfn luku lofsorði á það framtak sem opnun setursins er og telja það munu styrkja tengslin milli íslendinga og fólks vestra. Meðal dagskráratriða við opn- un setursins var söngur Karlakórs- ins Heimis í Skagafirði, sem söng nokkur ættjarðarlög - en sem kunnugt er var kórinn í fyrra mán- uði í söngferð á íslendingaslóðum vestra. Er það eitt og sér dæmi um þau menningarlegu tengsl sem eru milli íslendinga og þess fólks í Vesturheimi, sem hingað á ættir sínar að rekja. Þráin leitar vestur Þeir sem til máls tóku á samkom- — Jón Ásgeirsson, formaður Þjóð- ræknisfélags Islendinga. Jón Ásgeirsson, formaður Þjóðræknis- félags íslendinga: „Umfjöllun eykur áhugann“ „Ég á erfitt að gera mér grein fyrir með hvaða hætti Vesturfarasetrið hér muni efla áhuga Vestur-ís- lendinga á föðurlandi sínu. Þó mun sú umfjöllun ein og sér sem setrið fær gera það,“ sagði Jón Ás- geirsson, formaður Þjóðræknisfé- lags íslendinga - en það er sam- nefnari allra Islendingafélaga í heiminum - um 70 talsins - og er helmingur þeirra vestanhafs. Jón hefur á liðnum árum komið nærri eflingu menningartengsla milli íslendinga og þess fólks vestanhafs sem hér á einhverjar rætur. Var Jón meðal annars rit- stjóri Lögbergs-Heimskringlu, blaðs íslendinga í Kanada, um nokkurra ára skeið og þá búsettur vestanhafs. Áhugann á föðurlandinu segir Jón vera afar misjafnan milli svæða, mestur sé hann ef til vill í Manitoba-fylki, eða því svæði sem nefnt er Nýja ísland. Almennt telur hann þó að jákvæðir hlutir hafi verið að gerast í þessu sam- bandi á liðnum árum og áhugi Vestur-íslendinga á föðurlandi sínu hafi verið að aukast. unni á Hofsósi luku lofsorði á það framtak sem opnun Vesturfaraset- ursins er, en meðal þeirra voru ráðherrar. Bjöm Bjamason, menntamálaráðherra, sagðist telja að sú þrá að leita vestur byggi enn með þjóðinni, „...og ráði því meðal annars að hér er minni vilji en víðast annarsstaðar til að gerast hluti af þeim pólítska og efna- hagslega samruna sem að er stefnt í Evrópu. Reynsla okkar af nánu samstarfi við stærsta ríki vestur- heims er einnig á þann veg að hún spillir ekki fyrir vinarhug í þess garð,“ sagði Bjöm. Halldór Blöndal, samgönguráð- herra, sagði að opnun Vesturfara- setursins væri glöggt dæmi um það hve miklu fólk og fyrirtæki gætu áorkað sjálf í uppbyggingu atvinnurekstrar - án atbeina ríkis- ins - „ef guð og sólin eru með í því sem þeir eru að gera,“ einsog ráðherrann komst að orði. Halldór kvaðst vera þess fullviss að Vest- „Ég finn sterkt að ég er íslending- ur og sérstaklega þegar ég er kom- inn hingað norður. Ættir mínar rek ég í Skagafjörð og á Austurland," sagði Loris Johnsen, formaður Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi - en honum og Ed- idh, eiginkonu hans, var sérstak- lega boðið að vera viðstödd opnun setursins. „Ég hef enn ekki hitt neina ætt- ingja mína hér, en vonast til að geta haft uppá þeim þegar tími gefst. Ferðum mínum hingað til lands hefur verið að fjölga, ég var hér á síðasta ári og í maí sl. og ég er viss um að ég kem fljótlega aft- ur. Og þess má geta að konunni urfarasafnið myndi vekja mikla athygli meðal íslendinga vestra, „...og virka einsog segull á þá að koma hingað til lands að leita uppruna síns og setjast á bæjar- vegginn.“ Þekktu sjálfan þig „Þekktu sjálfan þig, þekktu upp- runa þinn, þekktu sögu þína, þekktu rætur þínar,“ sagði Þór Magnússon, þjóðminjavörður. Hann sagði Vesturfarasetrið ekki aðeins myndu kenna Islendingum sjálfum að þekkja sjálfa sig, held- ur og einnig kenna okkur að þekkja þá sem héðan fóru - þá sem ýmissa orsaka, m.a. veður- farslegra, vegna hefðu ekki séð sér fært að búa hér lengur - og hefðu því leitað annnað og stofnað nýtt samfélag - en þó áfram um langa hríð verið góðir íslendingar. Þór sagði opnun Vesturfaraset- ursins vera merkan atburð í ís- lensku menningar- og safnastarfi. minni, sem á þó engar rætur hér, finnst afar gaman að koma til ís- lands og ekki dregur það úr okk- ur,“ sagði Loris í samtali við blaðamann. Loris kveðst rækta tengsl sín við Island með margvíslegu móti. Hann segist til að mynda eiga tvær hljómplötur með Karlakóm- um Heimi, sem hann hlusti oft á. Þá eigi hann nokkrar íslenskar bækur - sem séu þó torf að lesa, enda sé íslenskan erfitt mál að læra. Þó kveðst Loris vonast til að úr slakri íslenskukunnáttu sinni rætist með tíðari ferðum sínum hingað til lands - og þá auknum tengslum við fólkið í landinu. Hann sagðist hafa skoðað gamla kaupmannahúsið á Hofósi fyrir nokkmm árum og talið það ekki eiga langa lífdaga fyrir höndum. Síst hefði sig þá órað fyrir að þar yrði jafn merkri starfsemi komið á fót og nú er orðið. Jafnframt vitn- aði Þór til að fyrri tíðar Skagfirð- ingar hefðu talið það gæfu sína og ígildi Guðs að þeim var sendur Henderson kaupmaður - og hið sama mætti segja nú; það væri mikil gæfa fyrir íslenskt safnastarf að njóta krafta manna sem Val- geirs Þorvaldssonar, sem er for- vígismaður að opnun Vesturfara- setursins, en að því stendur form- lega einkahlutafélagið Snorri Þor- finnsson. 200 þúsund manns Fyrir utan merka sögusýningu um Vesturferðir íslendinga er í Vest- urfarasetrinu aðstaða og gagna- banki fyrir þá sem kynna vilja sér uppruna og ættir þeirra sem fluttu vestur um haf. Það var að stærst- um hluta fólk af Austur- og Norð- urlandi, þar á meðal mikið úr Skagafirði og er Vesturfarasetrinu því vel valinn staður á Hofósi. Kunnugir telja að um 200 þúsund manns vestanhafs eigi rætur sínar að rekja hingað til lands og að sögn kunnugra er áhugi meðal rnargra úr þessum hópi að kynna sér uppruna og ættir - og annað það sem tengist „gamla landinu“. -sbs. Verkfærabíllinn verður á Norðurlandi 10.-16. júlí og heimsækir verkstæði og stærri vinnustaði. Bændur og þeir aðilar sem vilja fá bílinn í heimsókn hafi samband í síma 4613000. Kynnum nýjungar í vönduðum verkfærum - fatnaði fyrír fyrirtæki og vinnustaði og fleira. Takið vel á móti USAG bílnum - það borgar sig! Nöldurhf. ELLINGSEN HF. Loris Johnscn, formaður Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi, ásamt Gdidh, eiginkonu sinni. Mynd: -sbs. Loris Johnsen, formaður Þjóðræknis- félags Islendinga í Vesturheimi: ,,Finn sterkt að ég er íslendingur"

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.