Dagur - 09.07.1996, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 9. júlí 1996
ÍÞRÓTTIR
Sjúkrabíll á hótelið
Óvenju mikið var um meiðsl á Pollamótinu. Fimm
þurftu að fara á sjúkrahús til að láta huga að meiðsl-
um sínum sem ekki voru alvarleg. Eitt dœmi var þó
til um að sjúkrabíllinn hafi verið misnotaður. Hringt
var á sjúkrabíl á laugardaginn og þegar knattspymu-
maðurinn steig út í bflinn heyrðu nokkrir hann segja:
„Hótel Harpa plís.“ Reyndist knattspymumaðurinn
þó vera orðinn auralaus.
Vildi ekki spila í 2. deild
Bjöm Bjartmarz úr Víkingi var valinn besti sóknar-
maður mótsins og hann var einnig langmarkahæstur.
Bjöm ákvað það þegar í vor að vera með á Pollamót-
inu, en þá tilkynnti hann knattspymudeild félagsins
að hann mundi ekki spila með 2. deildarliði félagsins
fyrr en eftir Pollamótið. Ástæðan er sú að þeir sem
hafa verið á meistaraflokksskýrslu í sumar em ekki
gjaldgengir á mótið. Það má því fastlega búast við
því að þessi mikli markaskorari sjáist á leikskýrslu
hjá meistaraflokki Víkings á næstunni.
Meira um barnafólk
Rúmlega þrjú hundruð manns mættu á lokahófið og
svo virðist sem þátttaka í það fari minnkandi á sama
tíma og mótið nýtur sívaxandi vinsælda. Ástæðan er
að öllum líkindum sú að mun algengara er að menn
taki konur og böm með og verji frítímanum með
fjölskyldunni.
Benedikt mótsstjóri
Bjami Hafþór var einn af upphafsmönnum Polla-
mótsins, ásamt þeim Benedikt Guðmundssyni og
Aðalsteini Sigurgeirssyni, fyrrverandi formanni Þórs.
Það var fyrir um átta árum eftir að svipuð mót höfðu
verið sett á laggimar fyrir yngstu knattspynumenn-
ina. Benedikt var mótsstjóri um helgina en keppti
einnig í lávarðadeildinni en hann er einn þeirra sem
keppt hefur á öllum Pollamótunum. Bjarni Hafþór
var markahæsti maður móLsins fyrstu árin en hefur
ævinlega verið í veiðiskap þegar mótið hefur verið
haldið síðustu ár.
Pollamótslagið eldist vel
Pollamótslagið nýtur jafnan mikilla vinsælda á mót-
inu og var oft spiíað, enda með betri lögum sem sam-
in hafa verið fyrir knattspymufélög. Bjarni Hafþór er
höfundur lags og texta. Lagið var samið þegar fyrir
fyrsta mótið. Nokkrir Þórsarar fóru í hljóðver ásamt
söngvaranum Karli Örvarssyni. ílla gekic að hljóðrita
lagið þar sem söngvararnir voru ekki allir mjög lag-
vissir, þó það heyrist ekki í endanlegri gerð lagsins.
Fara snemma í háttinn
Á upphafsárunum voru eingöngu lið frá íþróttafélög-
unum en það hefur færst í vöxt að ýmsir félagshópar
smali í lið og sendi á mótið. Dæmi um eitt slíkt er
Atlavík, skýrt eftir samnefndu fyrirtæki á Eskifirði.
Eigandi fyrirtækisins greiðir jafiiframt allan ferða-
kostnað liðsmanna, gegn því að þeir fylgi þeim regl-
um sem hann setur. Til að mynda þurfa liðsmenn að
hlýta algjöru áfrengisbanni auk þess sem þeir þurfa
að vera farnir í háttinn fyrir klukkan 23.
Vill fleiri stóla
Séra Pétur Þórarinsson hefur gjaman verið einn af
litríkari mönnum mótsins. Hann hefur aðeins misst
af einu móti og sendi þá gínu fyrir sig og þekkt eru
ummæli hans eftir þriðja Pollamótið, þegar hann
sagðist aldrei hafa jarðað jafn marga á einum degi.
Pétur sem nú er í hjólastól hélt ræðu á lokahóftnu í
íþróttahöllinni og talaði þá fyrir minni kvenna. Hann
sagðist aldrei hafa orðið jafn var við það eins og á
mótinu hvað konur horfðu mikið á hann. Hann hefði
síðan komist að því að áhugi þeirra hefði ekki beinst
að honum sjálfum, heldur hjólastólnum sem hann var
í. Lagði hann til við mótsnefndina að keyptir yrðu
stólar fyrir kvenfólkið.
Stigin í riðlakeppninni
á Pollamóti Þórs
Stig liða í riðlum:
A-riðill: Grótta 11, Víðir 10, Fram 8, Dalvik 6, Atiagrautur 3,
Austri I.
B-riðill: Víkingur R. 13, ÍR 11, TBA 10, Atlavtk 4, Efling 3,
Grótta B 1.
C-riðill: Víkverji 15, KR 10, Einherji 8, Grundarfjörður 6,
ÍBK 3, Tindastóll 1.
D-riðill: Haukar 10, Bolungarvík 10, KR-B 8, Reynir 8,
B 1903 5, VölsungurO.
E-riðill: Fylkir 13, KS 11. Blikar b 8, Vaskur 7, Þór b 3, HK 0.
F-riðill: Verjumar 12, Blikar 10, Þór C 9, Leiknir F. 7, Huginn
4, Garparnir 1.
G-riðill: ÍA 10, V-Jónasar 9, Leiknir Rvk. 5, Þór d 2, Glóða-
feykir 1.
H-riðill: Grindavtk 13, Magni 10, Þróttur 8, Dagsbrún 4,
V-Jónasar b 4, UMFA 0.
Lávarðadeild:
A-riðill: ÍA 13, KR 10, Fylkir 9, Þór 7, Breiðablik 1. Víðir I.
B-riðill: Þróttur 16, Víkingur 11, KA 9, Fram 8, UMFA 5,
BVV5.HV3.
Liðsmenn Pollaliðs KR fögnuðu sigri á mótinu með eftirminnilegum hætti á
lokahófinu.
Tvöfalt hjá KR
Lífiö er fótbolti!
Lífið er fótbolti, - alit annað er smáatriði var ritað á keppnistreyjurnar
hjá liði TBA, Tennis- og badmintonfélags Akureyrar, eitt af hinum svo-
kölluðu heimatilbúnu liðum á Pollamótinu. Hvort þessir kappar hafa
einhvern tímann haldið á tennis- og badmintonspöðum skal ósagt látið
en þeir kunnu ýmislegt fyrir sér í boltasparki.
Hvað sógðu keppendur á Pollamótinu?
KR-ingar stóðu uppi sem sigur-
vegarar í báðum flokkunum á
Pollamóti Þórs og Bautabúrsins
sem lauk á laugardaginn. KR
mátti þola töp í báðum flokkun-
um í riðlakeppninni, en svo virð-
ist sem Reykjavíkurliðið hafi
haft meira þrek en andstæðing-
arnir þegar í útsláttarkeppnina
var komið.
Alltaf gaman
,,Ég varð fertugur um daginn og er
stoltur af aldrinum,“ sagði Jakob
Pétursson, ein helsta sprauta KR-
inga í eldri flokki, sem kom á
mótið í fimmta sinn og keppir í
fyrsta sinn í lávarðaflokki, 40 ára
og eldri.
Keppnin varð reyndar skamm-
vinn hjá Jakobi því hann meiddist
á fæti þegar nokkrar mínútur voru
liðnar af fyrsta leiknum og lék
ekki með eftir það.
„Ég stökk upp og lenti á stórri
þúfu, með þeim afleiðingum að
sprunga kom í beinið. Það er samt
alltaf stórkostlega gaman að koma
hingað og þetta mót hefur haft
mjög mikið að segja fyrir allt hóp-
starf í félaginu og bindur okkur
saman, sem erum í eldri flokki."
- En æfðu Jakob og félagar stíft
fyrir Pollamótið?
„Við höfum æft tvisvar í viku,
einu sinni á KR-vellinum sem er
jafnslétta eins og „golfgrín" og
einu sinni á háskólatúninu sem er
svipað þúfnabarð eins og héma.
En við eigum því að þekkja þessar
aðstæður vel,“ sagði Jakob, einn
tólf KR-lávarða á mótinu.
Aðalmót ársins
„Það hefur enginn okkar spilað á
1. deildarplani. Þetta er eina mótið
sem við tökum þátt í og því aðal-
mót ársins. Maður hittir sömu
andlitin ár eftir ár og þegar maður
er á ferð um landið, hittir maður
oft einhverja sem maður hefur
verið að sparka í á síðasta Polla-
móti,“ sagði Hallgrímur Ingólfs-
son, einn liðsmanna Verjanna,
Akureyrarliðs sem hafnaði í 4.
sæti Pollamótsins eftir tap í víta-
spymukeppni gegn ÍR. Arangur-
inn er sá besti hjá liðinu í þremur
tilraunum og reyndar vom Verj-
umar óopinberir Norðurlands-
meistarar Pollamótsins að þessu
sinni.
„Það er ótrúlegt harðfylgi og
leikgleði hjá leikmönnunum í lið-
inu hjá okkur og við eigum örugg-
lega eftir að lenda í Lávarðadeild-
inni fyrir rest. Álagið er mikið,
við emm flestir orðnir haltir og
sárir og markvörðurinn okkar
þurfti að fara í aðgerð því hann
fingurbrotnaði í gær,“ sagði Hall-
grímur.
Aðspurður um nafnið á liðinu,
sagði hann að það væri oft mis-
skilið. „Þetta er í raun færeyskt
nafn og þýðir varnarmennimir.
Fyrsta liðið sem við spiluðum við
í gær, Garparnir, vissu ekki af því.
Þeir lágu í sókn allan tímann en
gleymdu vöminni og við skoruð-
um ellefu mörk gegn þeim.“
Tími til að breyta
fyrirkomulaginu
„Þetta er annað mótið mitt. Það
var frábært í fyrra og mjög
skemmtilegt núna. Mér finnst þó
tími til kominn að breyta fyrir-
komulagi á keppninni,“ sagði Ámi
Jakob.
Árni
Sveinsson, fyrrum landsliðsmaður
með IA, sem einnig lék með
Stjömunni.
„Það voru fjórir riðlar í Lá-
varðadeildinni og það hefði ekki
þurft að spila alla riðlana á sama
tíma, það hefði verið betra að
ljúka til dæmis riðlakeppninni á
skemmri tíma svo menn þurfi ekki
að eyða heilum degi í að bíða eftir
leikjum. Við mættum til leiks með
tvö lið, leikandi spilara en kom-
umst ekki áfram í keppninni, að
mínu áliti vegna þess að lið geta
komist upp með að spila stífan
vamarleik og hagnast á því. Ég
held að það væri til bóta ef mörkin
væru stækkuð, þetta er að verða
eins og innanhússfótbolti, frekar
staðnað,“ sagði Árni, sem á 50 A-
landsleiki að baki.
í Lávarðaliði IA voru einnig
meðal annars Karl Þórðarson,
Þröstur Stefánsson og Matthías
Hallgrímsson, allt þekktir kappar,
enda áttu liðsmenn Akraness sam-
tals rúmlega 200 landsleiki að
baki.
Þetta var 8. Pollamótið sem
haldið hefur verið og hefur fjöldi
keppenda aldrei verið meiri, 60 lið
voru skráð til þátttöku og fótbolta-
mennimir um 750 talsins.
I yngri flokknum, Pollaflokkn-
um, þar sem keppendur eru frá 30-
39 ára aldurs mættust KR og
Reynir í Sandgerði í úrslitaleikn-
um og sigraði Reykjavíkurliðið
nokkuð örugglega 4:1. ÍR-ingar
hrepptu þriðja sætið eftir sigur í
vítaspymukeppni gegn Verjunum
2:1 eftir markalausan leik liðanna.
KR-ingar mættu Fylki í úrslita-
leik Lávarðaflokksins og KR sigr-
aði 1:0. Þróttur frá Reykjavík
hafnaði í þriðja sæti með sigri á
Akranesi.
Mótinu var slitið með lokahófi
í íþróttahöllinni. Rúmlega 300
keppendur snæddu kvöldverð og á
eftir honum fylgdi verðlaunaaf-
hendingin. Óhætt er að segja að
stemmningin hafi verið mjög góð
og nýkrýndum meisturum var
fagnað með lófaklappi. Pollunum
hjá KR munaði til að mynda ekki
um að taka nokkra sigurhringi á
gólfinu.
Stigin í riðlunum
Stig liða í riðlum:
A-riðilI: Grótta 11, Víðir 10, Fram 8, Dal-
vík 6, Atlagrautur 3, Austri I.
B-riðill: Víkingur R. 13, ÍR 11, TBA 10,
Atlavík 4, Efling 3, Grótta B 1.
C-riðiII: Víkverji 15, KR 10, Einherji 8,
Grundarfjörður 6, ÍBK 3, Tindastóll 1.
D-riðill: Haukar 10, Bolungatvík 10, KR-
B 8, Reynir 8, B 1903 5, Völsungur 0.
E-riðill: Fylkir 13, KS 11, Blikar b 8,
Vaskur 7, Þór b 3, HK 0.
F-riðiII: Verjumar 12, Blikar 10, Þór C 9,
Leiknir F. 7, Huginn 4, Garpamir 1.
G-riðill: ÍA 10, V-Jónasar 9, Leiknir Rvk.
5, Þór d 2, Glóðafeykir 1.
H-riðill: Grindavík 13, Magni 10, Þróttur
8, Dagsbrún 4, V-Jónasar b 4, UMFA 0.
Lávarðadeiid:
A-riðill: ÍA 13, KR 10, Fylkir 9, Þór 7,
Breiðablik 1, Víðir 1.
B-riðiII: Þróttur 16, Víkingur 11, KA 9,
Fram 8, UMFA 5, BVV 5, HV 3.
Skaphundar
og fleira fólk
Ymsar viðurkenningar eru veittar
leikmönnum Pollamótsins, til að
mynda eru valdir bestu leikmenn í
polla- og lávarðaflokki og skap-
hundar mótsins valdir, en það eru
þeir sem hafa það ríkulegt keppn-
isskap að tekið er eftir.
I pollaflokknum var Víkingurinn
Bjöm Bjartmarz valinn besti sóknar-
maðurinn og samherji hans Gunnar
Öm Gunnarsson besti vamarmaður-
inn.
Karl Þórðarson frá ÍA var valinn
besti sóknarmaðurinn í lá-
varðaflokki, Gunnar Austfjörð úr Þór
besti vamarmaðurinn og Ámi Stef-
ánsson úr Tindastóli besti markvörð-
ur.
Skaphundamir voru valdir þeir
Sigurbjöm Viðarsson úr Magna í
pollaflokknum og Guðjón Hilmars-
son úr KR í lávarðaflokki. Það voru
leikmenn sjálfir sem sáu um að
greiða atkvæði og verðlaunin voru
veitt á lokahófinu á laugardagskvöld.
Hallgrímur Ingólfsson, hinn lipri leikmaður Verjanna er hér kominn í skotfæri en markvörður ÍR-inga sá við hon-
um í þetta sinn. Leikurinn var markalaus og Hallgrími og félögum gekk illa að skora í vítaspyrnukeppninni í kjöl-
farið.