Dagur - 09.07.1996, Page 16
Akureyri, þriðjudagur 9. júlí 1996
...þú færð kríli
með hverjum
filmutilboðspakka!
!hsjr ^Pedið'myndit'
Skipagata 16 - 600Akureyri - Sími 462 3520
Frá ráðherrafundinum á Húsavík í gærmorgun. Fyrir miðri mynd má meðal annars þekkja fulltrúa frá íslandi, þá
Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæindastjóra Bændasamtakanna og Ara Teitsson, formann samtakanna. Mynd: GKJ
Húsavík:
Fundi landbúnaðarráðherra
Norðurlandanna lokið
- ályktun varðandi skógrækt samþykkt
Fundur landbúnaðarráðherra
Norðurlandanna var haldinn
á Húsavík nú um helgina. Ráð-
herrar frá öllum Norðurlöndun-
um voru mættir nema frá Dan-
mörku, en þaðan var vænst
tveggja ráðherra, landbúnaðar-
ráðherrans og umhverfisráð-
herrans, en báðir boðuðu forföll.
Hér var um að ræða þrjá fundi,
í fyrsta lagi embættismannanefnd
sem undirbjó ráðherrafundinn, í
öðru lagi fundaði norræn sam-
starfsnefnd á sviði landbúnaðar og
skógræktar og í síðasta lagi sjálfur
ráðherrafundurinn. Á honum var
rætt um framkvæmd GATT samn-
inganna og reynslu fyrsta ársins af
þeim samningum, þá var tekið
fyrir samstarfsverkefni Norður-
landanna við Eystrasaltsrfkin og
Rússland og stuðningur af hálfu
Norðurlandaráðs við þau lönd.
Þá kom fram á fundinum sú
tillaga að leggja til við samstarfs-
ráðherrana í Norðurlandaráði að
þegar gengið yrði frá fjárhags-
áætlun næsta árs, þ.e.a.s. 1997, að
hækka þá upphæð sem varið er til
landbúnaðar og skógræktar um
meira en helming. Þá var rætt um
skógrækt og vemdun skóga og
lögð fram og samþykkt ályktun
um það að framfylgja áherslum
umhverfisnefndar Sameinuðu
Þjóðanna og Ríó samþykktum á
sviði skógræktar. Mjög athyglis-
verð umræða fór fram um lífræna
og vistvæna ræktun og hvemig
hægt væri að standa að slíkri rækt-
un. Að lokum var fjallað um mat-
VEÐRIÐ
A Norðurlandi er spáð rign-
ingu þegar líða tekur á dag-
inn og suðaustan golu eða
kalda. Hiti 10-14 stig. Spáð
er vestan goiu eða kalda á
miðvikudag og skúrum um
mest allt land. Á fimmtudag
er spáð skúrum og 8-14
stiga hita. Um helgina er
búsist við norðlægum áttum
og rigningu eða súld.
Norðlendingur
út í geiminn
Fyrir stuttu var
vestur í Kanada
tilkynnt
að þrír
þarlendir menn hefðu verið
valdir til að verða sendir út í
geiminn á vegum bandarísku
geimferðastofnunarinnar,
NASA. Þar á meðal er einn
fímmtugur íslendingur, raunar
Norðlendingur, Bjarni Valdi-
mar Tryggvason að nafni.
Væntanlega er Bjami fyrstur
íslendinga til að dvelja úti í
geimnum, en hann hefur unnið á
vegum NASA í Kanada í tólf ár.
Bjarni á ættir að rekja í Svarf-
aðardal, faðir hans er Svarfdæ-
lingur, Svavar Tryggvason, nú
búsettur í Vancouver í British
Columbia í Kanada, og móðir
hans er Sveinbjörg Haraldsdóttir
frá ísafirði.
Blaðamaður hitti Svavar
Tryggvason að máli í Vancouver
á dögunum og sagðist hann ekk-
ert vita meira um áætlaða ferð
sonarins út í geiminn en almenn-
ingur í Kanada, enda væri hann
að kröfu NASA bundinn þagnar-
skyldu um vinnu sína hjá stofn-
uninni. Þó væri vitað að Bjami
yrði sendur út í geiminn innan
tveggja ára, jafnvel innan átta
mánaða. óþh
Grenjavinnslumenn á fullu á fjöllum:
„Refurinn í meðallagi"
- segir Kári Gunnarsson
vælaráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna, sem halda á í Róm á Italíu í
nóvember á þessu ári, og einmitt í
tengslum við þá ráðstefnu velta
menn því fyrir sér hvemig land-
búnaði verði best komið í framtíð-
inni til að hægt verði að brauð-
fæða heiminn. GKJ
Ætla má að meira sé af bit-
dýrum á landinu nú en
undanfarin ár eftir undangeng-
inn góðan vetur. Ungadauði sé
þá minni en í annan tíma, sem
leiðir til enn meiri fjölgunar refs
og minks, sem almennt hefur þó
verið að fjölga síðustu árin, segir
Ásbjörn Dagbjartsson, veiðistjóri
ríkisins, í samtali við Dag.
Grenjavinnslumenn víða um
land eru nú á fullu við störf, enda
er sumarið helsti veiðitíminn. Að
sögn Ásbjöms eru greiddar 1.200
kr. fyrir hvert minkaskott, 1.400
kr. fyrir hvert hlaupadýr refs,
1.000 kr. fyrir fullorðinn ref og
450 kr. fyrir skott af hverjum refa-
yrðlingi. Þá fá grenjavinnslumenn,
sem margir eru í verktakavinnu
hjá sveitarfélögum 650 kr. greidd-
ar á tímann. Áð jafnaði hafa um
5.500 minnkar verið drepnir á ári
hverju og 3.000 refir, skv. skýrsl-
um þeim sem embætti Veiðistjóra
fær til sín.
„Ég er alltaf í minknum," sagði
Vilhjálmur Jónasson, minnkabani
á Sílalæk í Aðaldal, í samtali við
Dag. Hann hefur í nær 30 ár unnið
á vegum sveitarfélaga víða í Þing-
eyjarsýslum, við vinnslu grenja og
drepur nær 300 dýr á ári. „Það
getur alveg gert útslagið ef maður
er ekki með góðan hund með sér í
þessu,“ sagði Vilhjálmur, - sem
telur að minkastofninn hafi ekki
stækkað svo mjög síðustu árin.
„En talandi um það sem greitt er
fyrir grenjavinnsluna og þau laun
sem sveitarfélög greiða minnka-
bönum fyrir þá finnst mér orka
tvímælis að greiða sömu laun til
ungra manna sem eru að byrja í
þessu og karla eins og mér, sem
hafa verið í þessu lengi. En svona
er launastefna ríkisins,“ sagði Vil-
hjálmur á Sílalæk.
„Okkur virðist að hér um slóðir
sé frekar lítið um mink, en refur-
inn er í góðu meðallagi," sagði
Kári Gunnarsson í Flatatungu í
Akrahreppi, en liann og Birgir
Hauksson í Valagerði í Seylu-
hreppi sjá um grennslavinnslu í
Akra- , Seylu- og Lýtingsstaða-
hreppi í Skagafirði og í Bólstaðar-
hlíðahreppi í Húnaþingi.
Kári ségir eftirtektarvert hvað
fáir hvolpar séu í hverju greni nú,
og andæfir hann þar með kenn-
ingu veiðistjóra um að hvolpa-
fjöldinn sé meiri eftir góða vetur
en slæma. „Ég hygg að þetta sé
einhver ráðstöfun náttúrunnar; að
tófan gjóti fleiri hvolpun eftir
harða vetur en góða, því ef tíðin er
hörð þá verða afföllin vitaskuld
meiri,“ segir Kári. Hann bendir á
að síðasta sumar hafi verið allt að
sex og sjö hvolpar á greni, en séu
aldrei fleiri en fimm nú.
Það sem af er suntri hafa Kári
og Birgir unnið sjö greni og flest
eru þau í Skagafirði innanverðum,
það er Blönduhlíð og Lýtings-
staðahreppi, og ennþá eiga þeir fé-
lagar eitt greni eftir óunnið. -sbs.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hf.:
Tap upp á 27 millj.
króna á síðasta ári
Adögunum var haldinn aðal-
fundur Hraðfrystihúss Ól-
afsijarðar, þar sem lagður var
fram ársreikningur og þar kom
fram að árið 1995 hafi verið 27,1
millj. króna tap á rekstrinum, en
árið 1994 var hagnaður af
rekstri um 1,3 milljón.
Að sögn Karls Guðmundsson-
ar, framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins, voru helstu ástæður verri af-
komu þær að mestur hluti tekn-
anna var í dollurum og pundum
og gengisþróun hefur verið óhag-
stæð á árinu. Einnig var verðlækk-
un á ýsuafurðum í erlendri mynt.
Hann sagði ennfremur að með nú-
vemadi formerkjum gengi rekst-
urinn ekki og þegar hefði verið
dregið saman í rekstri og fram-
leiðslu. I samtali við Dag sagði
Karl að nú væri verið að skoða
málið og framhaldið væri óráðið
en hann vildi ekki tjá sig frekar
um stöðu fyrirtækisins.
í ársreikningi kom fram að
rekstrartekjur minnkuðu um 90
milljónir, úr 428,1 millj. árið 1994
í 337,4 millj. á síðasta ári. Eigið fé
í árslok nam 35,7 milljónum
króna og eiginfjárhlutfall var
14,9%. Heildareignir voru 230,3
milljónir um áramót og heildar-
skuldir námu 204,6 milljónum.
SH
Flestir fjallvegir færir
Leiðin upp í Laugafell opnað-
ist í gær, og er hún einungis
opin jeppum. Ökumönnum
fólksbfla er eindregið ráðið frá
því að reyna við veginn, snjó
hefur ekki enn tekið upp, og er
vegurinn sums staðar nokkuð
blautur.
Með opnuninni í Laugafell er
nú hægt að komast upp úr Eyja-
firði á Sprengisand, en þessi leið
opnast mun seinna en hin hefð-
bundna leið úr Bárðardal. Einnig
er frá og með deginum í gær opið
um Dragaleið.
Gæsavatnaleið er enn ófær og
samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar á Húsavík ónrögulegt
að segja til um hvenær hún opn-
ast. Mikill snjór er enn á veginum
og þar sem ekki er hægt að ryðja
leiðina er einungis hægt að vonast
eftir hlýindum. Jeppafæri er upp í
Öskju og þaðan vestur um, en
vegurinn er fremur blautur.
shv
Tíl
á innimálninau
25%
afsláttur
Verð frá kr. 569 pr. lítra
Tölvublöndun
Þúsundir lita
C3
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 462 3565