Dagur - 12.07.1996, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 12. júlí 1996
FRÉTTIR
Eiður Haraldsson, framkvæmdastjóri Háfells ehf., og Sigurður Oddsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar hjá
Vegagerðinni á Akureyri, handsala verksamning um vegarlagningu yfir Fljótsheiði. Þeim til halds og trausts er Rún-
ar Jónsson, yfir eftirlitsmaður. Mynd: Haiidór.
Samið um lagningu á nýjum vegi yfir Fljótsheiði:
Stærsta verkið í langan tíma
Hita- og vatnsveita Akureyrar:
Rætt um kaup á
Gufuveitunni
I gær var undirritaður hjá Vega-
gerðinni á Akureyri verksamn-
ingur milli Vegagerðarinnar og
verktakafyrirtækisins Háfells
ehf. í Reykjavík um Iagningu á
nýjum vegi yfir Fljótsheiði í S-
Þingeyjarsýslu. Um er að ræða
verk upp á 133 milljónir króna
og er það stærsta einstaka verk
sem samið hefur verið um í
langan tíma Iná Vegagerðinni á
Akureyri, að Olafsfjarðarmúlan-
um undanskyldum.
Alls bárust 11 tilboð í verkið á
sínum tíma. Eftir viðræður við
lægstbjóðendur var ákveðið að
ganga til samninga við Háfell,
sem átti þriðja lægsta tilboðið,
rúm 70% af kostnaðaráætlun.
Lægri tilboð áttu Héraðsverk ehf.
og Hafnarverk ehf.
Með lagningu á nýjum vegi yf-
ir Fljótsheiði bætist í raun við
mikilvægur hlekkur í samgöngu-
kerfið, en Flótsheiðin er hluti af
hringveginum og hefur aðeins
verið sumarvegur til þessa. Vegar-
stæðið færist nokkru sunnar á
heiðina og við það þarf ekki að
fara eins hátt upp. Lækkar vegur-
inn úr 310 metrum yfir sjávarmáli
í um 270 metra. Vegurinn sjálfur
er 9,9 km en verkinu fylgja einnig
200 m af Aðaldalsvegi og 700
metrar af Ingjaldsstaðavegi.
Um er að ræða mikið verk og
til að taka dæmi em fyllingar um
360 þúsund rúmmetrar, þ.e. ef þær
væru settar í garð sem væri metri
á kant myndi garðurinn verða 360
km að lengd. Efra og neðra burð-
arlag er samtals 61 þúsund rúm-
metrar og klæðning er 63 þúsund
fermetrar, eða svipað flatarmál og
420 góð einbýlishús. Allt efni í
fyllingar er tekið úr námu upp á
háheiðinni. Þar reikna menn með
að koma niður á klöpp sem síðan
verður sprengd og möluð og efnið
notað í efra burðarlag og klæðn-
ingu. Efni í neðra burðarlag verð-
ur unnið í námum á tveimur stöð-
um, rétt sunnan við Fosshól og
norðan við Einarsstaði í Reykja-
dal.
Verkið mun hefjast nú um
mánaðamótin og á samkvæmt út-
boðsgögnum að vera lokið fyrir 1.
ágúst 1998. Er verkhraðinn aðal-
lega bundinn þeim fjárveitingum
sem ætlaðar eru í verkið. I sumar
verður unnið við fyllingar á þeim
köflum þar sem búist er við mestu
sigi á veginum, en reiknað er með
að samtals 36 þúsund rúmmetrar
af fyllingarefni fari í sig, þ.e.
hverfi ofan í jörðina undan þunga
vegarins. Þar sem sigið verður
mest er áætlað að vegurinn sígi
l,8metra. HA
Hita- og vatsnveita Akureyrar
ætlar að ganga til samninga við
Hömlur, eignarhaldsfélag
Landsbanka íslands, um kaup á
Gufuveitunni hf., sem sér fyrir-
tækjunum Foldu og Skinnaiðn-
aði fyrir gufu. Um er að ræða
tvo rafskautakatla ásamt einum
olíukatli og öðrum búnaði. Bók-
un veitustjórnar þess efnis var
tekin fyrir á fundi bæjarráðs í
gær og samþykkt, þannig að
endanlegir samningar verða
lagðir fyrir bæjarráð til staðfest-
ingar.
„Það sem Hita- og vatnsveita
ætlar að gera er að framleiða
þama gufu fyrir þau fyrirtæki sem
á því þurfa að halda og það stend-
ur ekki annað til en að Hitaveitan
hafi af þessu einhverjar tekjur,"
sagði Franz Amason, fram-
kvæmdastjóri HVA, í samtali við
Dag. Hann sagði að tekjumar
kynnu að verða litar í upphafi en
ættu að geta aukist þegar endur-
bætur á búnaðinum væru yfir-
Mjólkurframleiðsla:
Kvótinn
aukinn
Landbúnaðarráðherra hefur
ákveðið að greiðslumark í mjólk
fyrir næsta framleiðsluár, sem
hefst hinn 1. september nk.,
skuli aukið um eina milljón lítra
frá því sem nú er, eða úr 101
millj. lítra í 102 millj. Þetta er
gert í samræmi við aukna mjólk-
urneyslu - og úreikninga sem
gera ráð fyrir áframhaldandi
neysluaukningu.
Reglugerð um aukningu
greiðslumarks er frágengin, en
hún öðlast gildi. 1. september. í
samtali við Dag sagði Guðmundur
Lámsson, formaður Landsam-
bands kúabænda, að full þörf væri
á aukningu greiðslumarks; mjólk-
umeysla þjóðarinnar hefði aukist
á síðustu misserum og haga þyrfti
framleiðslu í samræmi við það.
Hann sagði að mjólkurbúin í land-
inu hafi af þessum sökum haft
þörf fyrir þá mjólk sem framleidd
er, og kvaðst því ekki búast við að
hella þyrfi svonefndri umfram-
mjólk niður - nú þegar líður að
lokum framleiðsluárs. Fyrir alla
slíka mjólk hefðu mjólkurbúin
greitt að undanfömu.
Þess má geta að núverandi bú-
vörusamningur um mjólkurfram-
leiðslu rennur út árið 1998 og hef-
ur verið skipuð nefnd af hálfu
bænda sem vinnur að end-
urskoðun samningsins og gerð til-
lagna vegna nýs samnings. I þess-
ari nefnd eiga sæti Ari Teitsson,
formaður Bændasamtaka Islands,
og kúabændumir Guðmundur
Lárusson í Stekkum í Flóa, Hjört-
ur Hjartarson í Stíflu í Landeyj-
um, Guðmundur Þorsteinsson á
Skálpastöðum í Borgarfirði og
Pétur Helgason á Hranastöðum í
Eyjafirði. -sbs.
staðnar.
Þessi tækjabúnaður var kyndi-
stöð Sambandsverskmiðjanna á
Gleráreyrum en þegar ullarverk-
smiðjumar urðu gjaldþrota var
Gufuveitan hf. sett á stofn í eigu
íslensks skinnaiðnaðar, Lands-
bankans og fleiri aðila. Þegar síð-
an Islenskur skinnaiðnaður varð
gjaldþrota komst Gufuveitan al-
farið í eigu eignarhaldsfélags
Landsbankans.
„Það er búið að vera í umræð-
unni í nokkur ár hvort önnur hvor
veitan í bænum væri tilbúin að
kaupa og taka við þessum rekstri
og nú hefur orðið að samkomulagi
að reyna að ná samningum við
bankann um að Hita- og vatns-
veita taki við rekstrinum. Það
verður unnið að því það sem eftir
er þessa mánaðar með það fyrir
augum að Hita- og vatnsveita
eignist og reki Gufuveituna eftir
1. ágúst,“ sagði Franz. SH
Akureyri
Bæjarmála-
punktar
Aðkomuleiðir
að Háskólanum
Lagt var fram í bæjarráði í gær
bréf frá rektor Háskólans á Ak-
ureyri, þar sem hann beinir því
til bæjarstjómar vegna fyrirhug-
aðra framkvæmda á háskóla-
svæðinu að sem fyrst verði lokið
framkvæmdum við aðkomuleið-
ir þangað og óskaði hann í bréf-
inu upplýsinga um áfangaskipt-
ingu og tímasetningu þeirra.
Bæjarráð samþykkti að fela yfir-
verkfræðingi bæjarins að svara
erindinu.
Brekkugata 8 seld
Samþykkt var í bæjarráði að
ganga að tilboði Reynis Adolfs-
sonar fh. Ferðaþjónustu Akur-
eyrar um kaup á húseigninni
Brekkugötu 8. Tilboðið í eignina
var 7,5 milljónir króna. Á sama
fundi var hafnað erindi frá
Ferðafélagi Akureyrar sem
óskað hafði eftir makaskiptum á
húseign sinni við Strandgötu 23
og Brekkugötu 8.
Gildistími starfsmats
STAK félaga
Fyrir bæjarráðsfundi í gær lá er-
indi frá Starfsmannafélagi Akur-
eyrarbæjar, þar sem þess var far-
ið á leit að gildistími starfsmats
þess sem unnið var á sl. vetri og
röðunar í launaflokka sem nú er
að ljúka verði frá 1. október
1995 en ekki 1. janúar 1996 eins
og launanefnd sveitarfélaga
hafði samþykkt. í bréfinu var
vísað til bókunar með kjara-
samningi frá 1. aprfl 1995 og
framvindu vinnunnar á Akur-
eyri. Bæjarráð samþykkti að
verða við erindinu og var fjár-
veitingu til að mæta kostnaði
vegna mánaðanna október-des-
ember 1995 vísað til end-
urskoðunar fjárhagsáætlunar.
Framlag til félagslegrar
leiguíbúðar fyrir blinda
Bæjarráð hefur vísað til end-
urskoðunar fjárhagsáætlunar, er-
indi Blindrafélagsins, samtaka
blindra og sjónskertra á íslandi,
þar sem þess er farið á leit að
Akureyrarbær styrki félagið til
kaupa á félagslegri íbúð að
Lindarsíðu 4 á Akureyri með
fjárhæð sem svarar til 3,5% af
kaupverði íbúðarinnar eða ca.
260.000 kr.
Húsnæbi -
heimilisabstob
í boöi er 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í tvíbýli.
Staðsetning: Á Eyrinni nálægt miðbæ.
íbúðin er boðin endurgjaldslaust með rafmagni og
hita gegn aðstoð við eldri hjón á neðri hæð.
Leitað er að eldri konu sem er heima á dag-
inn (ekki í vinnu) og geti veitt hjónunum
einhvern félagsskap.
Upplýsingar veitir Ellert Kárason í símum 461 1010
og 462 3054, bílsími 852 1954.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Frá og með 15. júlí 1996 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 18. útdráttur
3. flokki 1991 -15. útdráttur
1. flokki 1992 -14. útdráttur
2. flokki 1992 - 13. útdráttur
1. flokki 1993 - 9. útdráttur
3. flokki 1993 - 7. útdráttur
1. flokki 1994 - 6. útdráttur
1. flokki 1995 - 3. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í DV, föstudaqinn
12. júlí.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi
í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
cSd HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS
f I HÚSBRÉFAÐEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
Viítu starfa
sjálfstætt?
Pá er þetta tækifæri fyrir þig.
Til sölu er rekstur Borgarsölunnar og Turns-
ins.
Upplýsingar gefur Smári Ólafsson í síma
462 6687 eða 897 7874.