Dagur - 12.07.1996, Page 9
Föstudagur 12. júlí 1996 - DAGUR - 9
A FE Rf> Od FLUCI
Siglufjörður er vaxandi ferðamannastaður:
Síldarbærinn mikli
„í sjálfu sér skortir Siglufjörð
ekkert til að verða vinsæll ferða-
mannastaður. Sú umræða sem nú
er efst á baugi meðal ferðamála-
fólks er í þá átt að auka þurfi af-
þreyingarmöguleika ferðafólks og
að jrví þurfum við Siglfirðingar að
huga. Hér er auðvitað margt að sjá
pg tugir þúsunda Islendinga sem
voru á síld eiga minningar tengdar
staðnum. En við þurfum að huga
að fleiri þáttum í þessa veru, en
ekki síst tel ég mikilvægt að
samgöngur við bæinn verði bætt-
ar,“ segir Jón Ólafur Björgvins-
son, ferðamálafulltrúi á Siglufirði.
Á útmánuðum líðandi árs tóku
öll fyrirtæki á Siglufirði sig saman
og stofnuðu, ásamt bæjaryfirvöld-
um, Ferðamálasamtök Siglufjarð-
ar.Tilgangurinn með stofnun
þeirra er að auka ferðamanna-
straum í bæinn og að efla veg at-
vinnugreinarinnar þar.
Fjöldi ferðamanna sem heim-
sækir Siglufjörð hefur aukist síð-
ustu árin og talið er að þeir hafi
verið alls 17.000 á síðasta ári og
þar af voru gestir á Síldarævintýr-
inu um verslunarmannahelgina
nærri 10.000. Margir sækja einnig
sfldarsöltunarsýningar, sem efnt er
til þrisvar í viku á sumrin á mið-
vikudögum, föstudögum og laug-
ardögum. Margar ferðaskrifstofur
senda hópa á sínum vegum til að
fylgjast með sýningunum og að
þeim loknum er hið merka Sfldar-
minjasafn í Roaldsbrakka gjarnan
skoðað. Þar má finna marga
merka muni og myndir sem tengj-
ast hinum sælu sfldarárum, allt
fram undir 1970.
Sendiherra ferðamanna
Jón Ólafur Björgvinsson er fædd-
ur og uppalinn á Siglúfirði, en
Menntamálaráðherra heimsótti Síldarminjasafnið um síðustu helgi og þá
var þessi mynd tekin. A myndinni eru, í fremri röð frá vinstri, Örlygur
Kristfinnsson, forstöðumaður safnsins, Rut Ingólfsdóttir, eiginkona ráð-
herra, og Guðmundur Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri. í efri röð t.v. er
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra og Björn Valdimarsson, bæjarstjóri
á Siglufirði.
Hið merka Síldarminjasafn er í Roaldsbrakka.
Séð yfir Sigiufjörð úr Hvanneyrarskál.
hefur sl. sex ár verið búsettur í
Gautaborg í Svíþjóð með fjöl-
skyldu sinni, þar sem hann hefur
numið íþrótta- og tómstundafræði.
Til starfa á Siglufirði er hann að-
eins sumarráðinn og hefur m.a.
þau verkefni með höndum að lið-
sinna þeim ferðamannahópum
sem koma í bæinn og vera þeim
innan handar með það sem að
höndum ber. Hefur Jón Ólafur að-
setur í Sfldarminjasafninu við
Snorragötu.
En jafnframt því að vera sendi-
herra ferðamanna á Siglufirði
vinnur Jón Ólafur að ýmsum öðr-
í sjálfu sér skortir Siglufjörð ekkert
til að verða vinsæll ferðamanna-
staður,“ segir Jón Ólafur Björgvins-
son, ferðamálafulltrúi á Siglufirði.
Myndir: -sbs.
i V m l 1 u| ' <!a| \ * 1 .. t ®
1 Wkt- ■ j - j
Saltað á Siglufirði á hinum sælu síldarárum.
Félagar í Leikfélagi Siglufjarðar fara með stórt hlutverk á söltunarsýningun
sem efnt er til þrisvar í viku.
um verkefnum á sviði ferðamála í
bænum, svo sem stefnumótun
nýrra viðfangsefna. Hann nefnir
meðal annars hugmyndir um að
menn beini sjónum sínum að
Grímseyjarsiglingum til og frá
Siglufirði, því sjólínan milli eyj-
unnar og Siglufjarðar er svo stutt.
Hrikalegt er Skarðið
Þá vill Jón Ólafur vinna að því að
auka áhuga ferðamanna á göngu-
ferðum um Tröllaskaga, svo sem
yfir í Héðinsfjörð. Er hafin vinna
við gerð gönguleiðakorts fyrir
svæðið. Einnig nefnir hann
skemmtilegt útivistarsvæði í Hóls-
dal inn af kaupstaðnum - og upp
úr dalnum liggur vegurinn yfir
Siglufjarðarskarð, einn hrikaleg-
asti fjallvegur landsins. Á þessu
ári eru liðin 50 ár frá því fyrsti
bfllinn fór yfir Skarðið og verður
þess minnst í sumar. Einnig segir
Jón að hugsa mætti sér að efna til
keppni meðal fjallahjólamanna,
um hver geti farið þessa erftðu
leið á skemmstum tíma. - Þá er
fátt eitt nefnt af skemmtilegum
hugmyndum Siglfirðinga um við-
reisn ferðaþjónustu í bænum sín-
um.
„I uppbyggingu ferðaþjónustu
skiptir mestu máli að flýta sér
hægt og hugsa í árum. Þannig
næst helst langtímaárangur. í raun
erum við Siglfirðingar skammt á
veg komnir í þessari atvinnugrein
en það hjálpar okkur að margir
ferðamenn hafa áhuga á þessum
stað - og tengja hann þá við sfldar-
ævintýrin miklu á sjó og landi,“
sagði Jón Ólafur Björgvinsson.
-sbs.
Ferðafélag Akureyrar:
Gengið á
Kerahnjúk
á morgun
Á morgun, laugardag, verður á
vegum Ferðafélags Akureyrar
farin gönguferð á Kerahnjúk
norðan Dalvíkur. Gengið verð-
ur úr Ólafsfirði upp Tindaöxl
og upp á Kerahnjúk. Sarna leið
verður farin til baka. Þetta
verður frekar erfið gönguferð
og ekki fyrir lofthrædda. Brott-
för verður kl. 9 frá skrifstofu
FA við Strandgötu á Akureyri.
Sama dag verður farin öku- og
gönguferð að Þeistareykjum
norðan Mývatns. Ekið verður
urn Hólasand austur að Þeista-
reykjum og gengið urn ná-
grennið. Brottför í þessa ferða-
verður einnig kl. 9.
Helgina 19.-21. júlí verður
efnt til gönguferðar milli Eyja-
fjarðar og Skagafjarðar. Á
föstudagskvöld verður ekið í
Baugasel og gist þar. Á laugar-
dag verður gengið frá Bauga-
seli inn Barkárdal og um Hóla-
mannaskarð til gistingar í
Tungnahryggsskála. Á sunnu-
dag verður gengið um Svarf-
dælaskarð og niður í Skíðadal.
Þetta verður krefjandi göngu-
ferð, sem krefst búnaðar til
göngu á jökli. Skráning í ferð-
ina verður til 17. júlí.
Skráningu í jeppaferðina í
Herðubreiðarlindir-Bræðrafell
lýkur 13. júlí. (Fréttatilkynning)