Dagur - 02.08.1996, Síða 8
I
8 - DAGUR - Föstudagur 2. ágúst 1996
VElf>l KLÓ
Vatnsleysíð háir
víða veiðimönnum
Veiðimenn eru ekki mjög ánægðir
með þurrkana sem hafa verið í
sumar og veðrið hefur sett strik í
reikninginn hjá mörgum. Ár eru
margar vatnslitlar, bæði vegna
rigningarleysis og hversu lítill
snjór var í fjöllum í vor.
í Miðfjarðará er fluguveiðitím-
inn liðinn og veiðimenn komnir
aftur með maðkinn. Alls voru
komnir 284 laxar á land þegar
fiskifréttamaður Dags fékk fregnir
þaðan í vikunni og er það ekki
eins gott og vonast var til. Vatns-
leysið háir veiðimönnum og áin er
„alveg að þoma“ sagði heimildar-
maður Dags í Miðfjaðará.
I Víðidalsá er sama sagan -
veiðin gengur hægt vegna vatns-
leysis. Nú eru komnir 320 laxar á
land og er mikið um leginn fisk og
lúsugan og er þetta um hundrað
fiskum færra en á sama tíma í
fyrra. Ekki er þó hægt að kvarta
yfir stærðinni í Viðidalsá í sumar
því þar hafa menn verið að fá
stóra og væna fiska, á bilinu 10 til
19 pund, en síðustu daga hafa þó
komið einstaka smálaxar, 4-5
pund, inn á milli. Veiðimenn sjá
mikinn fisk í ánni en hann tekur
mjög illa og margir hafa misst eft-
ir skemmtilegar rimmur.
í Laxá í Ásum hefur verið
óvenju dauft eins og víðar. Þar eru
komnir 331 lax á land og er það
nokkru minna en í fyrra enda er
áin fremur vatnslítil nú. Veiðin er
þó misjöfn og sumir dagar eru
mjög góðir og þá konta yfir 20
laxar á land.
I Eyjarfjarðará hefur verið góð
veiði að undanfömu þó ekki séu
tölur á reiðum höndum um aflann.
Um síðustu helgi veiddust 5-6
punda bleikjur í ánni. Hörgá er
einnig góð á meðan hún „er til
friðs og ekki mikill litur í henni“
eins og heimildarmaður Dags orð-
aði það. 1 Fnjóská hafa veiðst 50
laxar og þar er ágæt bleikjuveiði.
Dreem veiði í Húseyjarkvísl
Veiði hefur verið fremur dræm í Húseyjarkvís! að undanförnu eins og á
mörgum öðrum stöðum en þar koma þó einstaka vænir fiskar á land.
Kaffihlaðborð
Verðum með okkar vinsæla kaffihlaðborð sunnudag
og mánudag kl. 14-18 báða dagana.
Verið velkomin!
Steinhólaskáli, Eyjafjarðarsveit.
LOKAÐ
vegna sumarleyfa dagana:
Föstudag 2. ágúst og
þriájudag 6. ágúst.
BLIKK- OG TÆKNIÞJÓNUSTAN hf.
KALDBAKSGÖTU 2 • 600 AKUREYRI • SÍMI : 96 24017 ■ FAX : 96 11279
KT.: 431188 - 1479 VSK.NR.: 31911 BÚNAÐARBANKINN Á AKUREYRI 0302 - 26 - 431
Laxá í Aöaldal:
Brosmildur Kani tók
Maríulaxinn á Langeyjareyri
Þessi brosmildi Bandaríkjamaður nældi í Maríulaxinn sinn í Laxá í Aðaldal á dögunum og sá var ekki af minni
gerðinni. Michael J. Mars heitir maðurinn á myndinni og hann er greinilega kátur með veiðina. Þetta er 19
punda hængur, sem veiddist á Black Sweep no. 6 á 6. svæði í Laxá, í Langeyjareyri, þar sem Laxárfélagið er
með svæði. Michael var drjúgur eftir að hann landaði þessum fallega fiski og segja kunnugir að hann hafi verið
með bros á vör allan veiðitímann og hann var enn glottandi þegar hann steig upp í flugvélina á leiðinni heim.
Vatnsdalsá:
Tveir yfir 20 pund í vikunni
1 Vatnsdalsá er veiði að glæðast og það komu 10 laxar á land fyrir hádegi í gær. Reyndar var allt lúsugt, þ.e.
nýgengnir fiskar eru að koma inn en „þeir ganga ekki í gegnum flóðið" eins og þeir orða það í Vatnsdalnum.
Frekar lítið vatn er í ánni og það vantar úrhelli svo allt fari almennilega í gang. Alls eru komnir 265 laxar á
land en þar er veitt á sex stangir. Það er 10 fiskum betra en í fyrra en þá var einnig byrjað 10 dögum fyrr. Eins
og gjaman er á þessum tíma eru fiskarnir smærri en fyrr í sumar en þeir stóru bíta þó á inn á milli. Þeir stærstu
eru 22 pund og alls eru komnir 4 laxar yfir 20 pund, en þar af komu tveir í fyrradag. Eins og áður hefur komið
fram í Veiðiklónni er öllum stórum fiskum sleppt í Vatnsdalsá og Bandaríkjamennirnir sem veiddu þá stóru í
vikunni vom himinlifandi þegar þeir slepptu þessum vænu og góðu fiskum. Áður en fisknum er gefíð frelsi á
ný er hann merktur og það hafa fjórir veiðst í annað sinn og eru því orðnir „góðkunningjar" veiðimanna.
Jöfn og góð veiði
í Fljótaá hefur verið mjög góð
veiði að undanförnu en hún er nú
heldur farin að minnka aftur. Alls
em komnir um 20 laxar á land en
á annað þúsund bleikjur. Fiskur-
inn er vænni nú en í fyrra og hitt-
eðfyrra. Það hafa mest komið á
land yfir 200 bleikjur í einu holli.
Veiðimenn eru að vonum ánægðir
enda veðrið búið að leika við þá í
Fljótum. Vatnið er jafnt og gott í
ánni og vatnsleysið bagar veiði-
í Fljótaá
menn þar ekki eins og víða annars
staðar. Talsvert hefur verið af er-
lendum veiðimönnum í Fljótaá í
sumar og em þeir mjög ánægðir
með veiðina og láta vel af staðn-
um.