Dagur - 02.08.1996, Qupperneq 9
TONLIST
Föstudagur 2. ágúst 1996 - DAGUR - 9
Kammerkór Langholtskirkju
í þriðju tónleikaröð Sumartónleika ’96
voru haldnir tónleikar í Raufarhafnar-
kirkju föstudaginn 26. júlí, í Reykja-
hlíðarkirkju laugardaginn 27. júlí og í
Akureyrarkirkju sunnudaginn 28. júlí.
I þessari tónleikaröð kom fram Kamm-
erkór Langholtskirkju undir stjóm Jóns
Stefánssonar kantors og orgelleikara
Langholtskirkju í Reykjavík.
Kammerkór Langholtskirkju er
skipaður 12 söngvurum úr Kór Lang-
holtskirkju. Samkvæmt söngskrá er
kórinn skipaður sjö konum og fimm
körlum. Karlar voru allir með í för, en
konur á tónleikunum í Akureyrar-
kirkju, sem undirritaður sótti, ekki
nema sex. Kórinn virtist ekki líða stór-
lega fyrir þessa vöntun, en þó kom
fyrir, að í kvennaröddum gætti lítils
háttar áreynslu; svo sem í lokalagi tón-
leikanna, hinu skemmtilega Hósíanna
eftir Þorkel Sigurbjömsson. Þetta kann
að hafa stafað af því að kvennaraddir
vom ekki alveg fullskipaðar.
Raddir kórsins eru góðar. Tónn
bassa er vel breiður og þéttur. Tenór
hefur fallega áferð, sem gerir honum
vel fært að flytja sólóhluta, auk þess
sem hann fyllir afar vel í hljóminn.
Altröddin er mjög vel skipuð, svo sem
heyra mátti í sólóum, sem fómst rödd-
inni vel úr hendi. Hið sama er um
sópran. Kórfélagar era margir vel fær-
ir um einsöng, en einstakir söngmenn,
úr kvennaröddum sérstaklega, áttu
verulegar strófur. Sérstaklega ber að
nefna í þessu sambandi hið forvitni-
lega verk Mistar Þorkelsdóttur, Alle-
lúja, þar sem einsöngur kemur mjög
fyrir og skilaði sér fagurlega.
Kammerkór Langholtskirku er
greinilega strangþjálfaður. Flutningur
var sem næst ævinlega afar vel sam-
hæfður. Út af brá lítillega í fáein
skipti, svo sem í Requiem Jóns Leifs,
þar sem nokkuð gjallandi tónn var í
sópran. Örlítils óróa gætti í kvenna-
röddum í Haustvísu Maríu eftir Alta
Heimi Sveinsson, einkum í fyrsta er-
indi. Þá kom fyrir, að innkomur voru
ekki alveg hnífjafnar, svo sem í Smá-
vinir fagrir eftir Jón Nordal. Af bar í
flutningi lögin Hættu að gráta hringa-
ná í útsetningu Hafliða Hallgrímsson-
ar, Jesú mín morgunstjarna í útsetn-
ingu Jóns Þórarinssonar, Heilræðavís-
ur Jóns Nordals, Maríukvæði Atla
Heimis Sveinssonar og Ave María eft-
ir Hjálmar H. Ragnarsson.
A efnisskrá tónleika Kammerkórs
Langholtskirkju vom einungis íslensk
verk; flest trúarlegs eðlis, en nokkur af
öðmm toga. Öll tónskáldin, sem við
sögu komu hvort heldur í útsetningum
eða fmmsömdum lögum, era enn á lífi,
nema Jón Leifs. Hér var því um veru-
lega nútímalega tónleika að ræða, þegar
horft er til aldurs tónskáldanna. Það
sýnir hins vegar smekkvísi íslenskra
höfunda, að útsetningar allar voru mjög
í anda þess, sem unnið var með, þó að
fyrir brigði nútímalegu tónbragði til
áherslu og þar sern það átti við.
Tónleikar Kammerkórs Langholts-
kirkju vom einkar ánægjulegir. Að til
skuli verða söngflokkur sem kamm-
erkórinn út úr kór kirkju er ekki lítill
akkur fyrir þann söfnuð, sem í hlut á.
Fómfúst starf bæði söngstjóra og
söngfólks sýnir hug þessa fólks til
kirkju sinnar og þegar árangur er svo
góður, sem er hjá Kammerkór Lang-
holtskirkju, er starf kantors og söng-
manna ómetanlegur þáttur í fagurri
lofgjörð safnaðarins.
Tónleikar Kammerkórs Langholts-
kirkju voru vel sóttir og flutningi hans
vel fagnað. Sem aukalag flutti kórinn
lagið Vel er mætt til vinafunda, en
kirkjugestir tóku margir undir. Það
voru vel viðeigandi lok góðra tón-
leika. Haukur Agústsson.
Bílasala • Bflaskipti
a firnj
BILASALA
Nissan Sunny 4x4, st., árg. ’94, blár,
ek. 31 þ. km. Verð: 1.310.000,-
Crysler Caravan V6 A/T, árg. ’95, beis, ek. 13
þ. míl., vel búinn, 7 manna. Verð: 2.850,-
MMC Lancer 4x4, st., árg. '94, beis,
ek. 48 þ.km.Verð: 1.370.000,-
Toyota Corolla GLi 1600,5 d., árg. '93,
orange, ek. 49 þ. km. Verð: 1.050.000,-
Dodge Neon Sport 2000 i, árg. ’95, blár,
ek. 21. þ. míl., 150 HÖ. Verð: 1.570.000,-
MMC Sapporo GLS 2400 i, árg. ’88, blár, ek.
80 þ. km. ABS o.fl., einn eig. Verð: 700.00,-
Toyota Corolla XLi, 3 d., árg. ’94, silfur,
ek. 48 þ. km. Verð: 990.000,-
Toyota Hilux X-C Dísel, árg. ’84, hvítur, ek.
215 þ. km, 35“ 5:71 m/rnæli, o.fl. V:600.000,-
• Bflasala
MMC Pajero, 5 d., DTIA/T, árg. ’91,
blár/grár, ek. 140 þ. km. Verð: 1.750.000,-
Toyota 4Runner V6 A/T, árg. '91, grænn, ek.
112 þ. km, 31“, stigbr. brk. Verð: 1.850.000,-
MMC Pajero 5 d., V6 A/T, ’93, ek. 34 þ. km, álf.,
sóll., stigbr., spoi, o.fl. Toppeintak. V. 2.950.000,-
Vantar bíla á skrá
og á staðinn
BÍLASALA
við Hvannavelli
Símar 461 3019 & 461 3000
HRISALUNDUR
- fyrir þig!
Qtíýrara en þig gi unat
TILBOÐ
í KJALLARA
Herrapeysur frá kr. 797
T X
herraskyrtur frá kr. 797
NÝTT
í KJALLARA
Prjónar og prjónagarn
í mikiu úrvali
Nýkomin sending
af BRANDTEX
dömufatnaði
\t/
/é'
TILBOÐ
Nvjar ísleitskai kartoflur
2 kg kr. 256 pk.
6ræn vtnber kr. 299 kg
Vatnsmelónur kr. 78 kg
Gular ntelónur kr. 78 kg
Svínabógsneiðar
kr. 498 kg
Prime Ribs kr. 998 kg
Svíhakótelettur
léttreyktar kr. 989 kg
Grillaðir kjúklingar
kr. 598 stk.
IVIikið úrval af nýslátruðu
svínakjöti á grillið
Öpið fostudae til k! 19.30
Lðugardóg iil k! 18.00
LÖKAt) SUNNU. 06 MÁNUD