Dagur - 02.08.1996, Qupperneq 16
HALLÓ AKUREYRI
III BOU SI:\ 1 Þl' (.1:11 /R I KK1 I.ÁTIÐ 1-RAMI UÁ 1>I K FARA
Riómucopptið svfppnstipa mcó nýhökuóum hrutiökollum
I Ivítbtiksrist'aéui' skétusdui' mcé .smjir.sttiktum kiiitifTum *l •rxumcti
Kutli ou kollk'kl
Kr. 1.790.
SMIÐJAN UM HELGINA
Stækkunar-
framkvæmd-
ir í Kröflu
hefjast eftir
helgi
Strax eftir verslunarmanna-
helgi hefjast framkvæmdir
við stækkun Kröfluvirkjunar.
Þar á að bora tvær holur, svo-
kallaðar lágþrýstiholur, sem eru
um 1000 m djúpar, auk þess sem
hreinsa á þriðju holuna, sem
boruð var fyrir fimm árum en
hefur ekki verið nýtt í langan
tíma. Með þessum framkvæmd-
um er verið að undirbúa gang-
setningu vélar 2 í Kröfluvirkjun
og mun þá afl stöðvarinnar auk-
ast úr 30 MW í 45 MW. Það eru
Jarðboranir hf. sem annast verk-
ið og hljóðar kostnarðaráætlun
upp á rúmar 120 milljónir.
Kröfluvirkjun var á sínum tíma
hönnuð fyrir tvær vélar og þær
keyptar en af ýsmum ástæðum var
aldrei nema önnur vélin sett upp
við byggingu virkjunarinnar. Und-
anfarin ár hefur sú vél verið keyrð
með fullum afköstum yfir vetrar-
tímann en sumartíminn hefur ver-
ið notaður til viðhalds þar sem
Landsvirkjun hefur verið með um-
fram orkugetu.
„Það er ráðist í þessar fram-
kvæmdir til að afla aukinnar orku
vegna stækkunar álversins í
Straumsvík og annarra stóriðju-
framkvæmda sem í bígerð eru.
Við verðum að fullnýta þá mögu-
leika til raforkuöflunar sem við
höfum, og til viðbótar við Kröflu
höfum við hækkað stífluna við
Blöndulón og skipt um vatnshjól í
Búrfellsvirkjun þannig að fram-
leiðslugeta virkjunarinnar eykst úr
210 MW í 270 MW. Síðan er ver-
ið að bæta vatnsmiðlun á Þjórsár-
og Tungnársvæðinu en slíkt gagn-
ast virkjunum á því svæði,“ sagði
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Lansvirkjunar í samtali við
Dag.
Við borunina við Kröflu verður
notaður borinn Jötunn, sem er
heljartæki í eigu Jarðboranna og
er nú verið að koma honum fyrir á
svæðinu en hann var fluttur norð-
ur yfir heiðar á stórum bflum, 26
bílhlöss. Byrjað verður að högg-
bora fyrstu 60 metrana en síðan
tekur Jötunn við. Alls munu 12
manns starfa við verkið og talið er
að það standi fram í miðjan októ-
ber. Þessar holur verða þó senni-
lega ekki tengdar strax og látnar
„blása“ í vetur til að kanna afl
þeirra. Þær verða síðan tengdar
næsta sumar. SH
Q VEÐRIÐ
í dag má búast við suðlæg-
um áttum á Norðurlandi
vestra og fremur skýjuðu
veðri með skúrum. Það léttir
heldur til með sunnangolu
þegar líða tekur á kvöldið.
Hiti verður 10 til 16 stig að
deginum en 8 til 12 stig yfir
nóttina. Á Norðurlandi
eystra verður hæg sunnan
gola með léttskýjuðu veðri.
Hiti verður allt að 20 stig yfir
daginn en 8 til 17 stig yfir
nóttina.
„Það œtla allir
til Akureyrar11
Hátíðin Halló Akureyri
hófst með formlegum
hætti á Ráðhústorgi í gær
og var þar mikið um dýrðir
og létt yfir mannskapnum,
enda veður milt og gott.
Eins og kom fram í blaðinu
í gær býst Magnús Már
Þorvaldsson, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, við allt
að 10 þúsund gestum til
bæjarins. Þeir Styrmir
Karlsson og Þorkell Jóhann
Steindal frá Akranesi (á
innfelldu myndinni) voru
nýbúnir að slá upp tjaldi á
Tjaldstæði Akureyrar og
voru að undirbúa fimm
daga helgi á hátíðinni Halló
Akureyri. Þeir komu fljúg-
andi á hátíðina í gærmorg-
un og lagðist þessi fimm
daga helgi vel í þá enda
sögðu þeir alla ætla til Ak-
ureyrar. Farangurinn var að
sögn ekki mikill enda sögðu
þeir alltaf hægt að kaupa
mat í KEA. hbg/mgh
Forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar á förum:
Tekur við starfi íþrótta-
fulltrúa Mosfellsbæjar
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður Sund-
laugar Akureyrar, var á fundi bæjarráðs Mos-
fellsbæjar á fimmtudagsmorgun ráðinn íþróttafull-
trúi Mosfellsbæjar. Sigurður sagðist aðspurður
ekki vita hvenær hann tæki við hinu nýja starfí,
ósamið væri við bæjaryfirvöld á Akureyri um
starfslok en hann hefði sagt starfi sínu sem for-
stöðumanns Sundlaugar Akureyrar lausu.
Sigurður hefur unnið gott starf að uppbyggingu
Sundlaugar Akureyrar eftir að hann kom til starfa og
hefur sundlaugin tekið algjörum stakkaskiptum á
þeim tíma.
Jóhann Sigurjónsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar,
segir að um nýtt starf sé að ræða en stefnt sé að því
að sameina tvö störf; annars vegar starf íþrótta- og
tómstundafulltrúa og hins vegar forstöðumanns
íþróttamannvirkja og verður starfsheiti hans íþrótta-
fulltrúi. Um er að ræða rekstur íþróttamannvirkjanna
og þá þætti sem snúið hafa að íþróttamálum í Mos-
fellsbæ, m.a. samskipti við íþróttafélögin; ungmenna-
félagið Aftureldingu, golfklúbbinn Kjöl og golf-
klúbbinn að Bakkakoti auk hestamannafélagsins
Harðar. Bæjarstjóri segir að vonandi komi Sigurður
sem fyrst til starfa, það ráðist þó af starfslokum hans
á Akureyri. GG
|Dagur-®tmmn
„Sprikklandi frískt fréttablaO"
- segir Stefán Jón Hafstein, ritstjóri Dags-Tímans
Nýtt dagblað, Dagur-Tíminn, kemur senn
fyrir sjónir landsmanna. Blaðið mun hafa
þá sérstöðu að verða prentað bæði á Akureyri og
í Reykjavík og ritstjórnir verða á báðum stöðum.
Dreifing þess verður skjót um landið og slagorð
blaðsins vísar til þess að morgunstund gefur gull
í mund: „Besti tími dagsins.“
Stefán Jón Hafstein, nýráðinn ritstjóri blaðsins,
sagði á fundi með fjölmiðlum í gær að Dagur-Tím-
inn yrði fullburða morgunblað sem veitti Iesendum
alla grunnþjónustu og núverandi lesendur Dags og
Tímans fengju stærra blað en þeir hafa fengið
hingað til.
„Við stefnum á að skapa nýtt blað á landsvísu
sem dafnar á eigin forsendum. Akureyrarritstjóm
einbeitir sér að fréttaöflun á Norðurlandi og færir
fljótt út kvíamar um landið; framtíðarverkefni
hennar er að þróa sterka nærvem um alla „lands-
byggð“, ekki bara Norðurland. Reykjavíkurrit-
stjóm einbeitir sér að því sem landfræðilega og
menningarlega stendur henni næst. Þetta verður
sprikklandi frískt fréttablað og fullkomlega óháð
stjómmálaflokkum. Dagur-Tíminn verður ekki
áróðursblað fyrir tiltekna hagsmuni heldur nytsam-
ur upplýsingamiðill um fólk og fyrir fólk, gagnrýn-
inn, fræðandi og ferskur. Von okkar er sú að hinn
almenni maður um land allt fái hér fjölmiðil fyrir
sig,“ sagði Stefán Jón Hafstein.
Stefán Jón sagði blaðið verða fyrsta fjölmiðil
landsins til að taka upp gjaldfría þjónustulínu fyrir
áskrifendur, lesendur og aðra þá sem vilja ná sam-
bandi við blaðið. Línan á að undirstrika þjónustu-
lundina og það að allir em jafnir gagnvart því, hvar
sem er á landinu. Númerið er 800-7080. GG
Rimlagordínur
(plast-ál-tré)
Rúllugardínur
(Sólarfilma-myrkva-venjulegar)
StrimlagardíM
Komdu og líttu ó úrvolíð
Q
KAUPLAND
Kaupangi • Síml 462 3565