Dagur - 08.08.1996, Side 6

Dagur - 08.08.1996, Side 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 8. ágúst 1996 Þessi pistill er ritaður til heiðurs opinberum starfsmönnum á Is- landi. Ef ég á að vera alveg hrein- skilin verð ég að viðurkenna að ég hef átt það til að blóta íslenska kerfinu vegna stirðleika. Eftir reynslu mína af opinbera skrif- stofubákninu í Jórdaníu hef ég hins vegar snarskipt um skoðun. í samanburði við skipulagsleysið og óreiðuna hjá hinu opinbera hér um slóðir er íslenska kerfið nefnilega dásamlega einfalt og skilvirkt. Hér kemur sagan af hrakning- um mínum og tveggja skólasystra minna við að fá dvalarleyfi í Jórdaníu í þrjá mánuði. Þegar komið er til landsins þarf að kaupa Vísa-áritun sem veitir leyfi til að vera í Jórdaníu í tvær vikur. Ef ætlunin er að dvelja lengur, þarf því að fram- lengja dvalarleyfið. Við þrjár; ég, Eva frá Svíþjóð og Jóhanna frá Finnlandi, byrjuðum á því að spyrja ráðgjafann okkar í skólan- um hvert við ættum að snúa okk- ur. Hún sagði okkur að fara fyrst á eina skrifstofu og fá bréf upp á að við værum búnar að borga skólagjöld og þvínæst á aðra skrifstofu til að fá annað bréf sem staðfesti að við værum nemendur við háskólann. Það gekk tiltölu- lega áfallalaust að fá þessi bréf í hendur og við vorum orðnar bjartsýnar á að dvalarleyfið yrði í höfn samdægurs. En nú fór að síga á ógæfuhliðina. Næst þurft- um við að fara með bréfín tvö og vegabréfin okkar í ráðuneyti inn- anríkismála. Ráðuneytið er stað- sett dágóðan spöl frá skólanum og því þurftum við að taka leigu- bfl (sem betur fer kostar ótrúlega lítið að taka leigubfl hér - álíka mikið og kostar í strætó á Is- landi!) Þegar þangað var komið - og nú er best að taka fram að eins AUÐUR INCÓLFSDÓTTIR SKRIFAR FRÁ JÓRDANÍU og venjulega á þessum árstíma var hitastigið vel yfir 30 gráður á Celsíus og því langt frá því skemmtilegt að vera á ferðinni um miðjan dag - var ráðuneytið lokað. Klukkan var rúmlega tvö og klukkan tvö loka allar opin- berar skrifstofur. Það var því ekki annað að gera en að fara heim og reyna aftur næsta dag. I næstu tilraun var ráðuneytið opið og þá byrjaði ballið. Fyrst í eina röð, þá í aðra, aftur í röðina sem við vorum í fyrst o.s.frv. Eft- ir rúman klukkutíma héldum við að þetta væri að hafast, en þá kom skellurinn. Við fengum hvíta miða í hendur og var gert að koma aftur eftir þrjár vikur! Við héldum nú ekki og skildum ekki hvers vegna þetta þyrfti að taka svona langan tíma. Sérstaklega vegna þess að þegar tvær vikur eru liðnar frá komudegi rennur stimpillinn í vegabréfinu út sem þýðir sekt fyrir hvem dag sem dvalið er í landinu þar til búið er að útvega nýjan stimpil. Ein- hvemveginn þótti okkur hálf öf- ugsnúið að jórdanska ríkið gæti sektað okkur vegna seinagangs eigin starfsmanna!! Eftir svolítið karp kom í ljós að í bréfunum frá háskólanum - fyrir þig! Mikib úrval af garni og prjónum Per Gynt Smart/Lanett Mandarin Classic Mandarin Petit Sisu/Mon-Ami Mamsell/Mor Aase GARNBÚÐIN Prjónablaðib Ýr Ungbarnablabib Tinna Opiö alla virka daga kl. 10.00-19.30 Laugardaga kl. 10.00-18.00. Auður lýsir í pistli sínuin baráttunni við óþjált skrifræðið í Jórdaníu. stóð að við þyrftum dvalarleyfi í 1 ár. Þar sem bréfin voru skrifuð á arabísku höfðum við mjög óljósa hugmynd um hvað stóð í þeim og tókum því ekki eftir þessari villu. Eftir mikið handa- pat tókst loks að koma skrifstofu- körlunum - já körlunum því kon- ur em mjög sjaldgæfar í þjón- ustustörfum (það er kannski þess vegna sem allt er í óreiðu???) - í skilning um að við vildum bara fá dvalarleyfi í 3 mánuði, ekki 1 ár. „Allt í lagi, komið aftur eftir fimm daga.“ Og þar við sat. Að fímm dögum liðnum fór- um við aftur í ráðuneytið. „Kom- ið aftur eftir viku,“ sagði maður- inn bak við glerið, ákaflega áhugalaus um að hjálpa okkur. „Nei, takk,“ sögðum við, „hér stendur að við eigum að koma í dag.“ Eftir að við tuðuðum smástund kom næsta tilboð: „Komið aftur eftir þrjá daga.“ Eftir mikið stapp var vikan sem við áttum að bíða orðin að tíu mínútum og við settumst niður og biðum. Við vorum orðnar dálítið reiðar. Við höfðum nefnilega komist að því í millitíðinni að all- ir hinir nemendumir höfðu farið beint á lögreglustöð og fengið stimpil í hvelli. Nýjar reglur sem enginn hafði fyrir að segja okkur frá! Eftir tíu mínútur kom „okkar maður“ aftur með hvítu miðana okkar og sagði að því miður yrð- um við að koma aftur á morgun. Nú var sú finnska orðin virkilega reið. „Þú getur sko persónulega fengið að borga ef við verðum sektaðar,“ sagði hún illskulega, ekki Iaust við að gneistaði af henni. Eg þakkaði Guði fyrir að manngarmurinn skildi fæst ljótu orðin sem hún notaði í kjölfarið. Næst kröfðumst við þess að fá pappírana okkar til baka, sögð- umst ætla að prófa að fara á lög- reglustöðina. Þetta var einum of flókið til að þeir skildu hvað við ættum við. Eða kannski nenntu þeir bara ekki að leita? Við ákváðum engu að síður að fara á næstu lögreglustöð með vegabréfm okkar þó ekki tækist okkur að fá pappírana frá skólan- um. Þegar þangað var komið var klukkan orðin hálfþrjú og maður- inn sem gefur út dvalarleyfin far- inn heim. Eftir að við vorum bún- ar að hér um bil grátbiðja um að okkur yrði hjálpað strax, ekki á morgun, kom í ljós að maðurinn var alls ekki farinn heim. En hrakningum okkar var ekki lokið. Nú voru nefnilega liðnir 15 dagar frá því ég kom til landsins og því ekki hægt að gefa mér stimpil. Fyrst þurfti ég að fara á annan stað, í hinum enda borgarinnar, og borga sekt fyrir einn dag. Þar var auðvitað lokað klukkan tvö sem þýddi að ég þurfti að fara daginn eftir - og borga sekt fyrir tvo daga. Sú finnska slapp fyrir hom þar sem hún kom til lands- ins degi á eftir mér. Eva hin sænska var hins vegar í meiri vandræðum. Hún var bara búin að vera 12 daga í landinu og þurfti því enga sekt að borga. Vandamálið var hins vegar að hún hafði komið landleiðina til Jórdaníu frá Israel. Þar sem hún var með ísraelskan stimpil í vega- bréfínu þurfti hún sérstakt leyfi til að vera í landinu, sem hún reynd- ar hafði, - en viti menn - leyfís- bréfíð var hjá vinum okkar í inn- anríkisráðuneytinu Leyfísbréfið fannst loksins næsta dag og á endanum fengum við allar þriggja mánaða dvalar- leyfí. Mörgum dínurum fátækari en reynslunni ríkari komumst við að þeirri niðurstöðu að opinberir starfsmenn í Jórdaníu gætu ýmis- legt lært af starfsbræðrum sínum á Norðurlöndum. Umferðarhornið •• Olvunarakstur Áfenqi oq akstur eiqa ekki samleið! Þetta er í senn einföld staSreynd og mikilvæg. A) I umferðarlögum frá 1995, 7. kafla segir í 44. grein, 1. málsgrein: „OkumaSur skal vera líkamlega og andlega fær um aS stjórna ökutæki því, sem hann fer meS." Og í sama kafla laganna segir m.a. í 45. grein:„Enginn má stjórna eSa reyna aS stjórna vélknúnu öku- tæki, ef hann er undir áhrifum áfengis.". B) Leyfilegt vínandamagn í blóSi ökumanns er svo hverfandi lítiS aS þaS leyfir enqa áfengisneyslu. Gott er fyrir ökumenn aö geta gengiS út frá þessari staSreynd! C) Neysla áfengis spillir dómqreind, dreaur úr færni, örvaqi oq viS- braqSsflýti ökumanna. Lög eru sett til þess aS stemma stigu viS stóraukinni slysahættu af völdum neyslu áfengis og annarra vímu- efna. D) Refsingar eru þungar vegna ölvunaraksturs; ökuleyfissvipting, háar fjársektir, jafnvel varShald eSa fangelsi. En þyngst er sú refsing aS valda öSrum meiðslum, örkumli, jafnvel dauða vegna slíks gá- leysis sem ölvunarakstur er! Akið varlega - forðist slysin SJOVA fA ■ iinmin Ráðhústorgi 5 • 600 Akureyri ALMENNAR Sími 462 2244 • Fax 462 3631

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.