Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 Fréttir Davíð ætlar að tryggja tollfríðindi og stofnanaþátt EES í Brussel: Utanríkismálanefnd styður sjónarmiðin - segir Davíð. Tryggja á gildi EES-samningsins Davíð Oddsson forsætisráðherra boðaði utanríkismálanefnd Alþingis á sinn fund um tvöleytiö í gær og kynnti fyrir nefndinni væntanlega ferð sína til Brussel þar sem hann ræðir við forystumenn Evrópusam- bandsins. Davíð mun hitta Jacques Delors, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Duhane, for- sætisráðherra Belga, og Jacques Santer, hinn nýkjörna forseta ESB. Einnig hefur verið óskað eftir fundi með Helmut Kohl, kanslara Þýska- lands. Sá fundur verður þó líklega ekki fyrr en snemma í haust. Davíð sagði á blaðamannafundi i gær að hann hefði kynnt utanríkis- málanefnd sjónarmið sín varðandi þær viðræður sem fram færu á næstu dögum viö forsvarsmenn Evr- ópusambandsins. Hann sagðist ekki hafa viljað fara til fundar í Brussel nema vita að þau sjónarmið, sem hann hafi um hvernig vinna ætti að málinu, hefðu stuðning í utanríkis- málanefnd, þar sem allir flokkar eiga aðild. Hann sagði það hafa komið glöggt fram á fundinum í gær að ut- anríkismálanefndin sem heild styðji sjónarmið hans um hvernig vinna ætti að málinu. Það væri mjög mikil- vægt. Á fundinum með utanríkismála- nefnd gerði Davíð grein fyrir því að meginverkefnið á fundunum með forsvarsmönnum ESB væri að tryggja að þeir hagsmunir sem ís- lendingar hefðu af EES-samningnum héldust þrátt fyrir að önnur EFTA- ríki færðust yfir í ESB. Hann gerði jafnframt grein fyrir því hvernig tryggja ætti þessa þætti. í fyrsta lagi ætti að tryggja þau tollfríðindi sem ísland hefur haft í sérstökum samn- ingum við þau EFTA-ríki sem nú hafa gert aðildarsamninga við ESB. Hér munar mest um síldarmarkaði í Svíþjóð og Finnlandi. Meginreglan sé sú að þegar slíkir aðildarsamning- ar séu gerðir beri að ræða og koma til móts við samninga sem hafa verið í gildi milli þessara ríkja og annarra. Það séu fjölmargir samningar sem ESB þurfi að gera af þessum ástæðum. Dav- íð sagði að það ætti að vera tiltölulega auðvelt að tryggja hagsmuni íslands á síldarmörkuðum í Svíþjóð og Finn- landi, það muni verða gert innan svo- kallaðrar bókunar sex frá 1972. í öðru lagi á að taka fyrir stofnana- þáttinn sem mun breytast þegar og ef EFTA-ríkin ganga inn. Það sé þó ljóst að sú vinna fái ekki á sig endan- lega mynd fyrr en í lok desember eða byrjun janúar 1995 þar sem ekki sé hægt að vinna þá vinnu að fullu fyrr en séð verður hversu mörg ríki munu staðfesta samninginn. Varðandi tollamálin sagði Davíð að ESB hefði þegar verið skrifað bréf og óskað eftir formlegum viðræðum. Jón Baldvin frestar að taka aðildarmál upp í stjóminni: Bíður fram aðnæsta flokksþingi - við Davíð ekki eins og andlegir síamstvíburar Davíð Oddsson forsætisráðherra boðaði i gær utanrikismálanefnd á sinn fund vegna Evrópuumræðna. Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra sat einnig fundinn. DV-mynd JAK Umræðan um aðildarumsókn að Evrópusambandinu: Eins konar óyf ir- veguð sumarbóla - og þetta upphlaup nú er óþarft, segir Davíð Oddsson „Það hefur nú komið upp fyrr að við Davíð séum ekki alveg eins og andlegir síamstvíburar. Viö búum í frjálsu landi, það eru skiptar skoðan- ir og ólíkir flokkar," sagði Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra eftir fund með forsætisráðherra og utanríkisnefnd í gær þegar hann var spurður hver yrðu hans næstu skref í Evrópumálum þar sem ljóst væri að hann og forsætisráðherra væru langt frá því að vera sammála og samstíga. Jón segist byggja stefnu sína þegar litið er til framtíðar á samþykktum flokksþings Alþýðuflokksins. Flokksþingið hafi ályktað að það teldi þjóöarhagsmunum íslendinga best borgið til frambúðar með því að láta reyna á aðildarsamninga. Þar hafi jafnframt verið tekið fram að ekki væri tímabært að taka af skynd- ingu ákvörðun um að leggja fram umsókn heldur skyldi það gert eftir nokkurn aðdraganda og kynningu. Það yrði að vinna heimavinnuna. „Persónulega hef ég fyrir löngu gert upp minn hug og hef ekki legið á því. Eg tel að þetta sé rétt stefna," segir. Jón Baldvin. Jón Baldvin sagðist ætla að bíöa með að taka upp umræðu um aðild- arumsókn í ríkisstjórn þangað til eft- ir nýtt flokksþing Alþýðuflokksins í haust. „Aðild að Evrópusambandinu er auðvitað svo stórt mál að það verður að leggja það fyrir íslensku þjóðina, spurningin er hvenær á að gera það. A að leita álits þjóðarinnar fyrirfram um þá spurningu hvort rétt sé að leggja inn umsókn eða á að gera það þegar samningsniðurstöður liggja fyrir. Hvort tveggja kemur til greina að mínu áliti,“ sagði Jón Baldvin aðspurður hvort umsókn um aðild væri ekki svo stórt mál að um það þyrfti að kjósa strax í haust. „Það að hlaupa allt í einu til núna og segja að við eigum að fara í hrað- ferð að aðild að Evrópusambandinu er svona einhvers konar sumarbóla sem rýkur upp, eins og stundum vill gerast hér á Islandi, mjög óyfirvegað, í alvarlegu máli. Þess vegna var ég mjög ánægður með þaö að utanríkis- málanefnd hefur ekkert látiö þessa umræðu trufla sig. Menn eru algjör- lega klárir á þeirri stefnumótun sem ísland hefur ákveðið," sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í gær á blaðamannafundi sem haldinn var í kjölfar fundar utanríkismálanefndar með forsætisráðherra. Þar kynnti Davíö Oddsson sjónarmið sín sem hann mun ræða við forsvarsmenn ESB í Brussel í næstu viku. Davíð Oddsson sagði í gær að ís- lendingar myndu með EES-samn- ingnum halda nánast öllum þeim efnahagslega ávinningi sem ESB- aðild gæti veitt okkur. Með EES- samningnum þyrftum við hins vegar ekki að samþykkja yfirráð yfir fisk- veiðilögsögu okkar. Davíð sagði það mat utanríkis- málanefndar að ekkert hefði gerst á síðustu vikum eða dögum sem rétt- lætti breytingu á stefnu íslands. Það væri engin tímapressa nú því að allir vissu að ekki yrðu tekin inn ný ríki í ESB fyrr en eftir ríkjaráðstefnu sem haldin yrði árið 1996. íslendingar ættu í fyrsta lagi kost á þá að sækj- ast eftir aðild. Hann sagði það alveg ljóst að ekkert „standandi boð“ væri til íslands um aðildarviðræður. Það hefði komið fram hjá öllum sem rætt hefði verið við innan bandalagsins að ekki yröu tekin fleiri ríki inn fyrr en í fyrsta lagi 1996 og sennilega seinna. „petta upphlaup núna er óþarft. íslendingar eru ekki að einangrast og við töpum engum rétti,“ sagði Davíö. Ekki múlbinda utanríkisráðherra Forsætisráðherra sagði að menn hefðu hingað til ekki viljaö leiðast undir sameiginlega fiskveiðistefnu og stjórnun Evrópusambandsins. Það hefði hvergi komið fram að skil- málum Rómarsáttmálans varðandi það atriði geti verið breytt. Hins veg- ar útilokaði hann ekki aðild að ESB í framtíöinni, til dæmis ef afstaða ESB í sjávarútvegsmálum breyttist. Davíð sagði að skýrsla Háskóla ís- lands um kosti og galla aðildar væri fyrst og fremst gerð í upplýsinga- skyni. Hann sagðist ekki halda að niðurstaðan mundi valda byltingu. Það yrði pólitísk ákvörðun hvort ætti að sækja um aðild eða ekki. Ut- anríkisnefnd mundi fá skýrsluna til umfjöllunar og hún síðan gerð kunn. Um yfirlýsingar Jóns Baldvins Hannibalssonar um hugsanlega að- ildarumsókn íslands sagði Davíð að í fundargerðum frá ferð Jón Baldvins í Evrópu fyrir skömmu væri ekkert um það að finna að Jón Baldvin hefði lýst yfir að íslendingar stefndu að aðild. Jón Baldvin kynni að hafa sagt eitthvað í þá veruna í ræöu í kvöld- verðarboði. „Ég ætla hins vegar ekki aö múlbinda utanríkisráðherrann, hann má hafa sínar eigin skoðanir." Davíð sagði að stefna ríkisstjórnar- innar í Evrópumálum væri óbreytt. Jón Baldvin hefði ekki komið með neina tillögu um breytta stefnu held- ur væru þeir sammála um að það mikilvægasta sem gera þyrfti núna væri að tryggja samninginn um evr- ópska efnahagssvæðið og fulltrúar stjórnarandstööuflokkanna þriggja í utanríkismálanefnd væru sammála því. Þingflokkur Framsóknarflokksins: Jón Baldvin segiafsér - eða fylgi stefnu Alþingis „Þingflokkurinn mótmælir vinnubrögðum utanríkisráðherra í Evrópumálum og telur að fram- ganga hans skaöi málstað íslend- inga. Utanríkisráðherra er tals- maður íslands í mikilvægasta ut- anríkismáli þjóðarinnar í dag. Honum ber að fylgja eftir stefnu Alþipgis í málinu. Ef hann treystir sér ekki til þess á hann að segja af sér,“ segir í ályktun þingflokks Framsóknarflokksins sem kom saman eftir fund utanríkismála- nefndar í gær. Þingflokkurinn telur að það komi ekki til greina að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ekkert hafi komið fram sem réttlæti slíka stefnubreytingu. Þingflokkurinn styður eindregið ályktun Alþingis frá 5. máí 1993 sem flutt var af for- ystumönnum Framsóknarflokks- ins um að íslendingar leiti eftir tví- hliða viöræðum við Evrópusam- bandið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.