Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994
Fréttir
Krafist bindindis á þjóðhátíð og að bömum undir 16 ára verði vísað frá:
Sýslumaður segir erf itt
að halda þuira þjóðhátíð
„Það er ekki hægt að svara þeirri
spurningu játandi eða neitandi hvort
við vísum börnum frá sem eru yngri
en 16 ára og ekki eru í fylgd með
fullorðnum. Ég svara því til að for-
eldrar eru að senda börn yngri en
16 ára á þjóðhátíð. Það er þeirra að
meta hvort þau eigi að vera hér,“
segir Bjarni Guðjón Samúelsson,
framkvæmdastjóri þjóðhátíðar-
nefndar í Vestmannaeyjum.
Nýverið sendi framkvæmdanefnd
átaksins „Stöðvum unglinga-
drykkju" framkvæmdaaðilum þjóð-
- segir að böm undir 16 ára verði að vera með forráðamönnum
hátíðar í Vestmannaeyjum bréf þar
sem þeir beina tilmælum sínum til
þeirra að farið verði að regium sem
gilda um útisamkomur á hátíðinni. í
bréfinu var vísað til þess að meðferð
og neysla áfengis væri stranglega
bönnuð á útihátíðum og að börnum
yngri en 16 ára væri óheimill aðgang-
ur að slíkum samkomum nema í
fylgd með fullorðnum. Ennfremur
segir í bréflnu að ástæða sé til að
ætla að hópar ungmenna leiti á þjóð-
hátíð með drykkju í huga. Jafnframt
er farið fram á að áfengisbann verði
auglýst og leit verði gerð að áfengi.
Loks er minnt á að öll drukkin börn
eigi skilyrðislaust að taka úr umferð
og koma þeim í hendur forráða-
manna sinna.
Bjarni Guðjón segir að um fjöl-
skylduhátíð sé að ræða og hún fari
fram innan bæjarmarkanna. Hann
segir að leit að áfengi í farangri þjóð-
hátíðargesta sé nánast óframkvæm-
anleg en þeim unglingum undir 16
ára aldri sem sannanlega séu undir
áhrifum áfengis á hátíðinni verði
komið í hendur forráðamanna sinna.
Hátíðin muni verða haldin á sama
hátt og undanfarin ár.
Georg Lámsson, sýslumaður í
Vestmannaeyjum, segir að starfað
verði eftir lögum og reglum á þess-
arri hátíð og er ekki sammála Bjarna
Guðjóni aö öllu leyti.
„Það er rétt sem kemur fram í bréf-
inu að börn undir 16 ára aldri verða
ekki á þessari hátíð nema í fylgd með
foreldrum. Við munum hins vegar
ekki gera athugasemdir við að börn
undir 16 ára aldri séu þarna að dag-
tíma. Hins vegar er ljóst að erfitt er
að halda uppi algjöru áfengisbanni á
hátíð sem þessari. Ég á ekki von á
að gerð verði skipulögð leit í farangri
þjóðhátíðargesta en hugsanlegt er að
einhverjar stikkprufur verða gerðar
hjá þeim sem eru undir lögaldri,"
segir Georg.
Hann segir að ef framkvæmda-
nefnd þjóðhátíöar brjóti á einhvern
hátt þau skilyrði sem sett eru fyrir
svona hátíðahöldum sé ljóst að skoða
yrði það nánar ef sótt yrði um leyfi
aftur.
Björgunarbúnaður Sigmunds:
Hlýtur viðurkenningu
á ný eftir 6 ára þref
Ómar Garðarsson, DV, Vestmarmaeyjum;
Sex ára baráttu fyrir því að fá
björgunarbúnað Sigmunds Jóhanns-
sonar samþykktan af Siglingamála-
stofnun virðist loksins að ljúka.
Vélaverkstæðinu Þór hér í Eyjum,
framleiöanda Sigmundsútbúnaðar-
ins, hefur verið falið að gera nokkrar
prófanir á búnaðinum og er stefnt
að því að þeim verði lokið fyrir
haustið. Þá á ekkert að vera því til
fyrirstöðu að búnaðurinn fái viður-
kenningu og framleiðsla geti hafist.
Sigmundsútbúnaðurinn þótti bylt-
ing þegar hann kom fram á áttunda
áratugnum. Var það fyrsti búnaður-
inn sem skaut gúmbjörgunarbátum
í sjóinn með því að kippt var í þar
til gert handfang. í sex ár hefur Sigl-
ingamálastofnun neitað að viður-
kenna sjálfvirka búnaðinn en hann
hafði upphaflega hlotið viðurkenn-
ingu 1982.
Garðar Gíslason, framkvæmda-
stjóri Þórs, segir að þetta sé niður-
staðan eftir áralangt þref við Sigl-
ingamálastofnun. Hann segist vera
ánægður með að loks sjáist fyrir end-
ann á þessari baráttu og bendir á að
þær prófanir sem á að gera hafl þeg-
ar verið framkvæmdar. Verða nú
endurteknar.
Sigmund við sleppibúnaðinn.
DV-mynd Omar
Sindri og Andri Thorlacius á Öxnafelli i Eyjafirði hafa fengið sérstaka stóla með öryggisbeltum til að sitja i á
dráttarvél föður síns. Allt of oft hefur það komið fyrir að börn, sem setið hafa laus í dráttarvélum, hafa slasast.
Meðal annars kom það einu sinni fyrir að Andri datt út úr dráttarvél á ferð þegar hurð hrökk upp en hann slapp
ómeiddur. Nú ætti slíkt ekki að koma að sök þar sem hann situr spenntur. DV-mynd
Fjölbreytt landbúnaðar-
sýning í Eyjafjarðarsveit
Stór og mikil landbúnaðarsýning
verður haldin við Hrafnagil í Eyja-
fjarðarsveit dagana 20.-27. ágúst nk.
Að sýningunni stendur Lifandi land
hf. sem er félagsskapur einstaklinga
en að sýningunni er unnið í samráði
við Búnaðarsamband Eyjaíjarðar,
sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og
fleiri aðila.
Sýningunni sjálfri má skipta í
tvennt. Annars vegar er um að ræða
búvörusýningu þar sem sýndar
verða kjöt- og mjólkurafurðir ásamt
vörum sem unnar eru úr ull og
skinni. Sýndar verða grænfóðurs- og
korntegundir sem ræktaðar eru hér-
lendis. Grænmeti og gróðurhúsaaf-
urðir verða til sölu á útimarkaði og
blómasýning verður sett upp.
Á vegum vélainnflytjenda verður
véla- og tækjasýning þar sem kynnt
verður þaö nýjasta í framleiðslu
landbúnaðartækja. Þá verða sýndir
fjórhjóladrifnir bílar og jeppar. Einn-
ig aílar sem búið er að breyta og
útbúa til aksturs við erfið skilyröi.
Ýmislegt annað verður á dagskrá í
tengslum við sýninguna sjálfa. Má
þar nefna ráðstefnu um samþættingu
landbúnaðar og ferðaþjónustu og
hvemig nýta megi ferðaþjónustu við
markaðssetningu íslenskra landbún-
aðarafurða.
Menningu og listum verður gert
hátt undir höfði, fjöldi alþýðuhsta-
manna mun koma fram, sýndur
verður íslenskur'listiðnaður og fleira
mætti nefna.
Alla dagana verður veitingasala
með útigrilli og lifandi tónlist, boðið
verður upp á jepparall, eyfirskir
hestamenn sýna Mstir sínar, sýndur
verður akstur vélsleða á Eyjafjarð-
ará, kvöldvökur verða, vegleg loka-
hátíð veröur haldin, boðið verður
upp á ýmis atriði fyrir börn og einn
dagur sýningarinnar verður sérstak-
lega tileinkaður öldruðum.
Mál eru í eðlilegri vinnslu hjá Fáf ni
„Fyrirtækið er í fullum rekstri, það
er unnið hér sex daga vikunnar frá
morgni fram á kvöld," segir Magnús
Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Fáfnis h/f á Þingeyri.
Magnús segir greiðslustöðvun fyr-
irtækisins ekki hafa áhrif á rekstur-
inn og allt gangi sinn vanagang.
„Málin eru í eðlilegri vinnslu og
ég á von á að niðurstaða fáist í næstu
viku,“ segir Magnús.