Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 Utlönd Þúsundir flóttamanna frá Rúanda deyja úr kóleru: Ekki nokkur leið að hafa tölu á líkunum Litil stúlka trá Rúanda huggar bróður sinn eftir að þau systkinin misstu foreldra sína sem létust úr kóleru. Talið er að allt að 50.000 hafi þegar smitast af sjúkdómnum og óttast er að um helmingur þeirra láti lífið. Símamynd Reuter hafa líílð fram að þessu hefði ekki verið hægt að bjarga en miklar gagn- rýnisraddir hafa heyrst um að skipu- lag hjálparstofnana sé bágboriö og ómarkvisst. Sérstaklega er talað um að björgunarstarf hjálparstofnana á vegum Sameinuðu þjóðanna sé illa skipulagt. Reuter Voðaverk föður í Danmörku: Kyrkti eins og Ijögurra ára gamla syni sína Tuttugu og flmm ára gamall maður var úrskurðaður í tjögurra vikna gæsluvarðhald í Slagelse í Danmörku í gær eftir að hann við- urkenndi að hafa myrt tvo syni sína, eins og fjögurra ára, aðfara- nótt fimmtudagsins. Manninum var einnig gert að gangast undir geðrannsókn. Að kröfu lögmanns hins ákæröa bannaði dómarinn að fluttar yrðu fréttir af því sem gerðist í dómsaln- um og því er ekki hægt að skýra frá ástæðunum að baki morðunum. Börnin fundust kyrkt í gærmorg- un á herbergi í Bakkahúsinu í Slag- else, stofnun fyrir börn, þar sem þau bjuggu ásamt föður sínum. Það voru starfsmenn stofnunarinnar sem komu að börnunum látnum. Maðurinn hafði ekið burt frá staðnum á bíl sínum hálftíma áður. Þegar var lýst eftir bílnum og fannst hann skömmu síðar. Að sögn Ibs Munchs lögregluvarð- stjóra sat maðurinn í bílnum og var hann handtekinn án nokkurrar mótspyrnu. Maðurinn bjó með sonum sínum á stofnuninni eftir að hann skildi við móður þeirra. Lögreglan hafði ekki enn fundiö móöurina síðdegis í gær. Bakkahúsið er stofnun fyrir börn sem búa við erfiðar aðstæður og foreldrum er gert kleift að dvelja þar með börnum sínum. Ritzau Enn eitt áfallið fyrir verjendur O. J. Simpsons: Blóðugur hanski er talinn áreiðanlegt sönnunargagn Óttast er að allt að 50.000 manns hafi smitast af kóleru í flóttamanna- búðunum í Goma og búist ep við að helmingur þeirra muni láta lífið á næstu dögum. Engin leið er að hafa nákvæma tölu á þeim sem deyja en hjálparstarfsmenn hafa varla undan að tína upp lík og koma þeim fyrir í fjöldagröfum. Kólera er nú orðin svo mikil ógnun að nokkur hluti flótta- manna hefur tekið sig upp frá flótta- mannabúðunum og stefnir aftur heim á leið til Rúanda. Kólerufaraldurinn er einnig farinn að ógna íbúum í Zaire því stærstu flóttamannabúðimar eru í Goma í Zaire, við landamæri Rúanda, þar sem eru nú um 1,2 milljónir manna. Goma var 200.000 manna bær áður en hann yflrfylltist af flóttamönnum. Mikil spenna ríkir nú í bænum og gremja í garð flóttamannanna. Talið er að lítið þurfi til að óeirðir brjótist út. Nokkuð hefur borið á að íbúar Goma flýi úr eigin bæ vegna ástands- ins. Kólera smitast auðveldlega á svæð- inu með menguðu vatni. Einkennin eru niðurgangur og uppköst sem geta valdið dauða á örfáum dögum. Þeir sem hafa einkenni sjúkdómsins verða að fá meira en 48 klukku- stunda vökvameðferð og aðra með- ferð sem hjálpar þeim að halda eftir næringu. Þaö er almennt viðurkennd stað- reynd að mörgum af þeim sem látið Evrópuþingið staðfesti Santer naumlega Jacques Santer, forsæt- isráðherra Lúxemborgar, var staðfestur í embætti for- seta fram- kvæmdastjóm- ar Evrópusam- bandsins á fundi Evrópuþingsins í gær með litlum atkvæðamun. Santer hlaut 260 atkvæði en 238 Evrópuþingmenn voru honum andvígir og 23 sátu hjá, í umræöunum á þinginu gagn- rýndu flestir stjórnmálahóparnír framkvæmdastj órnina fyrir þaö hvemig staöið var aö valinu. Perryræðirrefsi- aðgerðirgegn Bosníu-Serbum William Perry, landvarnaráö- herra Bandaríkjanna, fer til Zagreb, höfuðborgar Króatíu, í dag til viðræðna viö embættís- menn Sameinuðu þjóöanna um refsiaðgerðir gegn Bosníu-Serb- um fyrir að hafna síðasta friðar- tilboði alþjóðlegra sáttasemjara. Þá dró stjóm múslíma í Bosníu til baka fyrra samþykki sitt á til- lögu fimmveldanna sem gerði ráð fyrir að Bosníu yrði skipt nánast jafnt milh sambandsríkis Króata og múslíma annars vegar og Serba hins vegar. Andrej Kczyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði að frekari samningaviðræður væru mögu- legar. Reuter Vörnin í máli ruðningskappans O.J. Simpsons varð fyrir enn einu áfallinu í gær. Eitt af sönnunargögn- unum í máli sækjenda gegn O.J. Simpson var blóðugur hanski sem fannst á heimili Simpsons. Verjendur hans höföu haldið því fram að lög- reglan hefði komið honum fyrir á staðnum til aö bera sakir á Simpson og því væri ekki hægt að nota hann sem sönnunargagn. Sérstök rannsóknarnefnd innan lögreglunnar komst að þeirri niður- stöðu að það hefði verið ómögulegt aö koma sönnunargagninu fyrir á staðnum án þess að það vekti at- hygli. Fjórtán lögreglumenn voru á heimili Simpsons við leit að sönnun- argögnum og það er niðurstaða rann- sóknarnefndarinar aö það hefði ekki getað farið fram hjá þeim öllum ef sönnunargagninu hefði verið visvit- andi komið fyrir á heimili Simpsons. Síðastliöinn miðvikudag tilkynntu lögmenn Simpsons að O.J. Simpson lofaði hverjum þeim hálfrar milljón- ar dala verðlaunum sem veitt gæti upplýsingar sem gætu hreinsað nafn hans eða leitt til fangelsunar hinna raunverulegu morðingja Nicole Simpson og unnusta hennar, Ronald Goldman. Verjendur O.J. Simpsons sitja held- ur ekki auðum höndum. Aðalverj- andi hans, Robert Shapiro, hefur komið á fót grænni símalínu í Los Angeles. Fólk er beðið um að hringja í ákveöið símanúmer án endurgjalds og gefa upplýsingar í málinu sem leitt gætu til hreinsunar á nafni ruðningskappans. Enn sem komið er hefur fátt eitt borist sem sannað gæti sakleysi Simpsons. Reuter Stuttar fréttir dv Hrefnunaburt Norsk stjórnvöld vilja hreínuna burt af lista yfir dýr í útrýmingar- hættu. Hættir brottflutningi Rússar eru hættír að flytja her- menn sína burt frá Eistlandi. Lítiil árangur : l'tann'kisráð' herra Banda- rikjanna, : Warrcn Christ- opher, ;heldur heim á leiö frá Llbanpn eftir árangurs- lausar viöræð- ur um frið milli ísraela og Líbana. Skjálftií Japan Öflugur neðansjávarjarð- skjálfti skók mikinn hluta Aust- ur-Japans í morgun. Samherjarrífast Stjórnarþingmenn á Ítalíu rif- ust í þinginu 1 gær og þurfti að skilja þá að. Styðjafjósvegginn Bæði stuðningsmenn og and- stæðingar ESB í Noregi slá skjaldborg um fjósveggsmálverk Leifs bónda. Sækirumleyfi Bill Clinton hefur beðið Sam- einuðu þjóðirnar um leyfi til að gera innrás í Haítí. Gagnrýni Alexander Solzhenitsyn réðst harka- lega að stjórn- völdum í Rúss- landi í ræðu sem hann flutti í lok tveggja mánaöa ferða- lags um Rússland. Vonindofnar Lítil von er til þess að skærulið- ar IRA boði vopnahlé i baráttunni við Breta á Norður-írlandi. Viðræður Bandaríkin og Norður-Kórea náðu samkomulagi um áfram- haldandi viðræður um kjarn- orkuvopn. Opnaðáný ísraelar tilkynntu að landa- mæri landsins við sjálfstjórnar- svæði Palestínumanna á Gaza verðí opnuð á ný. Watsonúrleik Viðgeröir á skipi hvalavinarins Pauls Watsons taka að minnsta kosti 10 daga til viðbótar. Ákæra Fjórir skipverjar af Síríusi, skipi hvahríðunarmanna, hafa verið ákærðir af norskum yflr- völdum. Útskrifuð Margrét Þór- hildur Dana- drottning var útskrifuð af spítalanum í Arósum - í morgun eftir vel heppnaða krabbameins- skurðaögerð á legi. Umhverfismál í næstu viku verður haldin al- þjóðleg ráðstefna um umhverfis- mál i Arósum með þátttöku sjötíu og einnar þjóðar. Niðurskurður Álframleiðendur í heiminum náðu samkomulagi um áfram- haldandi niðurskurð á álfram- leiðslu. Reuter, NTB, Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.