Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Side 5
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 5 Fréttir Brugðist við breyttum aðstæðum 1 Evrópu í forsætisráðuneytinu: Mikil vinna innt af hendi - segir Eyjolfur Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra „Það er út í hött að halda því fram að vinna við að halda utan um sam- skipti okkar við ESB þessa dagana og að bregðast við breyttum aðstæð- um sé ekki í fullum gangi,“ segir Eyjólfur Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, í viðtali við DV. Því hefur verið haldið fram síðustu daga að engin undirbúningsvinna að frekari samskiptum íslands og Evr- ópusambandsins fari fram í ráðu- neytunum. Óttast ýmsir að tíminn sé aö hlaupa frá íslendingum. Eyjólfur segir að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi á undanforn- um vikum átt fundi með utanríkis- eða Evrópu'málaráðherrum Bret- lands, Þýskalands, Hollands og Dan- merkur, auk þess sem mikill undir- búningur hafi verið inntur af hendi fyrir fund forsætisráðherra íslands, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands nú í byjun mánaðarins en Davíð stýrði þeim fundi. Þar hafl meginumræðuefnið verið samskipti við ESB og breytingar á samstarfi þessara þjóða. „Þaö er verið að vinna að úttekt fyrir ríkisstjórnina á áhrifum ESB- aðildar á ýmsa þætti hvað varðar íslenskt efnahags- og þjóðlíf í Há- skóla íslands. Einnig er unnið hörð- um höndum að undirbúningi þeirra aðgerða sem nauðsynlegar verða hvað varðar breytingar á tollamálum ef hin ríkin á Norðurlöndunum sam- þykkja inngöngu í ESB. Þar á meðal hefur verið sent bréf til fram- kvæmdastjórnar ESB þar sem óskað hefur verið eftir viðræðum um tolla- mál,“ segir Eyjólfur. Að sögn Eyjólfs fer Davíð Oddsson til Brussel í næstu viku og hittir þar að máli Jacques Delors, forseta fram- kvæmdastjórnar ESB, og mun fara yfir stöðuna með honum og helstu frammámönnum í þeim tilgangi að halda áfram þeirri vinnu sem hefur verið í gangi vegna breyttra að- stæðna. Eyjólfur segir það fráleitt að halda því fram að íslendingar séu á ein- hvern hátt sofandi hvaö varðar sam- skiptin viö ESB. Staðreyndin sé sú að tengsl íslands við Evrópu og af- staðan til ESB hafi verið eitt megin- verkefni íslenskra stjórnvalda síð- asthðin ár. Samningurinn um evr- ópska efnahagssvæðið hafi tekið gildi um síðustu áramót og það sé sá samningur sem tryggi viðskiptalega hagsmuni okkar í samskiptum við Evrópu. Frumvarp um menntastefnu: Samræmdum próf um fjölgað í drögum að nýrri menntastefnu fyrir grunn- og framhaldsskóla, sem lögð hefur verið fram, er lagt til að gæðastjórnun verði tekin upp í skólum landsins og að grunn- skólanemendum verði tryggðir ár- lega a.m.k. 180 kennsludagar og framhaldsskólanemendum a.m.k. 160 kennsludagar. Þetta kemur fram í tiilögum nefndar um mótun menntastefnu sem kynntar voru á blaðamanna- fundi með Ólafi G. Einarssyni menntamáiaráðherra. í tillögunum er einnig lagt til að samræmdum prófum í grunnskóla verði fjölgað og þeim komið á víðar á námsferl- inum. Nefndin leggur einnig til að komið verði á einsetnum skólum og að skólatíminn verði lengdur úr níu mánuðum í tíu. Þormóður rammi á Siglufirði: 32,6 milljóna króna hagnaður Lúðvík Nordgulen verktaki ræðir hér við starfsmenn sína, þá Ómar og Ágúst. Þeir hafa undanfarið unnið að því að hreinsa tæpa 20 kílómetra af rafmagnsköplum úr „iðrum“ Reykjavíkur og nágrennis. DV-mynd JAK - fyrstu fimm mánuði ársins Skipt um lífæðar Reykjavíkur og nágrennis: 270 tonn af sagnfræði- legum köplum úr jörðu - hætt notkun rafmagnskapla sem fengust í gegnum MarshaUaðstoðina Fyrstu fimm mánuði þessa árs varð 32,6 milljóna króna hagnaður af rekstri Þormóðs ramma hf. á Siglufirði. Veltan eftir sama tíma var 602 milljónir króna. Þetta er ekki jafn- góður árangur og eftir fyrstu fimm mánuðina í fyrra. Þá varð hagnaðurinn tæpar 38 milljónir og veltan 577 milljónir. Ástæðan fyrir ágætri afkomu Þor- móðs ramma er fyrst og fremst rekin til þess að fyrirtækið hefur síðustu ár lagt meiri áherslu á úthafsveiðar. Siguijón J. Sigurössosn, DV, Isafiröi: Twin Otter flugvél Flugfélagsins Ernis kom til ísafjarðar nýlega eftir að hafa verið eitt og hálft ár í Angóla í leiguverkefnum á vegum innanrík- isráðuneytis Angóla. Hörður Guðmundsson, flugstjóri og eigandi Ernis, og Hálfdán ingólfs- son flugmáður flugu vélinni heim með millilendingu í Sviss en þar var Tvö skip, Arnarnes og Sunna, eru gerð út til rækjuveiða á Flæmingja- grunni við Nýfundnaland og hefur veiðin gengið vel. Að auki gerir Þormóður rammi út Sigluvík og Stálvík sem bæði stunda rækjuveiQar á hefðbundnum slóðum innan 200 mílnanna. Fyrirtækið rek- ur að auki frystihús, rækjuverk- smiðju, saltfiskverkun og reykhús. Um 250 manns starfa hjá Þormóði ramma sem er stærsti atvinnurek- andinn á staðnum. vélin yfirfarin. Hörður segir að félag- ið hafi verið meira og minna í verk- efnum á borð við þetta í Afríku sl. 5 ár. Hann hefur sjálfur starfað í Mos- ambique og Kenýa fyrir Sameinuðu þjóðirnar, alþjóðlegar stofnanir og Rauða krossinn. „Það er búist við að við forum aftur út í haust. Við áttum að fara til An- góla í júní en því var frestað vegna átaka í Yemen,“ sagði Hörður. „Það má segja að verið sé að skipta um lífæðar höfuðborgarinnar og ná- grennis hennar," sagði Lúðvík Nordgulen, rafvertaki hjá Rafmagn- sveitu Reykjavíkur. Undanfarið hefur verið unnið að því að taka upp rafmagnskapla sem gegndu því hlutverki að flytja raf- magn til Reykjavíkur og nágranna- sveitarfélaganna. Um er að ræða þrjá 30 kílóvolta kapla sem hver er um sex til sjö kílómetrar að lengd. Segja má að þeir hafi sagnfræðilega skír- skotun þar sem hér er um að ræða kapla sem fengust í gegnum Mars- hallaðstoðina snemma á sjötta ára- tugnum. Upphaflega stóð til að þeir yrðu einungis í notkun í um 20 ár en líftími þeirra varð tvöfalt lengri eða allt þar til á seinasta ári. Þá voru teknir í notkun þrír 120 kílóvolta strengir og rafmagnskerfið styrkt verulega og flutningsgeta rafmagns aukin. Jón Haukur Jóelsson, sem starfar hjá innkaupadeild Rafmagnsveitu Reykjavíkur, sagði í samtali við DV aö kapallinn væri úr blýi og kopar og vægi hver metri af honum um 14 kíló auk einangrunar. Þeir eru skornir niður í sex metra lengdir og má ætla að þegar verkinu lýkur hafi verið teknir kaplar úr jörðu sem vega 273 tonn. Jón Haukur segir að yfirleitt séu kaplar sem þessir látnir liggja í jörðu eftir að notkun þeirra sé hætt. Blýið úr þeim geti hins vegar á mjög löng- um tíma farið út í jarðveginn. I þessu tilviki hafi aðstæður þótt heppilegar til að taka þá upp þar sem þeir lágu í rörum. Eftir að verkinu lýkur verður kapallinn seldur hæstbjóðanda og segir Jón Haukur að Rafmagnsveitan vonist til að hagnaður af sölu hans borgi þann kostnað sem hljótist af að ná honum úr jörðu. Heim úr leiguverkefnum í Angóla Litlar líkur á sölu jarða, dala eða landshluta þrátt fyrir EES: Ekkert gerst í sölumálum segir Magnús Leopoldsson, fasteigna- og jarðasali „Það hefur ekkert gerst í þessum málum. Við höfum fengið nokkrar fyrirspumir frá útlendingum sem ekki hafa náð lengra. Ég er ekki viss um að þær tengist EES-samningnum því þeir aðilar sem eru að spyrjast fyrir um jarðir hérlendis em yfirleitt á einhvern hátt tengdir íslendingum. Við verðum hins vegar ekki vör við dæmigerða fjárfesta," segir Magnús Leopoldsson, löggiltur fasteignasali og framkvæmdastjóri Fasteignamiö- stöðvarinnar, en það fyrirtæki hefur verið ráðandi í sölu jarða og landa á íslandi. Andstæðingar EES-samningsins héldu því fram í umræðunum um samninginn á Alþingi að hann yrði til þess að útlendingar gætu keypt heilu dalina eða jafnvel landshlutana á íslandi og alls ekki ólíklegt að það myndi gerast. Steingrímur Her- mannsson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins, lýsti til dæmis áhyggjum sínum af því að útlending- ur gæti keypt Laxárdal í Dalasýslu í heilu lagi. Hann vildi takmörkun á meiri háttar eign útlendinga að ís- lenskum löndum. EES-samningur- inn tók gildi 1. janúar í ár. Magnús segir að áhyggjur manna um að dalir eða jafnvel heilu lands- hlutarnir verði seldir útlendingum væru ástæðulausar, í það minnsta enn sem komið er. Magnús segir að fyrirtæki sitt hafi mjög stóra hlutdeild í sölu jarða hér á landi. Framboðið nú sé keimlíkt því sem verið hefur en salan heldur þyngri. Hann kennir efnahags- ástandinu um það. Hann segist hafa orðið var við aukinn áhuga íslend- inga sem búa erlendis um jarðakaup.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.