Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1994 9 Utlönd Tony Blair, nýr formaöur Verkamannaflokksins: Tími fyrir Ihalds- f lokkinn að fara Tony Blair, 41 árs gamall lögfræð- ingur, sigraði með yfirburðum í kosningum um nýjan formann breska Verkamannaflokksins í gær og þykir það benda til að flokkurinn sé að færast nær miöju. Blair tekur við af John Smith sem lést af hjarta- slagi í maí síðastliðnum. „Sláist í för meö okkur í þessa krossferð fyrir breytingar," sagði Blair og beindi máh sínu til bresks almennings sem hefur snúið baki við Verkamannaflokknum í íjórum þingkosningum í röð. Blair dró upp dökka mynd af ástandinu á stjómarheimili íhalds- manna sem væru spilltir og úrvinda eftir of langa setu á valdastólum. „Ef þið getið ekki breytt þessu landi til hins betra eftir fimmtán ár getið þið það aldrei. Það er kominn tími til að þið takiö föggur ykkar og far- ið,“ sagði Blair. Blair fékk 57 prósent atkvæða en Tony Blair hvetur landsmenn til fylg- is við Verkamannaflokkinn. Simamynd Reuter keppinautar hans fengu miklu minna: Jon Prescott fékk 24,1 prósent atkvæöa en Margaret Beckett 18,9 prósent. Beckett tók við forustu flokksins til bráðabirgða eftir fráfall Smiths. Prescott var síðan kjörinn varaformaður Verkamannaflokks- ins. íhaldsmenn eru ekki hrifnir af aö fá Blair í formannssætið og viður- kenndi einn ráðherranna að hann væri það versta sem fyrir þá gæti komið. „Blair er efnilegasti leiðtogi Verka- mannaflokksins í heilan mannsald- ur. Ef einhver getur komið flokknum aftur til valda er það hann,“ sagði blaðiö Daily Telegraph. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birtist í þessari viku, styður 51 pró- sent kjósenda Verkamannaflokkinn en 23 prósent eru á bandi íhalds- flokksins og 21 prósent fylgir Frjáls- lyndum demókrötum. Reuter Þetta eru hvitabirnirnir Coca og Cola og þeir eiga heima í Schönbrunn dýragarðinum í Vínarborg. Það er Cola sem er að narta í tréð á meðan Coca hvílir sig. Birnirnir voru áður í dýragarðinum í Köln, hétu þá Olga og Olinka en skiptu um nafn þegar gosdrykkjafyrirtækið studdi þá með fégjöfum. Símamynd Reuter Uppboð Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Suðurlandsbraut 48, 0302, þingl. eig. Lögfræðimiðstöðin hf., gerðar- beiðendur Gláma Vinnustofa sf„ Iðnlánasjóður og Sig. Georgsson hrl., 26. júlí 1994 kl. 13.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Þessi glæsilegi sumarbústaður, 54 m2, til sölu. Verð 3 millj. stgr. Uppl. í síma 98-21933 Þrastaskógur Laust lyfsöluleyfi sem forseti íslands veitir Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi í Vestmannaeyjum (Apótek Vestmannaeyja). Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við 11. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982 og bráða- birgðalög nr. 112/1994 um breytingu á lyfjalögum nr. 93/1994, að viðtakandi lyfsöluleyfishafi kaupi vörubirgðir, búnað og innréttingar lyfjabúðarinnar. Ennfremur kaupi viðtakandi leyfishafi húseign þá er lyfjabúðin ásamt íbúð fráfarandi lyfsala er í. Væntanlegur lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1. janúar 1995. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfja- fræðimenntun og lyfjafræðistörf skal senda ráðu- neytinu fyrir 22. ágúst 1994. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 18. júlí 1994 Danskar skipasmíðastöövar: Höfða mál gegn styrkjakerf i ESB Samtök danskra skipasmiðja hafa höfðað mál gegn framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna styrkja til austur-þýskra skipasmíðastöðva sem þau segja að stefni dönskum skipasmíðaiðnaði í hættu. Skipasmíðastöðvarnar gripu til þessa ráðs eftir að dönsk stjómvöld neituðu að eiga frumkvæði að mála- tilbúnaði gegn framkvæmdastjórn- inni á þeim forsendum að útilokað væri að vinna máhð. í yfirlýsingu, sem dönsku samtökin sendu frá sér í vikunni, segir m.a. að þau hafi höfðað málið vegna þess að austur-þýskum skipasmíðastöðv- um hafi verið leyft að auka afkasta- getu sína langt umfram það sem seg- ir í stefnumótandi leiðbeiningum ESB. Danir greiddi atkvæði gegn áætl- unum ESB árið 1992 um að heimila stófellda aðstoð viö skipasmíðastöðv- ar í Eystrasaltshéruðum gamla Aust- ur-Þýskalands en það nægði ekki til að stöðva framgang málsins. „Við voru knúnir til að höfða mál til þess að vernda danskar skipa- smíðar og störf í greininni fyrir skað- legum afleiðingum óhóflegra ríkis- styrkja til samkeppnisaðila okkar,“ segir í yfirlýsingu dönsku skipa- smíðastöðvanna. Thorkil Christensen, fram- kvæmdastjóri samtaka skipasmiðj- anna, sagði í samtah við Reuters fréttastofuna að því betur sem hann skoðaði málið þeim mun sannfærð- ari væri hann um sigur. Danskar skipasmíðastöðvar af- hentu 23 skip sem vógu samtals 1,36 milljónir tonna áriö 1993 en árið á undan afhentu þær 29 skip sem vógu 824þúsundtonn. Reuter Það vantar nýja hugsun í íslenskan dagblaða heim. Láttu ekki segja þér hvað þú átt að hugsa. — hin hliðin á málunum. Sími 631-600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.