Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1994, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ .1994 11 Fréttir Bolvíkingar sækj a um leyfi til tilraunaveiða: Togarinn Dagrún til síld- veiða með f lottroll - tilraimarinnar virði, segir framkvæmdastj órinn „Við ætlum að gera tilraun með þenn- an veiðiskap í haust ef færi gefst. Við erum með síldarkvóta sem við ætlum að nota í þetta. Þessi kvóti okkar hefur verið leigður að undanförnu," segir Björgvin Bjamason, framkvæmda- stjóri Ósvarar hf. í Bolungarvík. Ósvör hefur sótt um leyfi til til- raunaveiða á síld út af Vestíjörðum. Að sögn Björgvins er hugmyndin sú að annar tveggja togara fyrirtækis- ins, Dagrún, veiði síldina í flottroll ef leyfið fæst. Undanfarin haust hef- ur orðið vart við talsvert af stórri síld eða svokallaðri demantssíld á Vestfjarðamiðum og vilja Bolvíking- ar freista þess að nýta hana. „Það vantar alltaf verkefni bæði fyrir skipin sem og vinnsluna í landi. Mér sýnist ekki veita af að auka fjöl- breytni í atvinnulífinu hér á Vest- fjörðum, í því ljósi er þetta tilraunar- Topp 10 óvinsælustu frambjóðendurnir í kosníngunum í vor — 1057 701 fli innar virði,“ segir Björgvin. Björgvin segir að ef leyfi sjávarút- vegsráðuneytisins fáist til veiðanna sé líklegt að veiðarnar fari fram í október. Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, sagði að erindi Bolvíkinga hefði borist þeim og feng- ið jákvæða afgreiðslu. „Mér finnst athyglisvert að Bolvíkingar skuli ætla að reyna þessar veiðar. Þessi síld hrygnir vestur af landinu, út af Malarrifi. Eftir hrygningu æðir hún af stað í ætisleit og þá fer hún þarna norður eftir. Síldarstofninn er í góðu jafnvægi og okkur telst til að veiða megi úr honum 120 þúsund tonn á ári en stofninn er kominn vel yfir hálfa milljón tonna,“ segir Jakob. Hann segir að síldin verði allt að 15 ára gömul og verði kynþroska fjög- urra ára. Síldarkvóti Ösvarar er eini síldarkvótinn á Vestfjörðum eftir því sem næst verður komist. Þú kynnist íslandi betur ef þú ert áskrifandi að DV! Áskriftarsíminn er 63*27*00 Island Sækjum þaö heim! > I > Kosningamar: Sigrún og Alfreð fengu flestar útstrikanir Framsóknarmennimir Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð Þorsteinsson fengu langflestar útstrikanirnar af öllum frambjóðendum á báðum hst- um í nýafstöðum borgarstjórnar- kosningum. 1057 kjósendur strikuðu Sigrúnu út og 701 strikaði Alfreð út í kosningunum og er það algjört met miðað við báða hsta. Þá fengu borg- arfuhtrúamir Guðrún Ágústsdóttir, Pétur Jónsson og varaborgarfulltrú- inn Arthur Morthens um og yflr 100 útstrikanir hver. „Mjög harður áróður beindist gegn okkur Sigrúnu síðustu vikur fyrir kjördag og ég er viss um að engir aðrir frambjóðendur hafa orðið fyrir jafn persónulegum árásum og við. Ég býst við að það eigi sinn þátt í þessum útstrikunum, auk þess sem maður heyrir um skipulagðar út- strikanir hjá vissum aðilum sem ég vil ekki nefna. Ég lít síður en svo á þetta sem óvinsældir Framsóknar- flokksins," segir Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi. Svo virðist sem Inga Jóna Þórðar- dóttir og Þorbergur Aðalsteinsson hafi verið talsvert umdehd á lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn- arkosningunum í vor enda fengu þau 166 og 164 útstrikanir. Þá fylgdu Amal Rún Qase og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þeim fast á eftir með rétt rúmlega 100 útstrikanir. Borgarstjóraefni framboðshstanna lenda ekki hátt á óvinsældahstanum að þessu sinni. 62 kjósendur strikuðu nafn Áma Sigfússonar út og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir hlaut 20 út- strikanir. Aðrir frambjóðendur fengu allt niður í þrjár útstrikanir. ^o.- ^o-é' Frábær gæði frábæru verði QT-CD44H .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.