Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994
Vísnaþáttur
Vísna-
glettur I
Eitthvert sinn kom Jóhannes
skáld úr Kötlum að sr. Helga
Hraundal er hann var að mála þak-
ið á húsi sínu rautt. Kastaði skáldið
þá fram þessari stöku:
Hvítfága mun hjarta mitt
hirðirinn okkar góði,
fyrst hann þannig þakið sitt
þvær úr lambsins blóði.
Þeir skáldmæringamir Jóhannes
úr Kötlum og Kristmann Guð-
mundsson bjuggu skammt hvor frá
öðrum í Hveragerði og var með
þeim kunningsskapur ágætur. Eitt-
hvert sinn varpaði Jóhannes þess-
um kviðlingi fram í gamni:
Lít ég einn sem list kann.
Löngum hafa þær kysst hann
Kristmann.
Kristmann svaraði:
Einkum þó við ötlum
að þær fari úr pjötlum
í Kötlum.
Eitt sinn voru þeir á gangi á götu
á Húsavík, þeir Friörik póstur frá
Helgastöðum og Sigurjón Þor-
grímsson, mágur hans og hótel-
haldari á Húsavík. Friðrik var allt-
af að berjast við að gera vísur þeg-
ar vel lá á honum og í þetta sinnið
lentu þeir kumpánar i miklu um-
ferðarþvargi þar á götum, bæði af
bilum og annarri umferð og urðu
þeir að stansa og sæta lagi með að
komast áfram. Þá hóf Friðrik raust
sína og kvað:
Nú er vandi að veija sig
að verða ei strand á götu.
Botnaði þá Siguijón:
Þar kom andinn yfir þig
eins og hland úr fotu.
Næst er ein heimspekileg vísa
eftir Steingrím nokkurn Einars-
son. Túlkar þessi vísa hversu stríö
vort og dægurþras getur verið mis-
jafnlega gjöfult:
Undarleg er vor rulla
í þessu jarðlífi,
Ýmist er á oss drulla
eða þá harðlífi.
Einu sinni sem oftar voru þeir
Gestur á Hæli og Gunnar frá Sela-
læk saman á ferðalagi um vomótt.
Riðu þeir upp Murneyrar á Skeið-
um. Lausir hestar er þeir ráku vom
komnir alllangt á undan og hleyptu
þeir á eftir þeim. Er þeir hlupu af
baki eftir sprettinn kastaði Gestur
fram þessari vísu til Gunnars:
Þér ætti að vera auðsótt leið
inn í hjónabandið,
því þú ert frægur fyrir reið
íjandi víða um landið.
Oddhendu þessa kvað Tómas
Guðmundsson um frænda sinn,
fyrrnefndan Gunnar frá Selalæk:
Gunnar selur gerir vel
að ganga með deliríum.
í svarta éli suður á mel
hann situr í keliríum.
Jón Jónsson, kenndur við Haf-
steinsstaði, kvað vísu þessa um
skagfirskan klerk. Klerkur hafði
þá nýlokið messugjörð en mætti
svo eftir messuma fyrir rétti í ein-
hverju málavafstri er hann átti í.
Jón var einnig við það riðinn:
Það er sómi þeirri stétt,
þegar prestur stígur
fram úr stólnum fyrir rétt,
flækir mál og lýgur.
Andrés Björnsson eldri var beð-
inn um að skrifa fyrstur í „poesi-
bók“ sem átti að gefa ungri stúlku
í jólagjöf. Var vísan svona:
Haltu jólin hress og kát
við hangiket og bolaspað.
Eigðu þetta leirílát
og láttu aðra fylla þaö.
Vísu þessa kvað Karl H. Bjarna-
son um Einar E. Sæmundssen
skógarvörð er þeir vom saman á
Eyrarbakka um 1911. Um þær
mundir var Einar oft fenginn til að
halda erindi og skemmta á ýmsa
lund á samkomum:
Vífin eiga vin í þraut
vörðinn grænna skóga.
Þær sækja hann eins og sveita-
naut
suður og upp um Flóa.
Þorsteinn Þorsteinsson, sýslu-
maður Dalamanna, var einhver
ákafasti
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
bókasafnari síns tíma og ef hans
freistaði gömul eða fágæt bók varð
hann hinn ákafasti. Eftir að Þor-
steinn kvaddi þessa tilveru komst
á kreik þessi vísa eftir Guðmund
Böðvarsson frá Kirkjubóli:
Failega Þorsteinn flugið tók,
fór um himna khður.
Lykla-Pétur iífsins bók
læsti í skyndi niður.
Margan óðinn hafa menn kveðið
til kvenna sinna og ástmeyja en
ekki er hjal þetta alltaf jafn þrung-
iö rómantík. Sigurður á Jörfa orti
þessa visu til seinni konu sinnar,
Ragnheiðar Eggertsdóttur frá Fitj-
um í Skorradal. Þeiin hjónum
samdi lítt enda skildu þau. Vísan
hljóðar svo:
Daglegt brauðið dauflegt er
með deilu og þungum orðum.
Þykir hátíð, þegar er
þögn og fýla á borðum.
4) cjjtix íoltc
lamux Itcm i
IUMFERÐAR
I DÁn
Matgæðingur vikunnar
Léttsteiktur svartfugl
í gráðostasósu
- og sólkolapaté í forrétt
Guðmundur Kristjánsson, skip-
stjóri á Súlnafelli EA 840, er mat-
gæðingur DV að þessu sinni en
hann gefur uppskrift að léttsteikt-
um svartfugli í gráðostasósu og
sólkolapaté í forrétt.
Sólkolapaté meö
chantillisósu í forrétt
„Uppskriftina að sólkolapaté hef
ég átt í mörg ár en ég man bara
ekki lengur hvar ég fékk hana.
Kannski það hafi verið í gömlum
Gestgjafa," segir Guðmundur.
í réttinn fer eftirfarandi:
4-5 stk. sólkolaflök
200 g rækjur
200 g sýrður rjómi
'A peh ijómi
100 g smjör, brætt
1.5 dl graslaukur
salt og pipar
hvitvín eða mysa
Sólkolaflökin léttsoðin eða gufu-
soðin og síðan kæld. Brætt smjör
er síðan sett í matarvinnsluvél og
fiskurinn settur saman við og
hakkað saman. Sýrða rjómanum
og rjómanum bætt viö og salt og
pipar eftir smekk. 'A dl af graslauk
blandað saman við. Bleytið matar-
límiö í köldu vatni og bræðið upp
í A dl af hvítvíninu (mysunni).
Rækjunum blandað varlega saman
við í skáhna, hrært með sleif og
síðan er matarlíminu blandað var-
lega saman viö. Þetta er síðan sett
í form og geymt í ísskáp þangað til
það er borið fram en það verður
að vera minnst 3 klst. í ísskáp.
Sósa:
250 g majónes
2.5 dl léttþeyttur rjómi
safi úr einni sítrónu
salt og pipar
Guðmundur Kristjánsson, skip-
stjóri og matgæðingur vikunnar.
Allt hrært vel saman. Gott er að
sæta sósuna með 1 tsk. af strásykri
eöa 1 tsk. af hunangi.
Sólkolapaté er skorið niður í
hæfilegar sneiðar, sósan sett til
hhðar og afganginum af söxuðum
graslauknum stráð yfir. Gott er að
borða þetta með ristuðu brauði eða
hvítlauksbrauði.
Léttsteiktur svart-
fugl í gráðostasósu
„Þennan aðalrétt mixaði ég sjálf-
ur og hann er mjög auöveldur og
alveg listagóður matur. Fuglakjöt
er alltaf hátíðismatur þegar þaö er
í matinn hjá mér.“
í réttinn fer eftirfarandi:
9 svartfuglar
10 gulrætur
1 sellerístiklur
1 laukur
franskar grihjurtir (má vera timi-
an)
sojasósa
salt og pipar
A peh rjómi
100 g gráðostur
Svartfuglinn úrbeinaður, bring-
urnar settar í ílát, sojasósu stenkt
yfir og einnig örlitlu af frönskum
grilljurtum. Látið standa í kæh
meðan annað er útbúið.
Sósa:
Beinagrindin af fughnum skorin
í þægilega bita og brúnaðir í smjöri
eða smjörlíki, laukurinn, sellerí og
þijár gulrætur sett saman við.
Kryddað með salti, pipar og frönsk-
um grihjurtum. Það má setja vel
af kryddi í þetta. Vatni er síðan
hleypt vel yfir og látið sjóða í tvo
tíma. Passið vel að fleyta soranum
af soðinu.
Soðið er síðan sigtað í pott, soðið
upp og gráðosturinn settur saman
við, smakkað til (má jafnvel styrkja
soðið með venjulegum kjötkrafti)
þykkt með maisenamjöli eða sósu-
jafnara. Rjómanum síðan bætt við.
Smákoníak út í skemmir ekki ef
fólk er þannig sinnað. Einnig má
sæta sósuna með rifsberjasultu.
Afgangurinn af gulrótunum
snyrtur, léttsoðinn eða gufusoðinn,
síðan sykurbrúnaður eins og gert
er við kartöflur. Bringuvöðvarnir
eru snöggsteiktir á vel heitri
pönnu, kryddaðir með nýmöluðum
pipar og frönskum grihjurtum, sós-
unni hellt yir og látiö krauma í ca
2 mín. Borið fram með rauðvíni,
rósavíni eða íslensku vatni.
Guðmundur skorar á Kristínu
Halldórsdóttur, mágkonu sína í
Bolungarvík, að gerast næsti mat-
gæðingur en hann segist alltaf fá
góðan mat hjá henni.
Hinhliöin
Hef ekki fundið þann rétta
- segir Stefanía Stefánsdóttir, íslandsmeistari í tennis
„Það var mjög ljúf tilfinning að
sigra. Ég veit nú ekki hvort ég hafði
búist við þessu en ég var búin að
æfa nokkuð mikið,“ segir Stefanía
Stefánsdóttir sem gerðir sér htið
fyrir og varð fimmfaldur íslands-
meistari i tennis á íslandsmótinu
sem fram fór um síðustu helgi.
„Fram undan hjá mér er að fara
í skóla en ég er búin að skrá mig á
nýmálabraut í Menntaskólanum
við Hamrahlíð í haust. Svo ætla ég
auðvitaö að halda áfram að æfa og
reyna að ná eitthvað lengra. Það
er stefnt að því að fara á Evrópu-
meistaramót landshöa sem fram
fer í Portúgal í nóvember og svo
eru ólympíuleikar smáþjóðanna á
næsta ári.“
Fullt nafn: Stefania Stefánsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 20. júní 1978.
Maki: Hef ekki fundið þann rétta.
Börn Engin.
Bifreið: Eg er of ung th að eiga bíl.
Starf: Vinn í bæjarvinnu uppi á
Geithálsi.
Laun: 42 þúsund kr. á mánuði.
Áhugamál: Tennis, allar íþróttir,
dans, tónhst, leiklist og myndlist.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur i lottóinu? Hef aldrei spilað í
lottói.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Fara á böh og dansa, fara í
keppnisferðir th útlanda og spila
tennis.
Stefania Stefánsdóttir.
DV-mynd JAK
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að hafa ekki neitt aö gera.
Uppáhaldsmatur: Pasta.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn eftir erf-
iða æfingu en annars kóka kóla
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ólafur Stef-
ánsson handknattleiksmaður og
Pete Sampras tennisleikari.
Uppáhaldstímarit: Ég les voðalega
sjaldan tímarit, annars finnst mér
Vikan ágæt.
Hver er fallegasti karlmaður sem
þú hefur séð? Kevin Costner.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Goran Zvanisevich.
Uppáhaldsleikari: Daniel Day-
Lewis.
Uppáhaldsleikkona: Emma
Thompson.
Uppáhaldssöngvari: Joe Cocker.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Æðsti strumpur.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Vista-
skipti og Sækjast sér um líkir.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlutlaus.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Stefán
Jón Hafstein.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég er ekki með Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?Hef
enga skoðun á því.
Uppáhaldsskemmtistaður: Skóla-
bölhn í Laugalæk.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Valur í
handbolta, Þróttur í tennis og Fram
í fótbolta.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Á Wimbeldon.
Hvað ætlar þú að gera i sumarfrí-
inu? Æfa tennis og hggja í sólbaöi
(ef sóhn skín).