Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Blaðsíða 40
48 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1894 Sviðsljós Elísabet Taylor vill að Larry hafi gott samband við dóttur sína. Litla Megan er fyrsta barnabarn Larrys og tíunda barnabarn Liz. Þetta litla kríli hefur komið á sættum milli föður og dóttur sem höfðu ekki talast við i 20 ár. Bam kemur á sáttum - innan fjölskyldu Elísabetar Taylor Elísabet Taylor hefur nú tekist að fá eiginmann sinn, Larry Fortensky, og dóttur hans, Júlíu, til að sættast eftir 20 ára ósamkomulag. Hún hefur notað fyrsta barna- barn Larrys til að fá feðginin til þess að talast við og þykir henni hafa tekist ótrúlega vel því faðirinn og dóttir- in þykja mestu þrjóskudýr ef því er að skipta. Raunar hefur Liz Taylor mikið dálæti á þessari ný- fæddu dótturdóttur Larrys sem hlotið hefur nafniö Meg- an. Hún hefur lagt ríka áherslu á að halda góðu sam- bandi við bamið en til þess að svo gæti orðið þurftu móðir þess og afi að geta talast við. Fortensky-fjölskyldan hafði ekki komiö saman í mörg herrans ár og það var ekkert útlit fyrir að svo yröi á næstunni. En þá greip Liz í taumana. Afi í fyrsta sinn Elísabet Taylor á hvorki meira né minna en níu barna- börn, en eiginmaðurinn Larry á aðeins eitt, þ.e.a.s. litlu Megan. Hann hafði heldur lítið af dóttur sinni, Júlíu, að segja í uppvextinum því hann yfirgaf móður hennar þeg- ar Júlía var ungbarn. Hún fékk ekkert tækifæri til þess að kynnast föður sínum þegar hún óx úr grasi og smám Júlía sá föður sinn varla meðan hún var að alast upp. Hann yfirgaf móð- ur Júlíu þegar Júlía var tveggja ára og það hefur hún ekki getað fyrirgef- ið honum fyrr en nú. saman varð hún bitur og reið út í hann fyrir að hafa yfirgefið mæðgurnar. Þannig liðu 20 ár án þess að þau heföu minnsta samband. Liz var ákveðin í að breyta þessu, hvernig sem hún færi að því. Sjálf vildi hún gjarnan vinna vináttu Júlíu og þegar litla stúlkan fæddist kom tækifærið upp í hend- urnar á henni. Hún tók nýbakaðan afann og móðurina, Júlíu, saman í innkaupaleiðangur til þess að kaupa ýmis- legt sem þá stuttu vanhagaði um. Þá ákvað Larry að litla Megan þyrfti nauðsynlega að fá rugguhest. Endirinn varð sá að farið var með splunkunýja vöggu, troðfulla af fatnaði og leikföngum handa litlu stúlkunni. Tengdasonurinn líka Liz hefur einnig komið á sæmilegum friði milli Larrys og tengdasonar hans, byggingaverkamannsins Ronnie Henderson. Satt að segja hefur Larry ekki haft mikið álit á honum en sagt að hann væri ábyrgöarlaus drykkju- bolti. Liz minnti hann á það að hann væri engu betri sjálfur því hann hefði orðið að fara í áfengismeðferð vegna ofneyslu. Larry skildi fyrr en skall í tönnum og hefur nú friðmælst við Ronnie líka. Dætur Söru Ferguson og Andrews: Beatrice ersvolík móöursinni að það er lyginni líkast. Auk útlitsins hefurhún erft skapið frá henni. Eugenie verðurlik- ari föður sínum með hverjum deginum sem liður. Á inn- felldu myndinni er Andrew fimm ára. Þær sverja sig í ættina Það er óhætt að segja að systurnar bornar eru saman gamlar myndir af tvær,BeatriceogEugenie,dætur foreldrunum og myndir af systrun- hertogans af York, sverji sig í ættina. um. Beatrice hefur meira að segja Sú eldri er lifandi eftirmynd móður- erft rauða hárið frá mömmu sinni innar og hin yngri alveg eins og faö- en Eugenie er dökkskolhærð. ir hennar. Þetta sést greinilega ef Þótt þau geti ekki búið saman geta þau þó alltént verið stolt af dætrum sínum. Ólyginn sagði... ... að Lisa Marie Presley, dóttir Elvis Presleys, hefði oftsinnis að undanfórnu heimsótt vin sinn Michael Jackson á búgarð hans í Los Angeles. Lisa Marie er ný- skilin og menn segja að hún sæki í friðinn hjá Michael. Sonur hennar, Benjamin, hefur einu sinni fengið að fara með mömmu. ... að Carl Philip Svíaprins hefði fengið mótorhjól á fimmtán ára afmælinu sínu. Það þýðir að líf- vörður hans hafi einnig fengið söngvari Julio Iglesias hefði feng- iö húðkrabbamein. Hann hefur nú leitað sér hjálpar í Bandaríkj- unum hjá færustu læknum. Eftir aðgerðir sem.söngvarinn gekkst undir hefur hann hvílt sig á bú- garði sínum í Argentinu ásamt kærustunni Miranda. ... að leikkonan Mia Farrow hefði nú ættleitt eitt barn til við- bótar öllum hinum og væri núna orðin ellefu barna móðir. Hún lætur sig ekki muna um það þó einstæð sé. Litla stúlkan sem Mia ættleiddi hefur fengið það skrítna nafn; Keini Shea. ... að í tilefni af nýafstaðinni HM-í fótbolta kæmi hér smáfót- boltafrétt; knattspymuhetjan fyrrverandi, Pelé, sem er orðin 53ja ára, kvæntist fyrir stuttu hinni 34ra ára Assiria Seixas Lemos. Mikið var um dýrðir á brúðkaupsdaginn þrátt fyrir að þau bæði væru að ganga i hjóna- band í annað sinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.