Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994 15 ,;:í • : ' V DV-mynd JAK Líkur aukast á haustkosningum Þeir sem fylgjast með pólitíkinni hér heima geta ekki kvartað yfir deyfð og drunga þótt nú sé hásum- ar og sá tími sem venjulega er að- gerðaminnstur á þeim vettvangi. Hnútur fljúga á milli forsætisráð- herra og utanríkisráðherra um cif- stöðuna til Evrópusambandsins. Sagt er að „titringur" sé í stjómar- samstarfinu. Annar stjórnarflokk- anna, Alþýðuflokkurinn, er að heita má klofinn og fyrrverandi varaformaður hans er í hðskönn- unarferð um landið og útilokar ekki sérframboð. Umræður eiga sér stað um landsframboð vinstri flokka gegn Sjálfstæðisflokknum í anda hins sigursæla R-hsta í Reykjavík. Raddir um þingrof og haustkosningar verða sífeht há- værari. Loks sýnir ný skoðana- könnun aö Sjálfstæðisflokkurinn sækir verulega í sig veðrið en AI- þýðuflokkurinn er veikur. Við hæfi er að líta yfir þennan völl og reyna að átta sig á því hvað fram undan er. Einleikur Jóns Baldvins Enginn vafi leikur á því að yfir- lýsingar Jóns Baldvins Hannibals- sonar utanríkisráðherra í Evrópu- ferð hans á dögunum komu sam- starfsflokknum í ríkisstjóm veru- lega á óvart. Mönnum þótti sem hann tæki mikið upp í sig af htlu tilefni. Hann virtist vera að reyna að setja af stað atburðarás sem ekki væri í samræmi við stefnu- mörkun Alþingis og ríkisstjómar. Viðbrögð Davíðs Oddssonar voru í samræmi við þetta. Hann kvað málatilbúnað Jóns Baldvins á mis- skilningi byggðan. Ekkert nýtt hefði komið fram sem réttlætti að máhð færi í annan farveg en það hefði verið í. í þessu sambandi má nefna að fyrirhugað er að Davíð Oddsson hitti forseta fram- kvæmdastjórnar ESB í næstu viku. Hefur forsætisráðherra ef til vih tahð að framganga Jóns Baldvins væri við það miðuð að skyggja á þýðingu þess fundar. Það leyndi sér a.m.k. ekki að forsætisráðherra var samstarfsmanni sínum óvenjulega gramur að þessu sinni. Ýmsir áhrifamenn í Sjálfstæðis- flokknum, sem verið hafa fullir efa- semda um skynsemi þess að kjósa í haust, telja vinnubrögð Jóns Bald- vins í ESB-málum undanfarna daga vera kornið sem fyllti mæhnn hvað afstöðu þeirra til kosninga varðar. Slíkur trúnaðarbrestur sé kominn upp innan ríkisstjórnar- innar að hún hafi ekki burði til að móta sameiginlega stefnu í þessu mikilvæga máli að óbreyttu. Fyrir- sjáanlegt sé að heih vetur fari í súginn og það sé of dýru verði keypt. Þess vegna sé rétt að kjósa í haust. Sérframboð Jóhönnu Jóhanna Sigurðardóttir virðist fá góðar móttökur á ferðalagi sínu um landið, ferðalagi sem hún kahar sjálf „liðskönnun". Hún segir að skilaboðin sem hún fái hvarvetna séu hvatning til sérframboðs. Jóhanna er um margt sérstæður stjórnmálamaður. Hún hefur ekki lagt sig eftir því undanfarin ár að heilla kjósendur með glaðværri framkomu og frekar forðast sviðs- ljós fjölmiðla en hitt. En mjög margir hafa það á tilfínningunni að hún sé heilsteypt manneskja sem láti málefni og hugsjónir ráða ferðinni og erindi hennar í stjóm- máhn sé ekki það eitt að skara eld að sinni köku. Jóhanna höfðar til breiðs hóps kjósenda, s.s. þeirra sem ekki em of hnýttir við flokk- ana yfirhöfuð og þeirra sem em að jafnaði tortryggnir og rieikvæðir gagnvart stjórnmálamönnum og valdamönnum þjóðfélagsins sér- staklega. Sumir segja að Jóhanna nái til sama kjósendahóps og studdi Al- bert Guðmundsson í Borgara- flokksævintýri hans fyrir sjö áram. Einnig til kvenna sem gætu annars hugsað sér að styðja Kvennahst- Laugardags- pistiU Guðmundur Magnússon fréttastjóri ann. Færi hún fram með sjálfstætt framboð á hún áreiðanlega mögu- leika á talsverðu fylgi. Enginn R-listi Árangur R-listans í borgarstjórn- arkosningunum í Reykjavík á dög- unum hefur eðlilega vakið upp þá spumingu hvort shkt samstarf eða svipað geti tekist á milli vinstri flokkanna í þingkosningum. Ólafur Ragnar Grímsson hefur sem kunn- ugt er varpað fram þeirri hugmynd aö flokkarnir lýsi því yfir fyrir kosningar að þeir æth að mynda ríkisstjóm saman fái þeir til þess stuðning kjósenda. M.ö.o. að kosið verði um ríkisstjórn. Hugmynd Ólafs Ragnars er í sjálfu sér ekki fráleit en galhnn er sá að hún fær litlar sem engar und- irtekir meðal þeirra manna sem hann er að biðla til. Og húgmyndir um R-hsta fá enn verri undirtektir, þ. á m. í Alþýðubandalaginu, þar sem Svavar Gestsson virðist ein- dregið andsnúinn þeim. Kvenna- listinn hefur gert samþykkt á vor- þingi sínu þar sem samruna vinstri flokkanna í næstu þingkosningum er vísað á bug. Halldór Ásgrímsson blæs á hugmyndina. Eini stuðningurinn sem R-lista- framboð fær er meðal ákveðinna hópa í Alþýðuflokknum og Alþýðu- bandalaginu. Þar hafa menn m.a. velt upp þeim möguleika að fá Jó- hönnu Sigurðardóttur til að veita shku framboði forystu. Ólíklegt er þó að þetta gangi eftir og útilokaö ef til haustkosninga kemur. Sjálfstæðisflokkur styrkist Skoðanakannanir að undanfórnu sýna að Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur styrkst verulega miðað við mæl- ingar undanfarin misseri. Nýjasta könnunin sem gerð hefur verið sýnir hins vegar að Alþýðuflokkur- inn er á niðurleið. I könnunum þessum hefur ekki verið spurt um stuðning við sérframboð Jóhönnu Sigurðardóttur. Ymsir áhrifamenn í Sjálfstæðis- flokknum meta stöðuna svo að flokknum sé óhætt að fara út í kosningar við þessar aðstæður. Sjálfstæðisflokkurinn hljóti að verða vænlegasti samstarfskostur hvers og eins hinna flokkanna. Ólíklegt sé að hægt verði að koma saman vinstri stjórn nema með þátttöku fjögurra flokka og jafnvel fimm gangi sérframboö Jóhönnu eftir. Slík fjölflokkastjórn sé mar- tröö stjómmálamanna og því sé ömggt að látið verði reyna á sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn. Stjórnarsht, þingrof og kosningar í haust þurfa ekki nauðsynlega að útiloka framhald á samstarfi Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks. Inn- an beggja flokkanna er mikill áhugi á slíku samstarfi og að sama skapi mikil vonbrigði yfir því að hinn vinsamlegi andi frá Viðey skuh ekki lengur svífa yfir vötnunum. Eins og mál hafa þróast eru þó meiri hkur á því að sjálfstæðis- menn hti næst th annarra átta. Samstarf við Kvennalistann er t.d. ekki óhugsandi en yrði áreiðanlega erfitt nú þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur haslað sér völl á vettvangi borgarmála og nöfnurn- ar Kristín Ástgeirsdóttir og Einars- dóttir, sem þykja ekki beint fulltrú- ar frjálslyndis og sveigjanleika, eru komriar í forystu fyrir flokkinn. Framsóknarflokkurinn er líka sterklega inni í myndinni, enda hefur hann færst frá vinstri eftir að Halldór Ásgrímsson varð for- maður. Jafnvel Alþýðubandalagið er ekki talið útilokað þrátt fyrir frægar orðahnippingar flokks- formannanna í þingsölum í vetur sem leið. Haustkosningar Getspakir menn, sem telja sig þekkja vel til á stjómarheimilinu, segja að líkur á kosningum í haust séu nú 60 á móti 40 en hafi verið 50:50 fyrir Evrópusambandsævin- týri Jóns Baldvins. Verði haustkosningar á annað borð ofan á gæti komið th þingrofs í næsta mánuði og kosninga í lok september eða byrjun október. Stjórnarskráin segir að þingrofs- valdið sé í höndum forsætisráð- herra og hann þarf ekki að kalla Alþingi saman til að kynna boð- skap sinn. Hann getur einfaldlega rofið þing heima í eldhúsinu á Lynghaganum. í viðtölum við fjölmiðla úthokar forsætisráðherra ekki þingrof og kosningar í haust en bendir á að sterkustu rökin í því efni varði ekki samstarf stjómarflokkanna. Kosningar eigi að réttu að verða í byrjun apríl á næsta ári og það muni þýða kosningabaráttu frá þvi í febrúar og þing sem verður tæp- ast starfhæft eftir jól. Hver svo sem rökin verða á end- anum og hvort sem stjórnarflokk- arnir verða samstiga eða ekki eru líkurnar á haustkosningum nú meiri en minni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.