Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Blaðsíða 26
34
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994
íþróttir
Souness og Karen með hundana tvo þegar allt var i stakasta lagi.
Ömurleg heimkoma
hjá Souness og Karen
Graeme Souness og kona hans Karen áttu ekki skemmtilega heimkomu
eftir brúðkaupsferð á dögunum. Souness, sem frægastur er fyrir leik sinn
með Liverpool í ensku knattspyrnunni og sem stjóri hjá skoska stórveld-
inu Glasgow Rangers, varð öskuillur er hann komst að því er hann kom
heim úr brúðkaupsferðinni að bóndi einn í nágrenninu hafði skotið báða
hunda hans til bana.
Hundarnir höfðu drepið og étið eitt lambanna hjá Richard Reeves sem
býr sauðfjárbúi skammt frá heimili knattspymuhetjunnar fyrrverandi.
„Ég átti fárra kosta völ. Hundarnir höfðu þegar drepið eitt lamb og hin
voru mjög skelkuö. Þeir hefðu þess vegna getað drepið mun fleiri lömb.
Hundar sem byrja á þessu koma alltaf aftur svo ég varð að skjóta þá,“
sagði bóndinn og bætti við: „Ég vissi ekki að hundarnir væra í eigu Gra-
eme Souness enda hefði það engu máli skipt.“
Bóndinn tilkynnti atburðinn til lögreglu og þegar Souness heimsótti
hann ásamt nýorðinni konu sinni var Souness bálvondur og við lá að
hann léti hendur skipta.
Sagður stærsti lygalaupur í öllum heiminum
Þessi myndarlegi Bandaríkjamaður heitir Calvin Lane og er fyrrum
atvinnumaður í hnefaleikum. Hann er um 2,30 metrar á hæð og meyjarn-
ar mega sín lítils við hlið kappans. í dag er Lane þekktastur fyrir það
að geta vart sagt satt orð og er kallaður stærsti lygalaupur í heimi.
Landsmótið í golíi hefst á morgun:
„Frekja að
ætlast til
að ég verji
titilinn"
- segir meistarinn Þorsteinn Hallgrímsson
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég lofa því einu aö ég ætla að
hafa gaman af þessu, ég ætla mér
að gera allt til að halda tithnum en
eftir það sem á hefur gengið væri
það frekja að gera of miklar kröfur
í þeim efnum,“ segir Þorsteinn
Hallgrímsson, íslandsmeistari í
golfi, sem hefur titilvörn sína á
landsmótinu á Akureyri á þriöju-
dag. íslandsmótið hefst á sunnu-
daginn en þá heija kylfingar í
þriðja flokki karla keppni.
Þorsteinn meiddist illa í baki
skömmu eftir sigurinn á landsmót-
inu í fyrra og hefur ekki náð sér
að fullu. Hann sýndi þó í Grafar-
holti um síðustu helgi að hann er
að nálgast sitt gamla form og þá
getur allt gerst.
Margir líklegir
Þorsteinn segir að þeir sem teljist
líklegastir í baráttuna á Akureyri
séu Siguijón Arnarson, GR, Birgir
Leifur Hafþórsson GL, Þórður E.
Sigurðsson GL, Björgvin Sigur-
bergsson GK og heimamennina
Sigurpál Sveinsson og Örn Arnar-
son.
Ekki er að efa að fleiri hafa áhuga
á titlinum, t.d. Kristinn G. Bjarna-
son frá Akranesi sem hefur leikið
geysivel að undanförnu og enginn
skyldi afskrifa „gömul brýni“ eins
og Hannes Eyvindsson, GR, Gylfa
Kristinsson, GA, og Svein Sigur-
bergsson, GK.
Hart sótt að Karen
Karen Sævarsdóttir, GS, hefur ver-
ið ósigrandi undanfarin ár og unn-
iö landsmótið 5 ár í röð.
Ýmislegt bendir til þess að titil-
vörnin geti orðið henni erfiðari en
áður og þær sem telja verður lík-
legastar til að beijast við Karen eru
Herborg Arnarsdóttir, GR, sem
sigraði hana í Mitsubishi-mótinu
fyrir norðan á dögunum, Ólöf Mar-
ía Jónsdóttir, GK, og Ragnhildur
Sigurðardóttir, GR.
Völlurinn á Akureyri er í mjög
góðu ásigkomulagi og þátttakendur
á landsmóti í golfi hafa líklega aldr-
ei verið fleiri. 317
skráðir til leiks.
kylfmgar eru
Metþátttaka og allar
aöstæöurgóðar
Útlit er fyrir mjög skemmtiiegt
landsmót að þessu sinni. Alhr
bestu kylfingar landsins mæta til
leiks og er það mál margra að aldr-
ei fyrr hafi verið efiðara að spá fyr-
ir um úrsht í meistaraflokki karla.
Þá era taldar nokkuö góðar hkur á
því að Karen Sævarsdóttir fái
haröa keppni í meistaraflokki Þorsteinn Hallgrimsson hefur islandsmeistaratitil að verja á landsmót-
kvenna. inu sem hefst á Akureyri um næstu helgi. DV-mynd GK