Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Síða 11
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1994
11
í fjörunni á Vatnsholti í Staóarsveit unnu þáttakendur listaverk sem flóðið
tók svo. DV-mynd Símon Sigurmonsson
Svíar á mynd -
listarnám-
skeið til íslands
Tíu Svíar eru nú á myndlistarnám-
skeiði á Snæfellsnesi. Þeir eru allir í
félagi sem heitir Levande verkstad
eins og annar leiðbeinandinn á nám-
skeiðinu, Steinunn Helgadóttir.
„Þetta er í fyrsta skipti sem komiö
er til íslands á svona námskeið. Þetta
er í raun náttúruferð þar sem unnið
er með listgreinar inn á milli,“ grein-
ir Steinunn frá. Hún er nemandi úr
skóla í Stokkhólmi sem heitir Le-
vande verkstad og er innan lýðhá-
skólakerfisins. Nemendur úr skól-
anum hafa stofnað félag með sama
nafni í þeim tilgangi að standa fyrir
endurmenntunamámskeiðum og til
að halda hópinn að því er Steinunn
útskýrir.
„Sem dæmi um hvernig við vinnum
þá gerðum við eftir eina gönguferð
hér á nesinu hálsmen úr leir með
formi einhvers sem hafði orðið á vegi
okkar, einhvers sem maður hafði fest
hugann og tilfinningar við. Hálsmen-
in voru síðan þurrkuð og grafin í
jörðu og brennd við 500 gráðu hita.“
í gönguferð um fjöruna á Vatns-
holti í Staðarsveit safnaði hópurinn
saman steinum, þangi, reka, skeljum
og ýmsu öðru. „Ur þessu var búin til
í fjörunni landslagsmynd af fjalla-
hringnum fyrir ofan okkur. Síðan
kom flóðið og tók listaverkið.“
Eftir aðra skoðunarferð og umræð-
ur um náttúruna og þjóðsögur um
kraftinn á Snæfellsnesi skrifuðu
þátttakendur eigin frásögn um ein-
hvern sem þeir hittu á leið sinni.
„Þetta er aðferð til að vinna með
listgreinar án þess að maður æth að
gerast listamaður. Þetta er til að efla
og styrkja einstaklinginn og nota
eins mörg tjáningarform og við get-
um notað því við höfum svo mörg.
En sumt liggur í dvala og annað tek-
ur yfirhöndina," leggur Steinunn
áherslu á.
Flestir þátttakenda á námskeiðinu
starfa við uppeldis- og kennslustörf
í Svíþjóð.
Stóðhesturinn Þór frá Höskuldsstöðum er nefndur eftir knattspyrnufélaginu
Þór á Akureyri. Jóhannes Svan Ólafsson gaf honum nafnið og heldur í hann.
Graddi nefndur eftir
knattspymufélagi
Margir hestaeigendur nefna fáka
sína eftir goðunum gömlu; Frey, Tý,
Óðni og Þór. Það vekur því litla at-
hygli þó að stóðhestur frá Höskulds-
stöðum í Eyjafirði sé nefndur Þór.
En sagan á bak við nafnið er athyglis-
verð.
Fyrir þremur árum, er Jóhannes
Svan Ólafsson, sonur annars eigand-
ans, Ólafs Hafbergs Svanssonar á
Akureyri, varö sex ára fékk hann að
velja nafnið og það stóð ekki á svar-
inu. Þór skyldi hesturinn heita eftir
uppáhaldsknattspyrnufélaginu á
Akureyri.
Jóhannes Svan er nú níu ára og
spilar knattspyrnu í 6. flokki með
uppáhaldsfélagi sínu, Þór á Akur-
eyri, en graddinn Þór sinnir skyldum
sínum í stóði í Húnavatnssýslu.
Þór er undan Gassa frá Vorsabæ á
Skeiðum og Hrafntinnu frá Hösk-
uldsstöðum í Eyjaflrði og fékk 8,28
fyrir byggingu og 7,70 fyrir hæfileika
og 7,99 í aðaleinkunn í forskoðun á
Melgerðismelum í vor. Eigendur eru
Ólafur Hafberg Svansson og Hösk-
uldur Jónsson á Akureyri.
-E.J.
Stendur niikið til?
Langtímalán til framkvœmda
viö fasteignir
íslandsbanki veitir langtímalán til allt ab 12 ára vegna vibamikilla
framkvœmda á fasteignum svo sem til vibhalds á húsnæbi, vibbyggingar
eba annarra endurbóta. Þessi lán henta vel einstaklingum sem hyggja á
slíkar framkvœmdir.
• Lánin eru skuldabréfalán, tryggö meö veöi í fasteign
• Upphœö láns og vaxtakjör taka miö afgreiöslugetu
umsœkjanda, tryggingum og fyrirhuguöum framkvœmdum
• Hámarksiánsfjárhœö er 3.000.000 kr.
• Hámarkslánstími er 12 ár
• Afborganir eru mánaöarlega
Ábur en lán er tekib abstobar starfsfólk bankans vibskiptavini vib ab
gera sér grein fyrir greibslubyrbi lánsins og þeim kostnabi sem
lánsvibskiptum fylgja og bera saman vib greibslugetuna. Á þann hátt er
metib hvort lántakan er innan vibrábanlegra marka.
Láttu ekki skynsamlegar framkvœmdir stranda á fjármagninu.
Langtímalán íslandsbanka er kostur sem vert er aö athuga.
Kynntu þér möguleikana í næsta útibúi bankans.
ÍSLAN DSBAN Kl