Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1994, Side 18
18 LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ1994 Dagur í lífi Jóhannesar Gunnarssonar, formanns Neytendasamtakanna: Samtöl við reiða neytendur Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna: „Það hafa komið fjöldamörg samtöl frá reiðum neyt- endum vegna gjaldtöku bankanna." DV-mynd JAK Ég vaknaði klukkan hálfsjö þennan þriðjudagsmorgun. Það var fyrst og fremst til að sinna skyldu minni við það að vekja börnin sem þurftu aö maeta í sína sumarvinnu. Eftir sturtu og örlít- inn morgunmat var ég mættur til vinnu klukkan hálfátta. Ég hóf vinnudaginn á þvi aö setja saman erindi til Samkeppnisstofn- unar þar sem Neytendasamtökin telja nauðsynlegt að stofnunin kanni hvort ákvörðunin um gjald- skrár banka standist samkeppnis- lög. Það vekur athygh okkar að þessi gjaldskrá er svipuð frá einni bankastofnun til annarrar og ákvörðun um gjaldskrá var tekin á svipuðum tíma hjá öllum. Við símann allan daginn Það má segja að svo hafi ég verið í símanum allan daginn. Þar kom einkum þrennt til. í fyrsta lagi höfðu Neytendasamtökin auglýst eftir nýjum ritstjóra á sunnudag- inn fyrir Neytendablaðið. Það kom mér á óvart hversu margir hringdu til að fá upplýsingar um starfið og segir þaö kannski til um atvinnu- ástandið í þjóöfélaginu. Ég eyddi talsverðum tima í að upplýsa áhugasamt fólk um verkefnið. í öðru lagi er mikið um sumarfrí í júlí hjá starfsfólki Neytendasam- takanna eins og öðrum stofnunum. Júiímánuður hefur yfirleitt verið tiltölulega rólegur á skrifstofunni en kannski vegna þess að fólk er meðvitaðra um starf Neytenda- samtakanna hefur verið miklu meira að gera nú en áður. Almenningur reiður í þriðja lagi voru það símtöl vegna gjaldtöku bankanna. Það kom berlega í ljós í öllum þeim sím- tölum sem ég fékk að almenningur er mjög reiður yfir gjaldtöku bank- anna og það er full ástæða til þess í mörgum tilvikum. Ég vil nefna eitt símtalið sem ég fékk. Það var um lán sem var komið einn mánuð fram yfir gjalddaga. Dráttarvextir voru rétt rúmar 100 krónur en van- skilagjald var 900 krónur. Við hljót- um þá að velta vöngum yfir því hvað raunverulegir dráttarvextir séu þá komnir upp í. Útlánastofn- unum er heimilt að innheimta hæstu löglegu dráttarvexti. Þetta nægir bönkunum greinilega ekki. Að okkar mati er þetta orðin sví- viröa og við ætlum að láta reyna á þetta fyrir dómstólum. Það er umhugsunarefni að þegar kreppir að hjá heimilum skuh bankarnir níðast á þennan hátt á heimilum sem eiga í erfiöleikum. Það er hlálegt að heyra fulltrúa bankakerfisins segja í góðlátlegum tón að vanskilagjaldið sé bara til að hvetja fólk til að borga á réttum gjalddaga. Það er eins og þessir menn, í þeim filabeinsturnum sem þeir búa, haldi að heimilin í land- inu séu með lán í vanskilum að gamni sínu. í hvaða veröld lifa menn sem hugsa á þennan máta? Með dótturina á slysadeild Ég þurfti að fara fyrr úr vinnu en ég ætlaði mér eða um hálffimm þar sem yngsta dóttir mín haföi meitt sig í sumarvinnunni. Ég ók henni á slysadeild þar sem í ljós kom að hún hafði tognað. Síðan aðstoðaði ég aldraða móður mina sem var að flytja sig um set á dval- arheimili fyrir aldraða. Eftir það fór ég heim og eldaði kvöldmat fyr- ir börnin því konan mín er úti á landi þessa dagana. Þá tóku kvöld- fréttimar við. Þar sem ég er frétta- sjúkur maður er það oft eins og hálfs tíma prógramm á kvöldin að innbyrða útvarpsfréttirnar, fréttir Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins. Að því loknu plötuðu sonur minn og kunningi hans mig til að spila spil sem mér þykir frekar leiðinlegt en spilaði samt. Það heitir Verðbréfa- spiliö og gengur út á að græða pen- inga með því að setja andstæðing- inn í spilinu eins fljótt á hausinn og hægt er. Ég slappaði svo af með því að taka tvær skákir við tölvuna mína. Mér þykir gaman að tefla og þegar ég hef engan til að tefla við er tölvan góður félagi. Ég sofnaði svo út frá góðri norskri bók sem ég er að lesa eftir Wassmo og heitir Hudlös himmel. Finnur þú fimm breytingai? 267 Er þetta staðurinn sem þú varst að tala um að við gætum fengið okkur Nafn:.......... drykk á? Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er aö gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Rummikub-spil- ið, eitt vinsælasta fjölskyldu- spil í heimi. Það er þroskandi, skerpir athyglisgáfu ogþjálfar hugareikning. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur. Bækumar, sem eru í verðlaun, heita: Mömmudrengur, Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban- væn þrá. Bækumar eru gefhar út af Frjálsri Qölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 255 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir tvö hundr- uð sextugustu og fimmtu get- raun reyndust vera: 1. Kolbrún Árnadóttir, Mávabraut 9d, 230 Keflavík. 2. Brynjar Ólafsson, Foldahrauni 40, 900 Vestmannaeyjar. Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.