Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1994
Spumingin
Ertu í einhverjum klúbbi?
Sigurberg Einarsson: Nei.
Einar Þór Jónsson: Já, ég er í einka-
klúbbnum.
Helena Ragnarsdóttir: Já, í sauma-
klúbbi.
Jenna Gránz: Já, í saumaklúbbi.
Kolbrún Þóra Einarsdóttir: Ég er í
Krakkaklúbbi DV.
Kristbjörg H. Sigurgeirsdóttir: Já, í
saumaklúbbi.
Lesendur
Hótanir í garð Kúbu
Sigurlaug S. Gunnlaugsd. skrifar:
Stjórn Clintons í Bandaríkjunum
notar tíöar siglingar kúbverskra
flóttamanna til Flórída sem átyllu til
að hóta og áreita ríkisstjóm Kúbu
og þorra landsmanna þar. Banda-
ríkjaher hefur sent herskip allt aö
12 mílum frá ströndum Kúbu og
strandgæslan er meö tugi skipa á
þeim slóðum. Þau eiga að tína upp
fólk af bátum og fara meö inn á land-
svæði Guantanmo flotastöövarinnar
sem Bandaríkin halda austast á
Kúbu. - Leiguflug frá Bandaríkjun-
um hefur veriö bannað svo og pen-
ingasendingar til ættingja.
Bandaríkjastjórn „hefur gert meira
en nokkurt annaö land til að koma
stjóm Kastrós frá völdum," sagöi
Clinton Bandaríkjaforseti á frétta-
mannafundi um þessi mál - „viö
höfum gengið hart fram, oftast einir
og við höldum því striki með öllum
tiltækum aðferðum."
Sjö sinnum hefur bátum verið rænt
á Kúbu í sumar og tveir menn drepn-
ir. Nokkuð fjölmennur hópur milli-
stéttarfólks ásamt einstaklingum úr
öðmm stéttum væntir þess að auk-
inn kapítahsmi minnki erfiðleikana
og hefur ætlað að slíkar lausnir væm
almennt í aðsigi. Ekkert bendir samt
til þess.
Bandarísk yfirvöld veita aðeins
örfáum landvistarleyfi en hvetja fólk
beint og óbeint til aö leggja á sundið.
í fyrra sóttu 145 þúsund kúbverskir
ríkisborgarar um leyfí til að flytjast
til Bandaríkjanna, en tæp tvö þúsund
fengu vegabréfsáritun bandarískra
yfirvalda, þrátt fyrir samkomulag frá
1984 um 20 þúsund áritanir á ári.
Aöfarir fólks úr þessum röðum á
hafnargötunni í Havana fyrr í mán-
uðinum er „eitthvað sem lagt hefur
verið á ráðin um og Bandaríkjastjóm
ber að mestu ábyrgð á,“ sagði Kastró,
forseti Kúbu, á fréttamannafundi, -
því hún „vill blóðbaö, byssubardaga,
fyrst og fremst í áróðursskyni en líka
til að geta stundað niðurrifsstarfsemi
og aö endingu ráðist inn í landið."
Áróðursherferð Bandaríkjastjóm-
ar beinist einkum að venjulegu vinn-
andi fólki utan Kúbu. Markmiðið er
að rugla menn eða deyfa hvað varðar
stríðsáætlanir stjómar Clintons.
Hún á einnig að ýta undir það við-
horf að upplausn ríki á Kúbu, skort-
ur sé algjör og ríkisstjómin einangr-
uð. Erfitt hefur verið að átta sig á
þvi gegnum fréttamiðla að þannig
standi málin ekki. Þorra landsmanna
er ljóst að stríð stendur um líf bylt-
ingarinnar á Kúbu sem það styður
og tekur þátt í.
Kúbverskur drengur bíður þess að verða sóttur af ættingjum í flóttamannabúðum á Guantanamo á Kúbu.
Símamynd Reuter
Knattspyrnudómurum mútað?
Ólafur Halldórsson skrifar:
Ég horföi á leik Fram og UBK í
Trópídeildinni. Þar varð ég vitni að
slíkri dómgæslu að ég get ekki orða
bundist. - Dómari leiksins sleppti
tveimur augljósumm vítaspymum á
Fram á síðustu mínútu leiksins og
hafði þá einnig sleppt Frömmumm
fyrr í leiknum við vítaspyrnu og útaf-
rekstur þegar Kristófer var kominn
inn fyrir en var togaöur úr færinu.
Ég heyrði á útvarpsstöðinni Bylgj-
unni að þar vora menn mér sam-
mála um vítaspyrnumar tvær og ég
heyrði þar líka að þjálfari UBK hefði
kallaö dómarann heigul eftir aö
leiknum lauk. Það læðist auðvitað
að manni sá grunur að dómarann
hafi skort kjart til þess að dæma sam-
kvæmt reglum. Ef hann er þá ein-
faldlega ekki svona lélegur dómari?
Ég veit það svo sem ekki en það
læðist einnig að manni sá grunur að
hugsanlega sé fariö að múta knatt-
spymudómuram. Það er raunar eina
haldbæra skýringin á því að dómari
geti hagað sér eins og raun ber vitni.
- Ég tel fulla ástæðu til að gera þá
kröfu til knattspymuhreyfingarinn-
ar að hún láti kanna þennan mögu-
leika. Mútur til knattspyrnudómara
em þekktar um allan heim og við
skulum ekki blekkja sjálfa okkur
meö því að halda að það geti ekki
gerst hér. - Dómgæsla eins og sást í
áðumefndum leik hefði viða dugað
til þess að rannsókn færi fram.
Aðstoð 1 görðum aldraðra:
Aðrir njóta góðs af
Alltaf veröa einhverjir aó greiða fyr-
ir fegrun garðanna.
DV áskilur sér rétt
til að stytta
aósend lesendabréf.
Hildur skrifar:
Er ég las bréfið í DV fyrír stuttu
um aöstoð sem borgin veitir öldmð-
um í görðum þeirra sá ég enn eitt
dæmiö um hvemig hægt er að mis-
nota kerfið. - Láta skattborgara
greiöa fyrir sig þessa þjónustu undir
því yfirskini að borgin sé að þjónusta
hina öldruðu.
Það er ergilegt að heyra aldrað fólk
tala um aö það þurfi að losa sig við
íbúðir sínar, oftar en ekki vegna þess
að það getur ekki lengur hugsað um
lóðina eða garðinn sinn. Og þama
hefur borgin viljað koma til móts viö
margt af þessu fólki. En svo er þetta
oröinn hálfgerður hjamargreiði því
trassamir láta þá vinnu sem borgin
lætur í té nægja - og eins og sagði í
bréfinu í DV, taka hvorki arfakló og
jafnvel slá ekki blettina þess á milli.
Alhr sem eitthvað hafa fengist við
ræktun þekkja hve mikla umhyggju
garðar þarfnast ef þeir eiga að líta
sæmilega út.
Fólk sem engan áhuga hefur á
görðum eða ræktun á ekki að búa í
húsum með göröum, heldur í blokk-
um. Svona einfalt er þaö. - Garður
er granna sættir, segir gamalt mál-
tæki, og er þá átt við garð til aðskiln-
aðar milli nágranna. En ætli nokkuð
sé meira tilefni til ófriðar í þessum
lítt rómuöu tvi-þríbýlishúsum en
einmitt garðamir?
Ég skora á borgaryfirvöld að gera
nú gangskör að því að kanna fyrir
hveija verið er aö borga með garð-
yrkjustörfum við mörg þessara húsa.
Ég skora einnig á gamla fólldö að
flýja ekki úr íhúðum sínum í rándýr-
ar öldrunarblokkir bara vegna þess
að það hefur ekki lengur kraft eða
þrek í garðvinnuna. Það verður ekki
því til minnkunar heldur hinum sem
em svo lítilþægir að þiggja ölmusu á
besta aldri og njóta þess aö búa með
gamalmennum í húsinu.
D.K.P. hringdi:
Ég er efins um að nokkuð sé
eins brýnt í heilbrigðiskerfi okk-
ar íslendinga og það aö koma
Borgarspítalanum í fúllkomið
horf. Þótt stofhunin sé kennd við
Reykjavik er þetta orðið meira
og minna sjúkrahús allra lands-
manna. Þangaö koma þyrlur með
slasaða og veika hvaðanæva af
landinu og það er ekki verjandi
að þessi spítali sé ekki í full-
komnu ásigkomulagi. Margt ann-
að getur beðiö eða má skera niöur
í heilbrigðiskerfinu. En að Borg-
arspítalinn sé svo að segja í gjör-
gæslu, þaö gengur ekki.
Áhrifamikil
samkoma
Stefán skrifar:
Öldmð vinkona mín sem fór á
samkomuna hjá Benny Hinn,
sjónvarpspredikaranum banda-
ríska, segir hana hafa verið mjög
áhrifamikla og ekki hafi verið
annað að sjá en margir hafi feng-
ið bót meina sinna á samkom-
unni. - Það skýtur því skökku við
að læröir menn hér á landi eins
og t.d. aðstoðarlandlæknir og
fleiri skuli tjá sig sem andstæð-
inga slikra samkoma. Ég hélt satt
að segja að landlæknisembættið
ætti að fagna fréttum af hverjum
þeim sem læknast, hvernig svo
sem að lækningum er staðið.
Fóikiðvelur
Markúsáþing
Einar Bjarnason skrifar:
Prófkjör sfjórnmálaflokka era
mjög þýðingarmikil, þar ræðst að
mestu leyti hverjir verða fulltrú-
ar á Alþingi. - Það er mín skoðun
að Markús Örn Antonsson yrði
mjög góöur sem þingmaður
Reykvíkinga. Hann hefur mikla
þekkingu á borgarmálum og get-
ur því gætt hagsmuna Reykvík-
inga. Markús tók upp þráðinn í
atvinnulífinu eftir aö hann lét
öðrum eftir borgarstjórasætið.
Margur hefði beðiö á fyrir-
greiðslu-
stofunni hjápólitíkusum. Ég hvet
Reykvíkinga til þess að tryggja
Markúsi eitt af efstu sætum í
væntanlegu próflqöri.
AllsekkiStolt-
Nú er stíft þingað um eftirmann
hins vinsæla og trausta Manfreds
Wörners, sem gegndi starfi fram-
kvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins. - Norðmenn em
sagðir tefla fram Torvald Stolten-
berg, svokölluðum sáttasemjara
Sameinuðu þjóðanna, en hann
hefur aldrei skilað neinu eða ver-
ið áberandi í því starfi. Margir
aðrir telja Danann Uffe Elleman-
Jensen, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, heppilegan vegna
framkomu sinnar og þekkingar á
alþjóðamálum. - Við íslendingar
eigum þama atkvæði og viö ætt-
um ails ekki að Ijá máls á kjöri
Stoltenbergs en berjast heldur
fyrir kjöri hins danska Uffes EUe-
mans.
Komdusællog
blessaður!
Aðalheiður hringdi:
Ég mótmæli harölega þessu sí-
feUda en ótimabæra slagorði sem
ég kaUa, þegar t.d. í útvarpi eða
annars staðar þar sem raenn taka
tal saman segja: komdu sæll og
blessaður! Hér á aöeins að segja
„sæU sértu“ eða annað álíka.
Menn eru ekki að koma citthvaö
þótt þeir taki tal saman, t.d. í
Þjóðarsál eða i útvarpsþáttum.
Sföan má segja „vertu blessaður"
þegar kvatt er.