Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Side 26
34 FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1994 Fólk í fréttum dv Kjartan Jóhannsson Kjartan Jóhannsson, sendiherra í Genf í Sviss og fyrrverandi alþingis- maöur og ráöherra, tók við starfi framkvæmdastjóra hjá EFTA í gær. Starfsferill Kjartan er fæddur í Reykjavík 19.12.1939. Hann er stúdent frá MR 1959 og byggingaverkfræðingur frá Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi 1963. Kíartan tók MS- próf í rekstrarverkfræöi frá Illinois Institute of Technology í Bandaríkj- unum 1965 og doktorspróf í rekstr- arhagfræði frá sama skóla 1969. Hann stundaði nám í rekstrarhag- fræði við Háskólann í Stokkhólmi 1963-64. Kjartan var dósent við HÍ1974-89, rak sjálfstæða ráðgjafarþjónustu 1968-78, var þingmaður Alþýöu- flokksins í Reykjaneskjördæmi 1978-89, sjávarútvegsráðherra 1978-80, viðskiptaráðherra 1979-80 og sendiherra hjá EFTA frá 1989. Kjartan var í stjórn RARIK 1969-74 og ISAL1970-75. Hann var formaður útgerðarráðs Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar 1970-74 og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði 1974-78. Kjartan var varaformaður Alþýöu- flokksins 1974-80, formaður Styrkt- arfélags aldraðra í Hafnarfirði 1976-79, formaður Alþýðuflokksins 1980-84, í nefnd um endurskoðun bankakerfisins 1979-85, fulltrúi á allsherjarþingum SÞ1976,1982 og 1985 og fulltrúi íslands á þingi Evr- ópuráðsins 1980-89. Hann var í stjórn Grænlandssjóð 1985-87, for- maður íslandsdeildar í þingmanna- nefnd EFTA1985-89, í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1987-89, formaöur nefndar um staðgreiðslu skatta 1987, nefndar um húsnæðislán 1988-89 og Evrópustefnunefndar 1988-89. Kjartan hefur skrifað bækur, bæklinga og bókarkafla um ýmis efni. Ennfremur fiölmargar greinar í margvíslegum fagtímaritum, dag- blöðum ogvíðar. Fjölskylda Kona Kjartans er Irma Karlsdótt- ir, f. 26.3.1943, bankafulltrúi. For- eldrar hennar: Alf Eriksson, f. 14.9. 1919, bifreiðastjóri, og Gerda André- asson, f. 10.4.1922, verslunarmaður. Dóttir Kjartans og Irmu: María, f. 22.3.1963. Systir Kjartans: Ingigerður María, f. 13.5.1944, verslunarmaður. Foreldrar Kjartans: Jóhann Þor- steinsson, f. 9.5.1899 á Berustöðum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu, d. 16.3.1976, kennari ogforstjóri, og Astrid Þorsteinsson, f. 13.11.1908 í Visnum í Svíþjóð hjúkrunarfræð- ingur. Ætt Jóhann var sonur Þorsteins, b. á Berustöðum í Ásahreppi, Þorsteins- sonar, hreppstjóra á Syðri-Rauða- læk í Holtum og Berustöðum, Jóns- sonar, b. á Hrygg í Flóa, Einarsson- ar. Móðir Þorsteins hreppstjóra var GuðlaugHelgadóttir, systur Guð- mundar, afa Nínu Sæmundsson list- málara. Annar bróðir Guðlaugar var Bjarni, langafi Guðbjarna, fóður Sigmundar, fyrrv. háskólarektors, og Sveinbjörns, bankastjóra í Hafn- arfirði. Móðir Þorsteins Þorsteins- sonar var Amdís Helgadóttir, b. á Litlaparti í Þykkvabæ, Einarssonar, og konu hans, Önnu Magnúsdóttur. Móðir Önnu var Ragnhildur Áma- dóttir, b. í Hábæ, bróður Vilborgar, móður Rannveigar, konu Bjarna riddara og langömmu Matthíasar skósmiðs, afa Matthíasar Mathies- en. Faðir Ingigerðar var Runólfur, b. í Áshóli, bróðir Sigurðar, langafa Sigþórs, föður Guðmundar, skrif- stofustjóra í landbúnaðarráðuneyt- inu. Runólfur var sonur Runólfs, b. á Brekkum í Holtum, Nikulássonar, b. í Narfakoti í Njarðvík, Snorrason- ar. Móðir Runólfs á Brekkum var Margrét, systir Þorgerðar, móður Guðnýjar skáldkonu, móðurömmu Kjartan Jóhannsson. Haralds Níelssonar prófessors, föð- ur Jónasar, fyrrv. bankastjóra. Systir Guðnýjar var Margrét, amma Ólafs Friðrikssonar verkaiýðsleið- toga. Bróðir Guðnýjar var Magnús, langafi Björns, fyrrv. háskólabóka- varðar og HaRdórs, fyrrv. skatt- stjóra Reykjavíkur, Sigfússonar. Önnur systir Margrétar var Guð- rún, amma Björns M. Olsen há- skólarektors og langamma Auðar, fyrrv. ráðherra og Jóns Auðuns, fyrrv. dómprófasts. Afmæli Gunnar Þórarinn Guðmundsson Gunnar Þórarinn Guðmundsson, fyrrv. landbúnaðarverkamaður, bifreiðastjóri og verkstjóri, til heim- ilis að Hvassaleiti 46, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Gunnar fæddist á Breiðabólstað á Skógarströnd og ólst þar upp fyrstu tíu árin en flutti síðan með fiöl- skyldu sinni að Kljá í Helgafells- sveit þar sem hún bjó 1919-22. For- eldrar hans bjuggu síðan að Ósi á Skógarströnd en Gunnar var þá annars staðar til heimilis. Hann bjó síðan með foreldrum sínum og systkinum í Ólafsey undan Skógar- strönd frá 1925 og flutti með þeim til Reykjavíkur 1935. Auk landbúnaðarstarfa vann Gunnar hjá Alliance i Reykjavík 1932 og starfaði síðan hjá því fyrir- tækinu frá 1935 og þar til það hætti störfum 1966. Hjá Alliance starfaði Gunnar m.a. á sumrin á Djúpuvík 1936—46, vann lengi við afgreiðslu togara fyrirtækisins í Reykjavík og var verkstjóri þar frá 1950. Þá starf- aði Gunnar hjá Timburverslun Árna Jónssonar 1966-79, lengst af bílstjóri. Fjölskylda Gunnar er elstur níu systkina, auk þess sem hann átti eina hálfsystur, samfeðra. Systkini hans: Sólveig, f. 1911, lengst af saumakona í Reykja- vík; Halldór, f. 1913, húsasmíða- meistari í Djúpuvík, Keflavík og Reykjavík; Björn, f. 1916, d. um 1950, starfsmaður hjá Ö. Johnson og Kaaber; Sigríður, f. 1917, húsmóöir í Reykjavík; Lárus, f. 1919, d. 1991, verkamaður í Reykjavík og Kefla- vik; Elín, f. 1923, húsmóðir í Reykja- vík; Unnur, f. 1925, húsmóðir í Reykjavík; Þóra, f. 1928, húsmóðir í Reykjavík. Hálfsystir Gunnars, samfeðra, var Aðalheiður, f. 1899, nú látin, kennari og síðar húsmóðir íReykjavík. Foreldrar Gunnars voru Guö- mundur Halldórsson, f. 26.2.1871, d. 23.4.1945, bóndi á Breiðabólstað, að Kljá og í Ólafsey og síðar verka- maður í Reykjavík, ogönnur k.h., Gíslína Margrét Bjömsdóttir, f. 3.8. 1888, d. 7.11.1962, húsfreyja. Ætt Guðmundur var sonur Halldórs, b. á Fáskrúðarbakka og víðar í Miklaholtshreppi, Guðmundssonar, b. á Stóruþúfu, Litluþúfu, Gröf og Miðhrauni í Miklaholtshreppi, Þórðarsonar, ættföður Hjarðarfells- ættarinnar Jónssonar, b. á Höm- rum, Jónssonar. Móðir Þórðar var Guðný Halldórsdóttir, úr Eyrar- sveit, Bárðarsonar. Móðir Guð- mundar var Ingibjörg Sigurðardótt- ir, b. á Eiði, bróður Jóns á Hömrum. Móðir Halidórs var Þóra Þórðar- dóttir, frá Borgarholti, Þórðarsonar. Móðir Guðmundar á Breiðabólstað var Elín Bárðardóttir, b. á Flesju- Gunnar Þórarinn Guðmundsson. stöðum í Kolbeinsstaðahreppi, Sig- urðssonar. Margrét, móðir Gunnars, var dótt- ir Bjöms, b. á Emmubergi á Skógar- strönd, Magnússonar, og k.h., Margrétar Magnúsdóttur. 85 ára Þórtiý Sveinbjörnsdóttir, Vailholti 16, Selfossi. 80 ára Erlendur Einarsson, Bústaðavegi 77, Reykjavik. Helga Guðmnndsdóttir, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. Mikael Einarsson, Stórholti 8, Akureyri. 75 ára Guðrún Hallgr únsdóttir, Bjamastöðum, Dalvík. 70ára Oddgeir Einarsson, Gnoðarvogi78, Reykjavík. Hlöðver F. Magnússon, Helium, Hoita- og Landsveit. Sigríðnr Hannesdóttir, Lyngheiði 1, Hveragerði. Gyða Gísladóttir, Stóragerði21, Reykjavík. Hún ererlendis. 60ára Ólafsvegi 23, Ólafsfirði. Ingi Þormar Páisson, Kringlumýri22, Akureyri. Þórunn Rögnvaldsdóttir, Austurbergi 32, Reykjavík. Sólveig Pétursdóttir, Hafnargötu 20, Keflavík. Baldur Sigfússon, Amarhrauni25, Hafnarfirði. Bára Freyja Vemharðsdótt- ir, Grundartanga 19, Mosfellsbæ. Húntekurámóti gestumáheimili sínueftirkl.20á afinælisdaginn. Hreinn Steinsson, Sléttahrauni 25, Hafnarfirði. 50ára Ólafur Kristinsson, Skeljagranda 11, Reykjavík. Sveinbjörn Kristjánsson, Bláskógum 16, Reykjávík. Kristinn Orri Erlendsson, Lágholti 14, Mosfellsbæ. Vigfús Árnason, 40 ára Kristin Hanna Didriksen, Boöagranda 4, Reykjavík. Sigurlína Magnúsdóttir, Þrúðvangi8,Hellu. Jóna Bryndís Gestsdóttir, Laugarvatni, Dalseli, Laugardals- hreppi. Björk Emilsdóttir, Álfheimum 72, Reykjavík. Jóhannes J.I. Guðmundsson, Laufengi 34, Reykjavík. Sigurlaug Jónsdóttir, Holtsgötu 21, Hafiiarfirði. Jón GuðniBergsson, Heiðmörk5,Selfossi. Steindór I. Andersen, Hlíðarbraut 5, Hafnarfiröi. Regína Þorbjörg Reginsdóttir, Löngumýri 34, Akureyri. Sigurður G. Sveinbjörnsson, Álfalandi 15, Reykjavik. Stefanía Guðjónsdóttir Stefanía Guðjónsdóttir, húsfreyja á Finnsstöðum I í Eiðaþinghá, er ní- ræðídag. Starfsferill Stefanía fæddist í Hamragerði í Eiðaþinghá og ólst upp í þeirra sveit. Hún lærði fatasaum á Seyðis- firði á ámnum 1921-23 og var kaupakona hjá Sveini Jónssyni og Sigríði Fanneyju Jónsdóttur á Egils- stöðum á ámnum 1921-26. Stefanía varð síðan húsfreyja að Finnsstöð- um I þar sem hún heldur enn heim- ili með Jóni syni sínum. Stefanía var stofnfélagi Kvenfé- lags Eiðaþingháa og starfaði fyrir félagið til 1977. Fjölskylda Stefanía giftist 15.6.1930 Árna Jónssyni, f. 13.5.1896, d. 17.5.1967, bónda á Finnsstööum I. Hann var sonur Jóns Árnasonar og Steinunn- ar Hinriksdóttur, bónda og hús- freyju á Finnsstöðum I. Böm Stefaníu og Árna eru Sigríð- ur, f. 14.5.1930, húsmóðir á Akur- eyri, gift Jóhanni Helgasyni og em börn þeirra Stefán, Helgi, Árni, Hólmfríður, Sigríður, Eiríkur og Jónína; Jón Steinar, f. 13.12.1932, bóndi á Finnsstöðum I; Kristinn, f. 4.6.1938, bílstjóri á Egilsstöðum, kvæntur Sjöfn Helgadóttur og eru synir þeirra Ámi og Helgi; Sveinn, f. 16.9.1940, sparisjóðsstjóri í Nes- kaupstað, kvæntur Kapitólu Jó- hannesdóttur og eru böm þeirra Sveinn, Elín Hildur, Stefania Anna og Eva Steinunn; Guðný, f. 18.4. Stefanía Guðjónsdóttir. 1942, húsmóðir á Eskifirði, gift Agn- ari Sigþórssyni og em börn þeirra Anton og Svanhildur; Arinbjöm, f. 6.4.1946, bóndi á Finnsstöðum I, kvæntur Jóhönnu S. Ragnarsdóttur og eru börn þeirra Ámi Jón, Stefán, Ragnar Elvar og Elín Björg. Systkini Stefaníu: Ingvar, f. 8.4. 1902, bóndi í Dölum; Þorsteinn, f. 23.6.1903, verkamaður á Seyðisfirði; Anna, f. 14.10.1905, saumakona í Danmörku; Kristinn, f. 25.9.1908, dó ungur; Soffia, f. 25.9.1909, versl- unarmaður í Reykjavík; Laufey, f. 14.2.1911, kennari og húsmóðir í Mýnesi; Þorvaldur, f. 14.11.1914, leigubílstj óri í Kópavogi; Guðný, f. 23.4.1915, ljósmóðir í Reykjavík; Þorleifur, f. 11.10.1916, klæðskeri í Reykjavík. Foreldrar Stefaníu vom Guðjón Þorsteinsson, f. 26.11.1892, d. 10.12. 1923, bóndi að Uppsölum í Eiðaþing- há, og Sigríður Þorvaldsdóttir, f. 2.3. 1881, d. 19.8.1968, húsfreyjaþar. Stefanía verður að heiman á af- mælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.