Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Page 4
4
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
Fréttir
Sonardóttir Gunnars Gunnarssonar rithöfundar um Skriðuklaustur:
Fjölskyldunni sárnar
meðferðin á gjöf inni
- menntamálaráðherra vonast eftir lausn á næstu vikum
„Þarna ríkir ófremdarástand og ég
hef gert tilraunir til þess á þriðja ár
að fá viðtal við menntamálaráðherra
vegna Skriðuklausturs og annarra
mála sem tengjast afa mínum en ekki
fengið," segir Franzisca Gunnars-
dóttir en hún er sonardóttir Gunnars
Gunnarssonar skálds sem ánafnaði
íslenska ríkinu Skriðuklaustur til
eignar.
Eins og DV skýrði frá á fimmtudag-
inn er óánægja ríkjandi með það fyr-
ir austan að Skriðuklaustur fái ekki
þann menningarlega sess sem skilyrt
er í gjafabréfinu. Franzisca, sem ver-
ið hefur í forsvari fyrir afkomendur
Gunnars, segist hafa barist fyrir því
um árabil að skilyrði gjafabréfsins
yrðu uppfyllt. Franzisca segist hafa
ákveðið við fráfall afa síns og föður
að setja meiri hörku í málin en þeir
höfðu beitt.
Málsókn hótað
„Afi minn hafði gert það sem hann
gat af prúömennsku til að reyna að
fá þessi mál í lag og sama gerði faðir
minn. Ég ákvað þegar þeir voru
fallnir frá að hóta hreinlega málsókn
fyrir brot á öllum liðum gjafabréfs-
ins. í framhaldi af því var húsið lag-
fært prýðilega og því komið í stand.
Viðgerðinni lauk 1989 og síðan hefur
ekkert gerst í þessum málum og mér
er sagt að húsið sé að drabbast nið-
ur,“ segir Franzisca.
Franzisca segir að allri fjölskyld-
unni hafi sárnað og gramist meðferð-
in á gjöfinni. Hún segist vilja sjá
Skriðuklaustur þjóna menningar-
hlutverki á einn eöa annan veg.
„Það sem vekur eftirtekt mína er
að alhr landshlutar, að Austfjörðum
undanskildum, eiga sér menningar-
setur. Að mínu mati er Skriðuklaust-
ur einmitt sá staður sem gæti gegnt
því hlutverki.
Samkvæmt heimildum DV eru
dæmi um aö afkomendum Gunnars
hafi ekki verið heimilað af húsráð-
endum að skoða húsið. Katrín Gunn-
arsdóttir, systir Franziscu, staðfesti
þetta í samtali við DV.
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra segir í samtali við DV að
hann kannist við að það sé rétt hjá
Franziscu aö hún hafi ekki fengið
áheym hjá sér en það þýði þó ekki
aö ekkert sé unnið í máhnu af hendi
ráðuneytisins.
„Þetta mál hefur svo sannarlega
fengið umfjöllun hér í þessu ráöu-
neyti. Þaö hefur verið sérstakt
áhugamál hjá mér að koma málefn-
um Skriðuklausturs í lag. Þessi mál
eru ekki í nógu góðu lagi. Mennta-
málaráðuneytið fékk yfirráð yfir
þessum staö eftir að thraunastarf-
semi á vegum landbúnaðarráðuneyt-
is var hætt. Ég verð að viðurkenna
aö það hefur tekið lengri tíma en ég
hefði viljað aö ná fram þeim breyt-
ingum sem ég vil sjá þama,“ segir
Ólafur.
Ólafur segir að þaö séu að sínu
mati tvær viðunandi leiðir til að
koma málum í lag þannig að viöun-
andi sé.
Ákvörðun á næstu vikum
„Við erum að vinna að því að semja
reglur um notkun hússins. Þar erum
við bara ekki alveg komnir að landi.
Við höfum ekki gert það upp við okk-
ur hvort húsið aht verður tekið und-
ir fræðimenn og listamenn eða hvort
það verði föst búseta í húsinu til að
sinna þar bæði vörslu og veitinga-
sölu. Þannig væri hægt að taka á
móti ferðamönnum sem koma marg-
ir á hverju ári. Þetta eru þeir kostir
sem mönnum sýnast vera í boði. Það
er alveg á hreinu að við höfum áhuga
á því að koma þessum málum í það
lag sem sæmir en það er það ekki i
dag. Viö munum hafa samband við
ættingja Gunnars Gunnarssonar áð-
ur en kemur að lokaákvörðun í þessu
máli sem ég vona að verði á næstu
vikum," segir Ólafur.
Kringlan:
Opiðásunnu-
dögumeinu
sðnniímánuði
Ákveöið hefur veriö að hafa
opið í Kringlunni fyrsta sunnu-
dag hvers mánaöar fram th vors
og er fyrsti sunnudagurinn á
morgun. Sumiudagsopnunin er
gerö í thraunaskyni til að koma
tíl móts við þá þjóöfélagsþróun
að hjón vinni bæði fullan vinnu-
dag utan heimilis og hafi því ekki
tíraa th aö versla nema á kvöidin
og um helgar.
Á morgun verður opið frá kl.
13-17 og um þessar svoköhuðu
Kiingluhelgar verða ýmsar
kynningar í húsinu og tísku- og
danssýningar. Um helgina verö-
ur lögð áhersla á að kynna vetr-
artískuna í fatnaði og fórðun
ásamt skólavörum og skólafatn-
aði. Einnig eru bókaverslanirnar
með skiptibókamarkaði.
Kaupfélag Ámesinga:
Enginn
ágreiningur
Vegna fréttar DV í gær um nýj-
an kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Árnesinga vhl fráfarandi kaupfé-
lagsstjóri, Sigurður Kristjánsson,
koma því á framfæri að hann
hafi ekki hætt vegna ágreinings
við stjórn kaupfélagsins. Fuh sátt
haii ríkt um starfslok hans eftir
12 ára setu í stól kaupfélagsstjóra.
Hættu við að bjóða 1 Hvalfjarðargöngin:
Töldu fjármögnun
ekki nógu trygga
- ekkert tilboðanna í samræmi við útboðsgögn
Hojgaard & Schultz, stærsta verk-
takafyrirtæki Danmerkur, og
sænska orkufyrirtækið Vattenfah
AB hættu við að bjóða í fram-
kvæmd Hvalfj arðarganganna en
fyrirtækin voru í forsvari eins
þeirra fjögurra norrænu hópa sem
fengu leyfi th að bjóða í fram-
kvæmdimar.
Forráðamenn fyrirtækjanna
munu hafa sett fyrir sig greiðslu-
skhmálana eins og þeir lágu fyrir
frá Speli hf. í sumar. Þeir töldu
erfiðleikum bundið að fá trygging-
ar frá bönkum th að geta fjármagn-
að framkvæmdina vegna þess hve
greiðsluskilmálarnir væru óljósir.
Það væri með öðrum orðum ekki
tryggt aö þeir fengju peningana aö
fuhu til baka að verki loknu en sá
verktaki sem valinn verður á að
fjármagna framkvæmdina á verk-
tímanum.
„Þeim fannst tryggingar fyrir
greiðslum, eins og þær komu fram
í gögnum frá Speh, óljósar og ekki
nógu ömggar til þess að þeir vhdu
leggja á sig þessa vinnu. Annars
fannst þeim verkefnið sem slíkt
gott og ekkert athugavert við
tækrúlegu hhðina og útfærsluna.
Fjármögnunin væri einfaldlega
ekki nógu trygg. Ég býst við að ef
opinber aðhi hefði lagt nafn sitt við
framkvæmdina þá hefðu fyrirtæk-
in skhaö inn tilboði,“ segir Jón
Hjaltalfn Magnússon hjá Norrænni
verktækni en hann er umboðsmað-
ur fyrirtækjanna hérlendis en þau
eru bæði meðeigendur aö Norr-
ænni verktækni.
Þegar tilboð í framkvæmdirnar
vom opnuð sl. þriðjudag bámst
þrjú. Aðeins eitt þeirra gerir ráð
fyrir þáttum eins og fiármagns-
kostnaði og áhættu og ekkert th-
boðanna er að öUu leyti í samræmi
við útboðsgögnin. Það er taUð vera
vegna óvissu um fjármögnunar-
þáttinn.
Ekki er enn búið að ganga frá
langtímafjármögnun framkvæmd-
anna. Gert er ráð fyrir að erlendir
bankar láni 63% af fjármagninu og
afgangurinn komi frá innlendum
aðilum, aðallega lífeyrissjóðum.
Verktakinn á að fjármagna fram-
kvæmdir á verktíma að fuUu og fær
ekkert greitt fyrr en göngin eru að
fullu frágengin.
Herjgaard & Schultz:
Hafa unnið á íslandi
Hojgaard & Schultz er gamalgróið
fyrirtæki en þaö var stofnað árið
1918. Fyrirtækið er í eigu sjálfs-
eignarfélagsins Knud Hejgaard
stiftelse. Stofnandi þess var Knud
Hejgaard en hann var vinur og
skólafélagi Jóns Þorlákssonar,
fyrrum forsætisráðherra og borg-
arstjóra. Þeir luku báöir verkfræði-
prófi í Kaupmannahöfn árið 1893.
Jón fékk Hojgaard & Schultz til að
vinna við Ljósafossvirkjun árið
1937 en fyrirtækið hjálpaði auk
þess th við fjármögnunina. Á ámn-
um 1939 til 1947 vann fyrirtækið
við uppbyggingu Hitaveitu Reykja-
víkur, byggingu Skeiðfossvirkjun-
ar í Fljótum og orkuvers við Laxá
í Suður-Þingeyjasýslu.
Verkstjóri fyrirtækisins á íslandi
á þessum árum var Kay Langvad.
Hann hætti árið 1947 og keypti fyr-
irtækiö E. Phh & son og stofnaði
síðar ístak. Sonur Kay, Soren
Langvad, á nú um 90% í ístaki. ís-
tak, E. Phil & son og sænska fyrir-
tækið Skansa AB sendu thboð í
gerð Hvalfjarðarganganna.
Vattenfall AB var upphaflega
sænskt ríkisfyrirtæki en var breytt
í hlutafélag árið 1990. Fyrirtækið
er mjög stórt. Starfsmenn em 9200
talsins. Fyrirtækið er eins konar
„Landsvirkjun" Svíþjóðar.
Óhapp varð við afgreiðslu ferjuskipsins Norrænu sl. fimmtudag þegar verið var að hifa bil upp á sólþilfar skips-
ins. Járn eða rör, sem myndaði klafa sem festur er í bilinn, brotnaði en við það slitnaði vírinn í klafanum sem
tengdur var við vír lyftikranans á hafnargarðinum. Biliinn féll niður á grindverk aftast á sólþilfarinu og vo sait um
stund en staðnæmdist siðan. Mikil dæld i þaki bilsins hefur vafalitið hjálpað til eða afstýrt því að hann féll niður
á þilfarið fyrir neðan en þar voru margir farþegar og þó þeir hafi ef til vill ekki verið beint undir bilnum er ekki fjarri
því að hulin verndarhönd hafi afstýrt því að slys varð. Margir þeirra sem á hafnargarðinum voru munu hafa þakkað
í hljóði þegar sýnt var að allt fór vel. DV-mynd Jóhann Jóhannsson, Seyðisf irði
Nýjar reglur um kvótaframsal:
í krafti kvótaeignar er verið
að hafa af okkur stórviðskipti
- segirframkvæmdastjóriFiskmarkaðs Suðumesja
„Mér sýnist þetta ganga í þá áttina
að þetta eyðileggi fiskmarkaðina.
Þetta minnkar viöskiptin við þá og
menn munu leita meira inn í föst
viöskipti. Við höfum verið á þeirri
skoðun að framsaliö ætti að vera sem
frjálsast, þessar reglur voru ein-
göngu settar th að vernda rétt sjó-
mannanna en það er auðvitað slæmt
ef þær koma í veg fyrir eðlhega hag-
ræðingu," segir Helgi Laxdal, for-
maður Vélstjórafélags íslands.
Nýjar kvótaregiur, þar sem bannað
er að færa frá skipum meira en sem
nemur 15 prósentum af hverri teg-
und kvóta veiðiskips, sæta nú harðri
gagnrýni og þykja beinast m.a. að
fiskmörkuöum. Reglumar kveða á
um að ekki megi færa til skips kvóta
í sömu tegund og fært var frá því.
Þessar reglur urðu th sem sáttaleið
til að Ijúka sjómannaverkfahinu sl.
vetur.
Fiskmarkaður Suðumesja hefur
fært nokkur þúsund tonn á trhlu og
síðan af henni og til skipa sem lagt
hafa upp á markaðnum. Til að fá við-
skiptin hefur markaðurinn útvegað
kvóta. Nýju kvótareglumar koma í
veg fyrir þetta. Ólafur Jóhannsson
framkvæmdastjóri segir ljóst að
þessar reglur hafi verið settar til þess
að koma í veg fyrir að fiskmarkað-
arnir haldi sínum viðskiptum.
„Það eru öfl í þessu þjóðfélagi að
hafa af okkur stórviðskipti í krafti
kvótaeignar. Þetta em með öðrum
orðum sægreifarnir sem era að fá
sitt í gegn. Við björguðum á sínum
tíma fjölda smáútgeröa með því að
taka upp það fyrirkomulag að útvega
þeim kvóta. Nú er búið að úthoka
þennan möguleika," segir Ólafur:
Ólafur segir að Sjómannasamtökin
hafi séð kvótabraskarana í sér og
öðrum sem tengjast fiskmörkuðum.
Þetta hafi hins vegar verið mikih
misskhningur þeirra.
„Þeir fóru í mikla fundaherferð um
landið þar sem við vorum úthrópaöir
sem kvótabraskarar. Við voram ekki
í þessum millifærslum af því að við
græddum á því. Þetta var gert til aö
forðast að missa viðskipti til eigenda
kvótans. Þessar reglur sem nú era
komnar í ghdi þýða auðvitað að þeir
eru búnir að ná sínu fram og þá
hættum við bara þessum millifærsl-
um,“ segir Ólafur.
Helgi Laxdal segist í rauninni aö-
eins sjá tvær leiðir í stöðunni nú.
„Annaðhvort verður aö taka upp
gamla Verðlagsráðið á ný eða að all-
ur fiskur verður að fara með laga-
boði um fiskmarkaði.