Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Blaðsíða 28
36 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 Iþróttir A meðal þeirra bestu - Sví ar taka enga áhættu og mæta með sitt sterkasta lið gegn íslendingum Það er ekki oft sem íslenskir knatt- spymuáhugamenn fá að berja aug- um eitt alira sterkasta knattspyrnu- lið í heiminum, sjálfa bronshafana frá heimsmeistaramótinu í Banda- ríkjunum í sumar. Þetta gullna tæki- færi fá íslendingar þegar Svíar etja kappi við okkar menn í Evrópu- keppninni á Laugardalsvelli á mið- vikudagskvöldið kemur. Þetta er fyrsti leikur þjóðanna í riðlinum en auk íslendinga og Svía leika Tyrkir, Svisslendingar og Ungverjar í þess- um sama riðh. Úrshtakeppnin verð- ur síðan haldin sumarið 1996 í Eng- landi. Tomas Brolin er prímus mótor í sænska liðinu þegar svo ber undir. Rinkur leikmaður sem íslendingar verða ekki sviknir af að sjá. Hróður sænskra knattspymu- manna fór heldur betur upp á við í kjölfar frábærar frammistöðu á heimsmeistaramótinu í Bandaríkj- unum í sumar. Flestir vora á því að Svíar gerðu varla meira í keppninni en að komast upp úr riðU sínum en annað átti eftir að koma á daginn. Svíum óx ásmegin með hverri raun og fóra alla leið í undanúrsUtin. Þar var of stór biti að kyngja og fór svo að þeir lutu í lægra hialdi fyrir BrasU- íumönnum sem síðar hömpuðu heimsmeistaratitiinum eins og flest- um er í ferski minni. Gamla Svíaseiglan lét ekki slá sig út af laginu og tvíefldir mættu þeir Búlgöram í leik um bronsverðlaun- in. Uppskeran var brons og með þau í farteskinu héldu Sviar heim á leið glaðir og hreyknir. Ekki er sagan öll því þeirra biðu heima fyrir kónga- móttökur sem lengi verður minnst. Hundrað þúsunda aðdáenda veifuðu til goða sinna á leiðinni frá Arlanda- flugveUi inn í borgina. Svipaðar mót- tökur biðu síðan þegar komið var til Gautaborgar. Svíar ætluðu að þakka sínum mönnum gott afrek og það gerðu þeir með svo eftirminnUegum hætti að sjá mátti tárin renna niður kinnamar á mörgum. Frábær árangur í Bandaríkjunum átti eftir að skUa sér. Aðsókn að leikj- um í sænsku deildunum rauk upp á við, sænsku landsUðsmennimir vora margir hveijir að drukkna í atvinnu- tilboðum og knattspyman fór að fá mun meira pláss í fjölmiðlum. Knatt- spyman átti fram að þessu í harðri samkeppni við aðrar íþróttagreinar og má í því sambandi nefna íshokkí. Knattspymuforkólfar í Svíþjóð era í sjöunda himni með þróunina og sjá ekki fyrir endinn ef landsUðið heldur áfram á sömu braut. Hver er galdurinn bak við árangurinn? Hver skyldi svo galdurinn vera á bak við þessa velgengni sænska lands- Uðsins. Margar mismunandi skoðan- ir era á því máU. Ein þeirra er sú að hópur sænskra knattspymu- manna hefur leUtið með erlendum félagsUðum og fyrir vikið bætt sig mikið og öðlast þroska sem landsUð- ið hefur síðan fengið að njóta. Hinu er ekki að neita að sænsk stjórvöld hafa í gegnumn tíðina hiúð vel að sínum íþróttamönnum og árangur- inn hefur svo sannarlega ekki látið á sér standa. Segja má að Svíar eigi íþróttamenn í aUra fremstu röð i flestum íþróttagreinum, bæði hóp- íþróttum og ekki síður í einstakUngs- greinum. Þegar haft er í huga að íbúatala Svíþjóðar er ekki nema í kringum 8-9 mUljónir er árangur þegnanna glæsUegur. Fjármagn rík- isins til íþróttanna hefur skUað sér margfalt til baka og veröur ekki metið til fjár. Þrátt fyrir að Svíar hafi ekki unnið til margra verðlauna í knattspym- unni á alþjóða vettvangi má hiklaust fiUlyrða að landsUð þeirra sé í hópi þeirra bestu. Árangurinn á HM í sumar skýtur þeim hins vegar enn hærra upp á listann. Þegar máUn era gaumgæfilega skoðuð á frammistaða Svía í Bandaríkjunum í sumar ekki Martin Dahlin kemur hingað til lands öðru sinni en hann lék með 21 árs liði Svia gegn Islendingum í Eyjum fyr- ir nokkrum árum. Þar fer leikmaður í fremstu röð en á myndinni fagnar hann einu marka sinna á HM í sumar. Thomas Ravelli markvörður verður betri með árunum og sýndi það rækilega í verki á HM í Bandarikjun- um i sumar. að koma svo ýkja mikið á óvart. í mörgum stöðum Uðsins eru knatt- spymumenn í aUra fremstu röð. Nægir þar fyrst að telja hinn 25 ára gamla Tomas Brolin hjá ítalska Uð- inu Parma. Hann er sívinanndi, eid- snöggur og ekki má Uta af honum eitt augnablik; teknískur og hefur næmt auga fyrir spiU. Eftir HM í sumar varð Parma að gera ailt sem í þess valdi stóð til að halda þessum pilti áfram; tilboð komu úr öUum áttum og undir það síðasta vantaði ekki mikið upp á að Arsenal hreppti þennan geðprúða leikmann. Nú er nefndur til sögunnar Martin nokkur Dahlin en hann hefur verið að gera garðinn frægan í þýsku knattspymunni með Borassia Munchengladbach. Dahtin kom á óvart í Bandaríkjunum, blómstraði þar í þess orðs fyllstu merkingu og átti stóran þátt í velgengni Svía. Dah- Un meiddist Utilega í keppninni og hafa meiðslin verið að plaga hann. Hann lék þó með Gladbach sinn fyrsta leik á tímabiUnu í gærkvöldi og kemur með sænska landsUðinu til Reykjavíkur. Hinn hávaxni miöheiji, Kennet Andersson, lék einnig mjög vel á HM. Hann leikur í Frakklandi með Caen og gerði nýjan samning við félagið skömmu fyrir HM. Eftir keppnina hefði Andersson hins veg- ar getað gert mun betri samning við hvaða félag sem var. Hann gladdi mörg augu útsendara stærstu og bestu klúbbanna í Evrópu. Johan Grayff hjá Barcelona hreifst mjög af pUti. Markvörðurinn Thomas RaveUi er orðinn nokkurs konar húsgagn í landsliðinu, 35 ára gamaU með 118 landsleiki að baki. Líkja má honum við rauðvín sem verður betra með áranum. Ravelti leikur með IFK Gautaborg og hafði úr nokkrum til- boðum að moða eftir HM en kaus heldur, að vel athuguðu máU, að leika með IFK áfram. Þar á bæ eru menn ekki heldur á neinum sultar- launum enda IFK atvinnumanna- klúbbur að fullu. RavelU sagði eftir HM að hann stæði í markinu á með- an gengi vel og hann nyti þess fram í fingurgóma. Ekki verður komist hjá því að minnast á Stefan Schwarz sem Arsenal festi kaup á frá Benfica í sumar. Schwarz náði ekki alveg nógu vel að sýna hvað í honum í býr á HM en enginn efast um hæfUega hans á knattspymuvelUnum. George Graham, stjóri hjá Arsenal, sagði eft- ir kaupin á Schwarz að hann myndi hleypa Ufi í leik Uðsins, hann þekkti hann af góðu einu enda búinn að fylgjast með honum lengi. Af framansögðu má ljóst vera að leikur íslands og Svíþjóðar á mið- vikudagskvöldið kemur ætti í öllu falti að verða hin besta skemmtun. Aldrei að vita nema okkar menn nái að velgja bronsUðinu undir uggum, það er að minnsta kosti von okkar Islendinga. Lið Svia sem sló svo rækilega í gegn á HM í Bandaríkjunum í sumar. Bronslið Svía Leikmenn Félag Fæddur A Mörk U21 Thomas Ravelli IFK Gautaborg 590813 118 0 10 Lars Eriksson IFK Norrköping 650921 16 0 15 Patrik Andersson M’gladbach 710818 30 1 2 Joachim Björklund IFK Gautaborg 710315 29 0 1 Pontus Kámark IFK Gautaborg 690405 ■ 17 0 13 Roger Ljung Duisburg 660108 54 3 8 Mikael Nilsson IFK Gautaborg 680928 14 0 14 Roland Nilsson Helsingborg 631127 69 1 13 Kennet Andersson Caen 671006 32 16 14 Jesper Blomqvist IFK Gautaborg 740205 11 0 7 Tomas Brolin ParmaAC 691129 39 23 6 Martin Dahlin M’gladbach 680416 34 20 2 Magnus ErUngm. IFK Gautaborg 680708 26 1 10 Klas Ingesson Sheff.Wed. 680820 50 11 4 Henrik Larsson Feyenoord 710920 13 6 11 Hákan Mild Servette 710614 19 4 4 Stefan Rehn IFK Gautaborg 660922 42 6 17 Stefan Schwarz Arsenal 690418 34 5 21 • Þjálfari sænska liðsins er Tommy Svensson, 49 ára að aldri og fyrrum atvhmumaður í knattspyrnu. Lék með Öster í Svíþjóð og síðar með Ásgeiri Sigurvinssyni hjá Standard Liege í Belgíu. Eftir að hafa þjálfað norska liðið Tromsö var hann ráðinn þjálfari sænska landsUðsins 1991 og tók við starfinu af Olle Nordin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.