Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
7
Fréttir
Verðlaunatölva frá Eltech á óviðjafnanlegu tilboðsverði
8^9
Ytri-Torfustaöahreppur:
Nýrsveilarstjóri
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki;
Nýr sveitarstjóri, Björn Her-
mannsson, hefur verið ráðinn til
starfa í Ytri-Torfustaðahreppi í Vest-
ur-Húnavatnssýslu. Björn, sem var
valinn úr hópi 13 umsækjenda, er
framkvæmdastjóri Félags opinberra
starfsmanna á Vestfjörðum. Áður
starfaði hann sem framkvæmda-
stjóri Ferðaskrifstofu Vestfjarða og
sat á síöasta kjörtímabih í bæjar-
stjórn ísafjarðar.
Árbæjarsafn:
Sjónarhorn á
sjálfstæði
Ráðstefnan Sjónarhorn á sjálfstæði
- lýðveldið ísland 50 ára verður hald-
in á morgun í Komhúsinu í Árbæjar-
safni. Ráðstefnan er framlag sagn-
fræðinga til 50 ára afmælis lýðveldis-
ins og er haldin af Sögufélaginu,
Sagnfræðistofnun Háskólans, Sagn-
fræðingafélagi íslands og Árbæjar-
safni. Fyrirlestrar er varöa sjálfstæð-
isbaráttuna verða allan daginn. í til-
kynningu frá fundarboðendum segir
að söguskoðun sjálfstæðisbaráttunn-
ar sé á margan hátt orðin úrelt en
sagan sé engu að síður jafn mikilvæg
nú og áður. Ráðstefnan er öllum op-
in.
Skagaströnd:
300 þúsund til
jarðhitaleitar
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki:
Hreppsnefnd Höfðahrepps ákvað í
sumar að kosta 300 þúsundum til
jarðhitaleitar í nágrenni Skaga-
strandar, í ljósi þess að víða um land
þar sem talin hafa verið köld svæði,
hefur fundist heitt vatn. Samið var
við jarðfræðistofuna Stapa að sjá um
tilraunaboranir og rannsóknir á
svæðinu.
Smugusvæöið:
Þorskur
étur þorsk
- skorturaætifyrirfiskinn
„Þorskurinn sem við veiddum á
Svalbarðasvæðinu er um 4 prósent
rýrari en þorskur á íslandsmiðum.
Ég opnaði stórþorsk til að sjá hvað
væri innan í honum og hann var
tómur að því undanskildu að í maga
hans var hálfmeltur þorskur 30 til
40 cm langur,“ segir Hafþór Gylfa-
son, afleysingaskipstjóri á frystitog-
aranum Örvari HU sem var að veið-
um í Smugunni og á Svalbarðasvæð-
inu í síðasta mánuði.
Fregnir berast af því frá íslenskum
sjómönnum á þessum slóðum að
þorskurinn sé mjög horaður og vanti
greinilega æti. Talað er um allt að 5
smærri þorskum í maga eins. Menn
velta fyrir sér orsökum þess að
þorskurinn er farinn að éta úr eigin
stofni.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, segir þaö þekkt
að þorskurinn éti í einhverjum mæli
bræður sína. Þess séu þó fá dæmi að
þetta gerist í miklum mæli.
„Þetta gerðist á íslandsmiðum í
talsverðum mæli eitt árið. Ég þekki
ekki hvernig þessu er farið í Barents-
hafinu. Það er spurning hvort þarna
er eitthvað óvenjulegt á ferð. Þetta
sýnir að það er skortur á æti. Þaö
er vitað að loðnustofninn á þessu
svæði er í mikilli lægð og veiðar hafa
veriö alveg bannaöar á loðnu síðustu
12 mánuði. Þetta var mjög áberandi
þegar mögru árin komu í Barents-
hafmu 1986 til 1987. Þá hrundi loðnu-
stofninn á þessum slóðum en þetta
virtist svo lagast þegar loðnan kom
upp aftur,“ segir Jakob.
Geisladiskar,
geisladrif og
hljóðkort.
Mögnuð verð !
ttvður til
GÓLFEFNA
VEISLU
afsláltur
af öllum gólfeftium
í örfáa daga
og um helgar Uka!
8 • S: 91-813500
í samvinnu við Eltech Research í Bandaríkjunum
býður Hugver nú á ótrúlegu verði tölvu sem fékk
“Best Buy” umsögn í tímaritinu PC-World.
Þessi vél er hraðvirkari í Windows en 66
megariða tölvur sem kosta tugþúsundum meira :
66 MHz 486 örgjörvi, 4Mb RAM,
Local Bus 1 Mb skjákort með Cirrus hraðli,
Local Bus diskstýring, 280 Mb 9,6 ms harður
diskur, turnkassi, MS samhœfð mús, vandað
“alíslenskt” lyklaborð, 14" lággeisla, NI,
“full screen” skjár: kr 136.860,-
Með OKI 400er geislaprentara :
Móðurborð, harðir diskar,
skjákort, diskstýringar o.fl.
aflager á góðu verði.
Allir helstu íhlutir og ísetning.
Föst tilboð.
Helstu gerðir PC-tölva,
þ.m.t. Pentium 90 MHz■
Kannaðu málið!
kr 179.860,-
Hugver
Laugavegi 168
s. 91-620707
f. 91-620706