Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 Samkvæmisdansar: sígildir og suður-amerískir Gömludansarnir-Tjútt Barnadansar - Stjörnumerki DÍ Uas mf hoU mg góú hreyi'ino syr'ir -aJki íjöhlíyldmm Allir aldurshópar velkomnir: Börn (4 ára yngst) - Unglingar - Fullorðnir. Byrjendur - Framhald - Hóptímar - Einkatímar Seljum hina frábæru Supadance dansskó Æfingasalur opinn sjö daga vikunnar Helgi Sigurðsson, 25 ára Skagflrðingur, hljóp undir bagga með norskum víkingavinum: Stjómaði hleðsluá350 milljóna torfbæ - enginn í Noregi kunni lengur listina að hlaða hús úr torfl að fomum sið Nemendur Helga Sigurðssonar að störfum. Helgi kenndi tíu Norðmönnum listina að hlaða úr torfi um leið og hann sagði fyrir um vinnubrögð við uppbyggingu bæjarins. „Eg var beðinn um að fara út og leggja á ráðin um upphaf verksins og kenna þeim sem við það unnu að hlaða úr torfi. Eftir að ákveðið var að byggja upp höfðingjasetrið þarna á Borg í Vesturvogey kom í ljós að enginn kunni til verka. Því var leitað til íslands eftir aðstoð," segir Helgi Sigurðsson, 25 ára gamall Skagfirð- ingur, sem var í sex vikur í Norður- Noregi í sumar við endurbyggingu á stærsta víkingaaldarbæ sem vitað er um í heiminum. 83 metra langttorfhús Vesturvogey er eitt af mörgum af- skekktum plássum í Lófóten. Enginn vissi að þarna hefði verið byggð á víkingaöld fyrr en bóndi nokkur hóf árið 1970 að plægja land við vatn þar á eyjunni. Þá komu upp brot af fornu keramiki og ljóst að meira bjó undir. Síðar var allur staðurinn grafinn upp. Víkingurinn sem bjó á Borg hafði aðeins eitt hús á jörð sinni, 83 metra langt og 9 metra breitt langhús þar sem jafnt menn sem skepnur höföust við. Það kom mönnum í opna skjöldu hve stórt húsið var. Hafa menn það til marks um stórmennskuna á Borg að húsið er jafnlangt og framhliðin á konungshöÚinni í Ósló. Fljótlega vaknaði sá draumur að endurbyggja höfðingjasetrið á Borg og nú í sumar hófust framkvæmdir. Kostnaður er metinn á um 350 millj- ónir íslenskra króna. Gerhard Hei- berg, maðurinn sem stjórnaði ólymp- íuævintýri Norðmanna, var fenginn til að annast fiármögnunina og tókst það án teljandi vandræða. sem ég var þarna var ekki vinnufriö- ur vegna átroðnings fólks þegar verst var,“ segir Helgi Hugmyndin er að hafa búskap að fornum hætti á Borg auk safns og veitingasölu. Því má búast við að ferðafólki fjölgi enn þegar starfsemin er í raun og veru hafin. Fyrirhugað er að opna húsið á Borg almenningi um mitt næsta sumar. Veggir víkingabæjarins á Borg eru hiaðnir úr torfi en húsið er þiljaö innan með timbri og þakið er einnig úr timbri. Alls eru útveggirnir 200 metra langir og tveggja metra háir og hálfur annar metri á þykkt neðst. „Mestu erfiðleikarnir voru við að finna nothæft torf á hentugum stað,“ segir Helgi. „Jarðvegur er mjög grunnur á þessum slóðum en óhemjumikið þarf í svo stórt hús. Bærinn á Borg hefur verið mun stærri en skálarnir sem þekktir eru frá landnámsöld hér á landi. Rústirn- ar þarna eru Mka eldri. Talið er að fyrst hafi verið byggt á Borg á sjö- undu öld, tvemur öldum fyrir fund íslands." Hlaðið á Opið húsídagkl. 13-17. Starfsemi vetrarins kynnt.Veitingar. Allir velkomnir. Víkingabærinn á Borg í Lófóten er 83 metra langur og 9 metra breiður. Byggingin kostar um 350 milljónir islenskra króna þegar allt er talið. DV-myndir Norlands Fremtid Gleymd list að hlaða úr torfi Vandinn var bara sá að enginn Norðmaður kunni lengur að hlaða hús eins og það sem stóð á Borg. Vandamál þetta var borið upp á ráð- stefnu arkitekta í Noregi fyrir nokkru. Hjörleifur Stefánsson arki- tekt var þar og benti hann norsku víkingavinunum á Helga Sigurðsson sem vænlegan mann til verksins. Helgi fór út í maí og hófst þegar handa. Honum til aðstoðar voru tiu norskir námsmenn sem um leið áttu aö læra listina. Þeir hafa haldiö verk- inu áfram eftir að Helgi hélt heim. „Þetta eru mjög áhugasamir menn og voru fljótir að læra réttu handtök- in,“ segir Helgi. „Ég hlóð fyrir þá ýmis sýnishom af hleðslum til að nota síðar ef þeir vildu halda áfram. Norðmenn eru mjög áhugasamir um að halda sambandi við forfeður sína og leggja oft mikið fé í að byggja upp og viðhaída fomum húsum.“ Mikill áhugi ferðafólks „Nú þegar er mikill straumur ferðamanna að Borg. Þangað komu í fyrra um 80 þúsund gestir og ásókn- in var enn meiri í sumar. Þann tíma Nýfundnalandi Eftir Noregsdvölina brá Helgi sér vestur um haf til að aðstoða við end- urbyggingu á víkingaaldarhúsum í L’anse-au Meadow á Nýfundnalandi. Þar eru væntanlega rústir húsa ís- lenskra Vínlandsfara. „Þarna er eitt langhús og tvö minni," segir Helgi. „Það voru vand- ræði með viðhald á þessum húsum vegna þess að þau voru ekki rétt byggð þegar þau voru endurreist fyr- ir nokkrum árum. Því þurfti að vinna verkið að nýju en það gekk ágætlega." Helgi er nú kominn heim og er þessa dagana að hlaða upp skemmu í Laufási í Eyjafirði. Hann hefur haft hleðslu á gömlum húsum að aðal- starfi undanfarin ár í félagi við tvo aðra menn. „Ég er búinn aö vera í þessu meira og minna frá því ég komst á legg,“ segir Helgi. Hann er fæddur og upp- alinn á Stóru-Ökrum í Skagafirði og lærði listina af Jóhannesi Arasyni hleðslumanni. „Verkefnum á þessu sviði fer alltaf íjölgandi. Gömlu torfbæirnir þurfa mikið viðhald og því nóg að gera þótt alltaf mætti leggja meira fjár- magn í gömlu húsin. Mér sýnist við standa Norðmönnum langt að baki í þessum efni.“ PORI RETTA ATT! / /v /v # / r i/ /v í SÍMUM: 36645 og 685045 ALLADAGA ki.12-19 lO. sept. 1994 Skírteini afhent í Bolholti 6: föstudaginn 9. sept. kl. 14-21 ff • Fjölskylduafsláttur 1 1S Starfsfójk skólans: Kara Arngrimsdóttir, Jón Pétur Úlfljótsson, Logi Vigþórsson, Ólöf Jóhanna Sigurðardóttir, Gréta Björg Blængsdóttir og Stefán Guðleifsson. Dansráð Islands Tryggir rétta leiðsögn JÓNS PÉTURS og KÖRU Bolholti 6 105 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.