Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994
21
íslensk systkini létu draum sinn rætast:
Reka veisluþjónustu og
matarklúbb 1 New York
Systkinunum Karítas Mitrogogos
og Sigurði Baldvini Sigurðssyni hef-
ur tekist að láta draum sinn rætast
í Ameríku. Fyrir tæpu ári settu þau
á laggimar útgáfu matarklúbbs og
veisluþjónustu í New York. Viðtök-
umar vom svo góðar að þau sjá nú
fram á bjarta framtíð.
„Atburðarásin að stofnun fyrir-
tækisins er einfóld," greinir Sigurður
frá. „Það hefur alltaf verið mikiil
mataráhugi í móðurættinni. Móðir
okkar, amma og langamma vom all-
ar húsmæörakennarar. Systir mín
hefur verið með áhuga á matargerö
frá bemsku og kynnst henni í mörg-
um löndum þvi við erum sendiherra-
böm. Við höfðum um tíma rætt um
hvort ekki væri grundvöllur fyrir
atvinnurekstri. Ég er menntaður á
markaðssviðinu og systir mín hafði
auk þess verið ráögjafi hjá fyrirtæki
sem stundaði mikið veisluþjónustu."
Siguröur kveðst hafa verið milii
starfa og ákveðiö að gefa þessari
hugmynd þeirra tækifæri í hálft ár.
Reksturinn gekk svo vel að hann er
nú alfluttur til New York þar sem
systir hans er búsett en hún er gift
gríska viðskiptafulltrúanum þar.
Meö nýjungar á
Ameríkumarkaðnum
í upphafi byijuðu þau með tvenns
konar rekstur, matarklúbb og veislu-
þjónustu. „Við höfum fengið íslenska
aðila til að vinna allt prentverk
vegna útgáfu matarklúbbsins en
hann hefur nýjungar að bjóða sem
ekki hafa sést á Ameríkumarkaöi.
Það vakti til dæmis athygli að spjöld-
in með uppskriftunum voru með sér-
stakri lökkun þannig að það gerði
ekki til þótt suilaðist á þau. Upp-
skriftimar sjálfar eru alþjóðlegar.
Þó svo að grunnuppskriftin komi frá
einhverri tiltekinni þjóð þá notum
við það hráefni sem við teljum hent-
ugt hverju sinni. Það besta úr matar-
gerð nokkurra þjóða er svo kannski
dregið saman og sett á einn disk.
Þetta hefur fallið Ameríkumönnum
afskaplega vel í geð.“
Fljótlega fengu Karítas og Sigurður
fyrirspumir um hvort þau gætu ekki
tekið að sér matarljósmyndun og
matarráðgjöf, kynningu á nýjirni
matvælategundum sem fluttar eru
til Bandaríkjanna og uppskriftagerð-
ir í tengslum við þá kynningu. Rekst-
urinn hefur því vaxið mikið frá því
sem þau gerðu sér upphaflega vonir
um. Systkinin hafa verið í samninga-
viðræðum við útgefendur í Evrópu
sem hafa sýnt verkefnum þeirra
mikinn áhuga, að því er Sigurður
greinir frá.
„Þessar samningaviðræður hafa
ekki eingöngu snúist um það sem við
höfum veriö að fást við hingað til
heldur höfum við lagt drög að matar-
klúbhi fyrir mismunandi markhópa
með ólíkar þarfir."
Erfítt að fá
íslenskthráefni
íslenskir réttir hafa verið kynntir
bæði í matarklúbbnum og veislu-
þjónustunni. „Þaö hefur verið okkur
kappsmál að geta veitt íslenskt hrá-
efni í veisluþjónustunni. Viö höfum
reynt að nálgast íslenskt hráefni, sér-
staklega sjávarafurðir, hjá sölufyrir-
tækjum Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna og íslenskra sjávarafurða í
Bandaríkjunum. En jafnvel gegn
boði um staðgreiðslu hefur okkur
ekki tekist að koma á viðskiptum
nema með þeim hætti sem stendur
öllum íslendingum til boða, það er
að nálgast þessar sjávarafurðir einn
laugardag í mánuði. Það hentar ekki
fyrirkomulagi okkar. Dreifingarkerfi
þessara íslensku fyrirtækja miðast
við stofnanamarkaöinn en ekki neyt-
endamarkaðinn. Þetta er mjög leið-
inlegt því það er ekki skortur á heild-
sölum og sölumönnum í Bandaríkj-
unum,“ bendir Sigurður á. Þar sem
hann fær ekki íslenskan fisk kaupir
hann fisk frá Kanada í staðinn.
Sigurður leggur á það áherslu að
það væri hollt fyrir íslensk fyrirtæki
og þjónustuaðila að fara að dæmi
annarra norrænna þjóða og taka upp
meira samstarf. „Ef um samstarf
væri að ræða, þó heilbrigð sam-
keppni væri á márkaðnum, væri
hægt að spara umtalsvert fé í öllum
tilkostnaði."
Sigurður segir það tíðkast hjá fyrir-
tækjum eins og hann rekur að laus-
ráða fólk í verkefni í stað þess að
fastráða það. Mikilvægt sé að halda
fyrirtækinu skuldlausu og reyna að
staðgreiða allt. Þannig sé hægt að
láta lítinn draum rætast.
Sigurður Baldvin Sigurðsson.
DV-mynd GVA
Karitas Mitrogogos.
Frystikisturnar frá Elcold eru löngu iandskunnar fyrir öryggi og sparneytni.
Núna bjóðum við þessar dönsku umhverfisvænu frystikistur á verði sem allir ráða við
íslenskir réttir hafa verið kynntir í matarklúbbi Karitasar og Sigurðar.
Skiptiborð 41000, 641919
áWHIW!«3fH!BM.i.W.111111II—
Hólf og gólf, afgreiðsla 641919 x
Almenn afgreiósla 54411, 52870
rcmwirm
Cm
mnm
Almenn afgreiðsla 629400
Grænt símanúmer BYKO
Almenn afgreiðsla 689400, 689403
Grænt númer 996410
W FicaidL
Vetið velkomin á Laugaveginn og í Bankastrætið
- vinalegar og langar íslenskar verslunargötur
)g langar íslenskar verslunargötur
-