Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1994, Side 8
8 Matgæðingur vikunnar LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur, þroskaþjálfar eöa fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á leikskólann Hlíðarborg v/Eskihlíð. Nánari upplýsingar getur leikskólastjóri í síma 20096. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277 Karate - fyrir alla Námskeiðin eru að hefjast. Skipt er í flokka eftir aldri og getu. Karate eykur styrk, eflir sjálf- straust, bætir einbeitingu og agar andann sem og líkamann. Karatefélagið Þórshamar Brautarholti 22, sími 14003 Hússtjórnarskólinn í Reykjavík Sólvallagötu 12 sími 11578 Námskeið veturinn 1994-1995 1. Saumanámskeið, 7 vikur Kennt mánudaga kl. 9-12, fatasaumur ' / " kl. 19-22 þriðjudaga kl. 14-17 " kl. 19-22 miðvikudaga kl. 19-22 (Einnig bótasaumur og útsaumur) 2. Vefnaðarnámskeið, 7 vikur Kennt verður mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 13.30-16.30. 3. Matreiðslunámskeið 6 vikur Kennt verður mánudaga og miðvikudaga kl. 18-21. 4. Stutt matreiðslunámskeið, 1-3 skipti Kennt verður kl. 13.30-16.30 og 18-21 - Grænmetis- og baunaréttir, 3 dagar - Fiskréttir, 2 dagar - Gerbakstur, 2 dagar - Orkurýrir hollusturéttir, 3 dagar (fyrir þá sem vilja halda grönnu vaxtarlagi og eru meðvitaðir um sam- band góðrar heilsu og hollrar fæðu) - Pastaréttur, 1 dagur - Pitsugerð fyrir fjölskylduna, 1 dagur - Súpur og smábrauð, 2 dagar - Frysting grænmetis og sultugerð, 2 dagar Upplýsingar og innritun í síma 11578 mánudaga til fímmtudaga kl. 10-14. Skólastjóri Hrísgrjóna- rækjusalat - fiskxéttur og Tutti frutti „Ef ég fæ góöar uppskriftir upp í hendurnar sleppi ég þeim ekki enda hef ég mjög gaman af aö prófa nýja rétti. Hins vegar er ég ekki í matarklúbbi en þeir eru mjög vin- sælir hér á Akranesi," segir Þóra Björk Kristinsdóttir hjúkrunar- fræöingur sem er matgæöingur vikunnar að þessu sinni. Enn um sinn heldur matgæöingsdálkurinn sig við Skagann. „Mig langar að bjóöa upp á for- rétt, fiskaðalrétt og eftirrétt. Allt eru þetta fljótlegir og þægilegir réttir sem notið hafa mikilla vin- sælda á mínu heimili," segir Þóra. Forrétturinn heitir einfaldlega hrísgrjónarækjusalat og er upp- skriftin miðuö viö fjóra: Hrísgrjónarækjusalat 350-400 g af góöum rækjum 125 g soðin hrísgrjón 1 lítil dós af litlum grænum baun- um (má sleppa) Marinering 6 msk. matarolía 2 msk. edik salt karrí (ekki mikið) 1 msk. fínt hakkaður laukur 1 harðsoðið egg (fínt hakkað) 2 tsk. sykur steinselja, fínt skorin. Rækjum og hrísgrjónum og baunum er blandað í stóra skál eða fjórar litlar. Olían og edikið er hrist saman, bragðbætt með salti og Þóra Björk Kristinsdóttir. karrí, síðan er lauk, eggi, steinselju og sykri blandað saman við. Marin- eringunni er síðan hellt yfir hrís- grjónin og rækjumar og hrært var- lega í. Skreytt með bestu rækjun- um og steinselju. „Þetta er mjög góður forréttur með ristuðu brauði eða sem snarl eftir leikhúsferð. Rétturinn er léttur og góður í maga.“ Fiskréttur 2 ýsuflök 2 litlar púrrur eöa einn lítill laukur Sósa 1 tsk. sinnep 1 tsk. karrí (sléttfull) 1 msk. edik 2 msk. brætt smjör 5 msk. tómatsósa 1 dl rjómi Flökin eru roðhreinsuð, skorin í bita og raðað í smurt eldfast mót, púrrulaukur skorinn í sneiöar og raðað ofan á. Allt hrært saman sem á að fara í sósuna og henni blandað yfir og smjörbitar settir ofan á. Bakað í ofni við 190 gráður í 20 mínútur. „Þctta er góður gestarétt- ur sem ég hef oft búið til. Ég hef hrísgijón með þessum rétti sem ég sýð á venjulegan hátt en set kjúkl- ingatening og smjörklípu út í vatn- ið. Þau verða bragðbetri með því.“ Tutti Frutti 200 g gráfíkjur 2 rauð eph Grand Marnier eða sérrí „Látið liggja í líkjörnum yfir nótt. Síðan er einni heildós af blönduð- um ávöxtum og heildós af perum blandað saman, perurnar fyrst skomar í litla bita. Því næst er þessu öllu þlandað saman og rétt- urinn ætti að duga fyrir tíu manns. Með þessu ber ég vanillurjóma. Þá blanda ég saman vanillubúðingi, t.d. Ötker, og þeyttum rjóma. Þetta er ákaflega fljótlegur en ekki síöur ljúffengur réttur sem ég fékk einu sinni hjá gamalli vinkonu minni hér á Akranesi," segir Þóra Björk. Hún ætlar að skora á Málfríði Björnsdóttur, læknaritara á Akra- nesi, að vera næsti matgæðingur. „Hún er mikill listakokkur og dug- leg að galdra fram alls kyns góð- gæti, bæði í ofni og pottum." Hinhliðin Það skemmtilegasta er að keppa í torfærunni - segir Einar Þór Gunnlaugsson, nýbakaður íslandsmeistari í torfæru „Það er eitthvert kærumál í gangi en það breytir því ekki að ég er íslandsmeistari og úrskurður dóm- aranna á að standa og mun gera það,“ segir Akureyringurinn Einar Þór Gunnlaugsson, nýbakaður ís- landsmeistari í torfærukeppni, sem sýnir lesendum DV hina hliðina í dag. í torfærukeppninni ekur Ein- ar á Norðdekk-drekanum sínum, en dags daglega rekur hann hjól- barðaverkstæði á Akureyri sem ber nafn hans. Fullt nafn: Einar Þór Gunnlaugs- son. Fæðingardagur og ár: 27. janúar 1965. Maki: Helga Ragnhildur Kristjáns- dóttir. Börn: Hafdís Alma, 5 ára, Harpa Svava, 1 árs. Bifreið: Konan á Subaru. Starf: Framkvæmdastjóri. Laun: Allt of lág. Áhugamál: Torfæra og jeppa- mennska. Hvað hefur þú fengið margar tölur réttar í lottóinu? Fjórar. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Keppa í torfæru. Hvað fmnst þér leiðinlegast að gera? Standa í kærumálum. Uppáhaldsmatur: Svínakjöt. Einar Þór Gunnlaugsson. DV-mynd gk , Uppáhaldsdrykkur: Kaffi. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Ég fylgist bara með torfærukeppni. Uppáhaldstímarit: Oll aksturs- íþróttablöð. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Þær eru svo margar. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Hlynntur. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Konuna mína. Uppáhaldsleikari: Enginn sérstak- ur. Uppáhaldsleikkona: Engin sérstök. Uppáhaldssöngvari: Bubbi Mort- hens. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn þeirra er í uppáhaldi hjá mér. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Andrés Önd. Uppáhaldssjónvarpsefni: Mótor- sport. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins- hér á landi? Hlynnt- ur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgjan. Uppáhaldsútvarpsmaður;. Enginn sérstakur. Hvort horfir þú meira á Ríkissjón- varpið eða Stöð 2? Ríkissjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður? Birgir Þór Bragason. Uppáhaldsskemmtistaður: Fer aldrei á skemmtistaöi. Uppáhaldsfélag í íþróttum: KA. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að standa mig vel í lífsbaráttunni. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Það var enginn tími fyrir frí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.