Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1994, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
Útlönd
Níuflokkarbjóða
fram í Danmörku
Stiómarflokkar:
Jafnaðarmenn
Leiða núverandi stjórn. Hafa
verkalýöshreyíinguna að bak-
hjarli. Fengu 37,4% atkvæða í
kosningunum 1990. Leiðtogi er
Poul Nyrup Rasmussen forsætis-
ráðherra.
Radikalevenstre
Frjálslyndur miöflokkur. Leið-
togi Marianne Jelved efnahags-
ráðherra. Fékk 3,5% atkvæða ár-
ið 1990.
Miðdemókratar
Klofnuöu frá jafnaðarmönnum
árið 1973. Leiðtogi er Mimi Jak-
obsen. Fengu 5,1% viö síöustu
kosningar.
Kristilegi þjóðarfl.
Borgaralegur miðflokkur.
Leggur áherslu á fjölskyldumál.
Leiötogi er Jan Sjuresen orkuráð-
herra. Fékk 2,3% atkvæða við
síðustu kosningar.
Stjómarandstaða:
íhaldsmenn
íhaldssamur borgaraflokkur.
Leiddi stjóm á árunum 1982 til
1993. Leiðtogi er Hans Engell for-
sætisráðherraefni. Flokkurinn
fékk 16,0% viö síðustu kosnhigar.
Venstre
Bændaflokkur og flokkur smá-
atvinnurekenda. Leiötogi er Uffe
Eliemann-Jensen forsætisráð-
herraefni. Fékk 15,8% við síðustu
kosningar.
Framfaraflokkur
Stendur lengst til hægri. Lækk-
un skatta er aðalbaráttumálið.
Leiðtogi er Pia Kjærsgaard. Fékk
6,4% við síðustu kosningar.
Sósialíski þjóðarfl.
Vinstriflokkur með áhuga á
umhverfismálum. Leíðtogi er
Holger K. Nielsen. Fékk 8,3% við
síðustu kosningar.
Einingarflokkiainn
Býður fram í fyrsta sinn nú.
Var áður danski kommúnista-
flokkurinn. Lýtur samstjórn
flokksmanna.
í SUMARBÚSTAÐINN
GASOFNAR
Á ÚTSÖLUVERÐI
Innrauður gasofn með þremur
hitaflötum og -stillingum.
Eldsneyti: Propan-flöskugas
Varmaorka: 1500/3000/4500 W
Gaseyðsla: 120-350 gr./klst.
Ytri mál: H=44 D=39 B=72 cm.
15% AFSLÁTTUR
1 1 .890,- staðgr.
EINNIG RAFMAGNSÞILOFNAR
Á AFAR HAGSTÆÐU VERÐI.
/rOniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
I>V
Málefnin hafa vikið fyrir skítkasti 1 dönsku kosningabaráttunni:
Uffe er orðinn eins
og uppstökkur api
- sagði Poul Nyrup um höfuðandstæðing sinn en er sjálfur kallaður sauður
„Uffe Ellemann er orðinn eins og
úrillur og uppstökkur api,“ sagði
Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráð-
herra Danmerkur, í hita kosninga-
baráttunnar í gær. Þetta þótti tíðind-
um sæta því að jafnaði er Poul Nyrup
manna stilltastur og ræðst sjaldan
með fúkyrðum að aðstæðingum sín-
um.
Uffe haföi áður lýst því yfir að utan-
rikisstefna núverandi stjómar væri
með öllu ósýnileg. Sjálfúr var hann
utanríkisráðherra í 11 ár og hefur enn
hug á embættinu hggi stóll forsætisráð-
herra ekki á lausu. Uffe lét ekki líkja
sér við apa án þess að svara fyrir sig.
Hann kallar Poul Nyrup nú sauð.
Orðaskipti þessara helstu stjórn-
málaleiðtoga í Danmörku sýna að
málefnin hafa að mestu vikið fyrir
skítkasti. Kosningabaráttunni lauk á
stóryrðum í gærkveldi en í dag kjósa
Danir.
Poul Nyrap ákvað fyrir fáum vik-
um að boða til kosninga fyrr en nauð-
syn var á vegna deilna um nýtt fjár-
lagaframvarp. Hann tók með því
mikla pólitíska áhættu því sterkar
líkur eru á að stjórnin falli í kosning-
unum.
Það stafar þó ekki af yfirvofandi
fylgishrani hjá jafnaðarmönnum,
flokki forsætisráðherrans. Sam-
starfsflokkarnir þrír eru allir smáir
og eiga undir högg að sækja. Jafnvel
er búist við að einhverjir þeirra nái
ekki 2% lágmarkinu og þurrkist út
af þingi.
Venstre, flokki Uffe Ellemanns, og
íhaldsmönnum er samt ekki spáð
auknu fylgi þannig að vel gæti farið
svo að Poul Nyrap sæti áfram við
stjórnvölinn sem sigurvegari kosn-
inganna.
Slagurinn nú stendur ekki síður
milli Venstre og íhaldsmanna en
milli stjórnar og stjórnarandstæð-
inga. Þessir tveir berjast um foryst-
una á hægri væng stjórnmálanna.
Reuter
Uffe Ellemann-Jensen, leiðtogi Venstre-flokksins í Danmörku, hefur beitt sér af hörku á lokaspretti kosningabar-
áttunnar í Danmörku. Hann stefnir að sigri en skoðanakannanir benda til að sá sigur verði minni en líkur voru á fyrr
á árinu þegar Uffe var manna vinsælastur i Danmörku. Símamynd Poiioto
Nýjustu skoðanakannanir 1 Danmörku:
Ríkisstjórnin lifir á
stuðningi frá vinstri
Nýjustu skoðanakannanir í Dan-
mörku benda til að ríkisstjórn Pouls
Nyrups Rasmussens haldi velh þrátt
fyrir að einhverjir af núverandi
stuðningsflokkum falli út af þingi.
Talsmenn flokkanna til vinstri við
Jafnaðarmenn, flokk Pouls Nyrup,
hafa lýst áhuga á að styðja stjómina
til að koma í veg fyrir að hægrimenn
setjist í valdastólana á ný.
Sósíalíska þjóðarflokknum er spáð
6 til 7% fylgi og Einingarflokknum,
sem áður kenndi sig við kommún-
isma, er spáð tæpum fjórum prósent-
um. Gangi þetta eftir gæti Poul Ny-
rup reitt sig á fylgi þessara flokka
þurrkist bæði Kristilegi þjóðarflokk-
urinn og Miðdemókratar út af þingi.
Jafnaðarmönnum er nú spáð 36%
atkvæða. Það er einu prósenti minna
en í síðustu kosningum. Venstre,
flokki Uffe Ellemanns-Jensen, er
spáð um 20% atkvæða og dalar fylgi
hans með hverri skoðanakönnun.
íhaldsmönnum er spáð sama fylgi
og áður eða um 15%.
Verði þetta niðurstaðan hefur Uffe
Ellemann lokst tekist að gera
Venstre að stærsta borgaraflokknum
Danmörku.
Dönsku kosningarnar
50?
45-
40-
35"
30 •
25-
20-
15'
10-
5’
o-
Stjðm Sjómarandst. Vinstrifl.
DV
Framfaraflokknum er spáð um 6%
fylgi. Það er álíka stuðningur og
flokkurinn naut í síðustu kosning-
um.
Til samans er núverandi stjómar-
flokkum spáð 46,1% atkvæða. Borg-
araflokkunum í stjómarandstöðu er
spáð 41,7% og vinstriflokkunum
tveimurafganginum. Ritzau
Tafir á stjómarmyndun í Svíþjóö:
Carlsson vill ræða
meirihlufastjórn
Tafir hafa orðið á myndun nýrrar
ríkisstjórnar í Svíþjóð þrátt fyrir
ótvíræðan sigur Ingvars Carlssons
og jafnaðarmanna í kosningunum
um síðustu helgi.
Carlsson vill ræða vandlega við
Bengt Westerberg, leiðtoga Þjóðar-
flokksins, áður en hann ræðst í að
mynda minnihlutastjóm. Fyrir
kosningar lýsti Westerberg áhuga
á að starfa með jafnaðarmönnum
og vill Carlsson ekki ganga fram
hjá honum þrátt fyrir að Þjóðar-
flokkurinn hafi tapað nokkru fylgi
í kosningunum.
Eftir sem áður er talið að Carls-
son vilji helst mynda minnihluta-
stjórn. Hann kann þó bráðlega að
þurfa á stuðningi frá vinstri eða
hægri að halda. Því er skynsamleg-
ast í stöðunni að halda góðu sam-
bandi við hugsanlega samstarfs-
flokka.
Carlsson lætur hins vegar þessa
dagana eins og hann eigi allra kosta
völ og nýtur þess að enginn hefur
hag af að fella minnihlutastjórn
hans fyrst um sinn.
Ingvar Carlsson.
Hægri flokkarnir vilja bíða fram
yfir þjóðaratkvæðagreiðslu um
inngöngu í Evrópusambandið í
nóvember áður en þeir ráðast af
hörku gegn Carlsson. Vinstrimenn
vilja sjá breytta efnahagsstefnu og
verða þar að treysta á Carlsson.
Því er líklegast að Carlsson
myndi minnihlutastjórn sína fyrir
helgi og láti reyna á stuðning við
hanaánýkjörnuþingi. tt