Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1994, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
fiitstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Ðreifing: Simi
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994.
Mokveiði við Svalbarða:
Norðmenn
um borð í
SH í morgun
„Norska strandgæslan fór um borð
í togarann Má frá Ólafsvík áðan. Hún
gaf honum viðvörun og fór síöan frá
borði. Það heyrist hér að varðskipið
Senja sé á leiöinni á Svalbarðasvæði
en hér hefur bara verið eitt skip fram
að þessu. Ég heyrði þá tilkynna Má
að hann væri að ólöglegum veiðum
og sögðust koma um borð,“ sagði
Haraldur Árnason, stýrimaður á tog-
aranum Sigh, í samtali við DV í
morgun.
Haraldur, sem er á svipuðum slóð-
um og Már, sagði að það hefði verið
mokveiði í nótt hjá skipunum sem
j eru á Svalbarðasvæðinu.
Mikil spenna ríkir nú meðal ís-
lensku skipstjóranna. Togararnir
eru í tveimur hópum. Annar hópur-
inn, sem í eru 35 skip, er á Svalbarða-
svæöinu eða á mörkum Smugunnar.
Hinir eru sunnarlega í Smugunni.
Árni Sigurðsson, stýrimaður á Am-
ari HU, einu dýrasta skipi íslend-
inga, segist hafa heyrt alit upp í 30
tonn í hali hjá skipunum sem eru í
línudansinum.
„Við erum bara í rólegheitum
sunnarlega í Smugunni ásamt 8 öðr-
'T um skipum. Við tökum enga áhættu
af því að fara inn á Svalbarðasvæöið.
Við erum að fá 2 til 3 tonn í hah. Þar
eru um 30 skip sem komin eru inn á
Svalbaröasvæðið eða á línunni. Þau
hafa farið aht að 4 sjómílur inn á
Svalbaröasvæðið,“ segir Árni.
Pbkisstjómarflokkamir:
Kosningar
í vetur?
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, sem DV hefur rætt við, eru
farnir að tala um vetrarkosningar.
Þeir tala jafnvel um að kosið verði
fyrir áramót.
Eins og málin standa nú, eftir að
Jóhanna Sigurðardóttir gekk úr Al-
þýðuflokknum, telja þeir ríkisstjórn-
ina ekki hafa tryggan meirihluta á
þingi í öllum málum og því sé ekki
um annað að gera en rjúfa þing og
kjósa.
Einn þingmanna Sjálfstæðisflokks-
ins fuhyrti að ef kratar láti Guðmund
Árna ekki hætta sem ráðherra verði
borið fram vantraust á hann á Al-
þingi. Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins æth ekki að sitja fram aö kosning-
um sem samábyrgir sitji Guðmundur
Árni áfram.
„Hver ætlar að segja nei við van-
*^»trausti á Guðmund Árna?“ spurði
þessi þingmaður.
LOKI
Er ekki rétt að fara að kalla
þetta fangelsi fyrir austan
Gata-Hraun?
Eins bíður fanga
vist vegna ofbeldis
átti þátt 1 að lúberja mann í Breiðholti og ógnaði bakara með hníf
Fjórir piltar á aldrinum 15 ára til
17 ára réðust inn í verslun Nóatúns
við Kleifarsel í gærkvöld. Þar ógn-
uðu þeir starfsfólki með hníf, hrifs-
uðu peninga úr peningakassa og
hlupu út í myrkrið. Nokkuð ljóst
þykir að um sömu pilta er að ræða
og reyndu að ræna sjoppu við Selja-
braut í fyrrakvöld en þá var hníf
haldið að afgreiðslustúlku og hún
kraíln um peningana.
Tveir piltanna voru i haldi lög-
reglu í morgun en samkvæmt upp-
lýsingum DV gengu tveir þeirra
enn lausir. Annar þeirra hefur ít-
rekað komið við sögu lögreglu í
árásarmálum og hlaut nýlega 8
mánaða fangelsisdóm, þar af fimm
óskilorðsbundna, fyrir að ráðast á
Olöf Jóhannsdóttir,
stúlka í Nóatúni.
atgreiöslu-
sjötugan bakara þar sem hann var
víð vinnu sína í sama húsi og versl-
un Nóatúns er í. Tók hann taki um
báls hans og ógnaði honum með
hníf. Stuttu siðar hlaut hann annan
dóm fyrir innbrot og var þá einum
mánuði bætt við refsinguna.
Þá er annað mál á hendur honum
til meðferðar hjá ríkissaksóknara
en í mars síöastliðnum braust hann
ásamt þremur öðrum piltum inn í
verslunina Straumnes í Breiöholti.
Vegfarandi sá til þeirra og reyndi
að hefta för þeirra en þeir réöust
að honum þannig að hann hlaut
alvarleg líkamsmeiðsl. Auk þess-
ara mála hefur hann komiö við
sögu lögreglu vegna fjölda innbrota
og þjófnaðarmála. Samkvæmt upp-
lýsingum DV hafði hann ekki verið
sendur í afplánun þar sem beðið
var útgáfu ákæru í seinasta mál-
inu.
„Það komu fjórir menn hlaup-
andi inn meö lambhúshcttut og
svartklæddir. Þeir hlupu beint að
afgreiöslukössunum þar sem ég
stóð og öskruðu að okkur að opna
peningakassana. Mér brá rosalega
mikið, var mjög hrædd. Það kom
ekki til þess því þeir gátu opnað
kassana sjálfir. Þeir stoppuðu ör-
stutt inni og einn þeirra beindi
hnif aö okkur allan tímann og
varnaði okkur að komast að hin-
um. Síðan hlupu þeir út í myrkriö
með peningana," segir Ólöf Jó-
hannsdóttir, afgreiðslustúlka i
Nóatúni, umatburði gærkvöldsins,
Litla-Hraun:
Enn strjúka
þrírfangar
Þrír fangar í kringum tvítugt
struku á útivistartíma frá Litla-
Hrauni um klukkan fjögur í gær.
Fangaverðir hlupu strax til og náðu
einum fanganna íljótlega. Hinir tveir
náðust á sjötta tímanum í og við
Eyrarbakka. Fangarnir voru færðir
til yfirheyrslu í Síðumúlafangelsið í
Reykjavík þar sem þeirra bíður
væntanlega einangrun fyrir agabrot.
Aðsögn Gústafs Lilliendahl er ekki
um hættulega fanga að ræða. Þeir
sitja inni fyrir innbrot og skjalafals.
Þetta er „besti“ árangur fanganna á
Litla-Hrauni í tilraun til stroks á
þessu ári en sem kunnugt er voru
strok tið á síðasta ári.
Þrír bílar skemmdust mikið þegar þeir skullu saman á mótum Vesturlandsvegar og Þverholts í Mosfellsbæ í
gærkvöld. Flytja þurfti ökumann eins bílsins og þrjá farþega á slysadeild en þeir munu ekki vera alvarlega slasaðir.
DV-mynd Sveinn
Gústaf sagði ekkert hafa breyst
varðandi öryggi fangelsisins þegar
útivistartími fanga væri. „Við erum
með hóp af mönnum í útivist á til-
tölulega ógirtu svæði. Það er engin
breyting fyrirsjáanleg á því þrátt fyr-
ir nýja fangelsisbyggingu. Ég veit
ekki til þess að nein girðing sé þar á
dagskrá," sagði Gústaf.
Veðrið á morgun:
Kaldi eða
stinnings'
kaldi
Á morgun verður suðvestanátt,
kaldi eða stinningskaldi sunnan-
og suðvestanlands með skúrum,
en þurrt og bjart norðan- og aust-
anlands.
Veðrið í dag er á bls. 28
RAFMOTORAR
Vaulsen
L#TT#
.. alltaf á miðvikudögum
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4