Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1994, Qupperneq 4
Fréttir
Engin kennsla í sjávarútvegsdeildinni á Dalvík í dag:
Hættum námi eða
förum til Eyja
- segir fuUtrúi nemenda við deildina
„Fyrst kennarar ætla ekki að
kenna okkur á morgun þá mæta
nemendur heldur ekki í skólann og
það er varla nema um tvennt að
ræða fyrir okkur, annaðhvort að
hætta námi eða fá að stunda nám við
Stýrimannaskólann í Vestmannaeyj-
um,“ segir Páll Steingrímsson, full-
trúi nemenda við sjávarútvegsdeild
Stýrimannaskólans á Dalvík.
Hermina Gunnþórsdóttir, kennari
við sjávarútvegsdeildina, staðfesti
það við DV1 gær að kennarar ætluðu
ekki að kenna við deildina í dag, frek-
ar en þeir gerðu fyrir helgi. Ástæðan
er eins og fram hefur komið ágrein-
ingur við menntamála- og fjármála-
ráðuneytin um fjárveitingar til skól-
ans, þar á að skerða tímafjölda þótt
ekki eigi að minnka námsefni og
einnig snýst deilan um launamál
kennara. Sl. fostudag var haldinn
í sjálf heldu á syllu
Mikill viðbúnaður var hafður í inni í dölum en voru sambands-
gær þegar gangnamanns var sakn- lausir.
að og aðstoöar var þörf vegna ann- Björgunarsveitin Dagrenning frá
ars sem hafði runnið til og fallið Hólmavik var ræst út. Þegar líða
fram af kletti og endað á syllu í tók að kvöldi kom maðurinn sem
gilinuÓfæruíHvannadalsemligg- hafði verið í sjálfheldunni fram.
ur ínn af Selárdal í Strandasýslu, Honum hafði tekist að komast upp
Maöurinn, sem var saknað, var af eigin rammleik og reyndist hann
talinn vera kominn langleiðina upp óslasaður. Menn sem vissu af hon-
á Steingrímsfjarðarheiöí. Menn um höfðu kallað til hans en ekki
komust á slóð hans í snjó en élja- fengið svör og voru þvi farnir að
gangur og skafrenningur var á óttast um hann.
heiðinni. Leitarmenn fundu spor Um svipað leyti kom maðurinn
en týndu siðan slóðinni vegna að- sem var saknaö fram á á bænum
stæðnanna. Nauteyri, alla leið inni í ísaijarðar-
Gangnamenn fóru eftir hjálp og djúpi. Hann hafði þá viUst og geng-
þurftuaðgangaíumþrjárklukku- ið yfir heiðina, á þriðja tug kíló-
stundir að bfium en þaðan var metra. Stuttu áður en mennirnír
klukkustundar akstur að Geir- komu fram var TF-SIF, þyrla Land-
mundarstöðum þar sem menn helgisgæslunnar, komín í Selárdal
gerðu vart við sig og óskuöu eftir og haföi tekið heimamann um borð
hjálp við leit og aðstoð vegna til að aðstoða við leit. Kanna átti
mannsins sem var í sjálfheldunní. hvort hægt yrði að hífa sjálfheldu-
Nokkrir gangnamenn urðu eftir manninn úr gljúfrinu.
fundur ráðuneytismanna og fulltrúa
kennara þar sem ráðuneytin báðu
um vikufrest og eru kennarar mjög
óánægðir með þau svör sem þeir
fengu í ráðuneytunum.
„Eg veit til þess að einn nemandi
við deildina hefur þegar pakkað nið-
ur sínu dóti og hyggst fara til Vest-
mannaeyja í skólann þar. Ég hyggst
gera það sama leysist deilan ekki
strax og það munu fleiri fylgja á eft-
ir,“ segir Páll Steingrímsson. Hann
nefnir sem dæmi um fjárveitingar til
deildarinnar á Dalvík að þar sé
kostnaður við hvern nemenda á yfir-
standandi skólaári um 190 þúsund
krónur, en við deildirnar í Eyjum og
Reykjavík nemi sá kostnaður um 400
þúsund krónum.
Fikniefnadeild lögreglunnar um helgina:
Hálft kíló af hassi
og þrír settir inn
- einnig lagt hald á 64 lítra af landa
Þrír menn um fertugt hafa verið
úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald
vegna taisvert umfangsmikils fíkni-
efnamáls. Um hálft kíló af hassi
fannst hjá mönnunum en máhð snýst
að miklu leyti um rannsókn á dreif-
ingu efnanna. Samkvæmt upplýsing-
um frá Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hafa tveir af þremenning-
unum komið við sögu hennar áður.
Menn frá fíkniefnadeildinni lögðu
einnig hald á 64 lítra af landa í gær-
kvöldi þar sem heimabruggun hafði
átt sér stað. Kannabisplöntur og
amfetamín fundust einnig á því
heimili þar sem bruggstarfsemin fór
fram. Um helgina var auk þess lagt
hald á 2 grömm af hassi og 7 grömm
af amfetamíni í þriðju húsleitinni.
Slys vegna ölvunar
Ölvaðir ökumenn ollu slysum sem
höfðu meiösl í för með sér með stuttu
millibili aðfaranótt sunnudagsins.
Klukkan rétt fyrir fiögur um nótt-
ina þurfti aö flytja fimm manns á
slysadeild eftir bílslys sem varð á
mótum Snorrabrautar og Miklu-
brautar. Ökumaður var ölvaður en
ekki var talið að um alvarleg meiðsl
væri að ræða.
Fjórtán mínútum síðar varð slys í
Grófinni þar sem annar ölvaður öku-
maður var á ferð. Þar þurfti einnig
að flytja fólk á slysadeild.
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1994
Þrír menn urðu uppvísir að því
að stela verðmætum úr þremur
bátum í Reykjavíkurhöfn um
helgina. Þegar lögreglan fór um
borð í einn af bátunum á laugar-
dagsmorguninn, eftir að tilkynn-
ing barst, fannst áfengi og annað
sem hafði verið tekið til í bátnum
- styggð virtist hafa komið að
þjófunum.
Nokkru síðar voru mennirnir
handteknir. í bil þeirra fannst
þýfi, sjónvarp, haglabyssa, skot-
færi, áfengi, tóbak og fleira.
Mennimir viðurkenndu innbrot-
in. Samkvæmt upplýsingum RLR
er málið talið upplýst.
Kona sem kom á miðborgarstöð
lögreglunnar kærði nauðgun um
klukkan fiögur aðfaranótt
sunnudagsins. Hún var talin hafa
þekkt manninn sem hún kærði
og fór málið í rannsókn. Atburð-
urinn mun hafa átt sér stað á
heimili mannsins í vesturbæn-
um. Talsmaður Rannsóknarlög-
reglu ríkisins^ vildi ekki tjá sig um
málið í gær."
Fjórir voru fluttir á siúkrahúsið
á ísafiröi eftir að bíll fór út af
veginum við Amarnes, á leiðinni
á milli ísafiarðar og Súðavikur,
um helgina.
Bíllinn fór út af og var talinn
hafa rekið toppinn í stóran stein
í fiörunni en hann lenti engu að
síður á hjólunum. Tveir af þeim
sem slösuðust fengu að fara heím
að lokinni skoðun en tveimur var
haldið eftir á sjúkrahúsinu yfir
nótt.
í dag mælir Dagfari
Enn eru menn að ræða um Guð-
mund Áma Stefánsson og öll hans
miklu afköst í tíð sinni sem bæjar-
stjóri og ráöherra. Guðmundur er
ungur maður en hefur fylgst lengi
með stjómmálum og var í sjálfu sér
heimavanur og öllum vinnubrögð-
um kunnugur þegar hann náði
völdum í pólitíkinni. Má segja að
Guðmundi megi finna það eitt til
foráttu aö hann hefur verið dug-
legri við embættisfærslu sína en
margur fyrirrennarinn, enda hefur
Guðmundur ekkert gert sem aðrir
hafa ekki gert, nema kannski að
hann hefur gert meir.
Svo lengi sem elstu menn muna
hafa ráðherrar ráðiö venslamenn
sína og pólitíska samheija til trún-
aðarstarfa. Það hefur Guðmundur
Árni líka gert. Frá fyrstu tíð hafa
stjómmálamenn og ráðherrar haft
lag á því að eyða umfram efni.
Guðmundur Árni hefur ekki gert
annað en að feta í fótspor þeirra.
Guðmundur Ámi hefur gert ná-
kvæmlega það sem aörir hafa gert
og fyrir það er hann skammaður
og áminntur og dreginn á saka-
mannabekk eins og ótíndur glæpa-
maður.
Guðmundur Ámi veit ekki hvað-
an á sig stendur veðrið, enda hefur
Björns Önundarmálið
hann neitað öllum sakargiftum og
ef þeir ætla að fara að lýsa van-
trausti á hann í þinginu eða reka
hann úr flokknum liggur ekkert
annað fyrir hjá Guðmundi Áma
heldur en að ljóstra upp um alla
hina sem hafa hagað sér nákvæm-
lega eins og hann. Þar er af nógu
að taka.
Guðmundur hefur ekki gert
nema ein mistök. Hann hefur fallist
á og viðurkennt að með ráðningu
hans á Birni Önundarsyni sem sér-
stökum ráðgjafa hafi kannske verið
fulllangt gengið. Guðmundur Árni
tók einhvem veginn þánnig til orða
í sjónvarpsþætti um daginn: „Ef
það er endilega vilji fólksins, þá get
ég sosum viðurkennt aö ég hafi
gert mistök með því að ráða Bjöm.“
Þetta átti Guðmundur Árni aldrei
að segja. Bjöm Önundarson hefur
starfað um árabil fyrir Trygginga-
stofnun ríkisins og var á sínum
tíma sakaður um að hafa vantalið
til skatts, það sem hann fékk borg-
að hjá Tryggingastofnun vegna
greiðasemi við þá stofnun. Björn
var tekinn í rannsókn og hefur nú
verið dæmdur til að greiða veruleg-
ar upphæðir til skattsins. Fyrir
vikið var honum sagt upp störfum
hjá Tryggingastofnun, sem er óm-
aklegt, vegna þess aö Björn hafði
ekkert gert af sér gagnvart Trygg-
ingastofnun.
Nema hvaö, Guðmundur Ámi
þekkir vel til Björns Önundarsonar
og veit hver afbragðsmaður hann
er og fékk hann því til að taka að
sér athugun á því hvernig megi
spara gagnvart læknum og draga
úr greiðslum til þeirra. Enginn er
betur að sér um kjör lækna og
sporslurnar sem þeir hafa heldur
en Björn Önundarson og Guð-
mundur Árni gat ekki valið sér
betri mann. Þetta er það besta sem
Guðmundur Árni hefur gert.
Einmmitt það að fá lækninn, sem
hefur orðið uppvís að því aö kunna
á kerfið og leika á kerfið og ná út
úr því peningum, er aðferðin sem
best dugar til að komast að því
hvernig megi spara.
Ef dómsmálayfirvöld vilja kom-
ast að því hvernig draga megi úr
ofbeldi í þjóðfélaginu þurfa þau að
leita austur á Litla-Hraun og spyrja
fangana sem sitja þar í einangrun
vegna ofbeldisverka sem þeir hafa
drýgt. Engir vita betur um ofbeldið
heldur en ofbeldismennirnir sjálf-
ir. Það gefur augaleið.
Ef menn vilja upplýsa skattsvik
þá er einfaldasta og öruggasta leið-
in að fá skattsvikarana í lið með
sér til að láta þá segja frá því hvern-
ig menn svíkja undan skatti.
Svona ráðgjafa á að launa vel og
það margborgar sig. Enda samdi
Guðmundur Árni við Bjöm Ön-
undarson um að Björn fengi sjálf-
dæmi um að ákveða sín laun fyrir
viðvikið sem hann gerði Guðr'iundi
Áma. Það er ekki gagrýn.svert.
Það er sjálfsagt mál að sérfræðing-
ar á borð við Björn Önundarson fái
að ráða því sjálfir hvað þeir fá borg-
aö fyrir að þjóna ráðherrum.
Nei, það voru mistök hjá Guð-
mundi Árna að játa á sig mistök í
sambandi við ráðningu Björns. Það
eru einu mistökin sem Guðmundur
Ami hefur gert. Að öðru leyti hefur
hann hagaö sér nákvæmlega eins
og aðrir áhrifamenn í stjómmál-
um. Bara verið ofurlítið duglegri
við það!
Dagfari