Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1994, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1994, Side 11
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1994 11 Menning Ur djúpinu Sannar sögur af sálarlífi systra er leikgerð unnin upp úr þeim skáldsögum Guðbergs Bergssonar sem stundum hafa verið settar undir eirrn hatt og kallaðar Tangasögur. Viðar Eggertsson ræðst í það sem fyrir fram virðist vera óvinnandi verk, að koma veröld bókanna í sýni- legt form, veröld, sem er í senn jarðbundin og upphaf- in, einfóld og um leið ótrúlega flókin og ólíkindaleg. Hann velur þá leið, að bregða upp svipmyndum, hráum og hröðum, sem endurspegla andrúmsloft bók- anna, en gefa þó fyrst og fremst innsýn í hugarheim persónanna. Þær öðlast líf á sviðinu og tilveran í sjávarþorpinu er í senn beisk og grátbrosleg. Flæði í sýningunni er stöðugt og persónusköpun leikara oft makalaus. Ytri umbúnaður rímar prýðilega við innihaldiö, þannig að sennilega geta aðdáendur Guðbergs verið vel sáttir við „myndskreytinguna". Persónurnar rísa upp af síðum bókanna svoldið hissa á veröldinni, eins og leikarar, sem hafa villst inn í vitlausa leiksýningu. Fiskar dregnir úr djúpinu og strandaðir í ókunnugu þorpi. Persónuflóran hyggist á týpum og við vitum mest lítið um þetta fólk annað en brot af hugsunum þess. Leikmynd og búningar taka upp tóninn úr textanum og undirstrika hann. Það er ekki hægt að segja, að hð- ið sé mikið fyrir augað, konumar í kjólgopum, eða hreinlega á undirkjólum og karlarnir á nærbrókinni. En einmitt þessi lausn smehpassar fyrir andrúmsloft sagnanna. I leikarahópnum mæðir mikið á Ingrid Jónsdóttur, sem leikur Önnu og seinna Gunnu. í hlutverki Önnu leikur hún á dýptina og gefi textinn þessari persónu hálft líf, hyggir Ingrid hinn helminginn upp með túlk- un sinni. Svo var reyndar um fleiri hlutverk í sýning- unni. Þóra Friðriksdóttir sýnir stjömuleik í maka- laust vel unnu hlutverki ókunnu konunnar. Hvert smáatriði var hstilega útfært og hrein unun að fylgj- ast með leik hennar. Kristbjörg Kjeld brást ekki í hlutverki Tobbu, en var þó enn þá betri sem Sína frænka. Herdís Þorvaldsdótt- ir setti svip á fjölskyldulífiö í hlutverki Sveinu gömlu og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir vann vel og sann- færandi úr vandasömu hlutverki Dídíar, sem er ekki alveg eins og fólk er flest. Steinunn var líka bráðgóð í sögunni af Gunnu og Tótu, þar sem Ingrid Jónsdótt- ir fór alveg á kostum í hlutverki Gunnu. Það má heldur ekki gleyma því að kímni og kaldhæð- inn húmor eru undirliggjandi þættir í gegnum aha sýninguna og þarna í sögunni af Gunnu og Tótu fer allt á fuht í kostulegri lýsingu á sveitapíum sem bregða sér á ball í höfuðstaðnum. Guðrún S. Gísladóttir leikur Katrínu sem er nærri því eins og af öðrum heimi í þessu samfélagi. Guðrún er firnagóð í hlutverkinu, túlkun hennar byggist á innsæi og persónan er í þungavigt í sýningunni. Jón St. Kristjánsson, Valdemar Flygenring og Björn Karls- son fara allir vel með heldur stöðluð hlutverk karlpen- ingsins í verkinu og Höskuldur Eiríksson túlkaði drenginn Hermann á lifandi og eðlilegan máta. Þaö er ómögulegt að gefa einhvem haldbæran leiðar- Guðrún S. Gísladóttir, Ingrid Jónsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir í hlutverkum sínum. Leiklist Auður Eydal vísi um þessar sögur. Áhorfendur verða að finna sinn eigin veg að persón- unum, lífinu, púlsinum í þeirri ólíkindaveröld sem Guðbergur skapar í Tangasögunum. Þar er ekkert sem sýnist, persónur eru einar, tvíeinar og jafnvel þríein- ar, leysast upp eða renna saman, allt eftir því hvað hentar tónsprota höfundarins. Það gildir einu, hvort áhorfandinn er kunnugur bók- unum eða ekki, hann verður að láta atburðarásina skolast yfir sig, ganga athugasemdalaust inn í veröld sjávarþorpsins og sjá þar fólk og fénað með gleraugum Guðbergs. Þar gengur lífið sinn gang, stundum rólegt, stundum með látum og hlítir sjaldnast lögmálum um dramatíska uppbyggingu. Söguþræðirnir eru margir, þeir vindast saman og rakna sundur, rísa og hníga eins og öldumar í fjöruborðinu. Og þessi veröld sleppir manni ekki svo glatt. Þjóöleikhúsió sýnir á Smiðaverkstæðinu. Sannar sögur af sálarlifi systra. Leikgerð Viðars Eggertssonar unnin upp úr Tangasögum Guðbergs Bergssonar. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson. Búningar: Ása Hauksdóttir. Tónlistarumsjón: Jóhann G. Jóhannsson. Aðstoðarleikstjóri: Ásdis Þórhallsdóttir. Leikstjóri: Viðar Eggertsson. Ljóðatónleikar í Haf narborg Tónleikar voru í Hafnarborg í Hafnarfirði í gærkvöldi. Erna Guð- mundsdóttir, sópran, söngeinsöng. Hólmfríður Sigurðardóttir lék á píanó. Á efnisskránni voru verk eftir Franz Schubert, Claude De- bussy, Gabriel Fauré, Darius Mil- haud, Wolfgang Amadeus Mozart, Gaetano Donisetti, Léo Delibes og Johann Strauss. Tónleikarnir hófust á nokkrum sígildum perlum eftir Schubert. Þvínæst komu nokkur sjaldheyrð- ari verk eftir franska meistara. Lögin eftir Debussy og Fauré, sem þama voru flutt, hljómuðu mjög fallega. Þá var ekki síður forvitni- legt að heyra lagaflokk eftir Mil- haud, Chansons de Ronsard, þar sem víða kom fram mikil færni í gerð fjölbreyttrar og glæsilegrar laglínu með einkar persónulegum blæ. Eftir hlé var komið að óperuar- íum. Óperan Zaide eftir Mozart er ekki meðal hans þekktustu. Hand- bragð snillingsins fer þó ekki fram hjá neinum í aríunni Ruhe sanft, mein holdes Leben. Það er með ólíkindum hve Mozart leyfir sér að teygja sig langt í einfaldleika í þessu verki og heldur þó alltaf full- Tónlist Finnur Torfi Stefánsson um áhrifum. Arían eftir Donisetti, sem þarna var flutt, er heldur þunnur þrettándi og hljómar frek- ar eins og raddbandaæfing fyrir söngvarann. Bjölluarían eftir Dehbes hljómaði hins vegar vel. Hún minnir nokkuð á aríu Nætur- drottningarinnar með brotnum hljómi sem eins konar vörumerki. í lokin var fluttur einn af sígildum smellum Jóhanns Strauss. Erna Guðmundsdóttir söng þessi verk mjög fallega. Rödd hennar er skýr og tær og flutningurinn ör- uggur, þó án sérstakra tilþrifa í túlkun. Henni lætur mjög vel color- atura söngur á háu tónsviði, sem er sjaldgæf gáfa, og margar tækni- lega erfiðar þrautir í þá veru leysti hún með mikilli prýði. Píanóleikur Hólmfríðar Sigurðardóttur var yf- irleitt góður. Schubert hljómaði sérlega vel. Einna sístur hjá henni var leikurinn í sumum óperuaríun- um. Það er og efni sem lætur mörg- um píanóleikurum heldur illa, enda oftast samið fyrir hljómsveit og fellur því ekki alltaf nógu vel að píanóinu. DROPLAUGARSTAÐIR heimili aldraðra, Snorrabraut 58 Hjúkrunarfræðing vantar í 60%starf á Vístdeild. Einn- ig vantar starfsmann í 85% í býtibúr og ræstingu á Hjúkrunardeild. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811 milli kl. 13 og 16 alla virka daga. LÁTTll EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! ||^FERÐAB FJARSTYRÐ UPPHITUN Norsk hönnun og framleiðsla Nemko-samþykkt SUMARHÚSA-/HJÓLHÝSAEIGENDUR Martröð allra bústaðaeigenda Þú þekkir stöðuna. Veðurspáin er góð fyrir næstu helgi og þú ákveöur að fara í bústaðinn en veigrar þér viö því að koma í hann kaldan og þú veist að hann verður ekki orðinn heitur fyrr en seinni part laugardags. Uni-Styr - einfalt og öruggt Lausnin er Uni-Styr! Þú hringir í símboða í bústaðnum úr hægindastólnum heima og lætur Uni-Styr kveikja á hitanum. Bústaðurinn er þá orðinn hlýr og góður við komuna þangað. Nýjung sem hlýjar ■ hagstætt verð INGÞÓR HARALDSSON HF„ HAMRABORG 7 (NORÐANMEGIN) KÓPAVOGI. SIMI 91-44844 „I léttum leik“ er þriðja hljómplata harmoníkusnillingsins Braga Hlíóbergs og sú fyrsta sem gefin er út á geislaplötu. Á plötunni fá unnend- ur nikkunnar fjölmargt fyrir sinn snúð. ÍSLENSK DÆGURLÖG, ERLEND LÖG OG VALS- AR þar sem hlustandinn færist úr íslensku stofunni mitt yfir í glaðvært götulíf Parísarborgar. JAPISS Brautarholti og Kringlunni, s. 625200 E-VÍTAMÍN er öflug vörn fyrir frumur líkamans Skortur á E-VÍTAMÍNI veldur sjúkdómum og ófrjósemi hjá dýrum. Vitneskja um þetta hefur gert E-VÍTAMÍN þekkt sem kynorkuvítamínið.Yfirgripsmiklar rarinsóknir benda til að E-VÍTAMÍN sé mikilvæg vöm gegn alvarlegum sjúkdómum. E-VÍTAMÍN er öflugt andoxunarefni (þrávarnar- A -• . efni) sem ver frumur líkamans með því að hemja skaðleg sindurefni. E-VÍTAMÍN vinnur þannig gegn hrörnun frumanna. Rannsóknir hafa einkum beinst að E-VÍTAMÍNI til viðhalds heilbrigðu hjarta og starfsemi þess. GULi MIÐINN TRYGGIR GÆÐIN! Éhi leilsuhúsið Kringlunni simi 689266 Skólavörðustíg sími 22966

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.