Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994 Fréttir Kirkjan lánar syni sóknamefndarformannsins á Bildudal hús: Fær að búa leigu- frítt á prestssetrinu - sóknarpresturinn hefur verið í leyfi 1 þrjú ár „Prestsbústaðir hvarvetna á land- inu eru ekki í umsjón sóknarnefnda. Til skamms tíma voru þeir á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins en ég held að nú sé búið að færa þetta undir biskupsembættið. Þetta er því algjörlega sóknamefndunum óviðkomandi. Hvort sem um er að ræða son minn eða systurson," segir Snæbjöm Ámason, sóknamefndar- formaður á Bíldudal, en athygli hef- ur vakið að sonur hans býr í embætt- isbústað prestsins á staðnum án þess að greiða leigu fyrir. Sonurinn greið- ir þó hita og rafmagn. Þar á undan hafði systursonur sóknamefndarformannsins búið i húsinu um hríð, einnig án þess að greiða leigu á sömu kjörum. Snæ- björn segist ekkert hafa með þessi mál aö gera að öðm leyti en því að hafa lyklavöld að húsinu þegar eng- inn búi þar. „Þetta er mál milli leigusala og leigutaka og ég hef ekkert með það að gera á neinn hátt. Ég hef ekki umsjón með þessu húsi nema þegar enginn er í því. Þá hefur konan mín séð um að fylgjast með húsinu,“ seg- ir Snæbjörn. „Kona sóknamefndarformannsins hafði samband við okkur í vor og óskaði eftir að sonur hennar fengi að vera í húsinu sem þá stóð autt. Við samþykktum það enda ipjög dýrt að reka svona hús á þessum slóð- um,“ segir Guðmundur Þór Guð- mundsson, formaður prestssetra- sjóðs sem hefur með umsýslu prests- setra að gera. Guðmundur segir að ekki hafi ver- ið hægt að ráðstafa húsinu í leigu til lengri tíma þar sem presturinn á Bíldudal sé í leyfi sem að vísu hafi nú staðið í þrjú ár. „Leyfi prestsins er orðið lengra nú en stóð til. Við erum bundnir af þvi aö skila honum húsinu þegar hann kemur til starfa aftur,“ segir Guð- mundur. Félagsdómur komst aö þeirri niðurstöðu í gær að boðað verkfall FIA gegn Atlanta-flugfélaginu væri löglegt en einnig að Frjálsa flugmannafélagið væri fullgilt stéttarfélag en í þvi eru allir starfandi flugmenn Atlanta. Verkfall FÍA hófst á hádegi i gær en það mun ekki raska starfsemi Atlanta nema önnur verkalýðsfélög gripi til samúðar- verkfalia. Á myndinni eru þeir Arngrímur Jóhannsson, forstjóri Atianta, og Hreinn Loftsson, lögmaður flugfélags- ins, að skoða dóminn. Til athugunar hefur verið að flytja starfsemi Atlanta úr landi ef verkfallsaðgerðir raska starf- seminni. DV-mynd BG Hæstiréttur felldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotapilti: NHján brot ekki nægileg ástæða - RLR gerði ekki grein fyrir fleiri málum til meðferðar Stuttar fréttir Borgarspitalinn ívanda Niöurskuröur blasir við á Borg- arspítalanum verðifjárlagafrum- varp rikisstjórnarinnar sam- þykkt óbreytt. Framkvæmda- stjóri spítalans hefur ritað þing- mönnum bréf þessa efnis. Skólabílarí Mosfellsbæ Akstur skólabíla hefst væntan- iega í Mosfellsbæ um næstu mán- aðamót. Samkvæmt Tímanum er núverandi meirihluti aö efna kosningaloforö sitt frá því í vor með þessu. Dýrferðalög Árleg útgjöld ríkisins vegna feröalaga og risnu nema um 2 milijörðum króna. Vísbending greindi frá þessu. Jökulláhlaupum Tungnaáijökull hleypur dag- lega fram um 2 metra, en hlaup hófst í jöklinum fyrir skömmu. Mbl. segir hklegt að jökulhnn muni leggja undir sig nókkurra kilómetra svæöi áður en hlaupið stöðvast. Hagnaður í Eyjum Vinnslustöðin í Vestmannaeyj- um hefur lækkaö skuldir sínar um 700 milfjónir frá því I fyrra- sumar. Heildarhagnaöurinn á tímabfiinu nam 215 milfjónum króna. Mbl. greindi frá þessu. Aðildarumsókn strax Jón Baldvin Hannibalsson vill að ísland sæki strax á næsta ári um aðild að Evrópusambandinu. Sjónvarpið hafði þetta eftir hon- um í tilefni ESB-þjóðaratkvæða- greiðslunnar í Finnlandi. Vanmetinlauna- hækkun Úrskurður kjaranefndar um laun presta í nóvember færöi þeim helmingi meiri launahækk- anir en gert var ráö fyrir. í fjáraukalagafrumvarpinu er far- ið frara á 30 milfjóna króna auka- fjárveitingu vegna þessa. Háirvextirá húsbréfum Vextir á húsbréfum voru 5,65% í gær og hafa ekki verið hærri í ár. Sjónvarpið greindi frá þessu. Hæstiréttur telur nítján fyrri af- brot ekki nægileg efni til að sam- þykkja gæsluvarðhaldsúrskurö yfir 19 ára síbrotapilti á þeim forsendum að hætta þyki á að viðkomandi haldi brotum sínum áfram. Þetta kemur fram í dómi frá 7. október. Gæslu- varðhaldsúrskurður var þá felldur úr gildi vegna innbrota í 22 fyrir- tæki. Ástæðan var einnig sú að Rannsóknarlögregla ríkisins hafði ekki „gert grein fyrir“ að hún hefði fleiri mál til meðferöar á hendur honum. Eins og fram kom í DV í gær eru fjölmargir lögreglumenn ósáttir við viðbrögð Hæstaréttar sem hefur fellt úr gildi gæsluvaröhaldsúrskm-ði yfir svoköUuðum síbrotamönnum. í maí var umræddur piltur dæmd- ur í átta mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundið, fyrir 19 innbrot og þjófnaði á tímabilinu frá desember 1993 til mars 1994. Hann fór ekki í afplánun. Aöfaranótt 29. september síöasthöinn var pilturinn handtek- inn. Hann var grunaður um aðild að þjófnaði, þjófnaðartilraun og inn- brotum í 22 verslanir, veitingahús, skrofstofunúsnæði og fleiri fyrirtæki í Reykjavík um nóttina. Farið var fram á gæsluvarðhald á þeim for- sendum að ætla mætti að pilturinn héldi „áfram brotum sínum á meðan máli hans væri ekki lokið“. Þetta féllst héraðsdómur á en Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi. Forsend- urnar voru þær að rannsókn málsins varðaði ferðir mannsins eina nótt en RLR hefði ekki gert grein fyrir því aö önnur mál væru á hendur honum, fjórir mánuðir væru liðnir frá því aö gæsluvarðhaldi lauk í tengslum viö að fyrri brotahrinu lauk. „Sam- kvæmt framansögöu og þegar htið er til sakarferils varnaraðila þykir ekki nægilegt tilefni til gæsluvarð- halds hans,“ á þeim grundvelh aö ætla megi aö hann haldi brotum áfram á meðan máh hans er ekki lokið. Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu- þjónn hjá RLR, sagði við DV í gær að þegar dómstólar viðurkenndu að „stoppa þyrfti menn af‘ þar sem þyrfti að klára mál á hendur þeim úr kerfinu væri gjaman falhst á 30-40 daga gæsluvarðhald. Þetta væri þó háð mati hverju sinni. „Við erum að reyna að stoppa menn af. Það er stöðugt að bætast við mál á hendur þeim sem ekki næst aö klára. Héraðsdómur feUst oftast á kröfurnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hæstiréttur fellir úr gildi,“ sagði Hörður. VantrauststUlagan: Fjarvera ráð- herra kemur ívegfyrir umræður Nokkur umræöa varð á Alþingi í gær utan dagskrár þegar Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Al- þýðubandalagsins, spuröi forseta Álþingis hvenær taka ætti fyrir og ræða framkomna vantrausts- thlögu. Hann sagði vantrauststil- lögu eiga að hafa forgang í þing- inu. Hann sagði því boriö við aö nokkrir ráðherrar væru erlendis. Þess vegna væri ekki hægt aö segja til um hvenær hægt yrði að taka tihöguna tíl umræðu. Hann sagði að það myndu þyhja tíðindi í lýðræðisríkjum ef ráðherrar teldu sig hafa mikilvægari erind- um að gegna erlendis en að ræða vantraust á sig heima íyrir. Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþíngis, benti á að venjan væri sú aö ná samkomulagi miUi þing- flokka hvenær umræða um van- trauststiUögu fer fram. Hún benti líka á að, eins og fram hefði kom- ið, ráðherrar væru fjarverandi. Væntanlega yrði Davíð Oddsson kominn heim á miðvikudag. Nokkrir fleiri tóku til máls og meðal annars upplýsti Friörik Sophusson, fjármálaráðherra og sitjandi forsætisráöherra, að Davíð Oddsson forsætisráðherra væri erlendis í einkaerindum. Rannveig Guömundsdóttir, þing- flokksformaður Alþýðuflokksins, upplýsti að Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra og Össur Skarphéðinsson um- hverfisráðherra væru staddir á þingi Sameinuðu þjóðanna. Sjálfstæöisflokkurinn: Norðurlandi eystra „Það var auglýst eftir fóUti sem vUdi gefa kost á sér á framboös- listann en það komu engir sem sóttust eftir efstu sætunum. Það var því ekki talin ástæða til að efna til prófkjörs heldur var list- inn vahnn af tvöfóldu kjördæmis- ráði,“ sagði HaUdór Blöndal, samgöngu- og landbúnaðarráð- herra, en hann skipar 1. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Norð- urlandskiördæmi eystra sem ákveðinn var um síðustu helgi. Efstu sex sætin á listanum skipa: l. Halldór Blöndal sam- göngu- og landbúnaðarráöherra. 2. Tómas Ingi Olrich alþingis- maður, Akureyri. 3. Svanhildur Arnadóttir bæjarfulltrúi, DalvUc, 4. Jón Helgi Björnsson líffræðing- ur, Laxamýri. 5. Anna Fr. Blönd- al tækniteiknari, Akureyri. 6. Gunnlaugur J. Magnússon raf- virki, Ólafsfiröi. Sjálfstæðisflokkurinn: Listinn á Austurlandi Framboðshsti Sjálfstæðis- flokksins í Austurlandskjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar hefur verið ákveöinn. Efstu sæti listans skipast samkvæmt úrsht- um í prófkjöri fyrr í þessum mán- uði. Fimm efstu sæti hstans skipa: 1. EgiU Jónsson alþingis- maöur, SeljavöUum. 2. Ambjörg Sveinsdóttir fjármálasfjóri, Seyö- isfirði. 3. Kristinn Pétursson fisk- verkandi,. Bakkaflröi. 4. Sigurð- ur Eyraundsson umdæmisstjóri, Egilsstöðum. 5. Ólafur Áki Ragn- arsson sveitarstjóri, Djúpavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.